Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Áþremur af fjórum hundahótelum sem Morg-unblaðið hafið samband við var allt orðiðlöngu fullt fyrir jól og áramót. Alls eru 98búr til umráða á þeim hundahótelunum, en í
sumum tilvikum geta tveir hundar frá sama heimili gist
í einu búri.
Hundarnir gista allt frá einum degi og upp í tvo
mánuði. Eintil tvær vikur eru meðal gistitími hunda á
hótelunum.
Kelað við hundana
„Það er alltaf nóg að gera um jól og áramót og
raunar allt árið. Það er margt sem spilar inn í og utan-
landsferðir um jól og áramót hafa aukist mikið. Eig-
endur hundanna fara í jólaboð og ýmislegt annað sem
kallar á gæslu fyrir hundana,“ segir Hreiðar Karlsson,
hótelstjóri á hundahótelinu Leirum. Hann segir að
hundarnir fái nógan mat og mikið sé kelað við þá um
hátíðarnar. Á gamlárskvöld sé passað að hafa gott ljós í
húsinu og jólamúsík til þess að koma í veg fyrir að
hræðslu við flugelda hjá hundum. Hreiðar segir lítið
skotið upp í kringum hótelið og hundarnir hræðist
meira blossana frá flugeldum heldur en hljóðið frá
þeim.
Á hunda- og kattahóteli Suðurnesja er einnig nóg
að gera yfir hátíðarnar. Vel er gert við hundana sem
þar dvelja. Þeir fá klapp og kjass, blautmat, nammi og
nagbein.
Gestir á Hundagæsluheimilinu á Arnarstöðum við
Selfoss fá pínulitla aukabita eða nammi meðan þeir
gista þar og sumir eigendur skilja eftir sparibein til há-
tíðabrigða.
„Hundum er enginn greiði gerður með breytingu á
mataræði sem eykur álag á meltinguna hjá þeim,“ seg-
ir Guðríður Þorbjörg Valgeirsdóttir. Hún segir að
hundarnir fái óvenjumikið spjall og klapp yfir hátíð-
irnar.
Dekur, göngur og hlaup
Á hundahóteli Norðurlands á Jórunnarstöðum, eru
ennþá tvö til þrjú laus pláss að sögn Elmars þór Magn-
ússonar.
„Við dekrum mikið við hundana, förum með þá í
göngur og út í gerði þar sem þeir geta hlaupið. Ef um
smáhunda er að ræða sem eru litir í sér þá tökum við
þá inn í hús til okkar. Það má segja að hver hundur fái
einstaklingsmiðaða þjónustu,“ segir Elmar og bendir á
að um áramótin sé ekkert sprengt í sveitinni og hundar
sem hræddir séu við flugelda komi því aftur og aftur
um áramót. Sumir komi á gamlársdag en aðrir fyrr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikur Hótelgestir á hundahótelinu á Jórunnarstöðum fá að leika sér og hreyfa sig vel yfir jól og áramót.
Hundar dekraðir á
hundahótelum um jólin
Nær fullbókað er á hundahótelum
landsins yfir jól og áramót. Ýmislegt er
gert til þess að gera dvöl hundanna sem
besta og tryggja að þeim líði vel á með-
an eigendur þeirra eru í burtu.
Morgunblaðið/Ásdís
Jólafín Hundahótel taka vel á móti hundum sem dvelja
þurfa fjarri heimilum sínum yfir hátíðarnar.
Hallgrímsöfnuður afhenti 8.000.000
kr. við messu í Hallgrímskirkju 16. des-
ember. Styrkurinn er ætlaður til
þriggja verkefna sem öll snúa sér-
staklega að málefnum í þágu barna og
unglinga og er ætlunin að tengja verk-
efnin Hallgrímssöfnuði með fræðslu
og kynningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Hallgrímssókn. Þar kemur einnig fram
að styrkirnir þrír fari til Framtíðar-
sjóðs Hjálparstarfs kirkjunnar sem
styður sjálfráða íslensk ungmenni til
þess að rjúfa vítahring stuttrar skóla-
göngu, lágra launa og fátæktar. Hjálp-
arstarfsemi sem styður við börn og
ungmenni sem hafast við á götum
Kampala, höfuðborgar Úganda, fékk
styrk. Markmiðið með því verkefni er
að götubörn öðlist verkkunnáttu og
taki þátt í verkefnum sem styrkja
sjálfsmynd þeirra til þess að gæta
réttar síns.
Þriðja framlagið fékk Samband ís-
lenskra kristniboðsfélaga en það
framlag er ætlað til þess að byggja
fyrsta hluta nýs framhaldsskóla fyrir
stúlkur í Kamununo sem staðsett er í
fjalllendi Pókothéraðs í Kenía. Verk-
efnið er unnið í samvinnu við utanrík-
isráðuneytið.
Í Hallgrímskirku er safnað til góðra
málefna með samskotum í messum á
sunnudögum og árdegismessum á
miðvikudögum. Alls söfnuðust með
samskotum 1.500.000 kr. Auk sam-
skotanna samþykkti sóknarnefnd Hall-
grímssóknar að leggja fram
6.500.000 kr. framlag úr Líknarsjóði
en fram kemur í tilkynningu frá Hall-
grímskirkju að ávallt sé þess gætt að
nægir fjármunir séu til þess að bregð-
ast við neyðartilfellum.
Í nær tvo áratugi hafa messusamkot
verið tekin í Hallgrímskirkju. Á þessu
ári hefur verið safnað til hjálparstarfs,
kristniboðs, fyrir Samhjálp og lands-
söfnun vegna missis barna. Auk þess
sem safnað hefur verið fyrir við-
gerðum í Skálholti, fyrir Listvinafélag
kirkjunnar, fyrir barna og unglingakór-
inn og til skógræktar á Íslandi.
Hjálparstarf Hallgrímssafnaðar
Messusamskot tekin tvisvar í
viku til hjálpar- og kirkjustarfs
Hallgrímskirkja Ungmenni afhenda styrki til hjálpar- og kristniboðsstarfs.