Morgunblaðið - 29.12.2018, Síða 40

Morgunblaðið - 29.12.2018, Síða 40
40 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Fjölmiðlamaðurinn Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóriGolfsambands Íslands og ritstjóri Skagafrétta, fagnar á morg-un fimmtugsafmæli sínu. Elvar er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands og fór síðan í framhaldsnám í íþróttafræði í Noregi. Hann sneri sér svo að fréttamennsku um alda- mótin þegar hann hóf störf hjá Morgunblaðinu, þar sem hann starfaði í áratug áður en hann færði sig um set og hóf störf hjá 365 miðlum. Elvar ritstýrir í dag tímaritinu „Golf á Íslandi“ og fréttavefnum Skagafréttum, sem birtir að hans sögn einungis jákvæðar fréttir af Akranesi þar sem Elvar býr. Sjálfur er Elvar mikill golfáhugamaður og hefur verið frá unga aldri. „Ég hef alltaf verið í golfi, alveg frá því að ég var krakki. Svo þegar maður er kominn á þennan aldur er þetta svona öruggasta sportið.“ Sambýliskona Elvars er Díana Carmen Llorens Izaguirre og eiga þau hvort um sig þrjú börn. Carmen mun sjálf fagna fimmtugsafmæli sínu á komandi ári og segist Elvar ætla að fresta afmælisfögnuðinum fram á næsta sumar þegar þeim gefst færi á að fagna stórafmælinu saman. Hann hyggst hins vegar eyða afmælisdeginum sjálfum með fjölskyldu og vinum í sumarbústað Blaðamannafélagsins í Stykkis- hólmi. „30. desember er náttúrulega vonlaus tími til að halda upp á af- mæli. Ég deili þessum afmælisdegi með LeBron James, kannski ég horfi bara á körfubolta í staðinn.“ liljahrund@mbl.is Frí Elvar og Carmen ásamt hluta af fjölskyldunni á Spáni sl. sumar. Skrifar bara jákvæðar fréttir Elvar Þórólfsson fimmtugur á morgun Á rni Benediktsson fæddist á Hofteigi á Jökuldal hinn 30.12. 1928 og ólst þar upp fram til ferm- ingar, en þá flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur. Árni lauk verslunarprófi frá Sam- vinnuskólanum 1949 sem þá var enn til húsa í aðalstöðvum Sambands ís- lenskra samvinnufélaga við Sölvhóls- götuna í Reykjavík. Árni starfaði við sjávarútveg í hálf- an fimmta áratug, lengst af sem fram- kvæmdastjóri í fyrirtækjum tengdum Sambandi íslenska samvinnufélaga. Hann hefur setið í stjórn allmarga fyrirtækja og félaga, oft sem stjórnar- formaður. Hann hefur setið í opinber- um stjórnum, ráðum og nefndum og m.a. tekið þátt í gerð lagafrumvarpa um stjórn fiskveiða. Árni tók þátt í gerð kjarasamninga og fiskverðs- ákvarðana í meira en aldarfjórðung. Árni hefur flutt erindi og fyrir- lestra og skrifað fjölda blaðagreina um sjávarútvegs- og efnahagsmál, en einnig um íslensk fræði. Árni er hressilegur í tali og glað- sinna: „Núna fer minn tími að mestu í lestur og skriftir. Ég les mikið um er- lend stjórnmál og íslenskar ævisögur. Svo skrifaði ég svona eitt og annað sem flest fer í ruslakörfuna. En það gerir ekkert til. Ég hef gaman af þessu og það er gott að skrifa á tölv- una. Þá sést ekki hvað maður er orðinn skjálfhentur. Eitt hef ég þó ákveðið. Ég verð níræður á morgun og daginn eftir, á Árni Benediktsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri – 90 ára Glæsileg hjón Árni og eiginkona hans, Björg Dúfa Bogadóttir, á gullbrúðkaupsdegi sínum á Þingvöllum árið 2000. Ætlar að halda dagbók um síðustu æviárin Alnafnar Afmælisbarnið og sonarsonur hans eru báðir sleipir skákmenn. Ásgarður í Hvammssveit, Dal. Eydís Helga Eyjólfs- dóttir fæddist 5. apríl 2018 kl. 13.49. Hún vó 3.249 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir og Eyjólfur Ingvi Bjarnason. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSkeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is GLEÐILEGT NÝTT ÁR Óskum landsmönnum gleðilegs árs og þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.