Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 16
BÆKUR 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018 Hugrekkið ráði för Bjarni Fritzson hefur undanfarinár getið sér gott orð fyrir sjálf-styrkingarnámskeið fyrir stráka sem hann byggir á bók sinni Öflugir strákar. Fyrir þessi jól liggur eftir hann barna- og unglingabókin Orri óstöðvandi sem er skáldverk en með ákveðnu sjálfstyrkingarívafi. Þegar blaðamaður nær tali af Bjarna er hann að búa sig undir að leggja í hann til Akureyrar að lesa upp úr bókinni og fylla á hillur versl- ana. Hann nefnilega lætur sér ekki nægja að skrifa bók og gefa hana út sjálfur heldur dreifir hann henni líka að mestu leyti sjálfur. „Ég vakna bara aðeins fyrr á morgnana, svo er ég rosalega vel gift- ur,“ segir Bjarni glaðlega inntur eftir því hvort hann hafi ekki ansi mikið að gera þessa dagana. „Mér finnst þetta geggjað. Ég hitti starfsfólkið í búðunum og næ að spjalla og fæ þannig miklu betri til- finningu fyrir því hvað er í gangi. Ég hitti líka oft fólk sem er að forvitnast um bókina og get þá talað við það beint. Mér finnst þetta bara svo skemmtilegt að þvælast um og taka þetta alla leið.“ Bókalagerinn er ekki langt undan því hann fær að nota bíl- skúr foreldra sinna til að geyma upp- lagið. Orri óstöðvandi eflir krakka án þess að þau taki eftir Bjarni rekur fyrirtækið Út fyrir kass- ann ásamt Kristínu Tómasdóttur og heldur námskeiðin um sjálfstyrkingu fyrir stráka um land allt, en Kristín hefur haldið sams konar námskeið fyrir stelpur. „Það sem ég er að gera er að kenna strákunum betur á sig og gefa þeim tól og tæki til þess að geta haft jákvæð áhrif á sjálfa sig. Þessi námskeið eru í raun fyrirbyggjandi. Þegar þú ferð að þróa með þér nei- kvæða sjálfsmynd síðar á lífsleiðinni eða missir trúna á sjálfum þér þá hef- urðu eitthvað í höndunum til að tak- ast á við það. Þá veistu að þú getur haft áhrif á sjálfan þig og styrkt þig. Það er svolítið planið með námskeið- unum hjá mér. Strákarnir okkar þurfa að sækja meira fram, öll meðal- töl segja okkur það. Þeir eru ekki að gera eins vel og þeir gætu gert. Við erum með tölur úr háskólum sem sýna að þar eru þeir í minnihluta, ungir karlar glíma frekar við atvinnu- leysi, lesskilningur er minni hjá strákum og fleira. Þess vegna er ég líka að hvetja þá til að dreyma stórt og leggja hart að sér til að sækja drauminn“ Bjarni segir samtal við son sinn hafa kveikt hugmyndina um að skrifa skáldsögu fyrir börn. „Sonur minn var að lesa bókina mína Öflugir strák- ar. Honum gekk ekkert svo vel með hana, en samt er hann mjög duglegur að lesa. Hann sagði mér þá að sér fyndist hún kannski ekki nógu skemmtileg. Þá kom þessi hugmynd að gera skáldsögu með flottum mynd- um og skemmtilegum karakterum en undirtónninn væri sjálfstyrking. Þannig að ég væri að efla þau í leið- inni en þau myndu kannski ekkert endilega taka eftir því meðan þau væru að lesa. Þetta á að vera skemmtileg og fyndin bók sem fjallar um strákinn Orra sem kallar sjálfan sig Orra óstöðvandi þegar hann vant- ar sjálfstraust og hugrekki. Ég fjalla um hluti í bókinni eins og jákvætt sjálfstal, sjálfstraust, stjórn á neikvæðum hugsunum, markmið og fleira án þess að krakkarnir upplifi þetta sem kennslubók. Svo verða les- endur að dæma hvernig til tókst.“ Það er auðheyrt að Bjarna er það mikið hjartans mál að stuðla að sjálf- styrkingu hjá krökkum, efla þau svo þau geti betur tekist á við lífið. „Þessi áhugi minn byrjar út frá námi mínu í sálfræði. Ég fór að stúdera stráka og þeirra líðan og fann út að það hafði ekki verið lögð nægileg áhersla á að efla þá. Ég lærði líka mikið út frá því að vera í atvinnumennsku í hand- bolta þar sem ég rakst á marga veggi og þurfti að treysta á sjálfan mig. Þetta varð síðan að al- gjörri ástríðu hjá mér og ég hef leyft þessu að þróast og starfa nú að stórum hluta við að halda námskeið sem miða að því að styrkja stráka og kenna þeim á sjálfa sig,“ segir Bjarni sem auk þess þjálf- ar meistaraflokk ÍR í handbolta. Hann vinnur mikið heima og segir það dýrmætt að geta verið til staðar þegar börnin koma heim, en hann og eiginkona hans eiga tvo drengi á grunnskólaaldri og stelpu á leikskóla. „Ég er eiginlega alltaf heima þegar strákarnir koma heim úr skólanum. Get alltaf tekið spjall við þá og fylgst með hvernig þeim líður. Heyri alltaf í þeim eftir skóla og get tekið púlsinn á þeim. Mér finnst ég mjög lánsamur að gera það sem ég er að gera og geta stýrt tímanum mínum svona.“ Fór sjálfur út fyrir kassann Bjarni kennir strákum að hafa hug- rekki til að prófa eitthvað sem þeir hafa ekki gert áður, fara út fyrir kass- ann. Hann þurfti sjálfur að leita í þetta hugrekki þegar hann ákvað að skrifa og gefa út skáldsögu, nokkuð sem hann hafði ekki gert áður. „Ég fann það bara strax að mig langaði að prófa þetta. Byrjaði bara að setja upp senur og svo rúllaði þetta áfram. Ég vildi gera eins góða barnabók og ég mögulega gæti. En mig langaði að gera þetta sem mest sjálfur, vildi ekki of mikla ritstýringu. Þeir sem þekkja mig vita að mér finnst gaman að stjórna,“ segir hann og hlær. Hann var þó ófeiminn við að þiggja góð ráð. Þau fékk hann helst hjá Guð- rúnu Láru Pétursdóttur bókmennta- fræðingi og frá Dröfn Vilhjálms- dóttur bókasafnsfræðingi í Seljaskóla. „Ég tók eins mikið úr þeirra viskubrunni og ég gat. Þær gáfu mér báðar marga góða punkta sem ég vann með eftir fyrsta upp- kastið. En ég gerði bókað fullt af mistök- um í þessari bók. Maður verður að hafa hugrekki til að prófa, þora að taka slaginn þrátt fyrir óttann við mistök. Þetta snýst aðallega um að vita að maður gerði sitt allra besta og þá er auðvelt að vera sáttur við út- komuna, svo læri ég bara af mistök- unum og geri betur næst. Ég er alltaf að segja þetta á námskeiðunum og verð að standa við það sjálfur: Gerðu allt sem þú getur og gerðu það eins vel og þú getur,“ segir Bjarni sem einnig naut leiðsagnar sona sinna við skrifin. Í bókinni er fjöldi teikninga eftir Þorvald Sævar Gunnarsson sem gæða persónur bókarinnar, þau Orra óstöðvandi, Möggu Messi og fleiri, lífi. „Hann Doddi er algjör snillingur og á risastóran þátt í velgengni bókar- innar,“ segir Bjarni sem hefur fengið góð við- brögð frá krökkum. „Ég kem í marga flotta skóla og hitti þar fullt af skemmtilegum krökkum. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að hitta krakkana í skólunum og strax komin með hugmyndir frá þeim að því hvernig næsta bók verður.“ Bjarni Fritzson er óstöðvandi í því að kenna börnum að byggja sig upp. Morgunblaðið/Hari Höfundur bókarinnar Orri óstöðvandi, Bjarni Fritzson, vildi gefa út bók sem væri skemmtileg fyrir krakka en myndi í leiðinni kenna þeim leiðir til að efla sjálf sig. Hann heldur vinsæl námskeið fyrir stráka þar sem hann talar meðal annars um hugrekki til að prófa sig áfram í lífinu. Hann segist hafa þurft að grípa í sitt hugrekki til að fara út í það að skrifa skáldsögu fyrir börn. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Orri óstöðvandi er söguhetja sam- nefndrar bókar eftir Bjarna Fritzson. Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. ÍSLENSK NÁTTÚRA Í TVEIMUR TÚPUM Gjöf sem gleður FALLEG GJAFAPAKKNING Handa-og hælabót unnin úr hreinum íslenskum afurðum; minnkaolíu og íslenskum jurtum Minkaolían hefur mjög hátt hlutfall af ómega fitusýrum og smýgur hún afar hratt og vel inn í húðina. Fullkomin næring fyrir þurrar hendur og sprungna hæla.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.