Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 39
Indriði var í Kór Akraneskirkju um árabil og formaður kórsins um tíma. Hann gaf út blaðið UMBROT um nokkurra ára skeið, ásamt vinnu- félögum í Prentverki Akraness, sat í stjórn Tónlistarskóla Akraness og er félagi í Oddfellow-stúkunni Agli á Akranesi. Þá var hann um nokkurra ára skeið í stjórn Kirkjugarða- sambands Íslands. Indriði var lengi í Barnalúðrasveit Barnaskóla Akraness og einnig um tíma í Lúðrasveit Akraness. Helstu áhugamál Indriða hafa lengst af tengst félagsstörfum eins og sjá má á upptalningunni hér að framan. Indriði og eiginkona hans, Sigur- laug, eiga skemmtilegan sumar- bústað í Norðurárdalnum, þar sem fjölskyldan kemur oft saman. Fjölskylda Eiginkona Indriða er Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 12.9. 1943, handavinnukennari. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Stefánsdóttir, f. 27.10. 1922, d. 24.7. 2001, og Guð- mundur Sverrisson, f. 30.9. 1918, d. 27.9. 2003, bændur í Hvammi í Norð- urárdal. Börn Indriða og Sigurlaugar eru 1) Sigríður, f. 14.3. 1972, fram- kvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Íslandspósti en hún á þrjár dætur, Ingveldi Maríu f. 1994, tónlistar- konu, Sigurlaugu Rún, f. 1997, há- skólanema, og Mirru Björt, f. 2003, nema; 2) Ingibjörg, f. 25.10 1977, svæfingahjúkrunarfræðingur á Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akra- nesi en maður hennar er Ragnar Fjalar Þrastarson, verslunarmaður og eiga þau þrjú börn, Thelmu Rós, f. 2003; Unni Ósk, f. 2005, og Stefán Indriða, f. 2011, og 3) Valdimar f. 30.3. 1983, umsjónarmaður golfvall- arins á Akranesi en kona hans er Hrafnhildur Ómarsdóttir laganemi og er dóttir þeirra Elísabet Eva, f. 2010. Systur Indriða: Ása María Valdi- marsdóttir, f. 6.7. 1950, kennari, leið- sögumaður og fararstjóri, búsett í Hafnarfirði, og Ingveldur Valdi- marsdóttir, f. 4.2. 1954, d. 11.12. 1991, bankaútibússtjóri, var búsett á Akranesi. Foreldrar Indriða voru Valdimar Indriðason, f. 9.9. 1925, d. 9.1. 1995, alþingismaður og framkvæmdastjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness, og k.h., Ingibjörg Ólafs- dóttir, f. 19.7. 1925, d. 19.11. 2017, húsmóðir og skrifstofumaður. Þau bjuggu alla sína tíð á Akranesi. Úr frændgarði Indriða Valdimarssonar Indriði Valdimarsson Jóhanna Helgadóttir húsfr. í Norðurkoti Jón Helgason húsm. í Norðurkoti á Akranesi Indriði Jónsson vélstj. á Akranesi. Stjúpfaðir: Kristján Þorsteinsson verkam. á Akranesi Valdimar Indriðason framkv.stj. og alþm. á Akranesi Vilborg Þjóðbjarnardóttir húsfr. og verkak. á Akranesi Guðríður Auðunsdóttur húsfr. á Neðraskarði Þjóðbjörn Björnsson b. á Neðraskarði í Leirársveit Óskar Indriðason vélstj. í Rvík Kristján Óskarsson tónlistarmaður Helgi Daníelsson rannsóknarlögreglum. og landsliðsmarkmaður í knattspyrnu FriðþjófurHelgason ljósmyndari Steinn Helgason smíðakennari við FVA Daníel Þjóðbjörnsson múraram. á Akranesi Guðmunda Ólafsdóttir skrifstofuk. á Akranesi. Ólafur Björn Ólafsson verslunarstj. og framkvstj. Prentverks Akraness Alda Þrastar- dóttir sérfr. hjá Ferðamálastofu Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur ÁsaMaríaValdimarsdóttir fararstjóri Ingveldur Valdimarsdóttir útibústj. Íslandsbanka á Akranesi Lárus Þjóðbjörnsson byggingam. á Akranesi Daníel Lárusson skrifstofustj. Morgunblaðsins Björn S. Lárusson viðskipta- og ferðamálafr. hjá Stracta Svavar Þjóðbjörnsson sjómaður og öku- maður á Akranesi Guðríður Svavarsdóttir kennari á Akranesi Guðfinna Svavarsdóttir húsfr. á Akranesi Svavar Sigurðsson fv. bankaútibússtj. á Seyðisfirði Gunnar Sigurðsson fv. bakari og forseti bæjarstjórnar á Akranesi Guðbjartur Hannesson bæjarfulltr. á Akranesi, alþm. og ráðherra Hannes Þjóðbjörnsson verkam. á Akranesi Katrín Oddsdóttir húsfr. á Akranesi Björn Hannesson á Litlateigi á Akranesi Ólafur B. Björnsson ritstj. og blaðaútgefandi á Akranesi Vilhjálmur Finsen stofnandi og fyrsti ritstjóri Morgunblaðsins Karitas Ólafsdóttir Finsen símstöðvarstj. á Akranesi Ása Ólafsdóttir Finsen húsfr. á Akranesi Ingibjörg Ísleifsdóttir húsfr. á Akranesi, dóttir Ísleifs Gíslasonar pr. og alþm. í Arnarbæli í Ölfusi Ólafur O. Finsen héraðslæknir á Akranesi, sonur Ole Peter Finsen póstmeistara í Rvík, bróður Hannesar Chr. Finsen, amtmanns í Færeyjum, föður Niels R. Finsen Nóbelsverðlaunahafa í læknisfræði Ingibjörg Ólafsdóttir húsfr., verslunar- og skrifstofum. á Akranesi ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Árni Guðmundur Friðrikssonfiskifræðingur fæddist áKróki í Ketildalahreppi í Barðastrandarsýslu 22.12. 1898. Hann var sonur Friðriks Sveins- sonar, bónda á Króki, og k.h., Sigríð- ar Maríu Árnadóttur húsfreyju. Friðrik var sonur Sveins, bónda í Klúku Gíslasonar, bróður Kristínar, ömmu Ólafs Magnússonar, trésmiðs og kaupmanns í Reykjavík, stofn- anda Fálkans, föður Haralds, Braga, Sigurðar og Finnboga, forstjóra Fálkans, og Ólafs, íslenskukennara við MR. Sigríður var dóttir Árna, bónda í Krossdal í Tálknafirði Ólafs- sonar. Árni og Bjarni Sæmundsson voru helstu frumkvöðlar fiskifræðinnar á Íslandi og unnu ómetanlegt braut- ryðjandastarf í þágu hinnar ungu fræðigreinar hér á landi, enda hafa fiskirannsóknarskip Hafrannsókna- stofnunar borið nöfn þeirra um ára- bil. Árni lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1923, stundaði nám í Kaup- mannahöfn og lauk magistersprófi í dýrafræði við Kaupmannahafnarhá- skóla 1929. Hann var aðstoðarmaður hjá prófessor Schmidt við Carlsberg Laboratorium 1929-30, var ráðu- nautur Fiskifélags Íslands 1931-37, forstöðumaður fiskideildarinnar í at- vinnudeild HÍ 1937-53, og var síðan framkvæmdastjóri Alþjóðahafrann- sóknaráðsins 1954-65. Árni hafði áhuga á að fræða al- menning um hafrannsóknir og hélt því fyrirlestra um greinina í Ríkis- útvarpið, nýkominn heim, 1931. Þeir vöktu mikla athygli. Hann stundaði rannsóknir á síld og þorski hér við land og beitti sér fyrir notkun berg- málsmælis en slíkar fisksjár hafa síðan valdið straumhvörfum við veiðar og rannsóknir. Eftir Árna liggja mikil skrif um fiskrannsóknir, bæði bækur, greinar og erindi í íslenskum og erlendum fræðiritum. Þekktustu rit hans eru Áta íslenzkrar síldar, útg. 1930, og Aldahvörf í dýraríkinu, útg. 1932. Árni lést 16.10. 1966. Merkir Íslendingar Árni Friðriksson Laugardagur 101 árs Þórhildur Magnúsdóttir 95 ára Oddgeir Pálsson Sigríður Guðmundsdóttir 90 ára Anna Jónsdóttir Ingunn Kristjánsdóttir 85 ára Grímur Davíðsson Halldóra Áskelsdóttir Inga Guðrún Vigfúsdóttir 80 ára Guðjón Erlendsson Ingibjörg Þorvaldsdóttir Þuríður Lára Ottósdóttir 75 ára Erla Óskarsdóttir Ólafur Einir Einarsson 70 ára Geir Hafsteinn Sigurgeirsson Guðrún Magnúsdóttir Helga Björnsdóttir Indriði Valdimarsson Ragnheiður S. Harvey Sigríður B. Guðmundsdóttir Sigríður Eymundsdóttir Stefán J. Hjaltested Þórgunnur Jónsdóttir Ævar Kristinsson Örn Steinar Sigurðsson 60 ára Birgitta Lára Matthíasdóttir Dagný Jeremíasdóttir Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir Kári Knútsson Leifur Sigurvin Helgason Maria Markiewicz Sigríður Þórhallsdóttir Sveinn Agnarsson 50 ára Anna Marcinowska Davíð Áskelsson Eucharia Amaoge Igbo Húbertsson Guðmunda Ólafsdóttir Halldóra Magnúsdóttir Helga Björk Eiríksdóttir María Sigurlaug Þórisdóttir Sigurður Már Grétarsson Srðan Mihailovic Sævar Örn Sveinbjörnsson Una Sigríður Gunnarsdóttir Valdimar Grétar Gunnarsson Yngvi Daníel Óttarsson Þór Austmar 40 ára Eva Rós Guðmundsdóttir Guðmundur Jóhann Óskarsson Ilona Gajda Leszek Marek Golen Magni Þór Harðarson María Carmen Magnúsdóttir Róbert Páll Chiglinsky Sangwan Jónsson Snjólaug María Wium Jónsdóttir Thitiphong Daengchawna Unnur Halla Arnarsdóttir 30 ára Alexandra Ýr Sigurðardóttir Aníta Rut Guðjónsdóttir Dagur Egilsson Hermann Óli Davíðsson Jóna Birna Arnarsdóttir Jón Ágúst Eggertsson Kamil Madajczyk Kári Geir Gunnarsson Margrét Ósk Davíðsdóttir Silja Hlín Magnúsdóttir Þóra Margrét Sigurðardóttir Þorláksmessa 95 ára Ingveldur Hafdís Guðmundsdóttir 90 ára Nanna Guðrún Jónsdóttir 85 ára Flosi Gunnar Valdimarsson Garðar Þór Garðarsson Unnur Guðmundsdóttir Unnur Jónsdóttir 80 ára Guðmundur Ólafsson Margrét Engilbertsdóttir Þóra Gestsdóttir 75 ára Anna Kristjánsdóttir Edda Vilborg Guðmundsdóttir Guðrún Pálmadóttir John Frederick Thompson Kristín Lárusdóttir Ólöf Gunnarsdóttir Sigurjón Ingimarsson 70 ára Ása Björk Sveinsdóttir Ásdís Hjörleifsdóttir Eva Örnólfsdóttir Grétar I. Hannesson Kristinn Bjartmar Gunnlaugsson Sigríður Baldursdóttir Sæmundur Bjarni Ingibjartsson 60 ára Björg Jóna Sveinsdóttir Eggert Ketilsson Elínborg Bjarnadóttir Eyþór Jónsson Hanna Rósa Ragnarsdóttir Katrín Pálsdóttir Petrína Sæunn Úlfarsdóttir Sigurður Harðarson Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Þórhallur S. Steinarsson Þórólfur Jónsson Þuríður Jónasdóttir 50 ára Anna Rún Einarsdóttir Ásta Sólveig Stefánsdóttir Eva Hjörtína Ólafsdóttir Halldóra Jóhannesdóttir Halldóra K. Þórarinsdóttir Höskuldur Kristján Guðmundsson Kristrún Elfa Jónsdóttir Lára Kemp Magnús B. Guðjónsson Nicholas Mark Sparkes 40 ára Anna Lilja Gunnlaugsdóttir Géza Várhegyi Helgi Geir Arnarson Inga Birna Baldursdóttir Krzysztof Pawel Bil Linda Ósk Ólafsdóttir Piotr Marcin Krupa Ronnel Dungog Silao Signý V. Sigurþórsdóttir Sigríður H. Valdimarsdóttir Sigurbjörg Sæmundsdóttir Xue Li 30 ára Auður Halldórsdóttir Eva Helgadóttir Ingimar Einarsson Karina A. Skibowska Paulina Koltan-Janowska Sabína Harsániová Van Kristine M.C. Milo Yousef Ingi Tamimi Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.