Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
✝ Kristján Vífillfæddist á Eski-
firði 16. ágúst
1948. Hann lést 10.
desember 2018 á
Landspítalanum í
Fossvogi eftir stutt
veikindi.
Foreldrar hans
voru Karl Guðni
Kristjánsson, f. 5.
júlí 1915 frá Eski-
firði, d. 27. desem-
ber 1985, og Álfhildur Sig-
urbjörnsdóttir, f. 31. júlí 1920
frá Stöðvarfirði, d. 11. maí 1978.
Börn þeirra eru Bragi Bjarn-
ar, Heið rún Helga, Kristján
Vífill, Sigurbjörg og Karen
Gígja. Sigurbjörg lést 5. júní
2017.
Kristján Vífill kvæntist Önnu
Eyrúnu Halldórsdóttur frá
Stórabóli, f. 20.2. 1954, hinn 6.8.
1976.
Börn þeirra eru Svala Björk,
f. 30. mars 1974, Halldór Stein-
ar, f. 8. janúar 1981, og Karl
Guðni, f. 30. ágúst 1988.
Svala Björk er búsett á Höfn.
Maki er Héðinn Sigurðsson, þau
eiga saman soninn Kristján
Bjarka, f. 4. október 2001. Dótt-
ir Svölu Bjarkar er
Anna Mekkín, f. 7.
ágúst 1994, faðir
hennar er Reynir
Hilmarsson. Héð-
inn á tvo syni frá
fyrra hjónabandi,
Hlyn og Sigurð.
Halldór Steinar
er búsettur á Höfn.
Maki er Erla Þór-
hallsdóttir, dóttir
hennar er Arna
Lind Kristinsdóttir, f. 20. mars
2006. Þau eiga saman Hildi
Köru, f. 20. janúar 2011, og Kol-
bein Darra, f. 13. janúar 2014.
Karl Guðni er búsettur í
Reykjavík.
Anna Mekkín er gift Alex
Frey Hilmarssyni og þau eiga
dótturina Aríu Rós, f. 16. mars
2018. Þau eru búsett í Kópa-
vogi.
Kristján Vífill ólst upp á Eski-
firði fyrstu bernskuárin og
flutti með foreldrum sínum til
Stöðvarfjarðar og síðan til
Hornafjarðar þar sem hann bjó
ásamt fjölskyldu sinni.
Minningarathöfn verður
haldin í Hafnarkirkju í dag, 22.
desember 2018, klukkan 13.
Pabbi minn var yndislegur
maður. Hann var hjálpsamur,
góður vinur vina sinna, þoldi illa
óréttlæti og kom jafnt fram við
alla. Pabbi var mikill áhugamað-
ur um íþróttir. Hann lagði stund
á knattspyrnu á sínum yngri ár-
um, renndi sér á skíðum og spil-
aði golf. Áhugi sem ég hef smit-
ast af. Það eru ófá páskafríin
sem við nutum á skíðum í Odds-
skarði og er mér minnisstætt
stoltið sem skein af pabba þegar
hann horfði á krakkana mína
stíga sín fyrstu skref á skíð-
unum síðastliðinn vetur.
Önnur minning sem verður
mér alltaf kær er ferðin til Liv-
erpool í haust sem við stórfjöl-
skyldan fórum saman í tilefni
sjötugsafmælis pabba.
Pabbi studdi alltaf vel við
bakið á mér. Hann keyrði okkur
vinina landshorna á milli til að
spila fótbolta langt fram á full-
orðinsárin. Þegar ég flutti með
fjölskylduna mína austur á Höfn
hjálpaði hann mikið til. Hann
var duglegur að heimsækja okk-
ur í Hagatúnið, þá oft með blá-
ber eða jarðarber handa krökk-
unum.
Hann var frábær afi. Naut
þess að leika við börnin og þau
að fara í heimsókn til afa og
ömmu.
Mikið á ég eftir sakna þess
að heyra útidyrahurðinni skellt
og pabba kalla: „Halló, er ein-
hver heima?“
Takk fyrir allt, elsku pabbi,
hvíldu í friði.
Halldór Steinar
Kristjánsson.
Elsku pabbi minn.
Lífið er óútreiknanlegt. Það
er svo stutt síðan ég fagnaði
með þér 70 ára afmælinu þínu
og eyddi yndislegum dögum
með þér og fjölskyldunni í Liv-
erpool. Mig óraði ekki fyrir því
að þú færir frá okkur skömmu
síðar.
Þú sem varst svo kraftmikill,
lífsglaður og hlakkaðir svo til að
gera meira, njóta meira, lifa líf-
inu og halda áfram að gefa af
þér.
Nú í aðdraganda jólanna
streyma fram tilfinningar. Sorg,
söknuður og kvíði því þig vantar
í hópinn. Það umlykja mig
minningar um góðar samveru-
stundir. Þær eru ljós í myrkrinu
sem ylja og hugga í sorginni.
Þú varst einstakur maður.
Góðhjartaður, heiðarlegur og
með sterkar skoðanir á mönnum
og málefnum. Við vorum ekki
alltaf sammála en samt svo lík
og þegar um var að ræða okkar
sameiginlega áhugamál fótbolta
vorum við alltaf einhuga.
YNWA. Ein af mínum kærustu
minningum er þegar við fórum
tvö saman á leik Bayer Uerdin-
gen og Stuttgart í Þýskalandi.
Ég var svo spennt að sjá minn
uppáhaldsleikmann, Ásgeir Sig-
urvinsson, spila og þú fórst og
fékkst eiginhandaráritun fyrir
mig. Ég á hana enn og geymi
ásamt hjartfólginni minningu
um yndislegan dag sem við átt-
um saman.
Elsku pabbi. Þú fórst alltof
fljótt og ég vildi að við gætum
eytt fleiri stundum saman. Ég
er þakklát fyrir allt sem þú hef-
ur gert fyrir mig og mína. Ég
sakna þín meira en orð fá lýst.
Hvíl í friði.
Þín dóttir,
Svala Björk.
Með nokkrum fátæklegum
orðum langar mig að minnast
tengdaföður míns hans Vífils,
sem nú er látinn langt um aldur
fram, aðallega fyrir hversu flott-
ur einstaklingur hann var, og
votta virðingu mína.
Þennan áhugaverða karl hitti
ég fyrst á Silfurnesvelli, golf-
velli okkar Hornfirðinga, og
fannst hann strax skemmtilega
bremsulaus í tilsvörum, hreinn
og beinn og þó nokkuð góður í
sportinu.
Við nánari kynni og ótal golf-
hringi saman fór ekkert á milli
mála hversu góðan og vel gerð-
an mann Vífill hafði að geyma.
Þessa mannkosti faldi hann
reyndar stundum með kjarn-
yrtri íslensku ef þannig viðraði
til á vellinum, en alltaf var þó
stutt í grínið.
Tengdafaðir minn var með
eindæmum stórt og hlýtt hjarta.
Hann tók sonum mínum tveim-
ur strax með opnum faðmi sem
væru hans eigin afabörn.
Í fyllingu tímans fjölgaði
barnabörnum Vífils og stoltari
og umhyggjusamari afi var
vandfundinn, sem gaf sér alltaf
tíma fyrir grislingana. Þeirra
missir er mikill. Ekki var hann
síður montinn af nafnbótinni
langafi.
Vífill var ósérhlífinn maður
og alltaf boðinn og búinn til
góðverka, sama hvert litið var.
Honum fannst t.d. sjálfsagt að
keyra Sindrarútuna í keppnis-
ferðir landshorna á milli í sínum
frítíma á milli þess sem hann
var lestrarvinur þeirra yngstu í
skólanum. Þetta gerði hann
aukalega meðfram hlutastarfi
við leikskólann – sjötugur ung-
lingurinn.
Frá Mánabrautinni höfum við
Svala gott útsýni að golfvell-
inum og yfir Hornafjörðinn til
jökla.
Ég á eftir að sakna þess að
vita ekki af tengdapabba á vell-
inum því eftir hringinn droppaði
hann oft inn í kaffi með Önnu.
Mér þykir ómetanlegt að hafa
kynnst þér, elsku Vífill. Átt
margar góðar stundir með þér
og hlegið að öllum uppátækj-
unum.
Fagnað sjötugsafmælinu með
þér og náð ykkur pabba og
bróður mínum saman í golfferð
til Spánar þar sem eftirfarandi
rifjast upp.
Á öllum betri golfvöllum er
salernisaðstaða eftir u.þ.b. níu
holur. Að góðra manna sið
ákvaðstu að stökkva þar inn, í
staðinn fyrir á næsta tré. Við
hinir biðum á teig. Óvænt og
rétt á eftir kemur virðuleg
dama inn á eftir þér, sem rekur
upp þessi skaðræðisöskur og
kemur hljóðandi út aftur á
hlaupum … og þú stuttu seinna
pollrólegur og glott-
andi … bauðst bara til að fara
yfir gripið með henni og skildir
ekkert í þessum hávaða!
Lokaði Vífill alltaf að sér?
Ekki endilega.
Takk fyrir allt sem þú gafst.
Héðinn Sigurðsson.
Í dag, 22. desember, kveðjum
við systkinin hann Vífil bróður
okkar. Í annað sinn á einu og
hálfu ári er stórt skarð höggvið
í systkinahópinn og eftir stönd-
um við með sorg í hjarta.
Vífill, sem var miðjubarnið í
hópnum, var fáum líkur. Eng-
ilfagur krakkinn með sakleys-
issvip og dökka lokka var mjög
fljótt eftirminnilegur og uppá-
tækjasamur, stríðinn og snögg-
ur í tilsvörum.
Eru til ótal skemmtilegar
sögur af uppátækjum hans og
hafði hann sjálfur mjög gaman
af að segja frá sínum bernsku-
brekum og allir nutu að hlusta á
því hann hafði mjög góða frá-
sagnargáfu.
Við systkinin hittumst reglu-
lega í gegnum árin, ýmist með
öllum afkomendum okkar eða
eingöngu við og makar. Fórum
við saman í veiðiferðir og köll-
uðum hópinn „Með öngulinn í
rassinum“ þar sem ekki var allt-
af mikill afli eftir ferðirnar held-
ur skemmtileg samvera og góð-
Kristján Vífill
Karlsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR J.Ó. KRISTÓFERSSON,
úrsmiður,
Ljárskógum 14,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
17. desember. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 27. desember klukkan 15.
Hulda Sigurbjörnsdóttir
Emilía Helga Þórðardóttir Jón Jósef Bjarnason
Matthías Þórðarson Rakel Daðadóttir
Þórdís Huld Þórðardóttir Alex Montazeri
Jóhanna S. Huldudóttir Jóhann Pálsson
Skúli Eyfeld Harðarson Bryndís Hauksdóttir
afa- og langafabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLDÓRA SNORRADÓTTIR
frá Syðri-Bægisá, Öxnadal,
húsfreyja í Stóra-Dunhaga, Hörgárdal,
er látin. Útförin verður auglýst síðar.
Þórlaug Arnsteinsdóttir Jóhann Þór Halldórsson
Sigrún Arnsteinsdóttir Jóhannes Axelsson
Árni Arnsteinsson Borghildur Freysdóttir
Hulda Steinunn Arnsteinsd.
G. Ingibjörg Arnsteinsdóttir Þórður Ragnar Þórðarson
Unnur Arnsteinsdóttir Friðrik Sæmundur Sigfússon
Heiðrún Arnsteinsdóttir Friðjón Ásgeir Daníelsson
og fjölskyldur
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Okkar yndislegi, heittelskaði sonur, bróðir,
barnabarn og barnabarnabarn,
EYÞÓR MÁNI STEFÁNSSON,
Strandvegi 2, 210 Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 15. desember.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 28. desember
klukkan 13.
Stefán Pálmason Hjördís Ýr Bessadóttir
Þórður Halldór Stefánsson
Bessi Skírnisson Eiríksína Þorsteinsdóttir
Pálmi Þór Stefánsson Guðrún Björg Víkingsdóttir
Stefán Pálmason Hallbjörg Eyþórsdóttir
Hjördís Sigurbjörnsdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir og
frænka,
ERLA SIGRÚN VIGGOSDÓTTIR
Garðhúsum 3,
lést á Landspítalanum, Hringbraut,
fimmtudagin 20. desember.
Bragi Valgeirsson
Sandra Björk Bragadóttir
Brynhildur Íris Bragadóttir
Anna Eir Bragadóttir
Viggo Mortensen Bergþóra Þórðardóttir
Gerða Jenný Viggosdóttir Halldór Garðarsson
Magni Þór Mortensen Hrefna Arnardóttir
Auður, Elín, Baldur Örn, Kári Hrafn
Ástkæra, yndislega móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
HREFNA SVAVA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Grund mánudaginn
17. desember. Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. janúar klukkan 15.
Kolbrún Sveinsdóttir
Erla Sveinsdóttir Pétur J. Eiríksson
G. Ágúst Pétursson Sesselja Auður Eyjólfsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir Hartwig Müller
Pétur Pétursson Dóra Kristín Björnsdóttir
Guðrún Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn