Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 25

Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Opið í dag til kl. 20, Þorláksmessu kl. 11-21 og aðfangadag kl. 10-13. Glæsilegar jólagjafir Undirföt Náttföt Náttkjólar Sloppar Gjafakort Eins og oft áður um jólinleggur skákpistlahöf-undur blaðsins nokkrarskákþrautir fyrir les- endur sína en lausnir munu birtast í blaðinu eftir viku. Dæmin eru úr ýmsum áttum og höfundar flestir lítt þekktir með þeim undantekningum þó að dæmi nr. 2 er eftir skákdæma- höfundinn fræga Leonid Kubbel og dæmi nr. 4 er eftir bandaríska skák- dæmahöfundinn Sam Lloyd. 1. Hvítur leikur og mátar í 2. leik. 2. Hvítur leikur og mátar í 2. leik 3. Hvítur leikur og mátar í 3. leik 4. Hvítur leikur og mátar í 3. leik Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is 5. Hvítur leikur og vinnur. 6. Hvítur leikur og vinnur. Heimsmeistaramótin í hraðskák og atskák hefjast á annan dag jóla Sankti-Pétursborg í Rússlandi er vettvangur einnar vinsælustu keppni ársins, heimsmeistaramót- anna í hraðskák og atskák, sem hefj- ast í Sankti-Pétursborg á annan í jólum, 26. desember, kl. 12 að ís- lenskum tíma. Atskákmótið er fyrr á dagskrá og stendur í þrjá daga, 26.- 28. desember, samtals 15 umferðir. Tímamörk eru 15 10. Hraðskákkeppnin fer fram dag- ana 29. og 30. desember, 21 umferð, og tímamörk eru 3 2. Hægt verður að fylgjast með mótinu á fjölmörg- um vefsvæðum, t.d. Chess24.com. Jóla- skák- þrautir Margra hæða blokk er nú risin þvert á neyð- arbrautina á Reykjavík- urflugvelli, eins og risa- stór steinsteyptur vegartálmi, svo öruggt sé að hún verði aldrei notuð framar sem flug- braut til að koma fár- veiku fólki utan af landi á hátæknisjúkrahús. Þessi stórfurðu- ega ákvörðun var endanlega tekin af vinstri mönnum í borgarstjórn Reykjavíkur. Þessi nauðsynlega neyð- arbraut var einfaldlega fyrir skipulagi borgarstjórnar. Álíka hegðun var viðhöfð af komm- únistum í Austur-Evrópu á tímum kalda stríðsins. Í Bratislava, sem þá var næststærsta borg Tékkóslóvakíu en er nú höfuðborg Slóvakíu síðan 1993, var tekin sú ákvörðun að byggja nýja brú (Nový Most, sem tekin var í notkun 1972) og hraðbraut yfir Dóná í gegnum gamla miðbæinn við ána. Til þess þurfti að brjóta niður stórt bæna- hús gyðinga og stóran hluta gyðinga- hverfis. Auk þess var hin nýja hrað- braut lögð beint fyrir framan aðaldyr kaþólsku dómkirkjunnar í Bratislava (Dóm Svatä Martina), þannig að ekki var leng- ur hægt að nota aðal- innganginn inn í helgi- dóminn. Það má til sanns vegar færa, að fátt sé komm- únistum heilagt, nema þá slíkur forkastanlegur yfirgangur þeirra eigin ógnarstjórnar. Það undarlega við þessa yfirgangssemi vinstri vængs í stjórnmálum er eyði- legging eigna og hið algera virðing- arleysi og skortur á umburðarlyndi við aðrar skoðanir, en hans eigin. Í Austur-Evrópu var fólk til dæmis fangelsað undir stjórn kommúnista eða sett á geðveikrahæli fyrir kristið trúboð. Vinstri menn í borgarstjórn eru komnir vel á veg í þá áttina með því að banna kristið trúboð í skólum í Reykjavík vorra daga. Þeir hafa nú þegar komið á fót skoðanalögreglu, sem einnig var að verki í Bratislava eins og annars staðar í austur blokk- inni á tímum kalda stríðsins. Svona vinnubrögð tekur langan tíma að laga, ef það er þá nokkurn tíma hægt. Á meðan bera þau merki um stjórnarfarslegar hörmungar sem næstu kynslóðir munu ekki hreykja sér af, né vilja kannast við að hafa stuðlað að. Mál er að linni og að Reyk- víkingar og landsbyggðarmenn allir sleppi undan ógnarstjórn vinstri manna og komist fagnandi inn í nýja tímann, líkt og Tékkóslóvakar og aðrir þjáningarbræður þeirra upplifðu fyrir þremur áratugum. Ógnarstjórn kommúnista Eftir Einar Ingva Magnússon Einar Ingvi Magnússon »Þessi nauðsynlega neyðarbraut var fyrir skipulagi borgarstjórn- ar. Álíka hegðun var við- höfð af kommúnistum í Austur-Evrópu á tímum kalda stríðsins. Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.