Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is Mikið úrval Borðbúnaður fyrir veitingahús og hótel Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við finnum fyrir okkar samfélags- legu ábyrgð og bygging meðferðar- heimilis fyrir börn sem glíma við hegðunar- og vímuefnavanda rímar við hugsun okkar um að búa börnum og ungmennum góð uppeldisskil- yrði,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Hann skrif- aði í gær undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu 1.000 fm húsnæðis á Vífilsstaðahálsi fyrir meðferðarheim- ili fyrir börn sem glíma við hegðunar- og vímuefnavanda. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismála- ráðherra, og Heiða Björk Pálmadótt- ir, forstjóri Barnaverndarstofu, skrifuðu einnig undir viljayfirlýs- inguna og fór athöfnin fram við Víf- ilsstaðavatn. „Lóðin er 10.000 fermetrar og staðsetningin gefur möguleika á því að börn sem þar dvelja verði ekki fyrir truflun en séu samt ekki of langt í burtu,“ segir Gunnar. Garðabær úthlutar lóð undir með- ferðarheimilið og velferðarráðu- neytið tryggir Barnaverndarstofu fjármagn til framkvæmda vegna byggingar heimilisins og síðar rekst- urs þess. Nýtt úrræði á Vífilsstaðahálsi Í tilkynningu frá velferðarráðu- neytinu er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni velferðarráðherra að ánægjulegt sé að búið sé að finna heimilinu stað. Nú sé spennandi upp- bygging framundan með jákvæðni og sameiginlegum vilja allra aðila sem að málinu standa. Að sögn Halldórs Haukssonar, sviðsstjóra á meðferðar- og fóstur- sviði Barnavendarstofu, er áætlað að taka heimilið í notkun eigi síðar en árið 2022 ef ekkert óvænt kemur upp í byggingarferlinu. Halldór segir að meðferðarheimilið á Vífilsstaðahálsi tengist á engan hátt fyrirhuguðu stuðningsheimili með eftirmeðferð sem til stóð að opna í Grafarholti. „Meðferðarheimilið á Vífilsstaða- hálsi er sérhæft meðferðarúrræði sem hefur verið í undirbúningi í lang- an tíma. Það má segja að það verði viðbót og blanda af starfsemi sem fram fer á Stuðlum, Lækjarbakka og Laugalandi. Eftirspurn hefur aukist eftir meðferð í nærumhverfi og stað- setning heimilisins á höfuðborgar- svæðinu tekur mið af því,“ segir Halldór og bætir við að fyrirhugað sé að bjóða átta pláss á þremur að- skildum deildum auk öflugrar eftir- meðferðar fyrir átta til tíu unglinga í senn sem komnir eru heim eftir vist- un á meðferðarheimilinu. „Það er gert ráð fyrir sérstöku rými fyrir börn og ungmenni sem þurfa tímabundna öryggisvistun og þau sem sæta gæsluvarðhaldi. Halldór segir að nýja meðferðar- heimilið muni auka fjölbreytni í þjón- ustu við börn með hegðunar- og vímuefnavanda og hafa jákvæð áhrif á þróun annarra úrræða í meðferðar- kerfi Barnaverndarstofu. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið Samstarf Sólin skein þegar viljayfirlýsing um uppbyggingu meðferðar- heimilis við Vífilsstaðaháls og rekstur þess var undirrituð í Garðabæ. Viljayfirlýsing um nýtt meðferðarheimili  Garðabær leggur til lóð við Vífilsstaðaháls  Nýtt úrræði Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er vissulega áhyggjuefni og alls ekki nein óskastaða sem við er- um í,“ segir Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi og formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands (SOS). Sorpa hefur tilkynnt að um ára- mótin verði lokað fyrir frekari mót- töku sorps til urðunar frá sveitar- félögum á starfssvæði Sorpstöðvar Suðurlands. Málið var rætt á stjórn- arfundi Sorpu um miðjan mánuðinn. Þar var framkvæmdastjóra falið að loka fyrir frekari viðskipti við SOS nema einhverjar breytingar hefðu orðið sem breyttu stöðunni. Sveitar- félögin hafa urðað hjá Sorpu um ára- bil en undanfarið eitt og hálft ár hef- ur samningur þar um verið framlengdur um mánuð og mánuð í senn. Ekki hefur fundist viðunandi lausn á sorpmálum þarna um slóðir síðan urðunarstað við Kirkjuferju- hjáleigu í Ölfusi var lokað árið 2009. Stefnt var að því að urðuninni yrði fundinn framtíðarstaður á Nessandi í Ölfusi en þær hugmyndir hafa verið slegnar af. „Þá fórum við aftur af stað með staðarvalsgreiningu en það er ekki komin nein niðurstaða enn. Við höf- um því óskað eftir framlengingu hjá Sorpu,“ segir Anton Kári Halldórs- son, sveitarstjóri Rangárþings eystra og stjórnarmaður í Sorpstöð Suðurlands. Jón Valgeirsson segir að hann vænti svara frá Sorpu milli jóla og nýárs. „Við áttum fund með Sorpu í vikunni og erum að skoða alla mögu- leika. Við vonum það besta en búum okkur undir það versta,“ segir hann. Ef viðræður sigla í strand hyggst Sorpstöð Suðurlands „kanna mögu- leika í Fíflholti og Stekkjarvík“ eins og það er orðað, eða leita leiða sem fengjust með undanþágu. Meðal þeirra hugmynda sem hafa verið viðraðar fari svo að Sorpa standi við áform sín er að flytja sorp út til Dan- merkur og Svíþjóðar til brennslu. „Það yrði kannski engin óska- niðurstaða en það vill enginn eiga sorpið. Urðun er alltaf síðasti val- kostur og það væri reyndar margt gott sem hlytist af sorpútflutningi. Þá myndum við þurfa að stórauka flokkun og sorpið sem yrði brennt ytra myndi nýtast til dæmis til raf- magnskyndingar,“ segir Anton Kári. Sunnlendingar búa sig undir útflutning á sorpi  Sorpa lokar fyrir móttöku sorps þaðan um áramótin Morgunblaðið/Eggert Sorp Pattstaða er í urðunarmálum á Suðurlandi fyrir vestan Markarfljót, en brátt verður lokað fyrir móttöku. Reimar Pétursson lögmaður hefur kært til Landsréttar úrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna vitnaleiðslum og öflun sýni- legra sönnunargagna í máli fjög- urra þingmanna Miðflokksins vegna upptökunnar á veitingastof- unni Klaustri í miðbæ Reykjavík- ur. Í kærunni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir Reimar að það veki athygli að ein mynd- anna sem birtust í fjölmiðlum og virðist hafa verið tekin sem liður í aðgerðum Báru Halldórsdóttur, sem tók samtal þingmannanna upp og sendi fjölmiðlum undir dulnefn- inu „Marvin“, hafi að því er virðist verið tekin utan af götu áður en hún tók upp samtal þingmannanna, nema einhver annar hafi tekið myndina. „Allt þetta gefur til kynna að þegar varnaraðili kom á Klaustur hafi hún komið þangað með það fyrirframgefna markmið að njósna um og taka upp samtöl sóknaraðila. Hún hafi gengið fumlaust til verka. Hún hafi haft meðferðis bæklinga sem hún notaði sem yfirvarp og búnað sem hentaði til verksins. Þá hafi hún dvalið á staðnum svo lengi sem í fjórar klukkustundir,“ segir í kæru Reimars. Segir þar enn fremur að fjór- menningarnir úr Miðflokknum telji þetta gefa þeim ríka ástæðu til að kanna hvort einhver annar hafi komið að framkvæmd aðgerðar Báru, eða fylgt henni á Klaustur. Persónuvernd hefur sent lög- mönnum Báru gögn vegna athug- unar á Klausturmálinu og er málið í hefðbundnum farvegi innan stofn- unarinnar. Á fundi á fimmtudag ákvað stjórn Persónuverndar að óska eftir hljóðupptökunni af sam- tölum þingmannanna sem og upp- tökum úr eftirlitsmyndavélum á Klaustri frá þeim tíma sem sam- tölin voru tekin upp. Eftir að úr- skurður héraðsdóms féll þar sem hafnað var kröfu lögmanns þing- mannanna um sönnunarfærslu fyr- ir dómi vegna málsins, þ. á m. með öflun upptakna úr öryggismynda- vélum verður beðið með að óska eftir umræddum upptökum uns niðurstaða Landsréttar liggur fyr- ir. ash@mbl.is Kæra til Landsréttar  Vilja leiða til lykta hvort Bára Hall- dórsdóttir hafi verið ein að verki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.