Morgunblaðið - 22.12.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þrátt fyrir niðamyrkur gengur lífið sinn vana-
gang hjá nágrönnum Íslendinga norður á Sval-
barða. Þeirra á meðal eru þau Kristján Breið-
fjörð Svavarsson, heimavinnandi arkitekt,
Sólveig Anna Þorvaldsdóttir, eini tannlæknir-
inn í bænum, og synirnir Þorvaldur Kári, níu
ára, og Bjarki Rafn, þriggja ára.
Þau eru meðal um tíu Íslendinga sem í vetur
dvelja í Longyearbyen og í samtali við Morg-
unblaðið segir Kristján að talsvert sé um Ís-
lendinga í bænum í lengri eða skemmri tíma.
Þeir tengist einkum háskólaútibúinu sem þar
er rekið, ýmist sem kennarar eða nemendur.
Hann segir að Íslendingarnir hafi talsverð
samskipti og hafi fyrr í mánuðinum hist við
laufabrauðsgerð.
Brosa framan í heiminn
Ekki hefur birt af degi frá 11. nóvember og
þess er ekki að vænta fyrr en 30. janúar að
heimskautanóttin gefi eftir. Geisla sólarinnar
er að vænta 8. mars og við sólarkomuna safn-
ast íbúar í Longyearbyen saman á tröppum
sjúkrahússins og brosa framan í heiminn.
Mánuði síðar verður orðið bjart allan sólar-
hringinn á Svalbarða og íbúar geta notið mið-
nætursólarinnar fram í ágúst.
Þessa dagana sér ekki mun á birtunni/
myrkrinu á hádegi og miðnætti og Kristján
var með öll ljós kveikt þegar rætt var við hann
um miðjan fimmtudag. Í stað skötunnar á Þor-
láksmessu segist Kristján hugsanlega bragða
á lútfiski með heimafólki í fyrsta skipti.
Jólaskipulag var ekki ákveðið enda hafa
miklar annir verið hjá Kristjáni og Sólveigu
undanfarið. Hugsanlega verður reyktur svína-
kambur í hátíðamatinn eða önd eða kalkúnn.
Þegar allt kemur til alls verður það úrvalið í
bæjarbúðinni sem ræður mestu um það sem
verður á borðum. Hins vegar var íslenskt sæl-
gæti komið í skálar á heimilinu.
„Ef það verður gott vélsleðafæri væri gam-
an að fara í fjallakofa sem hægt er að leigja og
prófa að gista í algjöru myrkri. Annars höfum
við öll mjög gott af því að slappa af um jólin á
náttfötunum,“ segir Kristján.
Eitt ár orðið að áratug
Þau fluttu frá Íslandi 2009 í kjölfar efna-
hagshrunsins og ætluðu sér að vera í Noregi í
eitt ár. Fyrst bjuggu þau í Förde í fjögur ár, en
fluttu þá til Tromsö og eftir önnur fjögur ár
þar fluttu þau norður til Svalbarða fyrir 14
mánuðum.
Kristján segir gott að eiga heima á Sval-
barða, samfélagið sé þægilegt og allt sé til alls
fyrir fjölskylduna sem og fjölmarga ferða-
menn sem koma til eyjunnar. Skóli, sjúkrahús,
menning, íþróttir, bíó, hótel, kaffihús og barir,
að ógleymdum þeim möguleikum sem snjórinn
og sjórinn bjóða upp á.
Sjálfur segist hann gjarnan hlaupa um sjö
kílómetra bæjarhringinn á stuttbuxum 2-3
sinnum í viku svo fremi sem vindkælingin sé
ekki mikil. 10-15 stiga frost og hægviðri sé
ekki tiltökumál, en það er einmitt veðurspáin
fram yfir jól.
Helstu farartækin á eyjunni eru vélsleðar,
en vegakerfið er samtals 45 kílómetrar og að-
eins er götulýsing inni í bænum. Kristján segir
að dýrt sé að kaupa ferskvöru á Svalbarða, en
á móti komi að talsverð fríðindi séu í skatt-
greiðslum.
Um 2.200 manns búa í Longyearbyen, 4-500
Rússar í Barentsburg og nokkrar vísinda- og
veðurstöðvar eru reknar á Svalbarða. Heldur
fleiri hvítabirnir eru þar heldur en mannfólkið
og sá Kristján einn slíkan á förnum vegi síð-
asta vor.
„Hann hafði komið meðfram ströndinni og
stóð um 900 metra frá húsinu okkar í austur-
jaðri bæjarins,“ segir Kristján. „Hann var
kominn óþægilega nálægt þegar þyrla sýslu-
manns kom á vettvang og menn gátu stuggað
við honum. Ef við erum ein á ferð og sjáum ís-
björn er fyrsta boðorð að koma sér í burtu,
þetta er jú heimasvæði bjarnanna. Ef það er
ekki í boði þá er að skjóta hvellhettu eða neyð-
arblysi til að hræða dýrið. Ef ekkert af þessu
dugar eru menn yfirleitt með riffil.“
Nóg að gera við alls kyns hönnun
Kristján er landslagsarkitekt og BA í arki-
tektúr og hefur verið að koma upp starfsemi
undir eigin hatti, Svavarsson Design Lab, auk
verkefna í lausamennsku fyrir stofuna sem
hann vann hjá í Tromsö. Hann sinnir ýmsum
verkefnum og segist hafa gaman af alls kyns
hönnun.
Nýlega skilaði hann ásamt íslenskum koll-
ega sínum hugmynd að áningarstað á Bola-
fjalli við Bolungarvík, en þau voru meðal
þriggja teyma sem boðið var að gera tillögu.
Þá bar hann sigur úr býtum í samkeppni á
vegum Síldarvinnslunnar um minningarreit í
Neskaupstað. Fyrr í haust varð hann ásamt fé-
lögum sínum í þriðja sæti í samkeppni Lands-
virkjunar um listaverk við Þeistareyki.
Á siglingu við Svalbarða Þorvaldur Kári, Bjarki Rafn, Kristján Breiðfjörð Svavarsson og Sólveig Anna Þorvaldsdóttir.
Þægilegt samfélag og allt til alls
Undirbúa jólin í heimskautanóttinni á Svalbarða Nóg að gera hjá arkitektinum og eina tann-
lækninum í Longyearbyen Bæjarbúðin ræður miklu um hátíðarmatinn Fjallakofinn freistar
Spennandi Þorvaldur Kári skoðar spor eftir
hvítabjörn rétt fyrir utan Longyearbyen.
3.000 hvítabirnir Kristján með riffil á bakinu,
en hann má þó aðeins nota í neyðartilvikum.