Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 29
Morgunblaðið/Eggert heilbrigðissviði sem ekki eru 100% ríkisreknir kemur víða í ljós. UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 2.7. | Guðlaugur Þór Þórðarson Hálfrar aldar bann við útbreiðslu kjarnavopna Samningurinn byggist á þremur markmiðum: fækkun kjarnavopna, stöðvun á út- breiðslu þeirra og að tryggja rétt ríkja til friðsamlegrar nýtingar kjarnorku. 3.7. | Þorbjörn Guðjónsson Við erum öll í ástandinu og það er gott Til þess að tryggja eða styðja við vöxt útflutningstekna með fleiri stoðum þarf að öðru óbreyttu gengi krónunnar að lækka. 4.7. | Þröstur Ólafsson Aðeins vatn stöðvar losun Þegar votlendi er ræst fram með skurðum og vatn sígur úr jarðveginum hefst rotnun. Aðeins vatn stöðvar þessa losun. 6.7. | Kolbrún Baldursdóttir Samskiptareglur fyrir borgarfulltrúa Ástæðan fyrir mikilvægi sam- skiptareglna fyrir borgarfull- trúa er sú að í borgarstjórn eru oft heitar umræður og gagnrýni og mótmæli algeng. 7.7. | Sigursteinn Róbert Másson Vel heppnaður hvaladagur í Reykjavík Hvalaskoðunin í Reykjavík hefur virkað sem segull á fólk og fyrirtæki að koma í höfn- ina og njóta þess sem hún hefur upp á að bjóða. 10.7. | Björgvin Guðmundsson Aldraðir og öryrkjar fengu 3,9 milljarða bakreikning frá TR Það er ekki aðeins eðlilegt, heldur ber íslenska ríkinu skylda til þess að ráðast í af- nám þessara skerðinga. Ís- lenskir eldri borgarar hafa verið hlunnfarnir af ríkinu hér. 11.7. | Hallgrímur Sveinsson, Guðmundur Ingvarsson og Bjarni G. Einarsson Eru Vestfirðingar eitthvað skrýtnir eða jafnvel klikkaðir? Við sem næstir búum höfum ekki heyrt nokkurn einasta mann kvarta yfir þessum mannvirkjum í Mjólkárvirkjun. Engan. Þetta er náttúrlega bilun! 12.7. | Arnar Þór Jónsson Alþingi er ekki leikskóli Í stað þess að vanda til laga- setningar, stunda mál- efnalega rökræðu og vinna þá leiðinlegu vinnu sem slíkt útheimtir kann að vera freistandi að setja upp leikþætti og út- mála andstæðingana sem skrímsli sem ekki sé hægt að vinna með. 13.7. | Ketill Berg Magnússon Rokkhátíð lýðræðisins Það er grasrótarstarf fé- lagasamtaka sem gerir Lýsu áhugaverða veislu þar sem hugmyndir gerjast og blómstra. 14.7. | Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir Verum dugleg að lesa í sumar Foreldrar eru bestu lestrar- fyrirmyndirnar og árangurs- ríkast ef allir lesa reglulega. Fjölskyldan ætti því að sam- einast um að lesa yfir sumartímann. 17.7. | Guðrún Júlíusdóttir Hvað verður um sóknargjöldin mín? Mér finnst óþolandi að teknir séu af mér skattar og þeim ekki skilað nema að hluta til þeirra sem þeir eru ætlaðir. 18.7. | Kristrún Heimisdóttir Það er fullveldi Í raun var á Íslandi þegar til staðar andlegt fullveldi, krafturinn sem bjó í menn- ingarlegri sjálfsvirðingu. Full- veldið 1918 fékkst ekki vegna ytri stuðnings heldur innri styrks 19.7. | Jónas Ragnarsson Fleiri en fimmtíu eru hundrað ára og eldri Vitað er um 725 sem hafa orðið hundrað ára, þar af um fimmtíu í Vesturheimi. 21.7. | Geir Ágústsson Einokunargeðklofinn Þannig vilja Íslendingar að ríkið eitt megi selja áfengi þótt það þýði dauða hverfis- kaupmannanna á kostnað stórmarkaða með bílastæði nálægt næstu áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. 23.7. | Þórunn Sveinbjörnsdóttir Erum við með á þessu aldarafmæli? Erum við ekki meira virði 100 árum eftir alla sjálfstæðis- baráttuna? 24.7. | Guðjón Ármannsson og Víðir Smári Petersen Jarðakaup erlendra aðila Óþarft að taka undir þær full- yrðingar að út- lendingar geti keypt upp stór- an hluta Íslands eða orkuauðlinda lands- ins. Staðreyndin er sú að stór hluti lands og landsréttinda er í eigu íslenska ríkisins og annarra opinberra aðila. 25.7. | Njörður P. Njarðvík Um dönskukennslu Spurningin um dönsku- kennslu snýst því í raun um hvort við viljum halda áfram að vera norræn þjóð eða festa okkur enn frekar í sessi sem (ó)menningarleg hjálenda Bandaríkj- anna. 26.7. | Guðmundur Karl Jónsson Of mikil slysahætta í Hvalfjarðargöngum Þeir sem telja ný hliðargöng undir Hvalfjörð óþörf láta sig öryggi vegfarenda engu varða. 27.7. | Guðjón Tómasson Nokkur orð um kjaramál og siðferði En hinsvegar er siðferðis- vandinn sem kjararáðið skilur eftir sig gífurlegur og vand- séð hvernig hægt er að snúa ofan af honum. 28.7. | Ása Ólafsdóttir og Þorsteinn Magnússon Staðreyndir um óbyggðanefnd Það er með öllu rangt að óbyggðanefnd starfi ekki innan fjárheimilda. Nefndin hefur þvert á móti ítrekað gripið til ráðstafana til að aðlaga sig að fjárheim- ildum hvers árs. 30.7. | Kristján Þór Júlíusson Öflug sauðfjárrækt til framtíðar Ég bind vonir við að endur- skoðun samnings um starfs- skilyrði sauðfjárræktar muni marka nýja og bjartari tíma í íslenskri sauðfjárrækt. 31.7. | Þórsteinn Ragnarsson 70 ár frá vígslu Fossvogskirkju og bálstofunnar í Fossvogi Eftir að málefni kirkjugarð- anna voru kynnt alþing- ismönnum fyrr á þessu ári virðist skilningur á alvarlegri rekstrarstöðu þeirra hafa aukist. 1.8. | Svanur Guðmundsson Landasala og raforkusala Raforkuframleiðsla á ESB- markaði er að ráðandi hluta keyrð á kolum og jarðgasi. Hér er allt keyrt á vatni og jarðhita. 2.8. | Ágúst Þór Árnason og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir Fullveldi og auðlindir Kaup útlendinga á landi hafa ver- ið í brennidepli. Ákvæði um að auðlindir Íslands tilheyri íslensku þjóðinni felur í sér árétt- ingu á fullveldi Íslands. 3.8. | Guðvarður Jónsson Ökumaðurinn er sá sem ber ábyrgðina Það eru sennilega fáir bíl- stjórar sem átta sig á því að það er engin þörf á að fara fram úr bíl sem ekur á 90 km hraða, nema að vera fyrir framan hann. 4.8. | Sigurður Björnsson Heilbrigðisþjónusta á Íslandi hver er staðan og hvert stefnir? Ekki er unnt að hugsa þá hugsun til enda ef áfram á að hindra íslenzka lækna með sérfræðimenntun frá erlend- um þekkingarsetrum í því að snúa heim og halda áfram að tryggja hér á landi heilbrigðisþjónustu í hæsta gæða- flokki. 8.8. | Ásdís Bergþórsdóttir Tölvufíkn, villta vestrið á Íslandi Ef fullorðnir einstaklingar telja sig vera með tölvufíkn, dansfíkn eða aðrar fíknir þá er þeim í sjálfsvald sett hvort þeir taka á sínum vanda út frá fíknihugmyndum. Um börn og ung- menni gildir annað. 9.8. | Steinþór Jónsson Hver má kaupa? Því miður er aragrúi fólks sem tekur undir skoðun stjórnsýsludoktorsins um að meina skuli frjáls viðskipti með jarðir. 9.8. | Jón Ármann Steinsson Buslað í baðvatni annarra Það ætti að skylda for- stöðumenn ITR til að gegna starfi sundlaugavarða í dag- part eða svo í hverjum mán- uði því þeir virðast algjörlega úr tengslum við hvað er að gerast í sund- laugum borgarinnar. 11.8. | Jóhannes Loftsson Mestu hamfarir Íslandssögunnar Skattbyrðin vex sífellt því só- unin er stjórnlaus þar sem ekkert aðhald er á eyðslu fjár sem enginn ber ábyrgð á. Enginn hefur val lengur því allir stjórnmálaflokkar eru að róa fram af sama hengiflugi, þó mishratt sé. 13.8. | Ögmundur Jónasson En ef landeigandinn hefði heitið Kim? Þá er það síðari spurningin, nefnilega hvort skipti máli hvort eigandinn sé íslenskur ríkisborgari eða erlendur. Ég tel tvímælalaust svo vera. 14.8. | Sturla Böðvarsson Óviðeigandi framkvæmd í höfuðborginni okkar Til þess að kóróna virðingar- leysið og skemmdarverkin í miðborginni stendur þar enn forljótur grjóthnullungur sem var velt inn á svæðið í kjölfar óeirða. 15.8. | Alex B. Stefánsson Samvinnuhugsjónin og loftslagsbreytingar Næsta öld verður, að sögn okkar færustu vísindamanna, jafnvel ekki minni áskorun en sú sem er liðin vegna lofts- lagsbreytinga. 18.8. | Sigríður Kristjánsdóttir Selfoss í framtíð eða fortíð? Endurspeglar skipulagstil- lagan fyrir nýjan miðbæ á Selfossi samfélagið og lýsir sögu þess og þróun? Kosið verður um tillöguna í dag. 20.8. | Geir Þorsteinsson Hinn fagri leikur Hinn fagri leikur á glæsta framtíð á Íslandi en þjálfun og keppni á náttúrulegu grasi þarf að vera hluti af þeirri framtíð. Fyrsti kostur fyrir knattspyrnuleikinn er og verður náttúru- legt gras. 22.8. | Þuríður Sigurðardóttir Grónar þúfur sem svefninn vefur Bæjarhóllinn og kirkjugarð- urinn í Laugarnesi eru frið- lýstir samkvæmt þjóðminja- lögum ásamt hluta af túninu með beðasléttum. En fyrr má nú vera friðurinn! Á friðlýsingin að svæfa söguna, jarða hana í illgresi og óþrifnaði? 23.8. | Jóhann L. Helgason Tvísköttun eldri borgara Erlendu tekjurnar, sem búið er að borga skatt af, eru lagðar saman við hinar ís- lensku fyrir skatt og þá auð- vitað til að hækka heildar- álagningarupphæðina. 25.8. | Ármann Kr. Ólafsson Styttum biðlista eftir dagvistun aldraðra strax Dagvistun aldraðra léttir á nánustu aðstandendum, börnum og fjölskyldu. Kópa- vogsbær er tilbúinn til að stytta biðlistana strax. 25.8. | Jón Gunnarsson Vilji er allt sem þarf Stöðugur ágreiningur um línulagnir og skortur á fram- tíðarsýn í uppbyggingu raf- orku er þegar farinn að hafa mjög skaðleg áhrif. 26.8. | Ísólfur Gylfi Pálmason Dýrara og erfiðara er það betra fyrir sjúklinga? Hér á landi er allt til alls fyrir aðgerðir og því er óþarfi að leggja það á sjúklinga að fara um langan veg til að fá bót meina sinna. 27.8. | Þuríður Harpa Sigurðardóttir Án dóms en með lögum opið bréf til Bjarna Benediktssonar Getum við verið sammála, Bjarni, um að brýnna er að veita vatni á þurran gróður en að bera í bakkafullan læk- inn? 28.8. | Sigurður Már Guðjónsson og Helgi Steinar Karlsson Iðnbyltingin Ef áfram verður haldið á þessari braut mun gríðarleg fag- þekking glatast og ungt fólk mun enn síður sjá hag sinn í að leggja iðnnám fyrir sig. 30.8. | Vilborg Auður Ísleifsdóttir Eignarréttur á villigötum Að réttu lagi ættu borg- arstjóri og borgarfulltrúar að taka sig saman í andlitinu, endurskoða þetta lánlausa deiliskipulag. 31.8. | Sigurður Sigurðarson Lögreglumállýskan hjá blaða- og fréttamönnum Hér er fyrst og fremst átt við orðalag sem hefur á sér yfirbragð stofnanamáls þar sem nafnorðin ráða ríkjum en sagnirnar lúta í lægra haldi. 1.9 | Gunnar Björnsson Bók er best vina Það er alltaf ánægjulegt að ganga inn undir þak þvílíkrar búðar, engu líkara en að stig- ið sé inn í aðra veröld. 3.9 | Sighvatur Björgvinsson Ísland og orkupakkinn Myndu þá kaupendurnir, ís- lenskir eða útlendir, vera sáttir við að ágóði þeirra yrði notaður til þess að lækka orkuverðið til Jóns og Sigríðar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.