Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2015, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2015, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is21 og alkunna er hefur merking orðsins „ágætt,“ tapað gildi með tímanum. Því má alveg segja að þessi dóm- ur prestsins jafnist á við það sem í dag yrði kallað frábært eða framúrskarandi. Mikið orð fór af leikni hans við skriftir og þótti hann hafa fagra rithönd. Árið 1862 réðst Ingunn, systir Þorvalds, þá átján ára að aldri, ráðskona til sýslumannsins, Hermanníusar Johnsen, sem bjó á Velli í Breiðabólstaðarsókn. Það er bærinn, sem Mörður gígja bjó á, sá sem nefndur er í fyrsta orði Njáls sögu. Hermanníus (sem einnig er kallaður Hermann og Johnsson eða Johnson eða Jónsson) var vel liðinn sem yfirvald. Þau Hermanníus og Ingunn gengu í hjónaband þrátt fyrir talsverð- an aldursmun, en hún var honum 18 árum yngri. Hermanníus hafði áður verið barnakennari í Nesi við Seltjörn, málafærslumaður í Reykjavík og var settur bæjarfógeti og landfógeti skamma hríð. Þau hjón eignuðust sex börn. Einn sonur þeirra var Jón Hermannsson, sem varð lögreglustjóri í Reykjavík og síðar tollstjóri. Annar var Halldór Hermannsson, sem var prófessor og bókavörður við Cornell háskóla í Ithaca í New York í Bandaríkjunum. Þriðji sonur þeirra var Oddur Hermannsson, en hann varð skrif- stofustjóri í Stjórnarráði Íslands. Önnur systir Þorvalds var Kristín Halldórsdóttir. Hún giftist Kjartani Ólafssyni, hreppstjóra, skipasmið og bónda í Álfhólahjáleigu og Þúfu í Landeyjum. Yngsta dóttir þeirra var Ástríður Kjartansdóttir Thorarensen, sem giftist Skúla Þorsteinssyni Thorarensen, bónda og oddvita á Móeiðarhvoli. Þau urðu amma og afi Ástríðar Þorsteinsdóttur Thorarensen, sem er eiginkona Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og seðla- bankastjóra. Hér verður saga Þorvaldar ekki rakin en hann réðst ungur sem skrifari hjá mági sýslumanninum á Velli og var þar í nokkur ár. Tuttugu og tveggja ára flytur hann af fastalandinu út til Vestmannaeyja en á þar stuttan stans og er haustið 1869 kominn í landbúnaðarskóla í Danmörku en lýkur ekki námi. Framhaldið af æv- intýralegri sögu Þorvaldar frá Bryggjum má lesa í bókinni Vinur Landeyings. Bókin, sem hét í upphaflegri útgáfu Missing friend, kemur út á íslensku undir nafni sem þýð- andinn valdi henni, Vinur Landeyings. Skálholt og skólasagan Fjölmennur fundur haldinn í Menntaskólanum í Reykjavík Guðlaugur Rúnar Guðmundsson sagnfræðingur hélt í mars erindi um hefðir og siði í Skálholtsskóla og Hólaskóla og flutning þeirra til Reykjavíkur. Fjölmenni var á fundinum og gerður afar góður rómur að erindi Guðlaugs. Þar kom fram að toll- eringar, gangaslagur og Herranótt eiga sér djúpar rætur í skólasögunni í Skálholti og á Hólum og má rekja þessa siði mörg hundruð ár aftur í tím- ann. Ekki spillti heldur að fundurinn var haldinn á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík þar sem sagan svífur yfir vötnunum og kóngaportrett- in raða sér á veggina ásamt stórmennum á borð við Jón Sigurðsson og rektorana í röðum allt frá Sveinbirni Egilssyni. Maígangan var svo farin um hinn sögufræga Skólavörðustíg og Skólavörðuholtið sem einnig skipar stóran sess í skólasögunni. Leiðsögumenn voru Guðlaugur Rúnar Guðmundsson sagnfræð- ingur og Guðfinna Ragnarsdóttir ritstjóri. Skólavarðan, Skólavörðuholtið og Skólavörðu- stígur inn voru þema maígöngunnar. Fjölmennur fyrirlestur um skólasöguna á Sal Mennta skólans í Reykjavík.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.