Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 31
Morgunblaðið/Hari
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
5.11. | Þorvaldur Jóhannsson
Ertu að grínast, Sigurður Ingi?
Viðvarandi varnarbarátta
hefur sett svip sinn á sam-
félagið sem þrátt fyrir mót-
lætið gengur stolt, samstiga
og brosandi á móti bjartari
tímum. Langtíma þreytandi áreiti og andóf
nágranna hefur svo sannarlega ekki hjálp-
að til í baráttunni.
6.11. | Björk Varðardóttir
Virk þátttaka foreldra í íþrótt-
um barna er vandasamt verkefni
Þarna úti eru margar litlar
sálir með tilfinningar. Hróp
og köll frá foreldrum inn á
leiki eða æfingar ættu ekki
að heyrast undir nokkrum
kringumstæðum.
7.11. | Aðalsteinn Gunnarsson
Hvítur jólasnjór
Það er óverjandi þegar fyrir-
tæki markaðssetja markvisst
sín vímuefni beint og óbeint
til að eyðileggja jólahátíðina
fyrir börnum.
8.11. | Arnar Sverrisson
Lágkúra RÚV og Stígamóta
RÚV tekur í vaxandi mæli
þátt í lágkúrufjölmiðlun, sem
m.a. birtist í jafnréttisskakkri
og ógagnrýninni fjölmiðlun,
tengdri samskiptum
kynjanna.
9.11. | Ólafur Stephensen
Framsókn og réttaröryggið
Hvert er réttaröryggi fyrir-
tækja þegar stjórnmálamenn
lýsa yfir að þeir hyggist hafa
niðurstöður dómstóla að
engu?
10.11. | Margrét Kristín Sigurðardóttir
Háskólakonur í 90 ár
Þegar Félag háskólakvenna
var stofnað árið 1928 voru
aðeins örfáar konur útskrif-
aðar með háskólagráðu en
Háskóli Íslans var stofnaður
17 árum fyrr.
12.11. | Ólafur Arngrímsson
Að taka stöðu með börnum
menntastefna til ársins 2030
Er eðlilegt að það ráðist
meira af þörfum foreldra
fyrir að taka þátt í atvinnu-
lífinu en þörfum barnsins
sjálfs fyrir nærveru og
umönnun foreldra sinna?
13.11. | Garðar G. Gíslason
Misfarið með opinbert vald
Lögum samkvæmt er mikið
vald falið seðlabankastjóra.
Það vald misfór Már Guð-
mundsson svo sannarlega
með við meðferð fyrrgreinds
máls. Sá sem misfer svo með opinbert
vald á ekki að fá að halda því.
14.11. | Guðmundur Ingi Þóroddsson
Hverjum hentar að fegra
ástandið?
Þar með stöndum við sem
samfélag frammi fyrir þeirri
staðreynd að tæplega
helmingur þeirra sem fara í
fangelsi á Íslandi snýr
þangað aftur, því miður!
15.11. | Sigurður Páll Jónsson
Skilgreining auðlinda
Það er löngu orðið tímabært
að við sem þjóð skilgreinum
auðlindir okkar með því að
setja um þær lagaramma
sem lengi hefur verið beðið
eftir.
16.11. | Smári Sigurðsson
Að breyta viðhorfi
eða menningu
Hraðinn er einn þáttur af
mörgum sem orsakavaldur
slysa, sýnileg löggæsla er
einn þáttur af mörgum til að
minnka hraðann eða fækka
ölvunar- og fíkniefnaakstri.
17.11. | Karl G. Kristinsson
Að fórna meiri hagsmunum
fyrir minni
Ef Alþingi breytir íslenskri
reglugerð til samræmis við
þessa dóma án frekari tak-
markana mun það leiða af
sér hraðari útbreiðslu fjöl-
ónæmra baktería í landinu.
19.11. | Þorsteinn Sæmundsson
Nokkur orð um varnarmál
Dettur nokkrum manni í hug
að nágrannaþjóðir okkar
haldi úti fjölmennum herjum
og eyði óheyrilegum fjár-
munum til þess eins að
stunda tindátaleik?
20.11. | Salvör Nordal
Lýðræðisleg þátttaka barna
og barnaþing
Mikilvægt er að skólar landsins og sveit-
arfélög taki höndum saman um að halda
lýðræðisþing í tilefni af
þrjátíu ára afmæli Barna-
sáttmálans og geri það að
reglubundnum viðburði í
kringum alþjóðadag barna í
framtíðinni.
20.11. | Gunnar Davíðsson
Er laxeldi í opnum sjókvíum
bannað í Noregi?
Fiskeldi í Noregi hefur þróast
frá því að vera lítil atvinnu-
grein upp í stóriðnað á um
það bil 40 árum. Fyrstu árin
voru í raun ekki gefin út leyfi
en leyfisveitingar hófust skömmu fyrir
1980.
22.11. | Ólafur Sigurðsson
Öllum er sama
Ég vildi ekki trúa því að
drengurinn gæti ekki átt eðli-
legt líf. Hann virkaði ekki sem
einhverfur. Bara leiður og
dofinn. Rót vandans var að
mínu viti félagsleg vanhæfni. Þar lenti
hann á milli skips og bryggju.
23.11. | Unnur H. Jóhannsdóttir
Ég trúi þessu bara ekki!
Ég er sorgmædd, sár, reið og
ráðvillt. 1.100 milljóna króna
lækkun til öryrkja á fjárlögum
2019. Hvernig getur þetta
staðist?
24.11. | Ingólfur Bender
Trúverðugleikavandi
Seðlabankans
Ef peningastefnan hefði
trausta kjölfestu í trúverðugu
verðbólgumarkmiði þá ætti
verðbólguskot, eins og nú er,
ekki að hafa áhrif á verð-
bólguvæntingar til lengri tíma.
24.11. | Bjarni Jónsson
Ráðherrann og markaðurinn
Alþingismenn verða að horfa
til framtíðar og sívaxandi
valda Orkustofnunar ESB-
ACER, þegar þeir gera upp
afstöðu sína til Þriðja orku-
pakka ESB.
27.11. | Marinó Örn Ólafsson
Valdlausar þjóðir og
Evrópusambandið
Gagnrýni á valdleysi Bret-
lands eftir útgöngu úr
Evrópusambandinu missir
marks ef hana skortir gagn-
rýni á valdleysi Íslands um
sömu mál.
28.11. | Úrsúla Jünemann
Hvers vegna hvalveiðar?
Leyfi ég mér að fullyrða að
vinnan við að kynna land
okkar og náttúru sé margfalt
skemmtilegri og meira upp-
byggjandi en að drepa há-
þróuð dýr og búta þau í sundur.
29.11. | Gísli Páll Pálsson
Styrkleikar í stað veikleika
Njótum þess að eiga sam-
skipti við þá sem eldri eru.
Lærum af þeim og nýtum
okkur styrkleika þeirra og
hættum að einblína á veik-
leika þeirra.
30.11. | Þorgeir Arason
Skólinn og jólin
Leik- og grunnskólar taka
sinn þátt í markaðsjólunum.
Það væri skrýtið ef þeir höfn-
uðu boði kirkjunnar um að
kynna kristið jólahald fyrir
nemendum.
1.12. | Einar Þór Jónsson
Afglæpavæðum HIV
á 30 ára afmæli
samtakanna
Á 30 ára afmæli HIV Ísland
horfum við með bjartsýnis-
augum fram á veginn, enda
er hér hugað að mannrétt-
indum og lífsskilyrðin með
besta móti.
4.12. | Pétur Blöndal
Er loftslagsvandinn
staðbundinn eða hnattrænn?
Í umræðum um loftslags-
málin vill bregða við að talað
sé um aukna losun á Íslandi
án þess að það sé sett í
hnattrænt samhengi. En þá
er hætta á að jarðsambandið tapist.
5.12. | Þórhallur Guðmundsson
Staðleysur og staðreyndir
um rafbifreiðar
Hér á Íslandi eru rafbifreiðar
allt að fimm sinnum um-
hverfisvænni en sambæri-
legir jarðefnaeldsneytisbílar,
samkvæmt skýrslu frá Orku
náttúrunnar um samantekt á niðurstöðum
vistferilsgreininga fyrir rafbifreiðar
6.12. | Diðrik Örn Gunnarsson
Stafræn verslun
fyrir hátíðarnar
Black Friday og Stafrænn
mánudagur hafa náð nýjum
hæðum í íslensku samfélagi
ef marka má tilboðsæði
kaupmanna þetta árið.
7.12. | Sverrir Ólafsson
Af orkupakka og öðrum pökkum
Orkupakkanum ber að hafna.
Það er þjóð okkar fyrir lang-
beztu og kallar væntanlega
ekki á nein umtalsverð eftir-
mál vegna hins ágæta EES
samnings okkar.
8.12. | Sigrún Anna Gísladóttir
Elskaðu þig eins og þú ert
Ég persónulega vil ekki búa í
samfélagi þar sem ég er ekki
nóg fyrir hina vegna þess að
ég er ekki hin fullkomna
stelpa. Ég vil búa í samfélagi
þar sem allir elska sig eins og þeir eru og
eru sáttir og þurfa ekki að berjast við að
sætta sig við líkamann sinn.
8.12. | Axel Kristjánsson
Klaustursiðferði þingmanna
Sumir þingmenn hafa því
nauðugir leitað í það skjól
sem þögnin veitir þeim en
flestir hafa reynt að afla sér
fylgis með því að tala máli
öfgahópanna gegn eigin betri vitund.
11.12. | Anna Lúðvíksdóttir
Mannréttindayfirlýsing SÞ
fagnar 70 ára afmæli
Íslandsdeild Amnesty Inter-
national hvetur íslensk yfir-
völd til að taka skýra afstöðu
með mannréttindum, undir-
rita og fullgilda alþjóða-
samninga og bókanir.
11.12. | Hrund Þrándardóttir
Mannréttindi eða
forréttindi?
Sálfræðiþjónusta á að vera
raunverulegt val fyrir fólk í
vanda, ekki bara fyrir þá sem
hafa efni á að greiða allt úr
eigin vasa.
12.12. | Ragnheiður Gestsdóttir
Myndmál
Staðalmyndir sem haldið er
að börnum smjúga djúpt inn í
meðvitund þeirra og verða
jafnvel sterkari en upplifun
þeirra af flóknum veru-
leikanum.
13.12. | Þórunn Sveinbjarnardóttir
Háskólafólk ætlar ekki
að sitja eftir
Í komandi kjaraviðræðum
verður ekki hvikað frá kröf-
unni um að fjárfesting fólks í
menntun skili því eðlilegum
og sanngjörnum ávinningi.
14.12. | Ólafur Hannesson
Húrrandi klikkuð umræða
Við skulum ekki gleyma
aðilanum sem með ein-
beittum brotavilja sat í yfir
þrjá klukkutíma að hlusta á
og taka upp einkasamræður
fólks.
15.12. | Una María Óskarsdóttir
Lærum uppeldi sem virkar
Ég tel að umræða um uppeldi
barna og unglinga ætti að
vera meiri því að uppeldis-
hlutverkið er mikilvægasta
hlutverk okkar í lífinu.
15.12. | Jón Torfason
Margir kjósa ekki orð á sig
Þegar grefur einhvers staðar
í manni er besta lækningin
að ýfa upp sárið og hleypa
greftrinum út, getur stund-
um orðið sárt en er nauð-
synlegt.
17.12. | Margrét Sanders og
Andrés Magnússon
Staðreyndavillur Georgs
Bjarnfreðarsonar
Þær sjónvarps-
auglýsingar frá
VR sem birtast
þessa dagana
eru að mati SVÞ
fjarri öllum raunveruleika um það hvernig
vinnuveitendur umgangast starfsfólk sitt.
18.12. | Njáll Trausti Friðbertsson
Uppbygging flugvalla og
aukið öryggi
Á sama tíma og umferð um
Keflavíkurflugvöll hefur
margfaldast hefur uppbygg-
ing á varaflugvöllum í Reykja-
vík, Akureyri og Egilsstöðum
setið á hakanum.
19.12. | Aldís Hafsteinsdóttir
Íbúum fjölgar fyrir austan fjall
Framkvæmdir eru hafnar eða
við það að hefjast við 156
íbúðir í Hveragerði. Búast má
því við verulegri íbúafjölgun á
næstu misserum.
20.12. | Birgir Gunnarsson
Áform um virkjun
í Tungudal í Fljótum
Við eigum að vita betur í dag
en þetta, látum ekki endur-
taka sig þau óafturkræfu
spjöll sem unnin voru í þess-
ari fögru sveit fyrir rúmlega
70 árum. Stöðvum þessi áform strax áður
en lengra er haldið.
22.12. | Ingibjörg Ólöf Isaksen
Sérfræðiþjónusta
lækna á landsbyggðinni
Vil ég nýta tækifærið hér og
hvetja heilbrigðisráðherra til
að flýta vinnu við endur-
skoðun á núverandi fyrir-
komulagi þessa málafloks
og útbúa heildstætt kerfi svo heilbrigðis-
þjónusta verði aðgengileg fólki óháð
búsetu.
27.12. | Hilmar Garðars Þorsteinsson
Hátíð barnanna
Of oft eru hagsmunir barns-
ins látnir víkja fyrir eignar-
réttartilfinningu annars
foreldris eða jafnvel illum
hvötum. Slík sjónarmið bera
vott um skammsýni og óeðlilega for-
ræðishyggju því ekki má líta á barn sem
séreign einhvers sem getur ráðstafað því
að vild.
28.12. | Björn Bjarnason
Fullveldið, stjórnarskráin
og alþjóðasamstarf
Fræðimenn getur greint á um
hvort EES-gerð sé þess eðlis
að hún rúmist innan stjórnar-
skrárinnar. Þeir eru hins veg-
ar allir sammála um að laga
beri stjórnarskrána að alþjóðasamstarfi.
Eftir þeim ráðum fara stjórnmálamenn þó
ekki.
29.12. | Albert Þór Jónsson
Þjóðarsátt á vinnumarkaði
Mikilvægi þess að nálgast
verkefnið með opnum hug
fyrir snjöllum hugmyndum
sem auka verulega líkur á
góðum árangri. Undanfarin
ár hefur ríkissjóður ekki nýtt færi til verð-
mætasköpunar, hagræðingar og aukinnar
framleiðni í rekstri og fjárfestingum.