Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Norræna húsið Sæmundargötu 11 Aðgangur ókeypis Sýnd til 30. apríl 2019 Ferðalag um furðuheim barnabókmenntanna Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka Barnabókaflóðið Veður víða um heim 28.12., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Hólar í Dýrafirði 2 slydda Akureyri 2 léttskýjað Egilsstaðir 0 heiðskírt Vatnsskarðshólar 3 skýjað Nuuk -5 skýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló -5 þoka Kaupmannahöfn 5 þoka Stokkhólmur 0 heiðskírt Helsinki -1 þoka Lúxemborg -2 þoka Brussel 0 þoka Dublin 11 súld Glasgow 7 skýjað London 8 skýjað París 0 þoka Amsterdam 6 þoka Hamborg 7 súld Berlín 7 skýjað Vín 5 léttskýjað Moskva -6 snjókoma Algarve 16 léttskýjað Madríd 14 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 skýjað Róm 11 heiðskírt Aþena 8 léttskýjað Winnipeg -21 léttskýjað Montreal 0 rigning New York 10 rigning Chicago 0 súld Orlando 24 skýjað  29. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:22 15:38 ÍSAFJÖRÐUR 12:07 15:03 SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:45 DJÚPIVOGUR 11:01 14:59 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag NA og A 8-15 m/s S-lands, hiti 2-7 stig. Þurrt og vægt frost N-lands en snjókoma síðdegis. Á mánudag Snjókoma N-lands, 0-5 stig S-lands. Á þriðjudag Víða kalt en hlýrra með kvöldinu. Suðvestan 8-15 m/s, en 10-18 á morgun. Slydduél eða él, en léttskýjað A-til. Hiti 0 til 4 stig S- og V-lands, annars um og undir frostmarki. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Harpa hefur iðað af lífi á árinu og samkvæmt fyrstu tölum þá höfum við fengið rúmlega tvær milljónir heimsókna það sem af er ári. Við er- um með sérstakt kerfi sem nemur fjölda síma og tölva sem leita net- sambands í Hörpunni og fáum þann- ig út áætlaðar heimsóknir,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu. Hún segir að samkvæmt könnun MMR sem gerð var í tengslum við stefnumótunarvinnu í Hörpu á árinu komi langflestir gest- ir í Hörpu í tengslum við tónlistar- viðburði en 25% koma vegna ráð- stefna eða funda. Samkvæmt sömu könnun hafi 86% þjóðarinnar komið í Hörpu frá opnun árið 2011. Íbúar höfuðborgarsvæðisins sækja Hörpu oftar heim en íbúar landsbyggðar- innar en 68% þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins hafa farið í Hörpu. Svanhildur segir að fjöldi heim- sókna 2018 sé á svipuðu róli eða mögulega aðeins minni en 2017 sem lauk með gríðarstórri listahátíð og fernum tónleikum Sigur Rósar. „Það voru 1.400 viðburðir í Hörpu árið 2018, þar af 578 tónleikar, 130 ráðstefnur og fundir af öllum stærð- um og gerðum, leik- og óperusýn- ingar, uppistand, veislur, móttökur, markaðir og fleira. Við buðum jafn- framt upp á 1.100 skoðunarferðir um húsið sem er einn fjölsóttasti ferðamannastaðurinn í Reykjavík,“ segir Svanhildur sem nú er að ljúka sínu fyrsta heila ári sem forstjóri. Hún segir að stefnumótun sé í gangi og m.a. verði lögð sérstök áhersla á að fjölga viðburðum fyrir börn og fjölskyldur. 70 slíkir viðburðir hafi verið 2018 og stefnt sé að því að Harpa verði einn af þeim þremur helstu stöðum sem fjölskyldur fari á. Markmiðið sé að ala upp nýja kyn- slóð unnenda tónlistar og menning- ar. „Sinfóníuhljómsveitin leikur afar stórt hlutverk í þeim efnum. Meðal viðburða fyrir börn má nefna Tón- sprota hjá SÍ, Nótnaheima, Upptakt - tónsköpunarverðlaun og óperuna Hans og Grétu sem Íslenska óperan sýndi fyrir jól,“ segir Svanhildur sem hlakkar til næsta starfsárs í Hörpu og telur að uppbyggingin í kringum Hörpu komi til með að tengja hana á spennandi hátt við miðborgina. 86% þjóðarinnar hafa komið í Hörpu frá opnun  1.400 viðburðir í ár  220.000 miðar seldir  Yfir tvær milljónir heimsókna Harpa Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri segir framtíðina bjarta. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Ég ætla bara að vera bjartsýn og ég finn að þetta var rétt ákvörðun,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Eflingar, en fyrsti fundur Samtaka atvinnulífsins, VR, Efl- ingar og Verkalýðsfélags Akraness hjá ríkissáttasemjara fór fram í gær. Að sögn hennar var „það eina rétta í stöðunni“ að vísa kjaradeil- unni inn á borð sáttasemjara. Næsti fundur er boðaður 9. janúar. Sólveig Anna segir fundinn í gær hafa verið stuttan þar sem tækifæri gafst til að fara yfir greinargerð verkalýðsfélaganna VR, Eflingar og Verkalýðsfélags Akraness um hvers vegna ákveðið var að vísa málinu til ríkissátta- semjara. Þá segir Sólveig Anna fé- lögin leggja „ríka áherslu á það, þó að það sé ekki inni á þessu borði, að aðkoma stjórnvalda skiptir máli, sem sagt hvað þau hyggjast gera í þeim málum sem snúa að sköttum og húsnæði“. Fyrri viðræður sagðar góðar Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir það ekki hafa verið val SA að vísa kjara- viðræðum til ríkissáttasemjara og að eðlilegra væri að halda áfram þeim viðræðum sem voru í gangi. Að sögn hans var gangur þeirra viðræðna góður. Spurð hvort hún sé sammála orðum framkvæmdastjórans um ágæti fyrri viðræðna svarar Sólveig Anna: „Ég er ekki sammála því.“ Þá segir hún að ekki hafi verið ástæða til þess að ræða tillögur SA um breytingar á vinnutíma og allri vinnutilhögun. „Við gátum ekki samþykkt að þurfa að ræða okkur í gegnum þær tillögur til þess að fá að ræða hvað samtökin teldu að væri til skiptanna.“ Bjartsýn eftir fyrsta fund með sáttasemjara Morgunblaðið/Árni Sæberg Kjaramál Ríkissáttasemjari tók á móti deiluaðilum í húsakynnum sínum í gær. Næsti fundur er boðaður 9. janúar.  Fóru yfir greinargerð verkalýðsfélaganna á fundinum Tilkynning frá WOW air Ltd. í bresku fyrir- tækjaskránni 11. desember sl. bendir til þess að félagið verði lagt niður. WOW air hefur nýverið selt lendingaleyfi á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Óskað var upplýsinga um málið hjá WOW air en vegna leyfa starfs- manna um áramótin var ekki hægt að verða við þeirri beiðni. WOW air hf. á Íslandi er skráð í 100% eigu Títans fjárfestingafélag en það er í eigu Skúla Mogensen. Hann hefur verið skráður eigandi WOW air Ltd. baldura@mbl.is WOW air Ltd. lagt niður í Bretlandi Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Nú þegar nýtt ár gengur senn í garð birtir leitarvefurinn Google yfirlit yfir algengustu leitarorð fjölmargra þjóða á árinu 2018. Ísland er þar engin undantekning en ýmislegt at- hyglisvert er að finna þegar litið er yfir þau orð sem algengust voru hér á landi. Auglýsingastofan Sahara tók saman lista yfir algengustu leit- arorðin í nokkrum flokkum. Meðal íslenskra landsliðsmanna var Rúrik Gíslasyni oftast flett upp en hann vakti mikla athygli eftir leik íslenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu við Argentínu á heimsmeist- aramótinu í Rússlandi í sumar. Alls var nafn hans slegið 28.800 sinnum inn á leitarvefinn yfir árið en næstur landsliðsmanna kom Gylfi Þór Sig- urðsson með tæplega 25.000 upp- flettingar hér á landi. Elín Metta Jensen var hlut- skörpust íslenskra knattspyrnu- kvenna í landsliðinu með 2.520 upp- flettingar. Næstar komu Agla María Albertsdóttir, Fanndís Friðriks- dóttir og Sif Atladóttir með 1.080 uppflettingar hver. Af íþróttafólki úr öðrum greinum ber nafn Katrínar Tönju Davíðsdóttur, keppanda í Crossfit, hæst en alls var henni flett upp ríflega 4.500 sinnum yfir árið. Þegar kemur að leitum á Google trónir Baltasar Kormákur leikstjóri á toppnum með 760 upp- flettingar að meðaltali á mánuði. Einn aðalleikara Ófærðar, nýjustu þáttaraðar Baltasars, er annar á list- anum með um 460 uppflettingar að meðaltali á mánuði. Í öðrum flokk- um kom margt athyglisvert fram. Efst í flokki verslana var Hagkaup með 118.800 uppflettingar yfir árið. Veitingastaðurinn Grillmarkaðurinn var með flestar uppflettingar í flokki veitingastaða eða 43.200 talsins. Þá var 66°Norður vinsælasta íslenska vörumerkið á Google í ár með tæp- lega 120.000 uppflettingar. Íslenska landsliðið vinsælt á Google í ár  66°Norður, Grillmarkaðurinn og Hagkaup með þúsundir uppflettinga AFP Google Ýmsu var flett upp í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.