Mosfellingur - 14.03.2019, Blaðsíða 22
- Mosfellingurinn Anna Björk Eðvarðsdóttir 22
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Anna Björk er stórglæsileg og geisl-andi og nýtur hversdagsleikans hvern einasta dag því hún veit af
eigin reynslu að hann er ekki sjálfsagður
hlutur. Árið 2002 veiktist Anna alvarlega
og um tíma var henni ekki hugað líf. Hún
var tvö ár að koma sér á fætur aftur og var
heppin að skaðast ekki varanlega.
Í dag sinnir hún formannsstarfi hjá
Hringnum. Hún segir að starf sitt þar sé
hennar leið til að láta allt það góða sem
hún naut í átt að betri heilsu ganga áfram
til þeirra sem eiga um sárt að binda.
Anna Björk er fædd í rúmi afa síns á
Eiríksgötunni í Reykjavík 29. júlí 1958. For-
eldrar hennar eru Ingibjörg Jóhannesdóttir
ritari og bankastarfsmaður og Cyril Edward
Walter Hoblyn bankastarfsmaður.
Drullumölluðum á gangstéttunum
„Ég ólst upp fyrstu árin mín á Eiríks-
götu en þar bjó hluti fjölskyldu minnar.
Ég og vinkonur mínar, Ingibjörg og Maja,
lékum okkur mikið saman á túninu við
Landspítalann, þar drullumölluðum við á
gangstéttunum.
Leið mín lá síðan vestur í bæ á Hjarðar-
hagann þegar ég var sjö ára, þá tók Ægi-
síðan við, grásleppuskúrarnir, fjaran og
stór hópur af krökkum sem léku sér saman
í boltaleikjum. Báðir þessir staðir skilja eftir
sig góðar minningar.“
Þetta voru mínir töfrastaðir
„Stundirnar í Svanahvammi, bústaðnum
hjá afa og ömmu í Grímsnesinu, voru dás-
amlegar. Að leika mér að sprekinu sem afi
hafði sagað í eldavélina hennar ömmu og
lækurinn þar sem gamli mjólkurbrúsinn
var í kælingu, þetta voru mínir töfrastaðir,“
segir Anna og brosir.
„Ég hafði ekki gaman af því að vera í skóla
fyrr en ég fór í öldunginn í Menntaskólan-
um í Hamrahlíð en áður var ég í Austur-
bæjar-, Mela- og Hagaskóla. Enska hefur
alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá
mér en ég er með Shakespeare
blæti.
Eftir útskrift úr gagnfræða-
skóla fór ég að vinna í tísku-
verslun, sinnti fyrirsætustörfum og sýndi á
tískusýningum með Karon-samtökunum.“
Ungfrú Ísland 1977
Árið 1976 var Anna valin fulltrúi ungu
kynslóðarinnar og fór til Tókýó að keppa
fyrir Íslands hönd á Miss Young Inter-
national. Ári seinna var hún valin ungfrú
Ísland og ferðaðist mikið það ár. Árið 1978
fór hún svo til Mexíkó og Acapulco til að
taka þátt í keppninni Miss Universe.
„Þetta var virkilega skemmtilegur tími
og skilur eftir sig margar góðar minningar.
Þegar ég kom heim aftur fór ég að starfa hjá
Húsameistara ríkisins. Ég var í námi með
fullri vinnu og starfaði í bakaríi um helgar,
allt til þess að geta keypt mína fyrstu íbúð.“
Stofnuðu arkitektastofu
Anna Björk kynntist eigin-
manni sínum, Guðjóni Magn-
ússyni arkitekt árið 1984 en
þau kynntust hjá Húsameistara ríkisins
þar sem þau voru bæði við störf. Þau eiga
saman þrjár dætur, Aðalheiði Önnu f. 1989
og tvíburana Ingibjörgu Sigríði og Rut
Margréti fæddar 1992. „Um það leyti sem
við eignuðust tvíburana stofnuðum við
hjónin arkitektastofu sem við höfum rekið
síðan. Ég hef starfað þar ásamt því að sinna
öðrum störfum.
Áður en við fluttum í Mosfellsbæ þá
vorum við komin á fullt í hestamennsku
og búin að kaupa okkur hesthús hér en við
bjuggum áður á Seltjarnarnesi.“
Var ekki hugað líf
Árið 2002 veiktist Anna Björk alvarlega
og þurfti að berjast fyrir lífi sínu. Hún hafði
fengið bráða heilahimnu-
bólgu og punktablæðing-
ar um allan líkamann.
Um tíma var henni ekki
hugað líf og var haldið
sofandi í tíu daga. Þegar
hún vaknaði þá var hún
svo illa farin að hún varð
að læra alla hversdags-
lega hluti upp á nýtt eins
og að sitja upprétt, ganga
og bursta tennurnar.
„Það var full vinna hjá
mér í tvö ár að koma mér
á fætur aftur og ég þurfti
að nota allt mitt hugrekki
og þrek til að gera það því
uppgjöf var ekki í boði. Ég
var mjög heppin að skaðast ekki varanlega
nema að mjög litlu leyti. Eftir veikindin er
ég með aðeins skerta heyrn á öðru eyranu
og svo er ég með viðkvæma liði. En það er
ekkert mál, ég læt ekkert stoppa mig í því
sem mig langar til að gera.“
50 milljónir í ýmis verkefni á síðasta ári
„Árið 2006 gekk ég í kvenfélagið Hringinn
og hef verið starfandi sjálfboðaliði síðan. Á
síðasta ári var ég kosin formaður félagsins
sem var mikill heiður. Starf mitt í Hringn-
um er mín leið til að láta allt það góða sem
ég naut í átt að betri heilsu ganga áfram til
þeirra sem eiga erfitt.
Hringurinn er stærsti stuðningsaðili
Barnaspítala Hringsins, vökudeildarinnar
og Bugl auk ýmissa verkefna á LSH. Félag-
ið var 115 ára í janúar sl. og um 400 konur
eru starfandi í félaginu. Við héldum upp á
afmælið með því að opna veitingastofuna
eftir miklar breytingar. Gáfum Barnaspít-
alanum 30 milljónir í tilefni dagsins en
aðbúnaður barna er alltaf í forgangi.
Á síðasta ári gaf Hringurinn nærri 50
milljónir í ýmis verkefni.“
Fær útrás fyrir sköpun og tjáningu
„Árið 2012 fór ég að blogga um mat á
síðunni minni, annabjork.is. Ég hef mikinn
áhuga á mat og öllu sem viðkemur matar-
gerð. Ég hef líka mikinn áhuga á ljósmynd-
un svo ég er heppin að geta sameinað þetta
tvennt og fá útrás fyrir sköpun og tjáningu.
Við Guðjón erum dugleg að fara í göngu-
ferðir, ég fer með myndavélina og hann
með skissubókina en hann hefur mikinn
áhuga á vatnslitun.“
Ógleymanleg upplifun
„Helsta áhugamál okkar hjóna eru
skútusiglingar, við eigum Júlíu Önnu sem
er 34 feta seglskúta. Við höfum siglt mikið
um Faxaflóann, farið vestur á firði og í eina
skiptið sem við höfum farið á Þjóðhátíð í
Eyjum fórum við siglandi á skútunni. Það
var ógleymanleg upplifun, við féllum alveg
fyrir fólkinu, hvað allir voru hjálplegir og
elskulegir. Stemningin í Eyjum var frábær
og veðrið lék við okkur sem gerði allt svo
yndislegt.“
Forréttindi að sjá fjölskylduna dafna
Við hjónin höfum eytt miklum tíma í
sumarbústað okkar en þar náum við að
slaka vel á. Í vetur byrjuðum við svo að
fara í sjósund, sem er ágæt tenging við
siglingarnar.
Mér var boðið að ganga í Rótarýklúbb-
inn hér í bæ síðasta vor og það var mjög
skemmtilegt að kynnast öllu því góða fólki
sem þar er. Síðast en ekki síst er ég orðin
amma og nýt þess í botn að eiga tvo ömmu-
drengi en þeir heita Andri Hrafnar og Guð-
jón Freyr. Það eru algjör forréttindi að fá að
njóta samvista við þá tvo og sjá fjölskyldu
okkar Guðjóns stækka og dafna.“
Um tíma var mér ekki hugað
líf, mér var haldið sofandi
í tíu daga og þegar ég vaknaði
þá var ég svo illa farin að ég
varð að læra allt upp á nýtt.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Anna Björk Eðvarðsdóttir formaður Hringsins nýtur þess að starfa að líknar- og mannúðarmálum
HIN HLIÐIN
Hvaða litur lýsir þér best? Gulur.
Besta ráð sem þú hefur nýtt þér?
Prófa flest einu sinni og segja „já“ við
nýjum áskorunum og skoða þær með
opnum huga.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Innri eldur og orka.
Hver myndi leika þig í bíómynd?
Katharine Hepburn væri æði, elska hana.
Draumabílinn?
Sá sem gengur og er í lagi.
Hver kom þér síðast á óvart og
hvernig? Endalaus litbrigði lífsins, hvað
það eru mikil forréttindi að fá að eldast.
Uppáhaldsverslun? Matar- og bænda-
markaðir erlendis, þar gleymi ég mér.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur
lent í? Úff, erfitt að velja á milli en eitt
sinn var ég í búð og var að lykta af
body lotion. Ég fattaði ekki að ég hafði
sprautað stórri klessu á nefið á mér og
gekk þannig um alla búðina án þess að
hafa hugmynd um af hverju allir voru
að stara á mig.
Aðbúnaður veikra barna
er alltaf í forgangi
Fjölskyldan í Fellsásnum: Guðjón, Anna Björk, Ingibjörg Sigríður,
Aðalheiður Anna með Andra Hrafnar og Rut Margrét.
ung að árum ungfrú ísland
hjónin á seglskútunni