Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
21.4. | Hildur Hermóðsdóttir
Konur eru menn
Er ekki hreinlega háskalegt
að róta á þennan hátt í okkar
viðkvæma málkerfi og hefur
þetta eitthvað með jafnrétti
að gera?
23.4. | Viðar Freyr Guðmundsson
Bestun ljósa sparar milljarða
Samgöngumál borgarinnar
hafa verið vanrækt á síðustu
árum með vítaverðum hætti.
Allt sem teljast mætti einka-
bílnum til tekna hefur verið
hundsað eða markvisst ýtt til hliðar.
26.4. | Marta Bergman
Eiga snjallsímar erindi
í skólastofuna?
En samt er öllum almenningi
orðið ljóst að það er eitthvað
mikið að í grunnskólanum.
Þriðjungur drengja lýkur
þeirri skólagöngu án þess að
geta lesið sér til gagns og tveir þriðju há-
skólanema eru konur.
27.4. | Valgeir Viðarsson
Sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun
Hvernig á að vera hægt að
meta lög, reglur og fordæmi
þegar landlæknisembættið
er ekki samkvæmt sjálfu sér í
veitingu sérfræðileyfa?
28.4. | Elías Elíasson
Á að stofna nýja Orkustofnun
til að gera ekkert?
Ef sæstrengur kemur er sam-
keppnisstöðu alls okkar iðn-
aðar hætt, nema helst stór-
iðju sem getur varið sig
einhvern tíma.
30.4. | Kristján Sigurðsson
Skipulag og framkvæmd
leghálsog brjóstakrabba-
meinsleitar
Þrátt fyrir þessa lágu 2 ára
mætingu hafa rannsóknir
staðfest að leitin hefur mark-
tækt lækkað dánartíðni af
völdum sjúkdómsins.
1.5. | Kjartan Ólafsson
Tímamót hjá Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands
Sennilega hefur einhverjum
þótt draumurinn um full-
burða sinfóníuhljómsveit
með aðsetur utan höfuð-
borgarsvæðisins vera í óra-
langri framtíð þegar hljómsveitin hélt sína
fyrstu tónleika í október 1993 í Akur-
eyrarkirkju.
2.5. | Björn Bjarki Þorsteinsson
Brúin til framtíðar hefur
reynst vel í Borgarbyggð
Það eru bjartir og spennandi
tímar í Borgarbyggð. At-
vinnulíf blómstrar, íbúum er
að fjölga og sú þróun hjálpar
til við að halda uppi öflugu
þjónustustigi.
3.5. | Sigurður Ingólfsson
Breytingar á gjöldum
Reykjavíkurborgar
frá árinu 2000
Maður skyldi ætla að með
stærri rekstrareiningu og
aukinni tækni yrði rekstur
borgarinnar hagkvæmari, en
því virðist öfugt farið hjá
Reykjavíkurborg.
4.5. | Snædís Karlsdóttir
Fjárfestum í framtíðinni
Kennarar barnanna okkar
ættu að vera okkar hæfasta
fólk en neikvæð orðræða um
kennarastarfið í leik- og
grunnskólum hefur leitt til
þess að ungt hæfileikafólk íhugar kenn-
aranám ekki lengur sem valkost.
5.5. | Þórarinn H. Ævarsson
Til varnar jafnlaunavottun
Það fylgir því kostnaður að innleiða og við-
halda jafnlaunavottun, en sá kostnaður
næst til baka, og margfalt, sé
rétt haldið á spilunum.
8.5. | Haraldur Benediktsson
Spennum beltin í
net-umferðinni
Alþingi má ekki sofna á verð-
inum og gefa því ekki gaum
að í fjármálaáætlun sem nú
er þar til meðferðar er lítil
áhersla á net- og upplýsinga-
öryggismál. Enn er lag að breyta.
9.5. | Logi Einarsson
Eymdarkjör án Evrópusamstarfs
Ekkert hefur fært Íslend-
ingum jafn mikil lífsgæði á
jafn skömmum tíma og það
að ganga að hluta til inn í það
samstarf í gegnum Evrópska
efnahagssvæðið.
11.5. | Sigmundur Einar Ófeigsson
Eyfirðingar auglýsa eftir kjarki
Pólitískan vilja og kjark skort-
ir. Á meðan versnar ástandið
ár frá ári og dýrmætur tími
fer til spillis því fram-
kvæmdatíminn er langur.
12.5. | Eva Dögg M. Sigurgeirsdóttir
Verndum grænu svæðin
í Reykjavík
Við verðum jafnframt að
vernda Elliðaárnar, því hvergi
í heiminum rennur laxveiðiá í
gegnum höfuðborg nema í
höfuðborginni okkar Reykja-
vík, þetta er einstakt.
14.5. | Erla Björnsdóttir
Samvinna dregur úr streitu
Aukin streita hefur verið í
umræðunni. Hvað gerir sam-
vinna, hvernig getum við há-
markað gæði þjónustunnar?
15.5. | Sveinn Rúnar Hauksson
Samstaða gegn hernámi og fyrir
rétti flóttafólks til heimkomu
Viðbrögð Ísraelsstjórnar voru
að gefa 100 leyniskyttum Ísr-
aelshers frjálst skotleyfi á
óvopnaða mótmælendur.
16.5. | Valgerður Árnadóttir
Dýrin í borginni
Píratar eru eini flokkurinn í
Reykjavík sem er með sér-
staka stefnu í dýravelferðar-
málum og þjónustu við gælu-
dýraeigendur.
17.5. | Jón Trausti Ólafsson
Hreinni bílar lykill að lausninni
Kostir umhverfisvænni bíla
eru ótvíræðir, þeim fylgir ekki
aðeins umhverfislegur ávinn-
ingur heldur líka fjárhags-
legur.
18.5. | Helgi Máni Sigurðsson
Skaftfellingur Sérstök og
áhrifamikil gersemi
Skaftfellingur er eitt elsta þil-
skip landsins og eitt örfárra
íslenskra flutningaskipa sem
njóta friðunar vegna aldurs.
19.5. | Özur Lárusson
Verð á nýjum bílum
hækkar á næstunni
Að mati Bílgreinasambands-
ins er ekki ólíklegt að 2019
verði sala á nýjum bílum 40-
50% þess sem hún var árið
2017 grípi stjórnvöld ekki í
taumana.
22.5. | Silja Jóhannesdóttir
Tími aðgerða er kominn
Við erum með sjúkrahús með
aðstöðu til að verða sérhæfð
eining í þessum aðgerðum,
eitt á Akranesi, eitt í Reykja-
nesbæ og það er meira að
segja ónotuð aðstaða á Akureyri.
23.5. | Halldóra Björnsdóttir
Velkomin um borð í flug Air
Iceland Connect til Reykjavíkur
í boði WOW air
Mér finnst nokkuð ljóst að Air
Iceland Connect ætlar að
notfæra sér einokunarstöðu
sína í innanlandsfluginu með-
an það getur.
24.5. | Marta Guðjónsdóttir
Búskussar í borginni
Reykjavík hefur aldrei verið
sýnt eins mikið hirðuleysi og
nú á tveimur síðustu kjör-
tímabilum.
25.5. | Svavar Halldórsson
Íslenskt lambakjöt nýtur
verndar í Evrópu
Afurðaheitið íslenskt lamba-
kjöt nýtur þar með verndar á
öllu evrópska efnahagssvæð-
inu í 30 löndum.
28.5. | Þórhallur Heimisson
Ísrael 70 ára
Eftir að hafa verið á flótta um
heiminn í ein 1900 ár, oft of-
sóttir og hraktir, höfðu gyð-
ingar aftur eignast föðurland.
30.5. | Kristín Þorkelsdóttir
Bjóðið okkur sæti
Ég vonast innilega til að í
framtíðinni geti ég sest fyrir
framan listaverk og notið
þess sem listamaðurinn hef-
ur fram að færa.
31.5. | Tómas Guðbjartsson
Þar sem vegur
sannleikans endar
Þeir vita að náttúrufegurð
svæðisins, og þá sérstaklega
fossarnir og klettum prýdd
strandlengjan, geta sett tug-
milljarða gróðavon þeirra í
uppnám.
1.6. | Salka Gústafsdóttir
Ábyrgðin er okkar um
höfuðhögg í íþróttum
Höfuðhögg og heilahristingur
geta haft langvarandi afleið-
ingar sem oft er hægt að
koma í veg fyrir með réttri
meðhöndlun.
2.6. | Agnes M. Sigurðardóttir
Ef Guð er til
Nálægðin við sjóinn hefur
mótað mannlífið kynslóð eftir
kynslóð. Vitundin um hafið
sem gjöfulan vin og ægilegan
ógnvald í senn leiðir af sér
áræði samfara lotningu.
4.6. | Katrín Olga Jóhannesdóttir
Samkeppnishæf lífskjör
Í mínum huga er því ekki
annað í boði en að setja sam-
keppnishæfni á oddinn og
marka okkur langtímastefnu
til þess að efla hana.
5.6. | Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir
og Agnar Óli Snorrason
Um menntun sjúkraliða,
störf þeirra og tækifæri
hér og erlendis
Íslenskur sjúkra-
liði sem vill
halda til fram-
haldsnáms er-
lendis verður að
fá próf sín metin sérstaklega í þann skóla
sem vekur mestan áhuga.
7.6. | Kristinn H. Gunnarsson
Hvalá: stórstígar framfarir
fyrir Vestfirðinga
Áhrif Hvalárvirkjunar á um-
hverfi sitt verða ekki mikil og
auk þess afturkræf. Helst er
það vatnsmagn í nokkrum
fossum sem breytist.
8.6. | Stefán E. Matthíasson
og Þórarinn Guðnason
Háskaleikur
heilbrigðis-ráðherrans
Á síðasta ári
tóku sér-
fræðilæknar á
rammasamningi
við Sjúkratrygg-
ingar Íslands á móti um 500 þúsund
heimsóknum. Þannig er stofustarfsemi
sérfræðilækna stærri en göngudeildar-
starfsemi tveggja stærstu heilbrigðis-
stofnana landsins.
9.6. | Svanur Guðmundsson
Myndun borgarstjórnar 2018
Þessir flokkar eru með 46%
atkvæða á bak við sig og telja
sig sigurvegara. Minnihlutinn
er með 48% atkvæða á bak
við sig, en með færri fulltrúa.
11.6.| Páll Torfi Önundarson
Ætti að skipta Landspítala upp í
nokkrar sjálfstæðar stofnanir?
Myndi þjónusta rakara batna
væru rakarastofur allar sam-
einaðar í eina opinbera stofn-
un og ríkið takmarkaði fjölda
rakara og rakarastóla?
12.6. | Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir
Áhrif nýrra persónu-
verndarlaga á ríkissjóð
Það er ljóst að gríðarleg
vinna felst í innleiðingu nýju
persónuverndarlaganna sem
hafa mun verulegan kostn-
aðarauka í för með sér hjá
fyrirtækjum og stofnunum landsins.
14.6. | Hallur Hallsson
Miðaldamyrkur fjölmenningar
Íslenskir fjölmiðlar taka þátt í
þöggun glæpa og grimmdar-
verka sem eiga sér ekki for-
dæmi í sögu vestrænna lýð-
ræðisþjóða.
18.6. | Michael Nevin
Ísland er hluti af framtíð
Bretlands
Bretar ganga brátt úr Evr-
ópusambandinu en ekki úr
Evrópu. Það er Bretlandi og
ESB í hag, sem nágrönnum
og bandamönnum, að náið
samstarf haldi áfram.
20.6. | Anna Lúðvíksdóttir
Alþjóðlegi flóttamanna-
dagurinn er í dag
Flóttamannavandinn sem
heimsbyggðin stendur nú
frammi fyrir er slíkur að ríki
verða að taka höndum sam-
an og tryggja raunverulega
vernd flóttafólks.
21.6. | Vala Garðarsdóttir
Víkur víkinganna
Við skulum allavega ekki
vera með hleypidóma og
gefa víkingum öllum slæmt
orðspor sem þeir eiga engan
veginn skilið.
22.6. | Jónas Guðmundsson
Lýðræði og stjórnarskrá
Hnignun lýðræðisins er al-
vörumál. Frestun stjórn-
arskrárbreytinganna frá
2012 er á skjön við lýðræðis-
hefðir og varpar skugga á
fullveldisafmælið.
23.6. | Skúli Jóhannsson
Uppboðsmarkaður
og sæstrengur
Sjálfsagt er að samþykkja
þriðja orkupakkann á Alþingi,
sem næsta áfanga í að
stuðla að betra raforkukerfi
á Íslandi og nýta reynsluna
frá útlöndum.
25.6. | Vilhelm G. Kristinsson
Gróa á Efstaleiti
Ekki virðast lengur gerðar
kröfur um trausta heimilda-
vinnu á fréttastofu Ríkis-
útvarpsins, heldur látið
nægja að brúka gróusögur
og rógburð af netinu.
26.6. | Tinna Sigurðardóttir
Íslenska og klingónska
Fjarheilbrigðisþjónusta er
ekki jafn framandi og kling-
ónska og er þaðan af síður
upprunnin frá Deltasvæðinu.
Hún er raunveruleiki ís-
lenskra heilbrigðisstarfsmanna, kennara
og fjölda nemenda og skjólstæðinga.
27.6. | Þórdís Stephensen
Hverjir eiga skilið
styttri vinnuviku?
Ekki ætlumst við til þess að
vinnutími styttist hjá öllum
öðrum en heilbrigðisstarfs-
mönnum því hvar ætlum við
að finna viðbótarstarfsfólkið
í þeirri stétt?
29.6. | Þorsteinn Ásgeirsson
Fer utanþingsráðherra gegn
vilja þingsins?
Með því að troða þessum
ósannindum í okkur aftur og
aftur gætu margir farið að
trúa þeim.
30.6. | Þorsteinn Sæmundsson
Hversu margir eru nógu margir?
Óbeit heilbrigðisráðherra á öllum aðilum á
Stuðningur Ís-
lendingar fjöl-
menntu til Rúss-
lands í sumar.