Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
STUTT
● Heildarfjöldi gistinátta í nóvember
síðastliðnum stóð nánast í stað frá
fyrra ári, samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands. Þar segir einnig að
fjöldi gistinátta á hótelum hafi aukist
um 1% meðan herbergjanýting á hótel-
um hafi verið 58% og dregist saman
um fimm prósentustig frá nóvember
2017. Á sama tíma hafi framboð á hót-
elherbergjum aukist um tæp tíu pró-
sent. „Gistinætur ferðamanna á öllum
gististöðum í nóvember síðastliðnum
voru 542.000, en þær voru 544.000 í
sama mánuði fyrra árs. Gistinætur á
hótelum og gistiheimilum voru
351.200. Gistinætur í íbúðagistingu,
farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h.
voru 107.800 og um 83.000 í gegnum
vefsíður á borð við Airbnb.
Heildarfjöldi gistinátta
stendur í stað milli ára
● WOW air hefur
skrifað undir
samning um sölu á
fjórum Airbus A321
vélum til Air Can-
ada, en WOW hefur
haft vélarnar á
kaupleigu síðan
árið 2014. Þetta
kemur fram á vef-
síðu WOW air.
Þar segir jafn-
framt að salan sé hluti af endurskipu-
lagningu félagsins.
Vélarnar verða afhentar í janúar
2019, og mun salan bæta sjóðsstöðu
WOW air um meira en 12 milljónir
bandaríkjadala, eða rúma 1,4 milljarða
króna. tobj@mbl.is
WOW air selur fjórar
flugvélar til Air Canada
Sala Floti WOW
endurskipulagður.
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Þorsteinn Baldur Friðriksson, for-
stjóri tölvuleikjafyrirtækisins Tea-
time, vinnur þessa dagana hörðum
höndum ásamt 20 starfsmönnum fyr-
irtækisins við að gefa út nýjan tölvu-
leik. Áætlaður útgáfudagur er í febr-
úar á næsta ári en nú þegar hafa
erlendir fjárfestingarsjóðir fjárfest
fyrir um 9,1 milljón bandaríkjadala í
fyrirtækinu sem nemur rúmum millj-
arði króna. Í samtali við Morgunblað-
ið segir Þorsteinn að fyrirtækið sé þó
ekki aðeins að stefna að útgáfu eins
nýs leik heldur fleiri leikja sem allir
byggja á nýrri og áður óþekktri hug-
myndafræði í símaleikjageiranum. Í
ljósi þess að um marga leiki verður að
ræða býður það upp á mun meiri
tekjumöguleika fyrir fyrirtækið en
fyrri leikur stofnenda Teatime,
QuizUp strandaði á vissan hátt á því
hversu erfitt það var að skapa tekjur í
leiknum sem náði til yfir 100 milljón
notenda.
20 brúðkaup
Teatime Games var stofnað í fyrra
en hingað til hefur starfsemi þess far-
ið nokkuð huldu höfðu ef frá er talin
fjármögnun fyrirtækisins en aðalfjár-
festir í Teatime Games er fjárfest-
ingasjóðurinn Index Ventures. Í sam-
tali við blaðamann segir Þorsteinn að
hugmyndin að leiknum hafi sprottið
upp út frá nokkuð óvæntri stefnu sem
fyrri leikur Þorsteins, QuizUp, tók.
Segja má að kjarni hugmyndafræði
fyrirtækisins séu mannleg samskipti
sem óhætt er að segja að hafi breyst
töluvert með tilkomu þeirra öflugu
snjallsíma sem nánast allir eiga nú til
dags.
Í spurningaleiknum QuizUp spilaði
fólk spurningaleik saman í rauntíma.
Þar var boðið upp á möguleika til að
spjalla. Til að gera langa sögu stutta
segir Þorsteinn að rúmlega 20 brúð-
kaup hafi verið haldin þar sem fólk
kynntist upphaflega í gegnum spurn-
ingaleikinn. Þorsteinn sjálfur var
raunar viðstaddur eitt þeirra í gegn-
um Skype.
„Það má segja að þetta hafi verið
kveikjan að ákveðinni hugmynd sem
við fengum, sem er Teatime,“ segir
Þorsteinn.
Þorsteinn lagði höfuðið í bleyti
ásamt meðstofnendum sínum, Ými
Erni Finnbogasyni, Jóhanni Þorvaldi
Bergþórssyni og Gunnar Hólmsteini
Guðmundssyni næstsíðasta sumar.
„Fólk hefur spilað alls konar spil, ekki
tölvuleiki, alls konar spil saman, í
mörg þúsund ár. Við fórum að pæla í
því hvar mestu verðmætin eru fólgin í
því að spila við fólk einhver spil. Við
komust að þeirri niðurstöðu, að þegar
fólk safnast saman, hvort sem það er
borðspil, eða ólsen ólsen, þá eru að-
alverðmætin ekki endilega í spilinu
sjálfu, heldur í samskiptum sem þú
átt við fólkið sem þú ert að spila við,“
segir Þorsteinn.
Aðspurður segir Þorsteinn að það
dragi að vissu leyti úr mikilvægi leiks-
ins sjálfs. „Á vissan hátt gerir það
það. Við höfum pælt í því að þegar þú
ert að spila t.d. bara ólsen ólsen með
börnunum þínum. Það er mjög gaman
en ólsen ólsen er ekki góður leikur.
Það myndi enginn leikjahönnuður
segja: Þetta er mjög sniðugt! En það
er samt gaman þegar þú nærð ólsen
ólsen og sérð viðbrögð annarra og
vinnur þá,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir að um nýja tegund
símaleikja sé að ræða og að mikil
tækifæri séu fyrir hendi. Hann segir
símatölvuleiki velta meira en allur
kvikmyndaiðnaðurinn í Hollywood
gerir og orðinn langstærstur í tölvu-
leikjaheiminum. „Miklu stærri en
Playstation, PC, eða nokkuð annað í
veltu,“ segir Þorsteinn.
„En í símatölvuleikjum er fólk ein-
hvern veginn alltaf svo eitt og þú ert
eiginlega aldrei að spila með einhverj-
um öðrum. Þótt það séu símatölvu-
leikir til sem eru „multiplayer“ og þú
ert að spila með öðrum þá sérðu oftar
en ekki bara eitthvert notendanafn og
getur ekki beint haft góð samskipti
við manneskjuna,“ segir Þorsteinn og
heldur áfram. „Ekkert sem er í lík-
ingu við það að eiga í mannlegum
samskiptum við aðra manneskju.“
Bæta mannleg samskipti
Þorsteinn bendir á að fjölmargar
kannanir hafi sýnt að einmanaleiki
hefur aukist gríðarlega mikið með til-
komu snjalltækja. Þrátt fyrir að fólk
eigi í raun í meiri samskiptum, í gegn-
um samskiptaforrit á borð við Mes-
senger eða WhatsApp. „Sem er ótrú-
lega mikil þversögn því í raun og veru
erum við að núna að eiga meiri sam-
skipti heldur en nokkru sinni áður,“
segir Þorsteinn.
Þorsteinn bendir á að yngra fólk sé
í meiri mæli farið að nýta sér öðruvísi
tækni. Það sendi frekar skilaboð til
sinna vina með Snapchat, noti mynda-
vélina þar sem samskiptin verða
dýpri, með svipbrigðum sem illa er
hægt að tjá í svarthvítum texta.
Teatime hyggst því nýta þá öflugu
tækni sem snjallsímarnir búa yfir og
blanda henni við svokallaða AR-tækni
(e. augmented reality) sem margir
kannast við úr filterum sem boðið er
upp á á Snapchat, eða í Pokémon Go
leiknum þar sem tölvutækni er notuð
til þess að auðga eða breyta veru-
leikanum.
„Við hugsuðum með okkur að
blanda þessari nýju tækni sem sím-
arnir eru, við aðra tækni. Við viljum
því bjóða upp á leik við rauntímaví-
deósímtal. Ofan á það ætlum við að
nota AR-tæknina, til að skjóta fólki
inn í einhver leikjaheim. Gera það
raunverulegt, þar sem þú átt í raun-
verulegum samskiptum við vini þína á
meðan þú ert að spila leiki, þó að þeir
séu einhvers staðar allt annars stað-
ar. Til að bæta og auka gæði sam-
skipta hjá fólki sem er að spila saman
tölvuleik,“ segir Þorsteinn og bætir
því við að slík tækni hafi ekki verið
notuð áður til að búa til símaleik.
Eggin í mörgum körfum
„Við erum að gera þessa tækni til
þess að verða góðir í því að búa til leiki
þar sem fólk er annaðhvort að keppa
á móti einhverjum í rauntíma, eða
með einhverjum í rauntíma. T.d. við
að leysa þrautir,“segir Þorsteinn.
Eins og áður segir er stefnt að út-
gáfu fyrsta leiksins í febrúar á næsta
ári en von er á fleiri leikjum eftir það
sem styrkir tekjugrunn fyrirtækisins.
Í því ljósi stendur ekki allt og fellur
með þessum eina leik líkt og var raun-
in með QuizUp. Þorsteinn segir teym-
ið hafa lært mikið af QuizUp og að
tekjugrunnurinn hafi verið það fyrsta
sem hugsað var út í.
„Með QuizUp settum við öll eggin í
sömu körfu. Spurningaleikir, ekki
bara QuizUp, heldur allir spurninga-
leikir sem hafa komið út á símum,
hafa allir átt erfitt með það að skapa
tekjur. Það er bara af því að módelið
er erfitt,“ segir Þorsteinn.
„Kosturinn við það sem við erum að
gera núna er að við erum ekki að búa
til einn leik heldur margar tegundir af
leikjum. Allir leikirnir eru með mis-
munandi leið til þess að skapa tekjur.
En tekjurnar verða í gegnum auglýs-
ingar og svo með kaupum á vörum í
leiknum sjálfum. Eins og allar tekjur
verða til í þessum símaheimi,“ segir
Þorsteinn.
Þorsteinn segir þó að tækifærin
séu ekki aðeins fólgin í þeim leikjum
sem fyrirtækið býr til. „Mér líður eins
og möguleikinn á þessu tækifæri sé
miklu stærri en QuizUp. Hérna erum
við að búa til tækni. Við erum ekki
bara að búa til leiki sjálf heldur sjáum
við fyrir okkur að vinna með þessa
nýju tegund leikja með stúdíóum úti
um allan heim. Þetta er í raun alveg
nýtt „genre“ af leikjum sem ég spái að
verði mjög fyrirferðamiklir í náinni
framtíð.“
Ný tegund af leikjum
Þorsteinn Baldur Friðriksson og félagar í Teatime Games vinna að nýjum leik
sem býður upp á áður óþekkta möguleika í einmana veruleika snjallsímanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tölvuleikir Þorsteinn segir tekjumöguleika Teatime Games vera mikla í
ljósi þess að ekki er aðeins um einn tölvuleik að ræða heldur marga.
22. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.04 119.6 119.32
Sterlingspund 151.09 151.83 151.46
Kanadadalur 88.39 88.91 88.65
Dönsk króna 18.28 18.386 18.333
Norsk króna 13.779 13.861 13.82
Sænsk króna 13.286 13.364 13.325
Svissn. franki 120.52 121.2 120.86
Japanskt jen 1.0648 1.071 1.0679
SDR 165.31 166.29 165.8
Evra 136.52 137.28 136.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.3184
Hrávöruverð
Gull 1255.0 ($/únsa)
Ál 1922.5 ($/tonn) LME
Hráolía 56.49 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á