Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Það voru erfiðar
fréttir að heyra að
Þorsteinn Hjalte-
sted væri látinn.
Við erum búnir að vera vinir og
nágrannar í 25 ár. Þorsteinn var
einstakur vinur, trúfastur og
hlýr. Hann var höfðingi heim að
sækja og minnist ég með hlýju
allra þeirra stunda sem við höf-
um áttum saman. Ferðalagið í
Loðmund sl. sumar var einkar
ánægjulegt, þar sem Þorsteinn
fór á kostum við eldavélina og í
söguflutningi sínum af liðnum
atburðum í lífi sínu.
Við fjölskyldan í Kríunesi
kveðjum frábæran einstakling
með söknuði og biðjum hugg-
unar Guðs fjölskyldu hans til
handa.
Björn Ingi Stefánsson.
Fyrstu kynni okkar Steina
voru haustið 1977. Þá vorum við
að hefja skólagöngu við Mennta-
skólann á Laugarvatni í fyrsta
bekk. Eftirminnilegt var þegar
Steini var spurður hvaðan hann
væri. Hann sagðist vera frá
Vatnsenda sem við vissum ekki
hvar var. Þá stóð ekki á svari
hjá Steina. Veistu hvar Kópa-
Þorsteinn
Hjaltested
✝ ÞorsteinnHjaltested
fæddist 22. júlí
1960. Hann lést 12.
desember 2018.
Útför Þorsteins
fór fram 21. desem-
ber 2018.
vogur er, spurði
hann? Við játtum
því. Kópavogur er á
Vatnsenda, svaraði
þá Steini að bragði.
Við vorum aðeins
15 og 16 ára og það
var risastökk að
vera kominn á
heimavist, fjarri
foreldrum og fjöl-
skyldu. Við urðum
að sjá um okkur
sjálf og vera sjálfum okkur næg.
Og samlagast stórum hópi jafn-
aldra. Þá skipti miklu að geta
gefið sig að græskulausri gleði
og samkennd.
Í fyrstu var Steini hlédrægur
og alvörugefinn en það rjátlaðist
fljótt af honum. Hann féll vel
inn í hópinn og var okkur öllum
kær. Honum var í blóð borinn
leiftrandi húmor og stríðni sem
braust oft út í saklausum en
samt úthugsuðum og óvæntum
hrekkjum. En einnig höfðings-
skapur og góðmennska í okkar
garð. Hann var einstakur vinur
vina sinna.
Við eigum margar góðar
minningar um Steina sem munu
fylgja okkur inn í eilífðina. Við
kveðjum hér góðan vin og félaga
með virðingu og þakklæti. Vott-
um fjölskyldunni okkar dýpstu
samúð og sérstaklega þeim
Magnúsi Pétri og Birni Arnari,
strákunum hans sem hann var
gríðarlega stoltur af.
Fyrir hönd bekkjarfélaga á
Laugarvatni.
Guðni B. Guðnason.
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum
og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkar-
tilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.
Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem
aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar
gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningargreinar
Hægt er að lesa minningar-
greinar, skrifa minningargrein
ogæviágrip.
Þjónustuskrá
Listi yfir aðila og fyrirtæki
sem aðstoða þegar andlár
ber að höndum.
Gagnlegar upplýsingar
Upplýsingar og gátlisti
fyrir aðstandendum
við fráfall ástvina
Nýr minningarvefur á mbl.is
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morg-
unblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda
inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést
og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn-
ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar