Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Geir Ágústssonverkfræðingur
skrifar á blog.is:
„Undanfarin 10-20
ár hefur ríkt ofur-
viðkvæmni í mörg-
um samfélögum.
Slíkri viðkvæmni
mætti lýsa sem svo að sá sem
móðgast fyrstur eða stimplar sig
sem mesta fórnarlambið hefur
fengið að ráða yfir öllum öðrum.
Þessi ofurviðkvæmni hefur náðgóðum tökum á íslenskri dæg-
urmálaumræðu. Besta dæmið er
sennilega vitleysan sem fór í gang
þegar einhver hjúkrunarfræðing-
urinn móðgaðist yfir því að hafa
lesið orðið hjúkrunarkona í barna-
bók og vatt sér á samfélagsmiðla
til að lýsa yfir hneykslun sinni.
Í Danmörku, þar sem ég bý, hafasumir reynt að láta ofur-
viðkvæmnina stjórna öðrum en
tekist eitthvað illa upp. Eitt mál
fékk þó nokkra athygli í fjöl-
miðlum hér. Þeldökk kona hafði
móðgast yfir því að samstarfs-
félagar hafi sungið gamalt og
þekkt danskt þjóðlag um ljós-
hærða stúlku. Henni fannst hún
vera skilin útundan. Ég held að
Danir hafi að lokum ákveðið að
þetta væri kjánaskapur og að lagið
væri gott og gilt.
Uppreisnin gegn ofur-viðkvæmninni er vonandi
hafin.“
Ekkert skal fullyrt um hvortþessi uppreisn er hafin.
Margt bendir til annars. Vitaskuld
er sjálfsagt að sýna fyllstu tillits-
semi í opinberri umræðu og öðrum
samskiptum fólks. Gullna reglan á
jafnan vel við. Það felur þó ekki í
sér að fólki beri að beygja sig fyr-
ir þeim sem hæst kvartar hverju
sinni.
Geir Ágústsson
Ofurviðkvæmni
á undanhaldi?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Eins og síðastliðin þrjú ár verður
talið niður í áramótin á ljósahjúp
Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss
í Reykjavík.
Svanhildur Konráðsdóttir, for-
stjóri Hörpu, segir að Harpa sé
orðin stór hluti af þeirri skemmti-
legu áramótahefð að telja niður ár-
ið við þekkt kennileiti í ýmsum
borgum víða um heim.
„Hjúpurinn í Hörpu er nokkurs
konar lifandi strigi sem við málum
á til að fagna sérstökum tilefnum.
Við erum alltaf að þróa þá fjöl-
breyttu möguleika áfram. Ég held
að flestir sjái þetta sem órjúfan-
legan hluta þessa fallega húss
okkar,“ segir Svanhildur og upp-
lýsir að það sé mikið um að fólk
komi saman í miðbæ Reykjavíkur
um áramót og þá ekki síst erlendir
ferðamenn sem líti á heimsókn í
Hörpu sem ómissandi hluta af
ferðinni.
,,Á gamlársdagdag verður ártal-
ið 2018 látið lifa á hjúpi Hörpu.
Klukkan 23.59 hefst niðurtalningin
í sekúndum þar til á miðnætti að
ártalið 2019 birtist og verður á
hjúp Hörpu á nýársdag,“ segir
Svanhildur, sem bendir á að best
sé að vera á Hörputorgi til þess að
fylgjast með niðurtalningunni en
einnig sé gott að standa á Arnar-
hóli, í Lækjargötu, og á Sæbraut-
inni vestan megin.
Árið 2018 talið niður á ljósahjúp Hörpu
Niðurtalning hefst kl. 23.59 Margt fólk samankomið í miðbænum á miðnætti
Ljósmynd/aðsend
Áramót Árið talið niður í Hörpu.
Fisk Seafood á Sauðárkróki hefur
gengið frá kaupum á tveimur skipum
af Gjögri hf. á Grenivík. Um er að
ræða skuttogarana Vörð EA-748 og
Áskel EA-749. Einnig keypti Fisk
Seafood tæplega 660 tonn af afla-
heimildum Gjögurs.
Aflaheimildir Fisk Seafood verða
eftir kaupin tæplega 23 þúsund tonn
eða um 6% af úthlutuðum aflaheim-
ildum fiskveiðiársins 2018/2019.
Skipin verða afhent í lok júlí á næsta
ári og um sama leyti fær Gjögur tvö
ný skip til afhendingar. Verðmæti
viðskiptanna miðað við núverandi
gengisskráningu er tæplega 1,7
milljarðar króna.
Skipin voru seld án kvóta en í sér-
stökum viðskiptum með aflaheimild-
ir keypti Fisk Seafood af Gjögri tæp-
lega 350 tonna kvóta í ufsa og 245
tonn í djúpkarfa auk heimilda í fleiri
tegundum.
Friðbjörn Ásbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri FISK Seafood, segir
kaupin lið í endurnýjun og endur-
skipulagningu á flota fyrirtækisins.
Með nýjum skipum í stað hinna eldri
aukist öryggi um borð og aðbúnaður
batni til muna.
„Endurnýjun er einnig ætlað að
efla hagkvæmni í rekstri, fjölga
heppilegum fiskimiðum með tilheyr-
andi fjölbreytni veiðanna, bæta með-
ferð aflans og auka um leið verðmæti
hans,“ segir í tilkynningu FISK.
Vörður Smíðaður 2007 hjá Nordship
í Póllandi, 485 brúttótonn að þyngd.
Áskell Smíðaður í Taívan árið 2009,
362 brúttótonn að þyngd.
Kaupa skip af Gjögri
fyrir 1,7 milljarða
FISK Seafood endurnýjar flotann