Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 43
meina er að við vörpum svo miklu
á hvort annað í ástarsamböndum
að enginn er í raun og veru í sama
ástarsambandi. Við erum með tvo
einstaklinga í sambandi en þeir
eru samt í sitt hvoru sambandinu.
Svo fannst mér líka stórkostlegt
að segja það að ástarsambönd séu
ekki til en samt erum við að þessu
endalaust, úti um allan bæ, það er
hinn stórkostlegi sigur ástarinn-
ar.“
– Hvert sækirðu helst inn-
blástur fyrir sögurnar?
„Enginn veit nákvæmlega hvað-
an innblástur kemur. Hann er eitt
af því sem er dularfullt í lífinu.
Þegar ég les í bókinni eða fletti í
henni til þess að reyna að finna
kafla til að lesa upp á ég til að
hugsa: Einmitt, hvernig datt mér
þetta í hug? Hvaðan kemur þetta?
Ég hugsa að margir höfundar geti
skrifað undir það, að við vitum
það ekkert alveg. Við getum talið
eitthvað upp sem við teljum að
hafi haft mest áhrif á okkur en ég
held að allt sem við komumst í
snertingu við og tökum jafnvel
ekki eftir geti haft áhrif.“
Guðrún gaf sína fyrstu bók út
árið 1998, fyrir 20 árum en þegar
hún var 18 ára fékk hún fyrstu
hugmyndina að skáldsögu sem
kom þó aldrei út formlega. Síðan
þá hefur hún nánast verið að
skrifa á hverjum degi.
„Ég fór til Þýskalands og þá
voru allir svo hneykslaðir á því að
ég væri ólétt þegar ég hélt opn-
unarræðuna á bókamessu í Frank-
furt. Ég fékk alveg að heyra
svona tíu sinnum: „Á þessum
tímapunkti í þínum ferli?“. Og ég
kom af fjöllum og hugsaði: Hvað á
fólkið við? Ég er bara að lifa líf-
inu, hvernig á ég að geta verið
höfundur ef ég sleppi því að taka
þátt í lífinu?“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhrifavaldar „Við getum talið eitthvað upp sem við teljum að hafi haft mest
áhrif á okkur en ég held að allt sem við komumst í snertingu við og tökum
jafnvel ekki eftir geti haft áhrif,“ segir Guðrún Eva Mínervudóttir.
því dularfulla í lífinu“
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Ofurhetjuvíddin eftir ÆvarÞór Benediktsson erfjórða bókin á jafn-mörgum árum sem út
kemur í bókaflokki sem nefnist
Bernskubrek Ævars vísindamanns.
Í fyrstu bókinni ól Ævar upp risaeðl-
ur í garðinum sínum, því næst glímdi
hann við stórhættulega gervigreind
og í þriðju bók var hann heimsóttur
af góðlátlegum geimverum. Að þessu
sinni flakkar Ævar milli vídda og
þarf óvænt að glíma við sjálfan sig.
Bækurnar hafa allar verið hluti af
lestrarátaki Ævars Þórs, en frá því
það hófst hafa grunnskólabörn
landsins lesið samtals 230 þúsund
bækur. Það er því óhætt að segja að
Ævar Þór hafi lagt sitt lóð á vogar-
skálarnar í því að efla læsi barna og
ungmenna. Á hverju ári hafa fimm
heppnir þátttakendur í átakinu verið
dregnir út og fengið persónu nefnda
í höfuðið á sér. Þetta hefur leitt til
þess að persónugallerí bókanna hef-
ur verið mjög fjölskrúðugt
og gaman að sjá hvernig
Ævar Þór leysir það á trú-
verðugan hátt milli bóka að
hans yngra sjálf skuli sífellt
vera að kynnast nýjum
krökkum.
Ofurhetjuvíddin hefst á
flutningum milli hverfa og
af þeim sökum neyðist hinn
12 ára gamli Ævar til að
skipta um skóla. Þrátt fyrir
jákvæðni foreldra hans gengur erfið-
lega að kynnast nýjum krökkum í
skólanum og ekki bætir úr skák þeg-
ar bekkjarsystkinin Styrmir og Hall-
veig ákveða að leggja hann í einelti
og gera sér meðal annars mat úr
gleraugnanotkun hans. Í depurð
sinni leitar Ævar skjóls í fræðibók
um samhliða alheima og daginn eftir
gerist hið ótrúlega, Ævar dettur
óvænt yfir í aðra vídd þar sem allir
íbúar hafa þróað með sér ofurmann-
lega hæfileika í kjölfar náttúru-
hamfara. Þar kynnist hann Flug-
Freyju, Eld-Einari, Geisla-Guðjóni,
Svaka-Stefáni og Karenu Líf sem
skipa Sveitina sem berst gegn
skúrkum Ofurhetjuvíddarinnar, en
hættulegasti skúrkurinn er hinn
skrítni Einherji sem ruglar fólk og
ber að öllum líkindum ábyrgð á dul-
arfullu hvarfi ofurhetja. Til að skera
sig ekki úr hópnum og spilla ekki
nýjum vinskap leyfir Ævar með-
limum Sveitarinnar að halda að hann
búi líka yfir ofurkröftum, en
einn af mikilvægum lær-
dómum bókarinnar er að
alltaf er farsælast að koma
hreint fram.
Hugmyndaauðgi Ævars
Þórs sem höfundar er með
ólíkindum. Frásögnin er
æsispennandi og krydduð
góðum húmor sem fellur vel
í kramið hjá yngri les-
endum. Leturbreytingar
sem notaðar eru til áhersluauka
hjálpa lesendum að lesa textann með
tilþrifum og höfundur fær sérstakt
hrós fyrir að nota í bókum sínum
letrið Dislexie sem sérstaklega er
hannað til að auðvelda lesblindum að
komast í gegnum textann.
Eins og höfundar er von og vísa er
bókin stútfull af skemmtilegum fróð-
leik. Að þessu sinni leikur höfundur
sér með vangaveltur um svarthol og
flakk milli hliðarheima sem reynir
töluvert á heila lesenda. Samhliða
skrifar hann af góðu innsæi um ein-
elti sem hann í eftirmála líkir við
svarthol enda hvoru tveggja „stór-
hættuleg og best að láta vita um leið
og maður verður var við þau“ (bls.
218). Styrkur bókarinnar felst ekki
síst í því hvernig Ævar Þór tekst á
við dekkri hliðar eigin æskusjálfs og
miðlar af djúpu innsæi hvert niður-
bæld reiði, vonbrigði og sárindi geta
leitt okkur ef við erum ófær um að
ræða tilfinningar okkar við þá sem
við treystum.
Skemmtilegar og tjáningarríkar
teikningar Ránar Flygenring bæta
miklu við lestrarupplifunina eins og
þegar Ævar hrapar á blaðsíðum 49-
53 eða Eld-Einar hleypur alelda eftir
blaðsíðum 67-73. Í anda síkvikra
ofurhetja læðast oft á tíðum aðeins
brot af þeim inn á blaðsíður. Rán á
einnig hrós skilið fyrir sérdeilis
flotta og hugvitssamlega kápu sem
vísar með skemmtilegum hætti bæði
í ofurhetjuheiminn og víddarflakk.
Bækurnar fjórar sem gefnar hafa
verið út í Bernskubreka-seríu Ævars
hafa verið lesnar upp til agna á heim-
ili rýnis og þar ríkir mikil eftir-
vænting eftir fimmtu og síðustu bók-
inni. Vissulega fylgja því blendnar
tilfinningar að þurfa senn að kveðja
stórskemmtilegan æskuheim Ævars,
en af eftirmála Ofurhetjuvíddarinnar
er ljóst að höfundur hyggst kveðja
með stæl.
Frásögn sem fer á flug
Skáldsaga
Ofurhetjuvíddin bbbbm
Eftir Ævar Þór Benediktsson.
Rán Flygenring myndskreytti.
Mál og menning, 2018. Kilja, 221 bls.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Hari
Húmor „Hugmyndaauðgi Ævars Þórs sem höfundar er með ólíkindum.“
Elly (Stóra sviðið)
Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Fös 18/1 kl. 20:00 190. s
Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s
Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s Fös 18/1 kl. 20:00 27. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s
Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s
Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s
Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Fös 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 13/1 kl. 20:00 3. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Aðeins sýnt á aðventunni.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 5/1 kl. 20:00 1. s Fim 17/1 kl. 20:00 3. s
Sun 6/1 kl. 20:00 2. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s
Sannar en lygilegar sögur!
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 10/1 kl. 20:00 Frums. Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s
Sun 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Allt um sjávarútveg