Morgunblaðið - 21.12.2018, Side 44
WOWXMAS
TIL ALLRA ÁFANGASTAÐA MEÐ KÓÐANUM
FERÐATÍMABIL: 7.1 - 10.6, 2019
Það er í góðu lagi því nú getur þú fengið
50% afslátt af flugi til allra áfangastaða
okkar með kóðanum WOWXMAS.
Ekki klikka á þessu, tilboðið gildir út
sunnudag. Komdu þér í jólagírinn og
fljúgðu á vit ævintýranna með WOW air.
FÉKKSTU
KARTÖFLU
ÍSKÓINN?
*Til að nýta afsláttinn þarf að bóka flug fram og tilbaka fyrir kl 23:59
sunnudaginn 23. desember, 2018. Skilmálar gilda: wowair.is/smattletur
„Alveg eins og Jólagestir Bó! Nema
enginn er frægur,“ segir um jóla-
sýningu Svansins sem fram fer í
kvöld kl. 20.30 í Tjarnarbíói. Svan-
urinn er spunahópur skipaður
reyndum spunaleikurum sem eru
einnig meðlimir í Improv Ísland.
Þeir eru mikil jólabörn og munu
gera sitt allra besta til að
koma gestum í jólaskap.
Svanurinn reynir að
koma fólki í jólaskap
FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er heldur lágt risið á mann-
skapnum en menn halda ótrauðir
áfram þrátt fyrir þreytu. Við erum
þegar búnir að ná tveimur mark-
miðum og komnir í eina milljón,“
sagði Ágúst Guðmundsson, slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamaður hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í
samtali við Morgunblaðið um há-
degi í gær en þá áttu þeir slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamenn sem
róa eftir að mæta í fjóra til fimm
róðra hver. Markmiðið með stans-
lausum róðri í heila viku á Con-
cept2-róðrarvél er að safna fé til
stuðnings verkefninu Frú Ragn-
heiði, sem er sérinnréttaður bíll á
vegum Rauða krossins í Reykjavík
sem þjónustar heimilislaust fólk og
einstaklinga sem glíma við vímu-
efnavanda. Þjónustan er veitt sex
kvöld í viku frá klukkan 18 til 22.
„Næsta mark-
mið okkar er að
safna einni og
hálfri milljón fyrir
lok róðursins kl.
17.00 á föstudag [í
dag]. Það er
brýnt verkefni að
styðja við bakið á
Frú Ragnheiði,
við þekkjum það í
okkar störfum,“
segir Ágúst, sem telur vanda heim-
ilislausra og þeirra sem glíma við erf-
iðan fíknivanda viðvarandi.
Hann segir að þátttaka þeirra
sem komi og rói með hvetji þreytta
róðrarmenn áfram, ásamt framlög-
unum sem safnast hafa. Ágúst segir
að kveikjan að Lífróðrinum eins og
verkefnið kallast hafi orðið til í
spjalli við Helgu Sif Friðjónsdóttur,
formann Frú Laufeyjar, sem eru
samtök um mannréttindi jað-
arsettra og skaðaminnkun.
Svala Jóhannesdóttir, verkefna-
stýra Frú Ragnheiðar, segir að
fyrsta markmiðið með Lífróðrinum
hafi verið að safna fyrir kaupum á
æðaskanna þar sem hægt sé að
skoða æðar á skjólstæðingum, hvort
þær séu skemmdar eða kominn
mikill örvefur. Því marki hafi
róðrarmenn náð með ótrúlegum
dugnaði. Allt sem safnist umfram
það fari til kaupa á sýklalyfjum og
hjúkrunarvörum.
Svala segir að Frú Ragnheiður sé
á ferðinni öll kvöld nema laugar-
dagskvöld og engin breyting verði á
því um jól og áramót. „Við erum
með einn starfsmann í fullu starfi
og hjúkrunarfræðing í 30% starfi
auk þess sem 80 sjálfboðaliðar
koma að verkefninu; læknar, hjúkr-
unarfræðingar, bílstjórar og svo
fjölbreyttur hópur af ótrúlega flottu
fólki,“ segir Svala, þakklát fyrir
framlag sjúkraflutninga- og slökkvi-
liðsmannanna.
Morgunblaðið/Eggert
Stuðningur Ágúst Guðmundsson, einn af sjö slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum sem róið hafa í heila viku.
Lokametrar lífróðurs
fyrir Frú Ragnheiði
Svala
Jóhannesdóttir
Vikuróður klárast kl. 17 í dag Vonast til að safna 1,5 milljónum
Hin vinsæla tónlistarhátíð Secret sol-
stice, sem haldin er árlega í Laugar-
dalnum í Reykjavík og dregur að
gesti hvaðanæva úr heiminum, verð-
ur haldin næsta sumar 21.-23. júní; á
sumarsólstöðum eins og venja er,
þegar nóttin er lengst. Nú hafa verið
tilkynnt nokkur stór nöfn sem verða
meðal þess tónlistarfólks sem fram
kemur á hátíðinni og eru
ekki minni kanónur þar á
ferð en hinar rússnesku
Pussy Riot, Martin
Garrix, Rita Ora,
Morcheeba, Nitin og
Boy Pablo. Sannar-
lega eitthvað til að
hlakka til fyrir
tónlistarunn-
endur.
Stjörnufans á Secret
solstice næsta sumar
„Í Sviss er meira um bombur en í
Slóvakíu snýst blakið meira um
varnarleik og varnarkerfi. Mikil
áhersla er á þau. Fyrir vikið er spilið
eða sóknirnar lengri. Leikmenn eru
lágvaxnari en í Sviss en um leið eru
þeir líkamlega sterkari og stökkva
oft mjög hátt,“ segir Thelma Dögg
Grétarsdóttir, blakkona ársins, m.a.
í spjalli um atvinnumennskuna. »1
Mikill munur á blaki í
Sviss og Slóvakíu