Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Toyota Yaris live Hybrid að verðmæti kr. 3.050.000 hvor bifreið
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning og óskar
vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
á Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535 0900.
Byrjað verður að greiða út vinninga 7. janúar 2019. Vinningaskrá er einnig birt á
heimasíðu félagsins www.slf.is
27141 46549
2753 37234 62933
163
949
1266
3295
3327
4451
4485
4796
4911
6527
6570
7410
8305
9348
9811
10077
10587
11088
11209
11601
12249
12852
12874
13650
16550
20014
20352
20949
21034
21148
21468
21841
23448
23615
25649
25973
26286
26546
27346
28221
29314
29726
30092
30521
31069
31578
31919
32279
33140
33154
34037
34429
34714
34896
36712
36945
37022
39165
39244
40267
40927
40990
41390
41825
42183
43661
44355
44650
44876
45044
46187
46712
47628
48289
48411
49572
50387
51518
51876
53002
55478
55744
57508
58051
58110
59543
60060
62637
62928
63025
63623
63816
64011
64724
64988
66625
67602
68003
68294
68304
68425
68447
68526
68961
69496
Ferðavinningur að upphæð kr. 600.000 hver vinningur
Ferðavinningur að upphæð kr. 300.000 hver vinningur
Jólahappdrætti 2018
Dregið hefur verið í jólahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur gefið út 46 leyfi til sölu á skot-
eldum. Allir leyfishafar hafa áður
fengið slíkt leyfi.
Sem fyrr eru langflestir skotelda-
sölustaðir reknir af björgunar- og
hjálparsveitum en einnig halda sex
íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu
úti flugeldasölu.
Þá hafa átta einkaaðilar og fyrir-
tæki fengið leyfi til sölu á skoteldum
frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu.
Flestir verða flugeldasölustaðirnir
í Kópavogi en innan póstnúmera 200
og 201 verða samanlagt ellefu skot-
eldasölustaðir í ár. Næst á eftir kem-
ur Árbær en íbúar þar geta valið um
átta staði til að kaupa sér skotelda.
Átján leyfi á Suðurlandi
Alls hafa verið gefin út 18 skot-
eldasöluleyfi í umdæmi Lögreglu-
stjórans á Suðurlandi. Eins og á höf-
uðborgarsvæðinu gaf Lögreglu-
stjórinn á Suðurlandi engin ný leyfi
út í ár.
Tíu staðir hafa fengið leyfi frá
Lögreglustjóranum á Norðurlandi
eystra til að selja skotelda og þá hef-
ur Lögregluembættið á Vestfjörðum
gefið út átta skoteldasöluleyfi fyrir
áramótin, öll til björgunarsveita.
Svipaða sögu er að segja um
Austurland en embætti lögreglu-
stjórans þar gaf í ár út níu leyfi til
sölu skotelda, þar af átta til björg-
unarsveita, og var ekkert þeirra
nýtt.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflugir Liðsmenn björgunarsveita standa sem fyrr fyrir langflestum flugeldasölustöðum á landinu í ár.
Lítið um nýja flugeldasala
Ellefu skoteldasölustaðir í Kópavogi og átta í Árbæ
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Ragnhildur Kristjáns-
dóttir lést 21. desem-
ber sl. eftir skamm-
vinn veikindi.
Ragnhildur átti og rak
ásamt eiginmanni sín-
um Árna Halldórssyni
skipstjóra og félögum
þeirra útgerðarfyrir-
tækið Friðþjóf hf. á
Eskifirði.
Ragnhildur var
fædd á Höfn í Horna-
firði 24. mars 1934.
Foreldrar hennar voru
hjónin Aðalbjörg Guð-
mundsdóttir og Óli
Kristján Guðbrandsson skólastjóri.
Ragnhildur ólst upp á Höfn fram á
fermingaraldur, en síðan í Villinga-
holtsskóla í Flóa, eftir að fjölskyldan
fluttist þangað. Hún lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskólanum í Hvera-
gerði 1950 og stúdentsprófi frá mála-
deild Menntaskólans í Reykjavík
1954.
Að loknu stúdentsprófi, áður en
þau hjón fluttu til Eskifjarðar, starf-
aði Ragnhildur á skrifstofu Innflutn-
ingsskrifstofu ríkisins í Reykjavík. Á
Eskifirði tók hún virkan þátt í félags-
störfum og stjórnmálum, kenndi
tímabundið við Grunn-
skóla Eskifjarðar, söng
og starfaði með kirkju-
kór Eskifjarðar í ára-
tugi, var í stjórn
Kirkjumiðstöðvar
Austurlands, sat í
stjórn Slysavarna-
félagsins, var formaður
sóknarnefndar, sat í
bæjarstjórn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og átti
sæti í Útvegsmanna-
félagi Austurlands um
tíma.
Ragnhildur var hug-
sjónakona, bar hag
landsbyggðarinnar fyrir brjósti, og
var unnandi góðra bókmennta og tón-
listar.
Eftirlifandi eiginmaður Ragnhildar
er Árni Halldórsson. Þau eignuðust
sex börn, fyrstan andvana son. Börn
þeirra eru Kristín Aðalbjörg sendi-
herra, Halldór framkvæmdastjóri,
Björn framkvæmdastjóri, Sigrún
framkvæmdastjóri og Guðmundur
ráðuneytisstjóri. Auk þess ólst Auður
dótturdóttir þeirra að verulegu leyti
upp hjá afa sínum og ömmu.
Útför Ragnhildar fer fram 4. jan-
úar klukkan 14 frá Eskifjarðarkirkju.
Andlát
Ragnhildur Kristjánsdóttir
Sjö prósent Íslendinga vilja banna
flugelda alfarið ef marka má niður-
stöður nýrrar netkönnunar á vegum
Maskínu. 817 einstaklingar svöruðu
könnuninni.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kom fram töluverður munur á af-
stöðu fólks til flugeldasölu eftir
stjórnmálaskoðunum. Þannig voru
kjósendur Miðflokksins og Flokks
fólksins líklegastir til þess að styðja
óbreytt fyrirkomulag við sölu flug-
elda, en hjá kjósendum flokkanna
tveggja mælist um 64 prósenta
stuðningur við óbreytt fyrirkomu-
lag. Mesta andstaðan við flugelda-
sölu mældist hins vegar hjá kjós-
endum Pírata, en 18,5% kjósenda
flokksins vilja banna flugelda með
öllu.
Í niðurstöðunum kemur fram að á
bilinu 45 til 46% Íslendinga vilja
áfram óbreytt fyrirkomulag á sölu
flugelda en tæplega 48% vilja hefta
söluna að einhverju leyti. Þá var
einnig sagður nokkur munur á við-
horfi fólks til flugeldasölunnar eftir
menntun og búsetu þess.
7% gegn flugeldum