Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Þrátt fyrir niðamyrkur gengur lífið sinn vana- gang hjá nágrönnum Íslendinga norður á Sval- barða. Þeirra á meðal eru þau Kristján Breið- fjörð Svavarsson, heimavinnandi arkitekt, Sólveig Anna Þorvaldsdóttir, eini tannlæknir- inn í bænum, og synirnir Þorvaldur Kári, níu ára, og Bjarki Rafn, þriggja ára. Þau eru meðal um tíu Íslendinga sem í vetur dvelja í Longyearbyen og í samtali við Morg- unblaðið segir Kristján að talsvert sé um Ís- lendinga í bænum í lengri eða skemmri tíma. Þeir tengist einkum háskólaútibúinu sem þar er rekið, ýmist sem kennarar eða nemendur. Hann segir að Íslendingarnir hafi talsverð samskipti og hafi fyrr í mánuðinum hist við laufabrauðsgerð. Brosa framan í heiminn Ekki hefur birt af degi frá 11. nóvember og þess er ekki að vænta fyrr en 30. janúar að heimskautanóttin gefi eftir. Geisla sólarinnar er að vænta 8. mars og við sólarkomuna safn- ast íbúar í Longyearbyen saman á tröppum sjúkrahússins og brosa framan í heiminn. Mánuði síðar verður orðið bjart allan sólar- hringinn á Svalbarða og íbúar geta notið mið- nætursólarinnar fram í ágúst. Þessa dagana sér ekki mun á birtunni/ myrkrinu á hádegi og miðnætti og Kristján var með öll ljós kveikt þegar rætt var við hann um miðjan fimmtudag. Í stað skötunnar á Þor- láksmessu segist Kristján hugsanlega bragða á lútfiski með heimafólki í fyrsta skipti. Jólaskipulag var ekki ákveðið enda hafa miklar annir verið hjá Kristjáni og Sólveigu undanfarið. Hugsanlega verður reyktur svína- kambur í hátíðamatinn eða önd eða kalkúnn. Þegar allt kemur til alls verður það úrvalið í bæjarbúðinni sem ræður mestu um það sem verður á borðum. Hins vegar var íslenskt sæl- gæti komið í skálar á heimilinu. „Ef það verður gott vélsleðafæri væri gam- an að fara í fjallakofa sem hægt er að leigja og prófa að gista í algjöru myrkri. Annars höfum við öll mjög gott af því að slappa af um jólin á náttfötunum,“ segir Kristján. Eitt ár orðið að áratug Þau fluttu frá Íslandi 2009 í kjölfar efna- hagshrunsins og ætluðu sér að vera í Noregi í eitt ár. Fyrst bjuggu þau í Förde í fjögur ár, en fluttu þá til Tromsö og eftir önnur fjögur ár þar fluttu þau norður til Svalbarða fyrir 14 mánuðum. Kristján segir gott að eiga heima á Sval- barða, samfélagið sé þægilegt og allt sé til alls fyrir fjölskylduna sem og fjölmarga ferða- menn sem koma til eyjunnar. Skóli, sjúkrahús, menning, íþróttir, bíó, hótel, kaffihús og barir, að ógleymdum þeim möguleikum sem snjórinn og sjórinn bjóða upp á. Sjálfur segist hann gjarnan hlaupa um sjö kílómetra bæjarhringinn á stuttbuxum 2-3 sinnum í viku svo fremi sem vindkælingin sé ekki mikil. 10-15 stiga frost og hægviðri sé ekki tiltökumál, en það er einmitt veðurspáin fram yfir jól. Helstu farartækin á eyjunni eru vélsleðar, en vegakerfið er samtals 45 kílómetrar og að- eins er götulýsing inni í bænum. Kristján segir að dýrt sé að kaupa ferskvöru á Svalbarða, en á móti komi að talsverð fríðindi séu í skatt- greiðslum. Um 2.200 manns búa í Longyearbyen, 4-500 Rússar í Barentsburg og nokkrar vísinda- og veðurstöðvar eru reknar á Svalbarða. Heldur fleiri hvítabirnir eru þar heldur en mannfólkið og sá Kristján einn slíkan á förnum vegi síð- asta vor. „Hann hafði komið meðfram ströndinni og stóð um 900 metra frá húsinu okkar í austur- jaðri bæjarins,“ segir Kristján. „Hann var kominn óþægilega nálægt þegar þyrla sýslu- manns kom á vettvang og menn gátu stuggað við honum. Ef við erum ein á ferð og sjáum ís- björn er fyrsta boðorð að koma sér í burtu, þetta er jú heimasvæði bjarnanna. Ef það er ekki í boði þá er að skjóta hvellhettu eða neyð- arblysi til að hræða dýrið. Ef ekkert af þessu dugar eru menn yfirleitt með riffil.“ Nóg að gera við alls kyns hönnun Kristján er landslagsarkitekt og BA í arki- tektúr og hefur verið að koma upp starfsemi undir eigin hatti, Svavarsson Design Lab, auk verkefna í lausamennsku fyrir stofuna sem hann vann hjá í Tromsö. Hann sinnir ýmsum verkefnum og segist hafa gaman af alls kyns hönnun. Nýlega skilaði hann ásamt íslenskum koll- ega sínum hugmynd að áningarstað á Bola- fjalli við Bolungarvík, en þau voru meðal þriggja teyma sem boðið var að gera tillögu. Þá bar hann sigur úr býtum í samkeppni á vegum Síldarvinnslunnar um minningarreit í Neskaupstað. Fyrr í haust varð hann ásamt fé- lögum sínum í þriðja sæti í samkeppni Lands- virkjunar um listaverk við Þeistareyki. Á siglingu við Svalbarða Þorvaldur Kári, Bjarki Rafn, Kristján Breiðfjörð Svavarsson og Sólveig Anna Þorvaldsdóttir. Þægilegt samfélag og allt til alls  Undirbúa jólin í heimskautanóttinni á Svalbarða  Nóg að gera hjá arkitektinum og eina tann- lækninum í Longyearbyen  Bæjarbúðin ræður miklu um hátíðarmatinn  Fjallakofinn freistar Spennandi Þorvaldur Kári skoðar spor eftir hvítabjörn rétt fyrir utan Longyearbyen. 3.000 hvítabirnir Kristján með riffil á bakinu, en hann má þó aðeins nota í neyðartilvikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.