Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Trú og siðir kringum íslensku jólin í aldanna
rás eru til umfjöllunar í erindi Terrys Gunn-
ells, prófessors í þjóðfræði við Háskóla Ís-
lands, kl. 12 í dag, laugardag. Fyrirlesturinn
fer fram á ensku og mun Gunnell meðal ann-
ars ræða um allt frá heiðnum goðum til gár-
unga og hrekkjóttra íslenskra jólasveina.
Enginn ætti að koma að tómum kofunum
hjá Gunnell því hann hefur í rannsóknum sín-
um einkum fengist við þjóðsagnir, þjóðtrú,
hátíðir og dulbúningasiði á Norðurlöndum
fyrr og nú; norræna trú og sviðslist.
Þótt jólin séu jafnan tengd fæðingu Krists í
nútímanum eiga þau sér ævafornar rætur og
teygja sig langt aftur fyrir tíma kristni. Gunnell seilist aftur til goða og
norrænnar trúar í erindi sínu og skoðar jólin í fornsögum og þjóðsögum
þar sem drauga-, álfa- og tröllatrú fléttast inn í, enda nátengd jólunum í
gamla daga á Íslandi. Grýla og hinir hrekkjóttu synir hennar koma vita-
skuld við sögu og hyggst Gunnell fræða gesti um athyglisverða ættingja
þeirra í nágrannalöndunum. Að lokum beinir hann athyglinni að ýmsum
siðum í tengslum við jól og áramót í nútímanum.
Heiðin goð og hrekkjóttir jólasveinar
Þjóðfræðingur Terry Gunnell.
Sögurnar um Fíusól eiga ekkisíður erindi við börn í dagen þegar Kristín HelgaGunnarsdóttir skrifaði
fyrstu bókina um þessa ráðríku
stúlku fyrir fjórtán árum, þegar rýn-
ir var einmitt á sama aldri og Fíasól.
Fíasól er ráðrík, skemmtileg, uppá-
tækjasöm, góðhjörtuð og algjör
grallari. Hún er
raunar svo hvat-
vís að þegar hún
ákveður að læra
eins og hestur
fyrir stærðfræði-
próf gleymir hún
að skila prófinu.
Hún veigrar sér
ekki við að slá á
þráðinn til um-
boðsmanns barna þegar henni þykir
á sér brotið og suðar og suðar um að
fá að fara í jarðarför með ömmu
sinni og afa.
Fíasól gefst vissulega aldrei upp,
rétt eins og heiti bókarinnar segir til
um, en í þetta sinn eru viðfangsefni
Kristínar Helgu meðal annars rétt-
indi barna, gæludýr og dauðinn. Fíu-
sól finnst nefnilega ekki sanngjarnt
að foreldrar hennar meini henni að
eyða 80 þúsund krónunum sem hún
vann sér inn í skógræktinni hjá
ömmu og afa til þess að kaupa sér
gúmmíbát, hjólabretti, poppvél og
allt hitt sem hana vantar þegar í
stað. Því grípur hún til þess ráðs að
hafa samband við umboðsmann
barna. Sá bolti vindur upp á sig og
Fíasól tekur að sér að hjálpa hinum
börnunum í skólanum að komast í
samband við umboðsmanninn vegna
hinna ýmsu vandræða.
Fíasól og fjölskylda eignast tvö ný
gæludýr í sögunni, sem hvort fyrir
sig skapa vandræði en fjölskyldan
leysir úr þeim eins og hverju öðru.
Fíasól fær það verkefni í skólanum
að segja frá því þegar amma hennar
og afi voru tíu ára. Hún fer því í
heimsókn til þeirra og þau segja
henni tvær sögur sem báðar tengj-
ast dauðanum, en Fíasól er hrifin. Í
sömu heimsókn ákveður hún að
heimsækja ömmu sína og afa oftar
og þau ákveða fastan tíma á föstu-
dögum eftir skóla. Amma og afi eru
hins vegar nánast aldrei heima
vegna jarðarfara, en á endanum fær
Fíasól ósk sína uppfyllta og fær að
fara með þeim í eina slíka.
Sögurnar eru ekki sérlega djúpar,
enda ætlaðar yngri lesendum, en
með eindæmum skemmtilegar og
lærdómsríkar. Kristín Helga gefur
ekkert eftir í nýjustu bókinni um
Fíusól, eftir áralangt hlé frá skrifum
um þessa framhleypnu stúlku, og
það væri óskandi að íslensk börn
fengju að lesa meira um Fíusól í
nánustu framtíð.
Vinsælar Sögurnar um Fíusól eiga ekki síður erindi í dag en þegar Kristín
Helga skrifaði fyrstu bókina um þessa ráðríku stúlku fyrir fjórtán árum.
Fíasól upp-
götvar umboðs-
mann barna
Skáldsaga
Fíasól gefst aldrei upp bbbbb
Eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.
Mál og menning, 2018. Innb., 208 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR
Anna and the
Apocalypse
Metacritic 72/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 22.00
Bird Box
Metacritic 60/100
IMDb 6,7/10
Bíó Paradís 20.00
Suspiria
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 64/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 21.00
Roma
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 95/100
IMDb 8,6/10
Bíó Paradís 18.00
Love is all
IMDb 4,5/10
Bíó Paradís 19.30
Cold War
Metacritic 90/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 22.20
Erfingjarnir
Metacritic 82/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 17.30
7 Emotions
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 17.30
Aquaman 12
Metacritic 53/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 13.20,
13.40, 16.20, 16.40, 19.20,
19.40, 20.30, 22.20, 22.40
Sambíóin Egilshöll 14.00,
17.00, 20.00, 22.00, 23.00
Sambíóin Kringlunni 13.30,
16.20, 19.20, 22.20
Sambíóin Akureyri 16.40,
19.40, 22.40
Sambíóin Keflavík 19.30,
22.20
Smárabíó 13.10, 13.20,
16.20, 16.30, 19.40, 22.10,
22.20
Creed II 12
Metacritic 67/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Sambíóin Egilshöll 22.40
Sambíóin Kringlunni 22.15
Sambíóin Akureyri 22.40
The Old Man and the
Gun 12
Metacritic 80/100
IMDb 7,3/10
Háskólabíó 16.00, 18.3
Bohemian
Rhapsody 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Smárabíó 13.00, 16.20,
22.20
Háskólabíó 15.30, 17.40,
20.40
Borgarbíó Akureyri 19.30
Bumblebee 12
Breyti-vélmennið Bumble-
bee leitar skjóls í ruslahaug í
litlum strandbæ í Kaliforníu.
Charlie, sem er að verða 18
ára gömul, finnur hinn bar-
áttulúna og bilaða Bumble-
bee.
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Egilshöll 19.30
Smárabíó 19.30
The Sisters
Brothers 16
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.00
A Star Is Born 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 16.45,
19.30
Lof mér að falla 14
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,8/10
Háskólabíó 20.40
Venom 16
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 22.40
Once Upon a
Deadpool 12
Metacritic 66/100
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 20.50
Ralf rústar
internetinu Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00
Sambíóin Álfabakka 13.00,
13.50, 15.30, 17.30, 18.00,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 14.00,
16.30, 17.30
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00
Sambíóin Akureyri 14.10,
15.00, 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 14.30,
17.00
The Grinch Laugarásbíó 13.50, 15.50,
17.50
Sambíóin Keflavík 15.20,
17.20
Smárabíó 12.40, 15.00,
17.20
Háskólabíó 15.40, 18.10
Borgarbíó Akureyri 15.30,
17.30
The Nutcracker and
the Four Realms
Metacritic 39/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.20
Sambíóin Kringlunni 14.20
Smáfótur Metacritic 60/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 13.00
Eftir Sextíu mínútna stríðið lifir borgarbúar á
eyðilegri jörðinni, með því að færa sig á mili
staða á risastórum farartækjum, og ráðast á
smærri þorp.
Metacritic 48/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00, 19.50, 22.20
Sambíóin Álfabakka 14.30, 17.00, 19.40, 22.20
Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 19.30, 22.10
Smárabíó 13.30, 16.40, 19.30, 22.40
Háskólabíó 15.20, 18.00, 20.20
Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 22.00
Mortal Engines 12
Fantastic Beasts: The Crimes of
Grindelwald
Önnur myndin um ævintýri töfrafræðingsins Newt Scamander.
Bönnuð börnum yngri en 9 ára.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 57/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka
16.20, 19.40
Sambíóin Egilshöll 14.00,
20.00
Sambíóin Kringlunni
19.30, 22.15
Widows 16
Fjórar konur taka á sig
skuldir sem orðið hafa til
vegna glæpaverka eig-
inmanna þeirra, taka síð-
an málin í sínar hendur og
byggja upp nýja framtíð.
Morgunblaðið
bbbnn
Metacritic 84/100
IMDb 7,5/10
Smárabíó 19.50
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio