Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 27
vandi, ekki síst fyrir öryrkjana sjálfa
sem festast í fátæktargildru auk ein-
manaleikans, kvíðans og þunglynd-
isins – og að vera ekki eins og aðrir, á
vinnumarkaði. Það hafa fáir sagt í
mín eyru: „Ég er stoltur öryrki“ –
flestir fara með veggjum eins og ég
gerði lengi og skammast sín að vera
þessi baggi á samfélaginu en nú
heimta ég bara meira, já hagsmuna-
hóparnir eru alls staðar. En ég er
stolt manneskja og veit að hluti af
fjölgun öryrkja er hraði og kröfur
samfélagsins. Foreldrar vinna lengur
og báðir úti, fara í félagsstarf, börnin
eru í skólanum frameftir degi dauð-
þreytt. Hinir fullorðnu fara að róa
okkur, bæði heilsunnar vegna líkam-
lega og andlega, börnin skynja
streitu mæta vel og hún hefur áhrif á
þau sem jafnvel birtist á fullorðins-
árum og þá ef til vill framleiðum við
fleiri öryrkja. Er það það sem við vilj-
um?
Hugum fyrst og fremst að börn-
unum og uppeldi þeirra, frjálslegu en
fróðlegu. Börnin eru ávöxtur framtíð-
annar og aðeins með þeim getum við
stöðvað fjölgun öryrkja, en ástæða
flestra eru geðraskanir og stoðkerfis-
sjúkdómar. Hér eru forvarnir geysi-
lega mikilvægar og skipta í raun í öllu
máli, en þá verðum við líka að vita
hvað við erum að fyrirbyggja og á því
þurfum við frekari rannsóknir, á því
hvað orsakar örorku, ekki í dag, held-
ur í gær – en í dag getum við notað
þær upplýsingar sem eru til.
Þá þarf að gera aðgerðaáætlun,
ekki í dag, heldur í gær. Það er svo
undarlegt að Tryggingastofnun ríkis-
ins hafi ekki á takteinum betri út-
skýringar á fjölgun öryrkja. Björgum
fleiri frá örkumlum, ör-orku (lítil
orka). Það er allra hagur. Breytum
einnig viðhorfi okkar til öryrkja og
þurrkum út fordómana.
Höfundur er kennari, blaðamaður og
diploma í fötlunarfræðum. og öryrki.
uhj@simnet.is
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
HÁLSMEN ARMBÖND EYRNALOKKAR HRINGIR
Demantsmen
4k hvítagull
29.000 kr.
Demantslokkar 0,08 ct
38.900 kr.
Demantsmen 14k gull 0,20 ct
87.000 kr.
Demantslokkar 2 x 0,10 ct
84.000 kr.
Demantsmen 14k gull
29.000 kr.
Demantslokkar 0,08 ct
38.900 kr.
Hálsmen
14k gullmoli
26.500 kr.
Demantshringur
14k gull 0,22 ct
129.000 kr.
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Gullsmiðir
Gullhringur 14k
47.500 kr.
Demantshringur
14k gull 0,22 ct
129.000 kr.
Demantshringur
14k gull 0,20 ct
143.500 kr.
Demantslokkar 2 x 0,10 ct
84.000 kr.
Demantsmen 14k
hvítagull 0,20 ct
87.000 kr.
Demantsmen
14k gull stirni
47.500 kr.
Demantslokkar
0,20 ct
84.000 kr.
Demantsmen
14k hvítagull 0,25 ct
108.500 kr.
Gulltryggðu jólagleðina í Carat
Opið 10-22 í kvöld – Þorláksmessu 10-23 – Aðfangadag 10-13
Fátækt meðal barna
á sér margar birting-
armyndir. Þegar hug-
takið „fátækt“ ber á
góma dettur mörgum í
hug svelti og jafnvel
að viðkomandi búi á
götunni. Hugtakið fá-
tækt hefur hins vegar
mun víðtækari merk-
ingu en það. Í því felst
m.a. að hafa ekki ráð
á að veita börnum sín-
um þau lífsgæði sem vilji stendur
til eða eru talin nauðsynleg. Hópur
þessara barna er ekki einsleitur.
Börn einstæðra foreldra og inn-
flytjenda eru þó líklegri til að vera
hluti af þessum hópi. Foreldrar
sem eru aðþrengdir fjárhagslega
þurfa eðli málsins samkvæmt að
forgangsraða ef endar eiga að ná
saman. Efst á forgangslista eru
grunnþarfir, húsaskjól og að fæða
og klæða fjölskylduna. Aðrir hlutir
verða að mæta afgangi. Ekki geta
allir foreldrar tryggt fjölskyldu
sinni öruggt húsaskjól til langs
tíma eða mat á borðið á hverjum
degi. Þessir foreldrar lifa ef til vill í
óvissu um hver mánaðamót hvort
tekst að greiða alla nauðsynlega
reikninga og eiga líka svolítinn af-
gang.
Í starfi mínu gegnum árin sem
sálfræðingur hef ég oft komið að
málum barna fátækra foreldra. Þau
fara sannarlega ekki varhluta af
áhyggjum foreldra sinna, hvort sem
það eru fjárhagsáhyggjur eða
áhyggjur af öðrum ástæðum.
Óstöðugleiki t.a.m. tíðir flutningar
ásamt öðrum fylgifiskum viðvar-
andi efnahagsþreng-
inga hafa neikvæð og
jafnvel skaðleg áhrif á
þroska og tilfinningalíf
barnanna.
Sjálfsmatinu ógnað
Að vera barn í fjöl-
skyldu sem býr við
knappan fjárhag til
langs tíma er erfitt
hlutskipti. Óhjákvæmi-
lega bera börn sig
saman við önnur börn.
Þau bera heimilislíf
sitt saman við heim-
ilislíf vina sinna þar sem sambæri-
legur vandi er ekki fyrir hendi.
Skilningur barna á þessari erfiðu
stöðu fjölskyldunnar byggist vissu-
lega á þroska þess og aldri. Engu
að síður spyrja unglingar sig allt
eins og yngri börnin af hverju þeir
geti ekki notið sömu hluta og önnur
börn á þeirra aldri. Enda þótt þeir
viti ef til vill ekki svarið eru margir
eðlilega ósáttir við hlutskipti sitt og
finnst það ósanngjarnt. Þeir finna
oft mest fyrir mismunun ef þeir fá
ekki tækifæri til að stunda kostn-
aðarsamar tómstundir t.d. tónlist-
arnám sem hugur og áhugi beinist
að.
Þessu er svipað farið með yngri
börnin sem einnig leiða oft hugann
að leikföngum sem þau sjá á heim-
ilum vina sinna og þrá að eignast.
Eldri börnin horfa hugsanlega til
snjalltækja af ýmsu tagi, tölvu-
leikja, ferðalaga eða tískufatnaðar
sem foreldrar þeirra hafa ekki ráð
á að veita þeim.
Því meiri mismunun sem börn
kynnast innbyrðis í félags- og efna-
hagsstöðu sinni því meiri líkur eru
á að tilfinningar eins og vanmáttur,
minnimáttarkennd og öfund, geri
vart við sig. Við slíkar aðstæður
finna ung börn oft fyrir sorg og
höfnun. Unglingar finna oft fyrir
reiði, pirringi og biturð. Það hefur
áhrif á sjálfsmat og sjálfsvirðingu
barns ef það er stöðugt að finna og
upplifa að það fær ekki sömu tæki-
færi og önnur börn á sama reki.
Þess vegna finnst börnum fátækra
foreldra oft þau vera á jaðrinum
meðal jafningja sinna og tekst jafn-
vel ekki að samlagast nógu vel eða
líða nógu vel með sjálfan sig í jafn-
aldrahópnum.
Þegar líður að hátíðum eins og
jólum eru börn fátækra foreldra oft
hnuggin og jafnvel kvíðin því þá
verður slík mismunun jafnvel enn
meira áberandi. Í aðdraganda jóla
er algengt að tilhlökkun barna í fá-
tækum fjölskyldum fái á sig gráan
blæ. Þau spyrja sig „hvernig verð-
ur þetta um þessi jól“. Verður til
peningur fyrir jólagjöfum og öðru
sem tilheyrir jólahátíðinni?
Sé litið til Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna ber samfélaginu
að draga úr mismunun meðal barna
og tryggja að öll börn hafi jafnan
aðgang að tómstundastarfi, skóla-
máltíðum, leikskóla og heilbrigðis-
þjónustu. Þetta ákvæði sem og
annað í Barnasáttmálanum ber
okkur að hafa í heiðri í hvívetna.
Eftir Kolbrúnu
Baldursdóttur » Þeir finna oft mest
fyrir mismunun ef
þeir fá ekki tækifæri til
að stunda kostnaðar-
samar tómstundir t.d.
tónlistarnám sem hugur
og áhugi beinist að.
Kolbrún
Baldursdóttir
Höfundur er sálfræðingur og borgar-
fulltrúi Flokks fólksins.
Fátækt merkir ekki alltaf svelti
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.