Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 49

Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Maður skimar eðlilega árhvert eftir viðbótum við ís-lenska jólatónlist. Hér á skrifborðinu mínu er t.a.m. forláta vínylplata sem nefnist Jól sko!, sem er tillegg hinna austfirsku Dúkku- lísna í þennan merka geira. Annar hópur, skipaður kvenmönnum ein- göngu, er og með framlag að þessu leytinu til. Stofn- að var til Umbru árið 2014 og hef- ur sveitin ein- beitt sér að flutn- ingi fornrar tónlistar en einn- ig nýrrar. Í hönd- um meðlima leika því miðalda- stemmur en einnig nútímatónlist, en Umbra starfar reglubundið með dans- og spunahópum og hefur flutt ný verk, skrifuð sérstaklega fyrir hópinn. Virkni hefur verið með besta móti í ár en Sólhvörf er önnur platan þetta árið, og er það hið ágæta forlag Dimma sem stendur að útgáfunum (Úr myrkri var fyrri platan, dularfull og seiðandi mið- aldatónlist frá Íslandi og megin- landi Evrópu). Hópinn skipa þær Alexandra Kjeld (kontrabassi og söngur), Arngerður María Árna- dóttir (keltnesk harpa, orgel og söngur), Guðbjörg Hlín Guðmunds- dóttir (barokkfiðla og söngur) og Lilja Dögg Gunnarsdóttir (söngur og slagverk). Það sem hefur vakið athygli mína hvað Umbru varðar er hversu meðvitaðar þær stöllur eru um heildaráferð. Orðið er „svalt“, hug- tak sem flögrar venjulega nokkuð langt utan við þann heim sem þær tilheyra, það er hinn klassíska. Bara þegar litið er til umslaga þaðan, svo ég taki lítið dæmi, er íhaldssemi og formfesta grunntónninn, hvort sem Líður að tíðum er í leturgerð eða ljósmyndum. Umbra rokkar þetta hins vegar upp; ljósmyndir af hópnum eru töff, heimasíða flott og stíliseruð og allur pakkinn því aðlaðandi. Umslag Sól- hvarfa er t.a.m. með þeim betur heppnuðu þetta árið, fjórar hendur og snjór (eða er það salt?) sem sáldr- ast á milli fingra. Bakgrunnur svartur og stemningin á plötunni sjálfri glæsilega undirstungin (hönnuðir enda hinar hæfileikaríku Inga og Lilja Birgisdætur). Innihald plötunnar er fjölskr- úðugt, þó allt sé það svo bundið í út- setningar Umbru. Við erum með lítt þekkt lög, eins og „Personent hod- ie“ sem er að finna í finnsku söng- bókinni Piae Cantiones og er rakið til fjórtándu aldar. Einnig eru hérna íslenskir „slagarar“ eins og „Hátíð fer að höndum ein“ og „Með gleði- raust og helgum hljóm“. Einnig er- lend lög sem eru djúpt inni í jólala- gakanónunni, eins og „God rest you merry, Gentlemen“ og sálmarnir kenndir við Wexford og Coventry. Stemning næst á plötunni, og framreiðsla er góð. Niður aldanna er þarna; sólhvörf, myrkur, vetur og norðangarri en um leið mýkt, höfgi, stilla og þægilegheit. Ég segi „stemning næst“ því að þrátt fyrir góðan vilja hefur svona konseptum verið klúðrað með glæsibrag í gegn- um tíðina. Það er hægt að detta í of mikla tilgerð, of mikla hátimbrun, of mikið nýaldargutl og hreinlega hafa svona plötur fallið marflatar, þó að uppleggið lofi allt öðru. En það er hægt að gera þetta af alúð og smekklegheitum. Það er t.d. frábær lagaspotti (playlist) á Spotify sem kallast Mystical Christmas, upp- fullur af svipuðu efni og ágæt sönn- un á að þessi nýja öld lagaspotta fremur en platna hafi kosti til að bera. Mér varð líka hugsað til nokk- urra listamanna sem hafa náð að skjóta beint í mark með viðlíka efni, Loreena McKennit hin kanadíska t.d. (dulúðugur, keltneskur rammi), Caitriona O’Leary (plata hennar Wexford Carols er vel heppnuð) og Maddy Prior, hin kunna enska þjóð- lagasöngkona gerir gott mót á Tap- estry of Carols. Að ekki sé talað um Hátíð fer að höndum ein, hina stór- merku og stórglæsilegu plötu Þriggja á palli. Líkt er með Sól hvörf, metnaðarfullt verk sem gengur að öllu leyti upp og stendur klár og keik við hlið alls þess sem ég hef nefnt hér. »Niður aldanna erþarna; sólhvörf, myrkur, vetur og norðangarri en um leið mýkt, höfgi, stilla og þægilegheit. Sólhvörf nefnist nýútkomin jólaplata tónlistarhópsins Umbru. Hópurinn útsetur á henni gömul jafnt sem ný jólalög með sínum hætti. Reffilegar Umbra pælir út innihald sem og umbúðir, og kynningarljósmyndir af sveitinni eru svalar. Mergjaðar bækur banda-ríska rithöfundarinsJohns Greens hafaslegið í gegn um allan heim en stundum er talað um að Green skrifi fyrir „unga fullorðna“ þar sem mikið fer fyrir smellnum og skörpum samtölum, meingölluðum foreldrum og yf- irvaldi, óendur- goldinni ást og hjartasorg. Svo áhrifamiklar hafa bækur hans þótt að Green hefur verið valinn einn af 100 áhrifa- mestu mann- eskjum Banda- ríkjanna af Time-tímaritinu. Í nýjustu bók sinni, hans fyrstu í sex ár, Skjaldbækur alla leiðina nið- ur, sýnir hann þau rífandi tilþrif sem hann er vanur. Aza, 16 ára gömul stúlka með al- varlegar kvíðaraskanir, heyrir í fréttum af hvarfi föður gamals vinar síns sem hún kynntist þegar faðir hennar lést. Þá var hún, 10 ára göm- ul, send í sumarbúðir fyrir börn sem misst höfðu foreldri en vinurinn, Davis Pickett, sótti búðirnar eftir að hafa misst móður sína. Nú er faðir Picketts, ósvífinn milljarðamær- ingur, horfinn og virðist vera á flótta undan yfirvöldum vegna efnahags- brota. Aza og besta vinkona hennar ákveða að reyna að finna út úr því hvað varð um milljarðamæringinn því veglegum fundarlaunum er heit- ið fyrir upplýsingar um íverustað hans. Úr verða endurnýjuð kynni við vininn og flókið samband en árátta og þráhyggjukenndar hugsanir Özu hamla henni í að eiga í eðlilegum samskiptum við vini og hugsanlegan kærasta. Bækur Johns Greens eru þeim eiginleikum gæddar að fullorðnir finna varla að þetta séu bækur sem stílaðar eru sérstaklega inn á annan aldurshóp og svo er einnig nú. Meðan lesandinn nýtur þess að endurfæðast af hlátri bregður höf- undur reglulega fæti fyrir flissið og smellir merg sögunnar hráköldum í smettið: „Maður gægist fram af brú eða eitthvað og það hvarflar að manni upp úr þurru að matur gæti bara stokkið.“ (bls. 55) Aza á við vandamál að stríða sem eru dauðans alvara en þau eru ekki íþyngjandi í frásögninni, það er ekki erfitt að lesa um þau. Sagan er upp- lýsandi, bráðfyndin, sorgleg og af- hjúpandi. Hún er vel skrifuð og snarað á íslensku af mikilli fimi. Um leið er hún með betri bókum sem taka á geðheilbrigði af óþvinguðum frjálsleika. Vinsæll John Green skrifar af lip- urð um ungt fólk og geðheilbrigði. Óþvingaður frjálsleiki Skáldsaga Skjaldbökur alla leiðina niður bbbbm Eftir John Green. Þýðing: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir. Björt bókaútgáfa, 2018. Kilja, 304 bls. JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR BÆKUR Myndlistarkonan Sjöfn Har veitir leiðsögn í Hannesar- holti í dag kl. 16 um sýningu sína, Myndirnar mínar í 25 ár, sem þar stendur yfir. „Magnaðir litir sem takast á, fíngerð litbrigði, skuggar og heillandi víðsýni. Allt þetta einkennir ekki aðeins íslenskt landslag heldur líka málverk listakonunnar Sjafnar Har,“ segir í til- kynningu. Sjöfn hefur rekið eigin vinnustofu í Kaup- mannahöfn, Reykjavík, Eyrarbakka, Stokkseyri og nú í Garðabæ. Sjöfn hefur haldið einkasýningar í Kaup- mannahöfn, London, New York og á Íslandi allt frá árinu 1980. Listakonan Sjöfn Har Sjöfn veitir leiðsögn Verð frá kr. 420.000 á mann í 2ja manna inniklefa með PREMIUM ALLT INNIFALIÐ ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.