Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 16

Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 ALMAR BAKARI BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn NÁNAR Á S A L U R I N N . I S 09/01 kl. 20:00 KLASSÍK Á NÝJU ÁRI TÓNLEIKARÖÐ 2 0 1 8–2 0 1 9T Í B r Á Fi ðl ul ei ka rin n Ra nn ve ig M ar ta Sa rc og pí an ól ei ka rin n Ja ne A de Su ta rjo fly tja ve rk ef tir M oz ar t, Br ah m s, Se nk og Ra ve l. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Líkt og oft áður hækka hin ýmsu gjöld nú um áramót hjá hinu opin- bera. Ýmis krónutölugjöld taka breytingum í upphafi árs 2019. Gjöld á eldsneyti, áfengi og tóbak hækka t.a.m. almennt um 2,5%. Hækkunin er minni en sem nemur áætlaðri verðbólgu á næsta ári og lækka gjöldin því að raungildi að því er fram kemur á vef Stjórnar- ráðsins. Eldsneytisgjöldin hækka Samkvæmt upplýsingum frá FÍB mun bensínverð hér á landi hækka um 3,3 krónur á lítra um áramótin og mun lítrinn af dísilolíu hækka um 3,1 krónu á lítra. FÍB ráðgerir að bensínverð miðað við núverandi útsöluverð og álagningu hækki úr 221,8 krónum í 225,10 krónur á lítra og dísilolía úr 225,3 krónum í 228,4 krónur á lítra. Í samræmi við stefnu stjórnvalda um orkuskipti í samgöngum hækk- ar kolefnisgjald um 10%, úr 9,10 í 9,95 krónur á lítra hvað bensín varðar. Kolefnisgjald á dísilolíu hækkar úr 9,45 í 10,40 krónur. Olíugjald hækkar um 2,5%, úr 61,3 krónum í 62,85 krónur á lítra. Virðisaukaskattur leggst síðan of- an á þessi gjöld. Bifreiðagjald hækkar þar að auki um 2,5% um áramótin. Strætó uppfærir gjaldskrá sína á nýju ári í takt við verðlagsþróun, um 3,9% að meðaltali. Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í strætó-appinu verður 470 krónur eftir breytingu. Árskort í strætó kostar 66.400 krónur. Gjöld á áfengi og tóbak hækka Áfengis- og tóbaksgjöld hækka almennt um 2,5%. Samkvæmt upp- lýsingum frá ÁTVR um vænt út- söluverð sem miða við óbreytt verð frá birgjum mun karton af sígar- ettum, sem á þessu ári kostaði 10.455 krónur, á næsta ári kosta 10.635 krónur og hækka um 1,7% í verði. 50 gramma neftóbaksdós hækkar í verði um 2,1% og mun kosta 2.479 krónur samanborið við 2.428 krónur á þessu ári. Hálfur lítri af bjór sem kostar 379 krónur mun eftir breytingu kosta 385 krónur. Flaska af rauð- víni sem áður kostaði 1.999 krónur kostar á næsta ári 2.029 og 700 millilítra vodkaflaska sem kostar 5.499 krónur kostar á nýju ári 5.620 krónur. Útvarpsgjald hækkar um 2,5% og verður 17.500 krónur og hið sama gildir um gjald í Fram- kvæmdasjóð aldraðra sem verður 11.454 krónur. Lánsskírteini á bókasafni hækkar um 19% Ýmsar breytingar verða gerðar á gjaldskrám Reykjavíkurborgar um áramót. Hækkanir miða við að tekjur á hverju fagsviði borgar- innar hækki miðað við verðlags- forsendur fjárhagsáætlunar, 2,9%. Lánsskírteini á Borgarbókasafni Reykjavíkur hækkar um 19% og mun kosta 2.500 í stað 2.100 króna áður. Börn og unglingar undir 18 ára aldri, eldri borgarar og ör- yrkjar greiða þó ekki fyrir skír- teini. Aðgangseyrir á Listasafn Reykjavíkur hækkar um 9,1%, úr 1.650 í 1.800 krónur. Stakt gjald í sund í höfuðborg- inni fyrir fullorðna hækkar um 2% og verður 1.000 krónur. Aðgöngu- eyrir fyrir börn er óbreyttur, 160 krónur. 20 miða kort fyrir full- orðna hækkar um 4,3% og kostar 8.450 krónur. 10 miða kort barna hækka um 3% og kostar 1.030 krónur. Fjögurra mánaða vetrarkort á ylstrandir kostar 6.700 krónur og hækkar um 3,1% frá því á þessu ári. Gjald barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hækkar um 3% og verður 680 kr. Gjald fullorðinna hækkar um 2,3%, verður 900 kr. Ýmis gjöld vegna þjónustu frí- stundaheimila hækka um 2,9% sem og máltíðir í grunnskólum og sum- arnámskeið svo dæmi séu nefnd. Leikskólagjöld og fæðisgjöld á leikskólum hækka einnig um 2,9%. Bílastæðagjöld á gjaldsvæði 1 hækka um 15,6%, úr 320 krónum í 370 krónur og um 11,8% á öðrum gjaldsvæðum, úr 170 krónum í 190 krónur. Íbúakort hækka um 6,7%, úr 7.500 krónum í 8.000 krónur. Heimaþjónusta aldraðra hækkar um 2,5% og kostar hver klukku- stund á nýju ári 1.235 í stað 1.205 króna á þessu ári. Ýmsar breytingar í skatt- heimtu um áramótin Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga taka breytingum í upphafi árs. Per- sónuafsláttur hækkar um 4,7%, þar af um 3,7% vegna lögbund- innar verðlagsuppfærslu og um 1% samkvæmt sérstakri laga- breytingu til bráðabirgða. Hækkun fjárhæðarmarka milli skattþrepanna fyrir árið 2019 verður miðuð við vísitölu neyslu- verðs í stað launavísitölu og verð- ur því 3,7% milli áranna 2018 og 2019. Fjárhæðarmörk milli þrepa hækka úr 893.713 krónum í 927.087 krónur á mánuði og verða skattþrepin áfram tvö og skatt- hlutföll tekjuskatts óbreytt. Skattleysismörk í staðgreiðslu hækka um 4,7% og verða rúmlega 159 þúsund krónur á mánuði að teknu tilliti til frádráttar 4% ið- gjalds í lífeyrissjóð. Fjárhæðir barnabóta hækka um 5% milli áranna 2018 og 2019 og tekjuskerðingarmörk um rúmlega 24% milli ára. Þá verður tekju- skerðing aukin hjá tekjuhærri fjölskyldum. Fjárhæðir vaxtabóta hækka um 5% og eignarmörk bót- anna um 10% milli ára. Skatthlutfall almenns trygg- ingagjalds lækkar um 0,25 pró- sentustig í byrjun árs 2019, úr 5,40% í 5,15%. Áfengi, tóbak og eldsneyti hækka í verði  Ýmsar breytingar á gjöldum hins opinbera taka gildi um áramótin Dæmi um fyrirhugaðar verðhækkanir á komandi ári 680 kr. mun kosta fyrir barn í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn sem er um 3% hækkun 17.500 kr. verður útvarps- gjald sem hækkar um 2,5% Sama gildir um gjald í Fram- kvæmdasjóð aldraðra sem verður 11.454 1.000 kr. verður stakt gjald í sund í höfuðborginni fyrir fullorðna sem hækkar um 2%. 20 miða kort fyrir fullorðna hækkar um 4,3% og kostar 8.450 kr. 2,5% hækkun verður á bifreiðagjaldi um áramótin Miðað við algengt útsöluverð og álagningu fer bensínverð úr 221,80 í 225,10 kr. og dísilolían úr 225,30 í 228,40 kr. 3,30 kr. mun bensínlítrinn hækka um vegna skattahækkun-ar um áramót og dísilolía hækkar um 3,10 kr. á lítra 370 krónur verður bílastæðagjald á gjaldsvæði 1 í stað 320 kr. eftir 15,6% hækkun Gjald fullorðinna hækkar um 2,3% og verður 900 kr. 385 kr. mun hálfur lítri af bjór kosta í stað 379 kr. áður eftir hækkun á áfengisgjaldi 2.029 kr. mun flaska af rauðvíni kosta sem áður kostaði 1.999 krónur 10.635 kr. mun karton af sígarett- um kosta sem á þessu ári kostaði 10.455 krónur sem er um 1,7% verðhækkun 470 kr. mun stakt fargjald í strætó-appinu kosta eftir um 3,9% hækkun 3. janúar Árskort í strætó mun kosta 66.400 krónur. FÖSSARI 2019 1.800 krónur mun kosta á Listasafn Reykjavíkur og hækkar aðgangs- eyrir um 9,1% úr 1.650 kr. 2.500 kr. mun lánsskírteini á Borgarbókasafni Reykjavík- ur kosta sem er hækkun um 19% Breytingar í borginni » Lánsskírteini á Borgar- bókasafn hækkar um 19%. » Bílastæðagjöld hækka um 11,8% og 15,6% eftir gjald- svæðum. » Gjald barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hækkar um 3%. » Aðgangseyrir á Listasafn Reykjavíkur hækkar um 9,1%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.