Morgunblaðið - 21.12.2018, Page 38

Morgunblaðið - 21.12.2018, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Tilvísunum er sleppt. Engjar Engjar tóku víða við er túni sleppti. Á öðru stöðum voru þær fjærri bæ og langur heybandsvegur var óskostur á jörð. Fjöldi örnefna tengist orðinu engi og tengjast mörg fyrstu byggð landsins. Engidalur heitir sunnan við Þórsmörk. Á brúninni ofan hans eru bæjar- rústir. Þar hefur byggð lagst af á 11. öld, ef ekki fyrr. Engey við Reykjavík hefur væntanlega verið engi fyrstu byggðar þar. Dæmi hitlust þess að meginengi landjarðar hafi verið á eyju langt frá landi. Svo var um Brjánslæk á Barðaströnd. Í Barð- strendingabók, 1942 segir: „Engja- slægjur eru litlar að Brjánslæk nema í Engey. Hún er í fjarðarminn- inu, fjórðung viku frá landi. Hefur hún löngum verið talin fóturinn und- ir jörðinni. Var það gamalt mál að eyjan skilaði átta kýrfóðrum af töð- ugæfu heyi í meðalári.“ Engjar voru með ýmsum hætti. Þær skiptust í mýrar og valllendi. Gróður á mótum þeirra gróðurlenda hét á milli mýrar og valllendis. Yfir- borð engis gat verið rennislétt, þýft, greiðfært, kargi, óberja, þjátta, ritta, rittumýri, hrakengi. Að rak- lendi lúta orðin áveituengi, flæður, flæðiengi, svæður, blá, ósengi, vatnsengi, bleytudammur. Óvæginn beinir þjóðskáldið orðum að hrak- engi í frægu aldamótaljóði: Sinumýrar, rotnar, rýrar, reyta svörul hjú. Gjöful engi voru hér og þar í öllum landshlutum. Oft var á orði haft starengið mikla sem verið hafði í Töglunum á Syðri-Steinsmýri í Með- allandi. Þar var störin svo hávaxin að hægt var að hnýta saman star- artoppana yfir herðakamb á hesti. Kýr hurfu ef þær leituðu inn í gróð- urbreiðuna. Það þýddi ekki að leggja frá sér orf og ljá öðruvísi en svo að í leit þurfti að leggja eða týndust með öllu. Stórbýlið Skúmsstaðir í Vestur- Landeyjum varð undirorpið vatns- flæði ofan frá Þverá undir lok 19. aldar og gerbreytti öllum aðstæðum við heyskap: „Það var farið á bát út í engjarnar og skorið á, sem kallað var. Ljánum var beint langt niður í vatnið og grasið skorið niður við rót eða neðarlega. Svo flaut grasið upp og flaut undan vindi. Þá var það flutt upp á tún til þurrkunar.“ Engjar hins forna stórbýlis Odda á Rangárvöllum voru á Oddaeyrum, miklum grashólma í farvegi Þverár. Þær gáfu af sér um 1000 hestburði ár hvert. Oddaflóð voru nafnkunn. Um þau segir Vigfús Guðmundsson fræðimaður frá Keldum í sögu Odd- astaðar sem út kom 1931: „Spölkorn frá túni, til útnorðurs, eru Oddaflóð, stararflóð býsna mikil, sem lítt verða notuð vegna foræðis og botnleysu. Hafa þó orðið bjargvættur margra bæja í verstu grasleysisárum, sér- staklega 1881, með því líka að þar var þá enn um sláttinn klaki í botni svo víða mátti hestum við koma.“ Kristín Skúladóttir frá Keldum, bróðurdóttir Vigfúsar lýsir heyskap í Oddaflóðum af eigin reynslu: „Það var erfitt að heyja í Oddaflóðum, vatnið var sumstaðar í hné og þurfti þá að slá í skára og draga heyið svo með reiðingshesti upp á þurrt. Hest- urinn gat ekki stigið út í flóðin og ekki var hægt að þurrka heyið í flóð- inu. Langur vaður var settur fyrir endann á skáranum, hesturinn dró hann síðan upp og það var afar erf- itt. Svo breiddum við Aldís heyið út á bakkann til Ytri-Rangá … það var erfitt að breiða út þessar hrúgur og vorum við oft eins og leirstykki á eft- ir.“ Mest og víðfrægast engi í Rangár- vallasýslu á 19. öld og fram undir 1920 var Safarmýri vestan Ytri- Rangár, neðan Vetleifsholtshverfis í Holtum og ofan Þykkvabæjar. Nafn- ið er dregið af orðinu söf, stararheiti, óvíst hvaða tegund. Þrjár uxu í mýr- inni, mýrastör, gulstör og blástör, sem einnig nefndist blágufa. Gulstör náði mestum þroska. Sæmundur Eyjólfsson, starfsmaður Búnaðar- félags Suðuramtsins, gerði ítarlega grein fyrir Safarmýri í Skýrslu þess 1896. Mýrin átti vatnsflæði sitt og frjósemi að sækja til Ytri-Rangár og Þverár eftir að megin hluti Markar- fljóts féll í farveg hennar. Vatns- flaumurinn féll vestur í Þjórsá ofan við byggðarhverfið Þykkvabæ. Sæmundur segir um Safarmýri: „Hún er hjer um bil 4233 vallardags- sláttur að stærð. Vetleifsholtið á hjer um bil 2032 dagsláttur, Þykkvi- bærinn 1464 dagsláttur, en Bjólan ásamt Hrafntóftum 737 dag- sláttur … Alstaðar er grasið mikið í Safarmýri, en þó er það mjög mis- jafnt. Mest er grasið við suðurjað- arinn, enda hef ég hvergi séð slíkan grasvöxt. Það er líkara kornakri en óræktuðu engi. Sumstaðar er grasið axlarhátt ef rétt er úr blöðunum og að sama skapi er það þjett. Þá er rið- ið er um þessi svæði, er sem verið sje að ríða þungan straum á miðjar síður. Grasið fellur aftur með síð- unum og brautin sjest langar leiðir. Þannig má fara um stór svæði, al- staðar blasir við þessi geysimikli grasvöxtur svo langt sem augað eyg- ir. Eftir því sem norðar kemur í mýrina, verður grasvöxturinn minni og norðan til er hann eigi líkur því sem er við suðurjaðarinn, þótt hann sje alstaðar mikill. Þessi mismunur kemur af því að vatnið úr ánni flæðir jafnar og stöðugar yfir mýrina sunn- antil en norðantil.“ Sæmundur segir að Safarmýri hafi verið slegin að mestu leyti árin 1877 og 1881. Hann ber Þórð Guð- mundsson bónda og alþingismann í Hala fyrir því að þá hafi verið fluttir úr mýrinni hvort sumarið vart minna en 40 þúsund hestburðir. Þetta voru neyðarár í búskap og fjöldi bænda úr Holtum, ofan úr Landsveit og af Rangárvöllum sóttu þá heyskap í Safarmýri. Hafliði Guðmundsson bóndi í Búð í Þykkvabæ (f. 1886) fræddi mig um heyskap á Safarmýri: [...] Engjaleiðin okkar, inn í þessa víðfrægu Safarmýri, grasgefnasta engi landsins, var enginn sældar- vegur. Það þurfti sérstakt lag að vera á því að binda heyið þegar stað- ið var að hirðingu af Safarmýri eða innan af engjum, því alltaf voru á leiðinni álar með meira eða minna millibili. Þeir voru yfirleitt alltaf á bóghnútu, oft og tíðum í taglmark. Heyið var bundið svo upp að silinn var alltaf í miðjum bagga. Bagginn náði því lítið niður fyrir meljuna. Ekki blotnaði heyið til muna væri vatnið ekki dýpra en í bóghnútu, en allt hvað vatnið gekk hærra þá skemmdist bagginn meira eða minna. Á heimari engjum var það alltaf að einhver bakki var við álana og hægt að draga heyið þar upp á eða bera það upp á í sætið. Þá var hver sátan hjá annari á bakkareimunum. Ekki bar mikið á því að hestarnir lægju í undir böggunum. Það var nú það góða við botninn, þegar búið var að troða brautina. Á einstaka stykki varð vart við ófæru og eitthvað var gert við því, helsta ráðið var þó að bera hey í fúakeldurnar. Heybaggar voru kringum 80 pund á þyngd. Nokkuð var það, að þegar fram kom á tímann, þá var það vigt- að og voru það baggar eins og vana- legt var að hafa og þeir vigtuðu í kringum 80 pund. Það fór ekki hjá því að mikið dó úti af stör ár hvert í Safarmýri. Á ísnum að verti gat þar oft að líta breiður af ísastör. Mörg voru dæmi þess þar og víðar að hún væri slegin til fóðurs og nýttist vel. Hafliði í Búð sagði mér frá notkun Þykkbæinga. Þeir bjuggu venjulega fremur vel að heyjum og hirtu ekki um ísastör til fóður sem höfðu hennar nokkur not. Eftir Hafliða skráði ég: „Það var far- ið að Kálfalæk og inn í Safarmýri í þá slægju sem ekki náðist að sumr- inu, ef það greip í báli vötnin fyrst. Sagt var, ef það gerði snarpt frost og hægt var að komast inn á mýri áður en fór að hlaupa og allt fór í kaf af ísi, að það gripi í báli. Við seinni frost fóru álarnir að spýta og allt fór undir ís. Um þessar aðstæður var sælst til þess að ná í ísastör í rúmin. Hún var fyrirtak í rúm og reynt að skipta um hana á hverju hausti og sæta þurfti lagi áður en fór að kreppa að vötn- unum og álar að hlaupa upp.“ Ísastör var vel kunn víða um land. Þorbergur Bjarnason bóndi í Álfta- veri, Meðallendingur, f. 1902, mundi vel til hennar: „Ísastör var slegin í stararflóðum eftir að ísa lagði. Hún var notuð til fóðurs, einnig í rúm undir sængur og fyrir kom í vor- harðindum að gripið var til rúm- hroðans, enda allt hey í harðindum. Fló þótti sækja í ísastör í rúmum.“ Svæður, blá, ósengi, vatnsengi, bleytudammur Heyannir heitir ný bók eftir Þórð Tómason fyrrverandi safnvörð í Skógum undir Eyjafjöll- um. Í bókinni fjallar Þórður um heyskap fyrri alda og fléttar þar saman þjóðfræði og atvinnu- sögu, lýsir verkfærum og vinnubrögðum, hey- torfi, reipum og reiðingum, engjaheyskap, veður- boðum og margvíslegum siðum og orðfæri. Ljósmynd/Helgi Arason. Engjasláttur Hér er fjölmenni við heyskap á Fagurhólsmýri árið 1914. Frá vinstri eru þau Ingunn Aradóttir, Ingi- björg Pálsdóttir, Sigurður Finnbogason, Ari Hálfdanarson, Sigurður og Hálfdan Arasynir. Ljósmynd/Helgi Arason Heyjað Slóðað á engjum, þ.e. blautt heyið dregið upp á bakka úr svæðum til að þurrka. Hér eru Sigurður Björnsson og Ari Björnsson á Kvískerjum. SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.