Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2015, Síða 19
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2015
http://www.ætt.is aett@aett.is19
ónafngreindri konu sinni, sagðri 27 ára, og voru þá
hjá þeim þrír ónafngreindir drengir, 5, 4 og 1 árs, ein
ónafngreind stúlka, 3 ára, og ónafngreind kona, sögð
24 ára. Við húsvitjun í Hofsprestakalli árið 1789 er
hann sagður 60 ára. - Guðmundur var bróðir Bjarna
Þórarinssonar, eins og áður hefur verið getið.
II) Bjarni Þórarinsson, f. nál. 1725, á lífi í
Svínavatnshreppi í Húnavatnssýslu 1762. Bóndi
á Hamri á Bakásum 1749-1751, á Neðstabæ í
Norðurárdal 1752-1754 og jafnvel fyrr og síðar og
á Hamri aftur 1755-1761. Kona hans hét Oddný
Jónsdóttir og áttu þau ekki færri en fjögur börn, en
einnig átti hann eitt barn með Ólöfu Gunnarsdóttur.
Bjarni var bróðir Guðmundar Þórarinssonar, eins og
áður hefur verið getið.
III) Guðbrandur Þórarinsson, f. um 1717,
á lífi á Strjúgsstöðum í Langadal 1762. Búlaus í
Svínavatnshreppi í Húnavatnssýslu 1743-1744.
Bóndi í Sólheimum í Svínavatnshreppi 1744-1745,
á Móbergi í Langadal 1745-1746 og jafnvel síðar, á
Refsstöðum á Laxárdal fremri 1751-1754 og jafn-
vel fyrr og síðar, á Vesturá á Laxárdal fremri 1755-
1758 og jafnvel fyrr og á Strjúgsstöðum 1758-1763
og jafnvel síðar. – Manntalsárið 1762 bjó Guðbrandur
á Strjúgsstöðum, sagður 45 ára, með ónafngreindri
konu sinni, sagðri 44 ára, og voru þá hjá þeim þrír
ónafngreindir drengir, 13, 12 og 1 árs. - Kona hans
hét Guðný Sveinsdóttir og áttu þau ekki færri en
þrjú börn. Óvíst er um ætt Guðbrands, en hægt er að
geta sér þess til að hann kunni að hafa verið bróðir
Guðmundar og Bjarna.
Þrír Þórarnar
Nú er freistandi að velta fyrir sér uppruna þess-
ara Þórarinssona, þó þær bollaleggingar verði víst
lítið annað en helberar getgátur. Tveir menn með
Þórarinsnafni, sem koma fyrir í Manntali á Íslandi
1703, virðast hér helst geta komið til álita.
I) Þórarinn Bjarnason, f. um 1701. Við mann-
talstökuna 1703 var hann hjá föður sínum í Kambakoti
á Skagaströnd. Hann bjó á Keldulandi á Skagaströnd
1734-1746 og jafnvel síðar, en átti heima á Selá á
Skaga manntalsárið 1762. Þórarinn átti barn í lausa-
leik með Sigríði Jónsdóttur í Hofsprestakalli 1725
eða 1726, og var það fyrsta lausaleiksbarneign þeirra
beggja. Það virðist geta sloppið til aldurs vegna að
Þórarinn kunni að hafa verið faðir bræðranna Bjarna
og Guðmundar, en fráleitt Guðbrands.
II) Þórarinn Þórðarson, f. um 1684. Við
manntalstökuna 1703 var hann hjá foreldrum sín-
um í Höfnum á Skaga. Hann bjó á Harastöðum á
Skagaströnd 1708-1709 og jafnvel fyrr og síðar og
í Háagerði á Skagaströnd 1733-1746 og jafnvel fyrr
og síðar. Þórarinn átti barn í hórdómi með Helgu
Jónsdóttur í Spákonufellssókn 1720 eða 1721, og var
það fyrsta hórdómsbarneign þeirra beggja. Aldurs
vegna gæti Þórarinn vel hafa verið faðir bræðranna
Bjarna og Guðmundar, og einnig Guðbrands.
III) En líklegast má þó virðast að faðir áður-
nefndra manna kunni að hafa verið Þórarinn
Guðmundsson bóndi í Saurbær í Vatnsdal 1731-
1732 og jafnvel fyrr og síðar. Hann átti barn í lausa-
leik með Margréti Bjarnadóttur í Grímstungusókn
1717 eða 1718, og var það fyrsta lausaleiksbarneign
þeirra beggja. Mega þau vel hafa gengið að eiga hvort
annað eftir það.
Helstu heimildir: Eylenda II, bls. 137-138; Ættir
Austur-Húnvetninga I, bls. 189 og 401-402 og II, bls.
472; Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 22-24;
Dómab. Hún. 26. okt. 1747 og 8. maí 1762; Hreppsb.
Svínavatnshrepps í Húnavatnssýslu 1735-1777;
Hreppsb. Vindhælishrepps í Húnavatnssýslu 1790-
1830; Manntalsb. Hún.; Skiptab. Hún. 28. ág. 1805
(dánarbú Árna Guðmundssonar á Guðlaugsstöðum);
Sýsluskj. Hún. XV, 5, 27. febr. 1805 (dánarbú Árna
Guðmundssonar á Guðlaugsstöðum); Skjalasafn
Rentukammers Y, 19-28 (legorðsmálaskjöl);
Bændatal á Íslandi 1756-1757 (gjafakorn); Handrit
Magnúsar Björnssonar á Syðra-Hóli að Ættum
Austur-Húnvetninga; Ættatölub. Jóns Espólíns, 4410-
4412, 5462 og 5465; Ættatölub. Ólafs Snóksdalíns,
442; Ættatölub. Steingríms Jónssonar, 6120-6124;
kirkjubækur og manntöl.
Ljósrit af vottorðum presta um legorðssakir í
Húnavatnssýslu reikningsárið 1717-1718. (Skjalasafn
rentukammers Y, 19). Vottorð séra Halls Ólafssonar
í Grímstungu um lausaleiksbarneign Þórarins Guð-
mundssonar og Margrétar Bjarnadóttur, dagsett 26.
apríl 1718.
Smælki
Gunnarshólmi
Fyrir margt löngu fór ritstjórinn á Njáluslóðir
með Jóni Böðvarssyni. Fylgt var vegarspotta að
stóru skilti sem á stóð Gunnarshólmi. Þá sagði
Jón ákveðinni röddu. „Þeir Rangæingar segja að
Gunnarshólmi sé hér“ „En“, sagði Jón um leið og
hann benti öruggur í norðvestur langt út á eyrarn-
ar: „hann er nú þarna“!