Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 1
Lífið er alvegóútreiknanlegt
Geri þaðsem mérer sagt
Svanhildur Jakobsdóttirreiknaði aldrei með að verða
söngkona, ætlaði að kennaleikfimi, en er afar þakklátfyrir að hafa fengið tækifæri
til að syngja fyrir þjóðina íöll þessi ár. Og hún erhvergi nærri hætt endaheldur nýkreistur ávaxta-safi henni síungri 16
23. DESEMBER 2018SUNNUDAGUR
Á suður-skautinuum áramót
MeistariChaplinEinræðisherrann eftir Charlie Chapliner jólasýning Þjóðleikhússins 12 Hafdís HannaÆgisdóttir hittir 80vísindakonur umborð í skipi. 18
Jón Gnarr erekki mikiðjólabarn ogóskar þesshelst aðfólk fari aðhugsa umloftslags-málin. Hannlofar góðuskaupi í ár 2
L A U G A R D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 301. tölublað 106. árgangur
ALLT Í LÍFINU
FJALLAR ÓBEINT
UM ÁSTINA
HUNDAR Á
HUNDAHÓTELUM
UM JÓLIN
FULLBÓKAÐ 12GUÐRÚN EVA 42
Ketkrókur kemur í kvöld
2
jolamjolk.is
dagar
til jóla
„Við áttum fund með Sorpu í vik-
unni og erum að skoða alla mögu-
leika. Við vonum það besta en búum
okkur undir það versta,“ segir Jón
G. Valgeirsson, sveitarstjóri í
Hrunamannahreppi og formaður
stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
(SOS).
Sorpa hefur tilkynnt að um ára-
mótin verði lokað fyrir frekari mót-
töku sorps til urðunar frá sveitar-
félögum á starfssvæði Sorpstöðvar
Suðurlands. Stefnt var að því að
urðuninni yrði fundinn framtíðar-
staður á Nessandi í Ölfusi en þær
hugmyndir hafa verið slegnar af.
Meðal þeirra hugmynda sem hafa
verið viðraðar fari svo að Sorpa
standi við áform sín er að flytja
sorp út til Danmerkur og Svíþjóðar
til brennslu. »6
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sorphirða Pattstaða á Suðurlandi.
Gætu þurft að flytja
sorpið til Svíþjóðar
Fundað verður með VR, Eflingu
og Verkalýðsfélagi Akraness í
húsakynnum ríkissáttasemjara
milli jóla og nýárs. Þetta staðfestir
Bryndís Hlöðversdóttir ríkis-
sáttasemjari við Morgunblaðið.
„Nánar tiltekið 28. desember.
Það verður þá alla vega stöðu-
fundur þar sem hægt verður að
kalla eftir gögnum,“ segir hún, en
forsvarsmenn verkalýðsfélaganna
segja viðræður síðustu vikna við
Samtök atvinnulífsins hafa verið
árangurslausar og því fór deilan til
ríkissáttasemjara. »2
Munu hittast á
fundi fyrir áramót
Þeir eru líklega ekki margir Ís-
lendingarnir sem skírðir hafa
verið í höfuðið á álfum. Sæþór
Mildinberg Þórðarson í Kópavogi
er þó einn þeirra en seinna nafn-
ið sem hann ber er eftir álfi sem
gömul kona, sem stundum drakk
kaffi hjá móður hans á Ísafirði
þegar hann var barn, hafði leikið
sér við í bernsku og vildi ólm að
hann yrði skírður eftir. Móður
Sæþórs var ekkert um nafnið gef-
ið en lét þetta þó eftir gömlu
konunni enda var hún sannfærð
um að það myndi gera drengnum
gott. Þess utan var Mildinberg
hagur í höndunum og það er svo
merkilegt að Sæþór varð húsa-
smiður en ekki sjómaður eins og
bræður hans.
Sæþór hefur borið nafnið stolt-
ur í 76 ár, ekki síst eftir að hon-
um bættist liðsauki, dóttursonur
hans, Ásgeir Mildinberg Jóhanns-
son, sjö ára. Hvorugur þeirra
hefur séð hinn upprunalega Mild-
inberg en til stendur að fara á
hans slóðir, jafnvel næsta sumar,
en álfurinn ku búa í klettum á
milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Ás-
geir missir ekki af þeirri ferð
enda hefur hann mun meiri
áhuga á álfum en afi hans. Rætt
er við þá í Sunnudagsblaðinu.
Eru báðir skírðir í höfuðið á álfamanni
Morgunblaðið/Kristinn
Nafnar Ásgeir Mildinberg Jóhanns-
son og Sæþór Mildinberg Þórðarson.
Langfeðgarnir Sæþór og Ásgeir
Mildinberg eru stoltir af nafninu
Jólablót ásatrúarmanna fór í gær fram við
minnisvarða Sveinbjörns Beinteinssonar, fyrsta
allsherjargoða félagsins, við hofið í Öskjuhlíð í
Reykjavík. Blót þetta er stærsta hátíð ásatrúar-
manna, hin forna hátíð ljóssins þegar sólin fer
hækkandi á lofti og dag tekur að lengja.
Morgunblaðið/Eggert
Ásatrúarmenn héldu upp á hina fornu hátíð ljóssins
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á Ísey skyri í Bretlandi eykst í
ár um 60% frá síðasta ári og nam
tæpum 1.000 tonnum. Varan er kom-
in í 1.100 verslanir Waitrose, Aldi og
Costco og í upphafi nýs árs bætast
500 verslanir Marks og Spencer við.
Skyrið var flutt út frá Íslandi framan
af ári en var framleitt í mjólkurbúi í
Danmörku þegar fyllt hafði verið
upp í kvóta Íslands hjá Evrópusam-
bandinu.
Þegar tollasamningur Íslands og
ESB verður kominn að fullu til fram-
kvæmda, á árinu 2021, verður toll-
frjáls kvóti Íslands til útflutnings
mjólkurafurða til ESB orðinn 4.000
tonn. Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Ísey útflutnings ehf.
sem er dótturfélag Mjólkursamsöl-
unnar, segir að auðvelt yrði að nýta
hann allan í Bretlandi. Útganga
Breta úr ESB hefur hins vegar sett
strik í reikninginn. „Við teljum nokk-
uð víst að ESB-kvótinn muni ekki
nýtast í Bretlandi og markaðsstarfið
getur ekki beðið eftir pólitískum
ákvörðunum um Brexit,“ segir Jón
Axel. Þess vegna hefur verið samið
við mjólkursamlag í Swansea í Wales
um framleiðslu fyrir Bretland.
Á seinni hluta næsta árs hefst nýr
kafli í sögu útflutnings á skyri. Þá
verður hafin framleiðsla og sala á
fjarlægum mörkuðum, í Japan, Ástr-
alíu og Nýja-Sjálandi. Bundnar eru
vonir við góðan árangur á þessu
stóra markaðssvæði.
60% aukning í Bretlandi
500 verslanir Marks og Spencer bjóða Ísey skyr og verður varan þá í 1.600 búð-
um Framleiðsla á skyri hefst í Wales Nýir risamarkaðir í Japan og Eyjaálfu
Aukning
» Ísey skyr er selt í nærri 15
þúsund verslunum í 21 landi
Evrópu og Norður-Ameríku og í
ár eru seldar um 110 milljón
dósir fyrir 13 milljarða kr.
» Áætlað er að á næsta ári auk-
ist salan í 130 milljón dósir og
heildarveltan aukist umtalsvert.
MSpennandi ár í skyrinu »14