Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 14
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á Ísey skyri hefur aukist um 10-11% í ár. Skyr sem Ísey út- flutningur ehf. og samstarfsfyrir- tæki selja er nú í nærri 15 þúsund verslunum í 21 landi Evrópu og Norður-Ameríku, og í ár eru seld- ar um 110 milljón skyrdósir hér og erlendis að verðmæti um 13 milljarðar kr. Á seinni hluta næsta árs hefst framleiðsla og sala á fjarlægum mörkuðum, meðal ann- ars í Japan, Ástralíu og Nýja- Sjálandi. Áætlað er að þá verði unnið á alls 33 mörkuðum og salan nemi 130 milljónum dósa. Heildar- veltan mun því aukast umtalsvert frá því sem er nú, ef áætlanir ganga eftir. Ísey útflutningur ehf., dóttur- félag Mjólkursamsölunnar, tók við erlendri starfsemi MS um mitt þetta ár. Ísey og MS eru með eig- in sölu á skyri í tólf löndum í ár og í samstarfi við önnur fyrirtæki í níu löndum til viðbótar með vörumerkjasamningum. Ísey legg- ur til íslenska skyrkúltúrinn, að- stoð við að koma framleiðslu af stað og markaðssetningu og fær á móti ákveðna hlutdeild af sölunni. Skyrið sem Ísey selur sjálft er ýmist framleitt á Íslandi eða í mjólkurbúi Thise í Danmörku enda hafa tollmúrar takmarkað möguleika á útflutningi til Evrópu. Jón Axel Pétursson, framkvæmda- stjóri Ísey útflutnings, bendir á að allt til þessa árs hafi Ísland aðeins haft 380 tonna tollfrjálsan kvóta til Evrópusambandsins en salan hafi numið 5.000 tonnum. Nefnir hann sem dæmi að skyr hafi verið selt fyrir rúma 8 milljarða kr. til Finnlands á síðustu fjórum árum. Ef einungis hefði verið flutt út héðan það magn sem tollkvótar heimiluðu hefði söluandvirði skyrsins takmarkast við 1,2 millj- arða. Ráðstafanir vegna Brexit Þegar nýr tollasamningur við ESB verður kominn að fullu til framkvæmda á árinu 2021 verður tollkvóti á mjólkurafurðum til Evrópusambandslanda 4.000 tonn á ári. Jón Axel segir að upphaf- lega hafi verið áætlað að hann yrði notaður til að flytja út skyr til Bretlands þar sem vitað var um vænlegan markað. Ísey skyr hefur gengið vel í Bretlandi. Söluaukningin í ár var um 60%, frá síðasta ári. Það er nú komið í um 1.100 verslanir Wait- rose, Aldi og Costco. Í upphafi nýs árs taka 500 verslanir Marks og Spencer Ísey skyrið í sölu. „Við erum komnir inn í fínar verslanir í Bretlandi,“ segir Jón Axel. Salan nemur um 950 tonnum í ár og tel- ur hann að í framtíðinni verði eng- in vandræði að selja 4.000 tonn á ári í Bretlandi, en það er innan við 1% af jógúrtmarkaðnum þar. Skyrið var flutt út frá Íslandi fram eftir ári, á meðan tollkvótinn entist, en síðustu mánuði ársins var það framleitt í dönsku mjólk- ursamlagi. „Við verðum að vera með eigin framleiðslu í Evrópu- sambandsríkjum til þess að geta sinnt markaðnum,“ segir Jón Ax- el. Óvissan vegna útgöngu Bret- lands úr ESB hefur sett strik í reikninginn. „Við teljum nokkuð víst að ESB-kvótinn muni ekki nýtast í Bretlandi og markaðs- starfið getur ekki beðið eftir póli- tískum ákvörðunum um Brexit,“ segir Jón Axel. Þess vegna hefur verið samið við mjólkursamlag í Swansea í Wales um framleiðslu fyrir Bretlandsmarkað. Harðnandi samkeppni Staðan á öðrum mörkuðum er misjöfn. Finnland hefur verið mik- ilvægasti skyrmarkaður Íslend- inga. Þar hafa stórir framleið- endur séð tækifæri vegna vel- gengni Ísey skyrsins og sam- keppni hefur harðnað. Samdráttur verður í sölu þar í ár. Sviss er einnig mikilvægur markaður enda er skyr flutt þang- að án tolla. Salan í ár eykst um 15%. Sala hófst í Hollandi, Belgíu, Lúxemborg og Ítalíu á árinu og þar fer salan rólega af stað. Sama er að segja um Rússland og ná- grannalönd en þar hóf samstarfs- fyrirtæki Ísey útflutnings fram- leiðslu fyrir HM í knattspyrnu. Leyfishafar í Noregi og Dan- mörku selja á þessu ári um 6.000 tonn af skyri. Góð aukning er í Noregi en samdráttur í Dan- mörku. Stórir markaðir bætast við Árið 2019 verður mikilvægt fyr- ir Ísey útflutning. Framleiðsla á skyri hefst í Japan og Nýja- Sjálandi/Ástralíu seinnihluta árs- ins, samkvæmt samningum sem gerðir voru á árinu. „Við höfum gert leyfissamninga fyrir litla markaði, eins og Danmörk og Noreg þar sem eru 10 milljón íbú- ar og þeir hafa gefið okkur ágætis tekjur. Nú erum við að fara inn á 150 milljón manna markað og bindum miklar vonir við góðan ár- angur þar,“ segir Jón Axel um áskoranir á nýju ári en tekur fram að árangurinn ráðist mikið af því að samstarfsaðilarnir á þessum mörkuðum reynist jafn öflugir og reiknað var með þegar þeir voru valdir. Ekki er vitað hversu hröð þró- unin verður á þessum mörkuðum. Þannig er japanska samstarfsfyr- irtækið Nippon Luna að stefna að hámarki markaðssetningar fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020. Ísey útflutningur setur sér há- leit markmið í uppbyggingu vöru- merkisins og sölu á afurðunum, að sögn Jóns Axels. „Framtíðarsýn okkar er að Ísey skyr verði verð- mætasta alþjóðlega vörumerkið fyrir skyr í heiminum eftir fimm ár með 90 þúsund tonna sölu á ári og heildarveltu Ísey útflutnings og allra samstarfsaðila upp á 50 millj- arða króna,“ segir Jón Axel. Hann vonast jafnframt til að Ísey skyr verði eitt verðmætasta og þekkt- asta alþjóðlega vörumerkið fyrir íslenskar matvörur. Spennandi ár í skyrinu  Seldar eru 110 milljónir dósa af Ísey skyri í ár  Á næsta ári bætist á landakort skyrsins 150 millj- ón manna markaður í fjarlægum heimsálfum  Samið við mjólkurbú um framleiðslu fyrir Bretland Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skyr Ísey skyr er í harðri samkeppni á jógúrtmarkaði í Evrópu og Banda- ríkjunum. Í undirbúningi er að hefja framleiðslu í Japan og Nýja-Sjálandi. Starfsfólk Erna Erlendsdóttir, Hildur Hermannsdóttir, Jón Axel Péturs- son, Íris Sigurðardóttir og Auðunn Hermannsson. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættuog aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is Ibuprofen Bril Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is Á hreint brilliant verði! Bólgueyðandi og verkjastillandi 400mg töflur - 30 stk og 50 stk Auk þess að halda utan um vörumerkið og annast útflutn- ing á Ísey skyri er hlutverk Ísey útflutnings ehf. að leita að viðskiptatækifærum erlend- is fyrir aðrar mjólkurafurðir. Jón Axel Pétursson segir að sú vinna sé hafin. Nú sé verið að skoða möguleika kryd- dosts, Hleðslu og smjörs í neytendapakkningum. Hugs- unin sé að reyna að fá hærra verð fyrir tilbúnar vörur en fæst við útflutning á und- anrennudufti. Fimm starfsmenn Mjólkur- samsölunnar fluttust til hins nýstofnaða dótturfélags sem tók til starfa 1. júlí sl. Jón Ax- el Pétursson framkvæmda- stjóri var áður framkvæmda- stjóri sölu- og markaðssviðs MS. Aðrir starfsmenn eru Erna Erlendsdóttir, sölu- og mark- aðsstjóri, Auðunn Hermanns- son, tækni- og vöruþróunar- stjóri, Hildur Hermannsdóttir og Íris Sigurðardóttir. Þau voru öll áður starfsmenn MS. Leitað að tækifærum AÐRAR MJÓLKURAFURÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.