Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 26
Harlem liggur norðarlega á Manhattan,frá norðurenda Central Park og að155. stræti. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan hverfið þótti stórhættulegt en lík-
lega var versta tímabil hverfisins á árunum 1970
til 1989. Fallegu húsin sem byggð voru af ríku
fólki í upphafi tuttugustu aldar voru á þessum
árum í algerri niðurníðslu og íbúar Harlem fá-
tækir svartir Bandaríkjamenn. Rusli var oftar en
ekki hent út um gluggana og náðu oft hrúgurnar
upp á aðra hæð húsa. Rottufaraldur geisaði í
hverfinu og allt flóði í eiturlyfjum. Morð og glæp-
ir voru daglegt brauð, enda hættu sér fáir þang-
að á þessum árum. Harlem þótti samt sem áður
eftirsóttur staður til þess að hlusta á góða tónlist
og djamma og voru þeir ófáir frægir tónlistar-
menn og listamenn sem hættu sér í hverfið til
þess annað hvort að skemmta sér eða að kaupa
eiturlyf.
Kjúklingur á vöfflu
Húsin í Harlem eru ákaflega sjarmerandi, hlaðin
úr brúnum múrsteinum, og setja svip á hverfið.
Þau hafa nú verið gerð upp og göturnar margar
ákaflega fallegar. Kirkjur eru á hverju götuhorni
og hægt er að fara í messu á sunnudögum og
hlýða á gospelkór.
Breiðgatan sem liggur í gegnum hverfið og
skiptir því í austur og vestur ber nafnið Lenox
Avenue en gengur einnig undir nafninu Malcolm
X Boulevard. Á þeirri götu er skemmtilegt að
rölta og ekki vantar veitingastaðina þar! Bæði
má finna þar nýja staði og eins gamla rótgróna
staði sem margir bjóða upp á „soul food“ og
„comfort food“. Þar er maturirnn djúpsteiktur,
vel kryddaður og skammtarnir stórir að Banda-
ríkjasið. Steiktur kjúklingur, jafnvel ofan á
vöfflu, er lostæti. Veitingastaðurinn Sylvia’s hef-
ur steikt kjúklinga ofan í gesti og gangandi í 55
ár, og jafnvel má sjá Bill Clinton bregða þar fyr-
ir, en hann býr víst í nágrenninu. Aðrir vinsælir
staðir eru Red Rooster, sem býður einnig upp á
suðurríkjamat, en með sænsku ívafi, en hinn
heimsþekkti sænski kokkur Marcus Samuelsson
ræður þar ríkjum. Í kjallaranum þar er Ginny’s
Supper Club þar sem tilvalið er að fara í sunnu-
dagsdögurð og hlusta á gospelkór í leiðinni.
Óhætt er að mæla með þessari skemmtun og
maturinn er frábær! Tveir góðir franskir staðir
eru í götunni; Chez Lucienne og Barawine, og
ítalski staðurinn Babbalucci er með bestu píts-
urnar. Á mörgum þessara staða er lifandi tónlist
á kvöldin, oft ljúfur djass eða blús.
Glingur og djass
Á 125. stræti, sem liggur þvert á Lenox, má finna
verslanir ýmiss konar og jafnvel er þar hægt að
kaupa gulltennur, glitrandi föt og hárkollur, en
tískan í Harlem er skrautleg. Þar má líka finna
hið þekkta Apollo-leikhús en margir frægustu
söngvarar Ameríku hafa stigið þar á svið, eins og
Aretha Franklin, James Brown, Michael Jack-
son, Little Richard og Ella Fitzgerald svo ein-
hverjir séu nefndir. Nú er hægt að fara þangað á
miðvikudagskvöldum á Amateur Night, en þar
stíga viðvaningar á svið, öðrum til skemmtunar.
Í hverfinu má finna nokkra góða djassklúbba,
eins og Minton’s Playhouse, Showmans Jazz
club og the Cotton club. Á Minton’s Playhouse er
hægt að njóta kvöldsins yfir góðum kvöldverði
og djassi en dagskráin er þétt þar alla daga.
Hjólreiðar í garðinum
Þegar gengið er niður Lenox frá norðri lendir
maður beint á garðinum stóra, Central Park, en
norðurendinn er ákaflega fallegur með tjörn,
sundlaug og lystigarði. Þar er hægt að rölta um
og sjá skjaldbökur í vatninu, íkorna og þvotta-
birni. Auðvelt er að leigja sér hjól og hjóla hring-
inn í kringum garðinn; það er ótrúlega skemmti-
leg upplifun, bæði fyrir börn og fullorðna. Hjól er
alls staðar að finna á City Bike stöndum, en
nokkrar slíkar stöðvar er að finna á Lenox
Avenue.
Stemmingin í Harlem er engri lík og mjög ólík
því sem hægt er að upplifa í hverfunum niðri í
bæ. Það er ótrúlega auðvelt að skella sér í neðan-
jarðarlest og fara út á á horninu á Lenox og 125.
stræti, skoða sig um í hverfinu, borða góðan mat
og rölta svo niður í garð.
Hið litríka
Harlem
Á árum áður forðuðust ferðamenn Harlem, enda var lítið þar
að sjá nema fátækt, rusl og eiturlyfjaneytendur. Nú er öldin
önnur og Harlem iðar af mannlífi, frábærum veitingastöðum,
verslunum, djass-klúbbum og gospeltónlist.
Ljósmyndir og texti Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Norðurendi Central Park liggur við Harlem og gaman er að leigja sér hjól og hjóla hringinn í
kringum þennan fallega garð. Það er góð skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Í Harlem eru kirkjur á hverju
götuhorni og hægt að fara í
gospelmessu á sunnudögum.
Í Harlem má finna fallegar götur þar sem múrsteinshús standa í röðum.
Á Red Rooster koma margir til að hittast, borða góðan mat og hlusta á lifandi tónlist.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018
FERÐALÖG