Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skýrsla innriendurskoð-unar Reykja-
víkurborgar um
framúrkeyrsluna við
braggann í Naut-
hólsvík er raunaleg
lesning. Í skýrslunni
kemur fram að ekki
stóð steinn yfir
steini í framkvæmdinni. Verk-
lagsreglur voru ítrekað brotnar
alveg frá upphafi og kostnaður
hlóðst eftirlitslaust upp. Aðeins
þröngur hópur innan borgar-
innar fylgdist með framvindunni
og sá ekki ástæðu til að upplýsa
borgarráð um stöðuna þótt ærin
ástæða hefði verið til.
Í skýrslunni er spjótum beint
að skrifstofu eigna og atvinnu-
þróunar hjá borginni. Segir þar
að á árinu 2015 hafi innri endur-
skoðun gert úttekt á skrifstof-
unni og sett fram ábendingar um
atriði sem betur mættu fara.
Ekki hefðu verið gerðar full-
nægjandi úrbætur vegna ábend-
inganna, en ætla mætti að hefði
það verið gert hefði vinnan bið
braggann í Nauthólsvík ekki far-
ið í þann farveg sem hún gerði.
Það er einnig ástæða til að
velta fyrir sér hvernig skilgreina
eigi útkomuna og að hve miklu
leyti var um minjavernd að
ræða. Augljóst er að gamli
bragginn var ekki gerður upp. Í
skýrslunni er talað um misvís-
andi upplýsingar: „Talað hefur
verið um verndunarsjónarmið og
að það þurfi að byggja upp eins
og byggingarnar voru áður, en
samt sem áður voru gerðar ýms-
ar breytingar á þeim,“ segir í
skýrslunni. Síðan eru raktar
ýmsar breytingar, en um leið að
farnar hafi verið óþarflega dýrar
leiðir annars staðar undir merkj-
um verndar. Þá hafi margum-
talað náðhús, sem brann á sínum
tíma og var því ónýtt, verið
endurbyggt með ærnum til-
kostnaði, en telja skýrsluhöfund-
ar að ugglaust hefði fengist leyfi
til að rífa það. Á það hefði hins
vegar aldrei reynt því ekki var
sótt um leyfi til að rífa það.
Þá er rakið í skýrslunni
hversu erfitt er að draga upp
mynd af framkvæmdinni vegna
þess að heimildir eru einfaldlega
ekki fyrir hendi. Kemur í ljós að
skjöl um framkvæmdir, hönnun
og hugmyndavinnu hafa ekki
verið varðveitt í skjalasafni.
Þetta nær meðal annars til
tölvupósta, sem ekki voru afrit-
aðir í skjalavistunarkerfi og
hurfu því einfaldlega. Í skýrsl-
unni er talað um brot á lögum
um opinber skjalasöfn. Það get-
ur ekki talist viðunandi að borg-
in stundi rassvasabókhald af
þessu tagi.
Í skýrslunni segir að upplýs-
ingagjöf hafi verið ófullnæjandi
á allflestum stigum. Ágreiningur
sé milli þeirra sem áttu að fylgj-
ast með verkinu, skrifstofustjóra
og verkefnastjóra skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar hjá
borginni beri ekki saman um
hvað sá síðarnefndi hafi upplýst
hinn um og engin
gögn finnist sem
varpi ljósi á það mis-
ræmi. Þá hafi vill-
andi og jafnvel rang-
ar upplýsingar verið
lagðar fyrir borg-
arráð um verkefnið.
Til dæmis sé fram-
úrkeyrsla skýrð með
því að bragginn hafi verið frið-
aður, en það er alls ekki rétt.
Þá segir að samskipti skrif-
stofustjóra skrifstofu eigna og
atvinnuþróunar og borgarstjóra
hafi ávallt verið mikil, því beri
þeir báðir vitni, en þeim beri hins
vegar saman um að borgarstjóra
hafi ekki verið kunnugt um fram-
vindu verkefnisins að Nauthóls-
vegi 100 og engin gögn fundist
um samskipti milli þeirra vegna
verkefnisins.
Í skýrslunni er fundið að því að
innkaupareglum borgarinnar
hafi ekki verið fylgt við gerð
samninga vegna framkvæmd-
anna. Innkauparáð borgarinnar
fann að þessu, óskaði eftir skýr-
ingum og í kjölfarið eftir áliti
borgarlögmanns. Það álit kom
ekki fyrr en fjórtán mánuðum
eftir að beðið var um það. Var það
skýrt með því að tafir hefðu verið
á upplýsingagjöf. Það er vita-
skuld ólíðandi að kerfið dragi að
veita svör svo lengi og er einnig
fundið að því að innkauparáð
skuli ekki hafa ítrekað málið við
borgarlögmann.
Skýrslan er mikill áfellis-
dómur. Hún gefur innsýn í það
hvernig ráðist er í verkefni með
bundið fyrir augu. Mikið hefur
verið fundið að framúrkeyrsl-
unni, en það var nógu dýrt fyrir
og furðulegt að enginn skyldi
spyrja hvort það væri yfirhöfuð
skynsamlegt að ráðast í þennan
austur á almannafé.
Þessi lausatök eiga líka stóran
þátt í að kostnaður við verkefnið
fer úr böndum og það er full
ástæða til að spyrja hvort ekki
megi yfirfæra það á önnur verk-
efni hjá borginni.
Borgin hefur margar skyldur
við borgarbúa og á fullt í fangi
með að uppfylla þær, svo ekki sé
meira sagt. Borgarstjóri segist
ætla að axla ábyrgð. Það verði
gert með því að laga til þannig að
svona nokkuð gerist ekki aftur.
Af hverju var ekki lagað til þegar
innri endurskoðun setti fram sín-
ar ábendingar fyrir þremur ár-
um? Þarf fjölmiðlafár til að
meirihlutinn ranki við sér?
Meirihlutinn reynir að láta
eins og bragginn sé undantekn-
ing. Ástæða er til að óttast að það
sé öðru nær. Nýlega kom fram að
opinber verkefni fara að meðal-
tali 60% fram úr áætlun. Mun það
breytast? Má búast við að allt í
einu verði farið að bera virðingu
fyrir peningum, sem koma úr
vösum borgaranna? Hver verða
svörin þegar næsta framúr-
keyrsla kemst í hámæli? Vissi þá
enginn neitt heldur? Verður þá
engin gögn að finna um eitt eða
neitt? Þessu máli er hvergi nærri
lokið.
Skýrslan um bragg-
ann í Nauthólsvík er
dapurleg lesning um
verkefni sem fór
gjörsamlega úr
böndum}
Áfellisdómur
Þ
ó það eigi eftir að kaupa seinustu
gjafirnar, þrífa eldhússkápana og
það hafi farist fyrir að senda jóla-
kortin í ár þá er engin ástæða til að
örvænta. Jólin koma alltaf á sama
tíma, sama hvort okkur finnst við vera tilbúin til
að taka á móti þeim eða ekki. Stressið og álagið
er óþarfi, stundum er best að geta horft i gegn-
um fingur sér og enn mikilvægara er nýta tím-
ann til að sinna þeim sem standa manni næst.
Stærstu pakkarnir, tandurhrein gólf eða nýjasti
jólakjóllinn er ekki mælikvarði á vellíðan yfir há-
tíðarnar.
Það er hægt að segja margt um jólin og þann
tíma sem nú fer í hönd. Burtséð frá aðstæðum
hvers og eins eigum við það flest sameiginlegt að
nýta tímann í þessari síðustu viku ársins til að
horfa yfir árið. Við reynum að meta það sem vel
var gert, allar minningarnar með okkar nánustu,
hvaða áföngum við náðum og síðast en ekki síst reynum við
að meta hvað við getum gert betur á næsta ári. Allt er þetta
persónubundið, markmiðið mismunandi og þannig mætti
áfram telja.
Við eigum það þó flest sameiginlegt að vilja búa í frið-
samlegu og vingjarnlegu samfélagi. Við viljum hafa góðan
anda í samfélaginu, eins og stundum er sagt. Það er eitthvað
sem við getum öll unnið að. Við getum við ósammála um ým-
islegt en á sama tíma virt rétt allra til að hafa ólíkar skoð-
anir, við höfum ólík markmið en óskum þess samt að náung-
inn nái sínum markmiðum og þrátt fyrir að það skyggi
stundum á í lífum okkar vonum við að aðrir sjái
birtuna í sínu lífi.
Ég hef á þessu ári haft mikil tækifæri til að
ferðast víða um landið. Fyrir utan það að njóta
náttúrufegurðar landsins er mér dýrmætast að
eiga samfélag við annað fólk, alls staðar að af
landinu. Burtséð frá öllum þeim málum sem
rædd eru á vettvangi stjórnmálanna þá eiga
flestir það sameiginlegt að vilja eiga þess kost
að sjá fyrir sér og sínum, að búa börnum sínum
vel í haginn, að búa við öryggi og fyrst og fremst
í samfélagi þar sem fólki er mætt af hlýju og
kærleika. Þetta er vissulega einföld mynd af
flóknum veruleika, en engu að síður ágætis
áminning fyrir okkur stjórnmálamenn að vita að
stjórnmál eru ekki alltaf efst í huga almennings.
Við munum áfram hafa ólíkar skoðanir og
áfram verða einhverjir sem njóta sín best í því
að ala á sundrung og óánægju. En við getum
tekist á með málefnalegum hætti, af virðingu fyrir náung-
anum og þannig lagt okkar af mörkum til að búa til góðan
anda í samfélaginu. Það getur ýmislegt komið upp á lífinu,
við förum í gegnum alls konar hindranir og áskoranir – en
með gleði, jákvæðni og bjartsýni leggjum við öll okkar af
mörkum við að búa til gott samfélag. Ég óska ykkur öllum
gleðilegra jóla og vona að nýja árið verði ykkur gæfuríkt.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Góður andi á nýju ári
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar
og ritari Sjálfstæðisflokksins.
aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Innheimta skatta og gjalda áfiskeldi verður aukin frá þvísem nú er og lagt var til í til-lögum starfshóps um stefnu-
mótun í fiskeldi sem skilaði tillögum
á síðasta ári, verði ný frumvörp sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
að lögum. Frumvörpin eru tvö. Ann-
ars vegar um álagningu auðlinda-
gjalds á fiskeldi og hinsvegar breytt
frumvarp um breytingar á ýmsum
lögum um fiskeldi.
„Það vekur athygli að í báðum
frumvörpunum er boðuð aukin gjald-
taka. Greinilega er verið að bæta
talsvert í,“ segir Einar K. Guðfinns-
son, formaður Landssambands fisk-
eldisstöðva.
Hálft gjald í lokuðum kvíum
Í drögum að frumvarpi um nýt-
ingu eldissvæða í sjó er gert ráð fyrir
greiðslu 15 króna gjalds af hverju
kílói fisks sem fyrirtækin hafa leyfi
til að ala. Fyrirtækin greiða í dag
ekki sérstaklega fyrir þessi afnot.
Gjaldið er fyrirhugað að leggja á árið
2020. Það verði lægra fyrstu árin en
fullt gjald verði sett á árið 2023.
Í skýrslu starfshóps um stefnu-
mótun í fiskeldi sem fulltrúar fisk-
eldis og veiðréttarhafa áttu sæti í var
samkomulag um slíkt gjald, 15 krón-
ur á kíló. Það átti hins vegar að
leggjast á hvert framleitt kíló, ekki
ónotaðan lífmassa í leyfum, og gefa
átti sex ára umþóttunartíma frá því
að slátrun hefst til að gefa fiskeldinu
kost á að fjárfesta og byggja sig upp.
Í nýju tillögunum er reynt að
stuðla að notkun á ófrjóum laxi og
lokuðum eldiskvíum til þess að draga
úr hættu á erfðamengun náttúru-
legra laxastofna með því að veita
helmingsafslátt af auðlindagjaldi
þannig eldis. „Ég persónulega geri
ekki athugasemdir við að reynt sé
með efnahagslegum hvötum að stýra
eldinu einnig inn á þessar brautir. Í
því felst aukinn kostnaður og áhætta
fyrir fyrirtækin því aðferðirnar eru
enn á tilraunastigi,“ segir Einar.
Gert er ráð fyrir að gjaldið skili
milljarði í tekjur árið 2023 og rennur
fjárhæðin óskipt í ríkissjóð.
Í fiskeldislagafrumvarpinu er
lagt til að árlegt gjald í Umhverfis-
sjóð sjókvíaeldis verði hækkað úr 12
SDR í 20 SDR á hvert tonn af laxi
sem leyfi er fyrir. Þeir sem ala ófrjó-
an lax eða lax í lokuðum eldisbúnaði
fái helmingsafslátt.
Tillit til mótvægisaðgerða
Með fiskeldislagafrumvarpinu
er verið að skapa lagalegan grund-
völl fyrir því að nota áhættumat Haf-
rannsóknastofnunar til að takmarka
enn frekar en nú er laxeldi í ná-
grenni við laxveiðiár, í þeim tilgangi
að draga úr hættu á erfðablöndun
eldislax og náttúrulegra stofna. Það
fyrirkomulag var niðurstaða um-
rædds starfshóps. Aðferðir Hafró
hafa hinsvegar sætt mikilli gagnrýni
nokkurra fiskeldismanna sem telja
þær ekki eiga neitt skylt við vísindi.
Ákvæði frumvarps sem lagt var
fram á síðasta þingi um áhættumat
hefur verið breytt nokkuð. Nú verð-
ur allt eldi í sjó tekið með í reikning-
inn, líka í lokuðum eldiskvíum. Þá
tekur skilgreiningin einnig til mót-
vægisaðgerða, ef um þær er að
ræða. Einnig eru skýrari reglur
um það hvernig fiskeldisfyrirtæki
á að draga úr eldismagni, ef end-
urskoðað áhættumat gefur tilefni
til.
Einar segir að það hljóti
að vera skref í rétta átt ef
tekið verður tillit til mót-
vægisaðgerða. Hann
treystir sér þó ekki til að
segja hvort það nægi til
að lægja óánægjuöldur.
Fiskeldið greiði millj-
arð í auðlindagjald
„Það jákvæða við þessi frum-
vörp er að útgangspunktur
þeirra er að hér verði stundað
öflugt fiskeldi. Áform stjórn-
valda um verulega tekjuöflun
ríkissjóðs af fiskeldi staðfestir
það,“ segir Einar K. Guðfinns-
son, formaður Landssambands
fiskeldisstöðva.
Hann segir að frumvörpin feli
í sér breytingar sem fiskeldis-
menn þurfi að fara vandlega yfir.
„Við teljum að lögin þurfi að
vera skýr og fela í sér fyrir-
sjáanleika sem okkur hefur
fundist mikið skorta á.
Regluverkið þarf að vera
strangt en án óþarfa
flækjustiga. Sumt í
frumvarpinu um fiskeldi
er í þá áttina en annað
ekki.“ Nefnir Einar að
ekki sé gert ráð fyrir
sameiningu rekstr-
ar- og starfsleyfa
sem minnkað
hefði flækjustigið.
Verði án
flækjustiga
EINAR K. GUÐFINNSSON
Einar K.
Guðfinnsson
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Unnið á kvíum Tilgangur fiskeldisfrumvarps er að skapa íslensku fiskeldi
bestu skilyrði til uppbyggingar en jafnframt að stuðla að ábyrgu fiskeldi.