Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
NÁNAR Á
S A L U R I N N . I S
09/01 kl. 20:00
KLASSÍK Á
NÝJU ÁRI
TÓNLEIKARÖÐ
2 0 1 8–2 0 1 9T Í B r Á
Fi
ðl
ul
ei
ka
rin
n
Ra
nn
ve
ig
M
ar
ta
Sa
rc
og
pí
an
ól
ei
ka
rin
n
Ja
ne
A
de
Su
ta
rjo
fly
tja
ve
rk
ef
tir
M
oz
ar
t,
Br
ah
m
s,
Se
nk
og
Ra
ve
l.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Líkt og oft áður hækka hin ýmsu
gjöld nú um áramót hjá hinu opin-
bera. Ýmis krónutölugjöld taka
breytingum í upphafi árs 2019.
Gjöld á eldsneyti, áfengi og tóbak
hækka t.a.m. almennt um 2,5%.
Hækkunin er minni en sem nemur
áætlaðri verðbólgu á næsta ári og
lækka gjöldin því að raungildi að
því er fram kemur á vef Stjórnar-
ráðsins.
Eldsneytisgjöldin hækka
Samkvæmt upplýsingum frá
FÍB mun bensínverð hér á landi
hækka um 3,3 krónur á lítra um
áramótin og mun lítrinn af dísilolíu
hækka um 3,1 krónu á lítra. FÍB
ráðgerir að bensínverð miðað við
núverandi útsöluverð og álagningu
hækki úr 221,8 krónum í 225,10
krónur á lítra og dísilolía úr 225,3
krónum í 228,4 krónur á lítra. Í
samræmi við stefnu stjórnvalda
um orkuskipti í samgöngum hækk-
ar kolefnisgjald um 10%, úr 9,10 í
9,95 krónur á lítra hvað bensín
varðar. Kolefnisgjald á dísilolíu
hækkar úr 9,45 í 10,40 krónur.
Olíugjald hækkar um 2,5%, úr 61,3
krónum í 62,85 krónur á lítra.
Virðisaukaskattur leggst síðan of-
an á þessi gjöld. Bifreiðagjald
hækkar þar að auki um 2,5% um
áramótin.
Strætó uppfærir gjaldskrá sína
á nýju ári í takt við verðlagsþróun,
um 3,9% að meðaltali. Almennt
staðgreiðslugjald og stakt fargjald
í strætó-appinu verður 470 krónur
eftir breytingu. Árskort í strætó
kostar 66.400 krónur.
Gjöld á áfengi og tóbak
hækka
Áfengis- og tóbaksgjöld hækka
almennt um 2,5%. Samkvæmt upp-
lýsingum frá ÁTVR um vænt út-
söluverð sem miða við óbreytt verð
frá birgjum mun karton af sígar-
ettum, sem á þessu ári kostaði
10.455 krónur, á næsta ári kosta
10.635 krónur og hækka um 1,7% í
verði. 50 gramma neftóbaksdós
hækkar í verði um 2,1% og mun
kosta 2.479 krónur samanborið við
2.428 krónur á þessu ári.
Hálfur lítri af bjór sem kostar
379 krónur mun eftir breytingu
kosta 385 krónur. Flaska af rauð-
víni sem áður kostaði 1.999 krónur
kostar á næsta ári 2.029 og 700
millilítra vodkaflaska sem kostar
5.499 krónur kostar á nýju ári
5.620 krónur.
Útvarpsgjald hækkar um 2,5%
og verður 17.500 krónur og hið
sama gildir um gjald í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra sem verður
11.454 krónur.
Lánsskírteini á bókasafni
hækkar um 19%
Ýmsar breytingar verða gerðar
á gjaldskrám Reykjavíkurborgar
um áramót. Hækkanir miða við að
tekjur á hverju fagsviði borgar-
innar hækki miðað við verðlags-
forsendur fjárhagsáætlunar, 2,9%.
Lánsskírteini á Borgarbókasafni
Reykjavíkur hækkar um 19% og
mun kosta 2.500 í stað 2.100 króna
áður. Börn og unglingar undir 18
ára aldri, eldri borgarar og ör-
yrkjar greiða þó ekki fyrir skír-
teini. Aðgangseyrir á Listasafn
Reykjavíkur hækkar um 9,1%, úr
1.650 í 1.800 krónur.
Stakt gjald í sund í höfuðborg-
inni fyrir fullorðna hækkar um 2%
og verður 1.000 krónur. Aðgöngu-
eyrir fyrir börn er óbreyttur, 160
krónur. 20 miða kort fyrir full-
orðna hækkar um 4,3% og kostar
8.450 krónur. 10 miða kort barna
hækka um 3% og kostar 1.030
krónur.
Fjögurra mánaða vetrarkort á
ylstrandir kostar 6.700 krónur og
hækkar um 3,1% frá því á þessu
ári. Gjald barna í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn hækkar um 3% og
verður 680 kr. Gjald fullorðinna
hækkar um 2,3%, verður 900 kr.
Ýmis gjöld vegna þjónustu frí-
stundaheimila hækka um 2,9% sem
og máltíðir í grunnskólum og sum-
arnámskeið svo dæmi séu nefnd.
Leikskólagjöld og fæðisgjöld á
leikskólum hækka einnig um 2,9%.
Bílastæðagjöld á gjaldsvæði 1
hækka um 15,6%, úr 320 krónum í
370 krónur og um 11,8% á öðrum
gjaldsvæðum, úr 170 krónum í 190
krónur. Íbúakort hækka um 6,7%,
úr 7.500 krónum í 8.000 krónur.
Heimaþjónusta aldraðra hækkar
um 2,5% og kostar hver klukku-
stund á nýju ári 1.235 í stað 1.205
króna á þessu ári.
Ýmsar breytingar í skatt-
heimtu um áramótin
Persónuafsláttur og þrepamörk
tekjuskatts einstaklinga taka
breytingum í upphafi árs. Per-
sónuafsláttur hækkar um 4,7%,
þar af um 3,7% vegna lögbund-
innar verðlagsuppfærslu og um
1% samkvæmt sérstakri laga-
breytingu til bráðabirgða.
Hækkun fjárhæðarmarka milli
skattþrepanna fyrir árið 2019
verður miðuð við vísitölu neyslu-
verðs í stað launavísitölu og verð-
ur því 3,7% milli áranna 2018 og
2019. Fjárhæðarmörk milli þrepa
hækka úr 893.713 krónum í
927.087 krónur á mánuði og verða
skattþrepin áfram tvö og skatt-
hlutföll tekjuskatts óbreytt.
Skattleysismörk í staðgreiðslu
hækka um 4,7% og verða rúmlega
159 þúsund krónur á mánuði að
teknu tilliti til frádráttar 4% ið-
gjalds í lífeyrissjóð.
Fjárhæðir barnabóta hækka um
5% milli áranna 2018 og 2019 og
tekjuskerðingarmörk um rúmlega
24% milli ára. Þá verður tekju-
skerðing aukin hjá tekjuhærri
fjölskyldum. Fjárhæðir vaxtabóta
hækka um 5% og eignarmörk bót-
anna um 10% milli ára.
Skatthlutfall almenns trygg-
ingagjalds lækkar um 0,25 pró-
sentustig í byrjun árs 2019, úr
5,40% í 5,15%.
Áfengi, tóbak
og eldsneyti
hækka í verði
Ýmsar breytingar á gjöldum hins
opinbera taka gildi um áramótin
Dæmi um fyrirhugaðar verðhækkanir á komandi ári
680 kr. mun kosta
fyrir barn í
Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn sem er
um 3% hækkun
17.500 kr. verður útvarps-
gjald sem hækkar um 2,5%
Sama gildir um gjald í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra sem
verður 11.454
1.000 kr. verður stakt gjald í sund í höfuðborginni
fyrir fullorðna sem hækkar um 2%.
20 miða kort fyrir fullorðna hækkar
um 4,3% og kostar 8.450 kr.
2,5% hækkun verður
á bifreiðagjaldi um
áramótin
Miðað við algengt útsöluverð
og álagningu fer bensínverð úr
221,80 í 225,10 kr. og dísilolían
úr 225,30 í 228,40 kr.
3,30 kr. mun bensínlítrinn hækka um vegna skattahækkun-ar um áramót og dísilolía hækkar um 3,10 kr. á lítra
370 krónur verður bílastæðagjald
á gjaldsvæði 1 í stað 320 kr.
eftir 15,6% hækkun
Gjald fullorðinna
hækkar um 2,3%
og verður 900 kr.
385 kr. mun hálfur lítri af bjór kosta í stað 379 kr. áður eftir hækkun á áfengisgjaldi
2.029
kr. mun flaska af
rauðvíni kosta
sem áður kostaði
1.999 krónur
10.635 kr. mun
karton af sígarett-
um kosta sem á
þessu ári kostaði
10.455 krónur
sem er um 1,7%
verðhækkun
470 kr. mun stakt fargjald í strætó-appinu kosta eftir um 3,9% hækkun 3. janúar
Árskort í strætó mun kosta 66.400 krónur.
FÖSSARI
2019
1.800 krónur mun kosta á Listasafn
Reykjavíkur og hækkar aðgangs-
eyrir um 9,1% úr 1.650 kr.
2.500 kr.
mun lánsskírteini á
Borgarbókasafni
Reykjavík-
ur kosta
sem er
hækkun
um 19%
Breytingar í borginni
» Lánsskírteini á Borgar-
bókasafn hækkar um 19%.
» Bílastæðagjöld hækka um
11,8% og 15,6% eftir gjald-
svæðum.
» Gjald barna í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn hækkar um
3%.
» Aðgangseyrir á Listasafn
Reykjavíkur hækkar um 9,1%.