Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Side 26
Harlem liggur norðarlega á Manhattan,frá norðurenda Central Park og að155. stræti. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hverfið þótti stórhættulegt en lík- lega var versta tímabil hverfisins á árunum 1970 til 1989. Fallegu húsin sem byggð voru af ríku fólki í upphafi tuttugustu aldar voru á þessum árum í algerri niðurníðslu og íbúar Harlem fá- tækir svartir Bandaríkjamenn. Rusli var oftar en ekki hent út um gluggana og náðu oft hrúgurnar upp á aðra hæð húsa. Rottufaraldur geisaði í hverfinu og allt flóði í eiturlyfjum. Morð og glæp- ir voru daglegt brauð, enda hættu sér fáir þang- að á þessum árum. Harlem þótti samt sem áður eftirsóttur staður til þess að hlusta á góða tónlist og djamma og voru þeir ófáir frægir tónlistar- menn og listamenn sem hættu sér í hverfið til þess annað hvort að skemmta sér eða að kaupa eiturlyf. Kjúklingur á vöfflu Húsin í Harlem eru ákaflega sjarmerandi, hlaðin úr brúnum múrsteinum, og setja svip á hverfið. Þau hafa nú verið gerð upp og göturnar margar ákaflega fallegar. Kirkjur eru á hverju götuhorni og hægt er að fara í messu á sunnudögum og hlýða á gospelkór. Breiðgatan sem liggur í gegnum hverfið og skiptir því í austur og vestur ber nafnið Lenox Avenue en gengur einnig undir nafninu Malcolm X Boulevard. Á þeirri götu er skemmtilegt að rölta og ekki vantar veitingastaðina þar! Bæði má finna þar nýja staði og eins gamla rótgróna staði sem margir bjóða upp á „soul food“ og „comfort food“. Þar er maturirnn djúpsteiktur, vel kryddaður og skammtarnir stórir að Banda- ríkjasið. Steiktur kjúklingur, jafnvel ofan á vöfflu, er lostæti. Veitingastaðurinn Sylvia’s hef- ur steikt kjúklinga ofan í gesti og gangandi í 55 ár, og jafnvel má sjá Bill Clinton bregða þar fyr- ir, en hann býr víst í nágrenninu. Aðrir vinsælir staðir eru Red Rooster, sem býður einnig upp á suðurríkjamat, en með sænsku ívafi, en hinn heimsþekkti sænski kokkur Marcus Samuelsson ræður þar ríkjum. Í kjallaranum þar er Ginny’s Supper Club þar sem tilvalið er að fara í sunnu- dagsdögurð og hlusta á gospelkór í leiðinni. Óhætt er að mæla með þessari skemmtun og maturinn er frábær! Tveir góðir franskir staðir eru í götunni; Chez Lucienne og Barawine, og ítalski staðurinn Babbalucci er með bestu píts- urnar. Á mörgum þessara staða er lifandi tónlist á kvöldin, oft ljúfur djass eða blús. Glingur og djass Á 125. stræti, sem liggur þvert á Lenox, má finna verslanir ýmiss konar og jafnvel er þar hægt að kaupa gulltennur, glitrandi föt og hárkollur, en tískan í Harlem er skrautleg. Þar má líka finna hið þekkta Apollo-leikhús en margir frægustu söngvarar Ameríku hafa stigið þar á svið, eins og Aretha Franklin, James Brown, Michael Jack- son, Little Richard og Ella Fitzgerald svo ein- hverjir séu nefndir. Nú er hægt að fara þangað á miðvikudagskvöldum á Amateur Night, en þar stíga viðvaningar á svið, öðrum til skemmtunar. Í hverfinu má finna nokkra góða djassklúbba, eins og Minton’s Playhouse, Showmans Jazz club og the Cotton club. Á Minton’s Playhouse er hægt að njóta kvöldsins yfir góðum kvöldverði og djassi en dagskráin er þétt þar alla daga. Hjólreiðar í garðinum Þegar gengið er niður Lenox frá norðri lendir maður beint á garðinum stóra, Central Park, en norðurendinn er ákaflega fallegur með tjörn, sundlaug og lystigarði. Þar er hægt að rölta um og sjá skjaldbökur í vatninu, íkorna og þvotta- birni. Auðvelt er að leigja sér hjól og hjóla hring- inn í kringum garðinn; það er ótrúlega skemmti- leg upplifun, bæði fyrir börn og fullorðna. Hjól er alls staðar að finna á City Bike stöndum, en nokkrar slíkar stöðvar er að finna á Lenox Avenue. Stemmingin í Harlem er engri lík og mjög ólík því sem hægt er að upplifa í hverfunum niðri í bæ. Það er ótrúlega auðvelt að skella sér í neðan- jarðarlest og fara út á á horninu á Lenox og 125. stræti, skoða sig um í hverfinu, borða góðan mat og rölta svo niður í garð. Hið litríka Harlem Á árum áður forðuðust ferðamenn Harlem, enda var lítið þar að sjá nema fátækt, rusl og eiturlyfjaneytendur. Nú er öldin önnur og Harlem iðar af mannlífi, frábærum veitingastöðum, verslunum, djass-klúbbum og gospeltónlist. Ljósmyndir og texti Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Norðurendi Central Park liggur við Harlem og gaman er að leigja sér hjól og hjóla hringinn í kringum þennan fallega garð. Það er góð skemmtun fyrir alla aldurshópa. Í Harlem eru kirkjur á hverju götuhorni og hægt að fara í gospelmessu á sunnudögum. Í Harlem má finna fallegar götur þar sem múrsteinshús standa í röðum. Á Red Rooster koma margir til að hittast, borða góðan mat og hlusta á lifandi tónlist. 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018 FERÐALÖG

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.