Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 52
Síðustu kertaljósatónleikar Camer- arctica fyrir þessi jól eru kl. 21 í kvöld, laugardag, í Dómkirkjunni í Reykjavík. Kammerhópurinn hefur á hverju ári í aldarfjórðung haldið slíka tónleika þar sem leikin er ljúf tónlist eftir Mozart. Á dagskránni eru kammerperlur eftir tónskáldið og að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn „Í dag er glatt í döprum hjörtum“. Kammerperlur eftir Mozart í Dómkirkjunni LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 356. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.108 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Þrír íþróttamenn eru í fyrsta skipti á meðal tíu efstu í kjöri íþrótta- manns ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna en listi yfir þá tíu íþróttamenn sem efstir voru í kjörinu að þessu sinni er birtur í dag. Tíu efstu á listanum koma úr sjö íþróttagreinum en kjörið fer nú fram í 63. sinn en það hóf göngu sína árið 1956. » 2-3 Tíu efstu koma úr sjö íþróttagreinum Söngsveitin Fílharmónía heldur sína árlegu jólatónleika, Jólaljós, í Langholtskirkju kl. 20 fimmtudag- inn 27. desember. Einsöngvari verður Þóra Einarsdóttir sópran og með kórnum leikur tríó skipað Snorra Sigurðarsyni trompetleik- ara, Þórði Sigurðarsyni píanóleik- ara og Gunnari Hrafnssyni kontra- bassaleikara. Efnisskráin verð- ur í senn hátíð- leg og með djass- yfirbragði. M.a. verða sungin lög eftir íslensk tónskáld og sígild jóla- lög frá ýms- um löndum. Sópransöngkona og tríó með Fílharmóníu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jólamót Dóra Páls í knattspyrnu innanhúss fer fram í KR-heimilinu í 25. sinn að morgni annars dags jóla. „Þetta er alltaf jafngaman,“ segir Halldór, öðru nafni Dóri Páls, stofn- andi mótsins og aðaldómari. Dóri er fyrrverandi markvörður og lék síðast opinberlega með eldri flokki KR. „Við vorum ungir og sprækir fyrir 25 árum og mér fannst tilvalið að við héldum okkur í formi með því að vera með árlegt jólamót, rétt eins og var vaninn hjá þjálfurum okkar þegar við vorum í 5. flokki,“ upplýsir hann. „Ég blés til mótsins og hef verið með flaut- una síðan, en strákarnir æfa allt ár- ið og urðu meðal annars Íslands- meistarar í flokki 50 ára og eldri í sumar.“ Fjórir eru saman í liði og fjögur til sex lið hafa leikið tvöfalda um- ferð, en hver leikur er fimm mín- útur. Um 100 manns hafa tekið þátt í mótinu frá upphafi. Örn Guð- mundsson, öðru nafni Jonni, hefur raðað mönnum í lið og segir Dóri að svo vel hafi tekist til að flestir ef ekki allir hafi verið í sigurliði. Þó hafi Sæbjörn Guðmundsson og Smári Hilmarsson oftast unnið til verðlauna, sem Hálfdán Örlygsson bókaútgefandi hafi gefið. Ellert B. Schram hafi líka verið óvenju oft í sigurliði, en hann hafi hætt fyrir um 20 árum. „Flestir eru á aldrinum 55 til 66 ára og allir bera aldurinn vel, enginn með bumbu,“ segir Dóri og bætir við að Bjarni Halldórsson, Sigurður Indriðason og Björn Pét- ursson séu nú með elstu mönnum. Fjölskylduvæn stund Flestir nota tækifærið og gera sérstaklega vel við sig um jólin. Einmitt þess vegna segir Dóri gott að brjóta upp tímann, skella sér í fótbolta fyrir hádegi, púla og svitna vel, og mæta svo heim í hádegis- matinn. „Þetta er sérlega fjöl- skylduvæn skemmtun og menn missa ekkert úr enda flestir sofandi á meðan við spörkum bolta,“ segir hann og botnar ekkert í því að Jonni þjálfari hafi tekið Kanarí fram yfir að þessu sinni. „Hann og Karl Dúi Karlsson hafa alltaf mætt en Jonni fór núna með kærustunni í sólina.“ Dómarar eru ekki öfundsverðir af störfum sínum og Dóri segist oft fá að heyra það. „Ég verð að vera vel vakandi og á tánum til að forðast reiðiöskur,“ segir hann. „Reyndar finnst mér gaman þegar menn æsa sig en þeir fá það síðan óþvegið frá hinum inni í búningsklefa á eftir. Menn reyna því að halda sig á mottunni, en Gummi bílasali Al- bertsson og Karl Dúi gleyma sér stundum. Gummi er ekki sáttur nema ég sé honum hliðhollur í dóm- gæslunni og Kalli sættir sig ekki við neitt nema sigur og brýtur stundum klaufalega af sér.“ Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson Meistarar í Jólamóti Dóra Páls Halldór Pálsson, lengst til vinstri, afhendir sigurliðinu 2015 verðlaunin að lokinni keppni. Það skipuðu f.v. Erling Aðalsteinsson, Ívar Guðmundsson, Karl Dúi Karlsson og Gísli Steinar Gíslason. Hefur blásið í flautuna um jól í aldarfjórðung  Jólamót Dóra Páls í fótbolta haldið í 25. sinn 26. desember

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.