Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
BARNASKÓR
Á JÓLATILBOÐI
KRINGLU OG SMÁRALIND
5.995
VERÐ ÁÐUR 9.995
SKECHERS ENERGY LIGHTS BARNASKÓR MEÐ LJÓSUM
STÆRÐIR 27-39,5
Ég er að fara norður ídag og verð á Dalvíkum jólin,“ segir Helga
Björk Eiríksdóttir viðskipta-
fræðingur, en hún á 50 ára af-
mæli í dag. Helga Björk er frá
Dalvík og þar á hún foreldra,
en jafnframt á hún systkini,
aðra ættingja og vini fyrir
norðan.
Helga Björk ákvað að snúa
sér að gistirekstri á Akureyri
fyrir fjórum árum og er með
íbúðir og gistiheimili í mið-
bænum, samtals 90 rúm í heild,
undir nafninu Acco.
„Að kaupa fyrirtæki á Akur-
eyri var góð ástæða til að geta
farið sem oftast norður. Við
höfum staðið í miklum fram-
kvæmdum og breytingum á
rekstrinum svo það hefur verið
töluverð viðvera fyrir norðan,
en aðrir starfsmenn sjá um
daglegan rekstur.“
Helga Björk er einnig for-
maður bankaráðs Landsbank-
ans, sem er umfangsmikið
starf. Hún hefur setið í banka-
ráði frá árinu 2013 en varð á
aðalfundi árið 2016 fyrsta konan til að gegna formennsku í bankaráði
Landsbankans. „Starfinu fylgja mörg skemmtileg en krefjandi verk-
efni. Það er gaman að hafa tekið þátt í að endurreisa fjármálakerfið
og þess vegna gaf ég kost á mér í bankaráðið. Það eru miklar breyt-
ingar á umhverfi fjármálafyrirtækja þessi misserin og því spennandi
áskoranir fram undan.“
Áhugamál Helgu Bjarkar eru útivist hvers konar, göngur og skíði,
og svo hefur hún mikinn áhuga á fótbolta. „Ég er ennþá að spila
bumbubolta með karlmönnum. Það er kannski ekki gott fyrir líkam-
ann en þetta er bara svo gaman. Í tilefni afmælisins skellti ég mér til
Moskvu og sá fyrsta leikinn á HM á móti Argentínu. Það var geggjað.
Ég hef ekki enn komist á skíði í vetur en tek þau með mér norður
núna og í febrúar verður haldið til Austurríkis á skíði.“
Eiginmaður Helgu Bjarkar er Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttar-
lögmaður. Sonur þeirra er Egill Hlér 20 ára en fyrir átti Guðjón Ólaf-
ur Hrafnkel Odda sem er 25 ára.
Afmælisbarnið Helga Björk í heim-
sókn í Edinborgarháskóla en hún var
í MBA-námi þar.
Tekur skíðin með
sér til Dalvíkur
Helga Björk Eiríksdóttir er fimmtug í dag
I
ndriði Valdimarsson fæddist
að Miðteigi 2 á Akranesi
22.12. 1948: „Þá var ekki
komið Sjúkrahús á Akra-
nesi. Aðalleiksvæðið var á
túninu við Háteiginn þar sem við
strákarnir spörkuðum bolta frá
morgni til kvölds. Leikfangabílar
voru líka vinsælir og dregnir um
garða við nálæg hús. Auk þess var að
sjálfsögðu farið niður á bryggju að
veiða marhnút og kola. Þetta voru
yndisleg ár og æskuslóðir.
Ég fór í sveit á sumrin frá átta ára
aldri í Örnólfsdal í Þverárhlíð. Þar
ég undi mér vel hjá sæmdarhjón-
unum Guðrúnu Magnúsdóttur og Jó-
mundi Einarssyni. Þar dvaldi ég í
fimm sumur, sótti hesta á beit, rak
þá heim og undirbjó til flutnings á
veiðimönnum sem fluttir voru á hest-
um fram á Víghól sem var veiðihús
við Kjarrá.“
Indriði var í Barnaskóla Akraness,
fór í Gagnfræðaskóla Akraness og
lauk þaðan gagnfræðaprófi, stundaði
síðan nám við Iðnskóla Akraness og
Iðnskólann í Reykjavík, komst á
samning í prentiðn hjá Prentverki
Akraness og lauk prófi í setningu.
Indriði vann hjá Prentverki Akra-
ness í 35 ár, þar af í 10 ár sem fram-
kvæmdastjóri. Árið 2001 hóf hann
störf hjá Akraneskirkju og starfar
þar enn sem skrifstofu- og útfarar-
stjóri.
Indriði Valdimarsson, framkvæmdastjóri á Akranesi – 70 ára
Í sumarbústaðnum Sigurlaug með börnum sínum og barnabörnum á 75 ára afmæli hennar síðastliðið haust.
Félagslyndur og gam-
ansamur Skagamaður
Með börnunum Fr.v. Indriði, Sigurlaug, Ingibjörg, Sigríður og Valdimar.
Oddgeir Pálsson, athafnamaður frá Miðgarði í Vestmanna-
eyjum, á 95 ára afmæli í dag, 22 desember. Lengst af bjó
hann í Los Angeles í Bandaríkjunum. Nú býr hann á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Árnað heilla
95 ára
Guðmundur Hallgrímsson og Oddný
Sólveig Jónsdóttir eiga 45 ára
brúðkaupsafmæli í dag, 22. desem-
ber. Þau búa á Hvanneyri.
Safírbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is