Mosfellingur - 14.03.2019, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 14.03.2019, Blaðsíða 20
 - Stærsti auglýsinga- og fréttamiðill í Mosfellsbæ20 Einvera er aðferð til að stöðva hegðunarvanda með því að koma barn- inu úr þeim kringumstæðum sem það er í á skjótan og einfaldan hátt. Aðferðin er notuð á börn á aldrinum tveggja til tólf ára. Um leið og barn sýnir óásættanlega hegðun fær það aðvörun þannig að talið er frá einum upp í þrjá. Fyrst er sagt „einn“ um leið og brotið á sér stað, sé brotið ekki þeim mun alvar- legra. Ef barnið lætur sér ekki segjast fer talningin upp í tvo. Dugi það ekki til fer talningin upp í þrjá og samhliða er sagt: „Einvera.“ Barninu er því næst fylgt á fyrir fram ákveðinn stað (þegar barnið er komið í þjálfun getur það farið sjálft) þar sem það bíður í einveru í jafnmargar mín- útur og aldur þess er í árum. Fjögurra ára barn myndi þannig vera í einveru í fjórar mínútur. Fjarri öðru heimilisfólki Sumir agaráðgjafar telja áhrifaríkast að barnið sitji á stól t.d. í herberginu sínu þar sem það situr í einverunni án þess að mega hafa neitt fyrir stafni. Aðrir agaráðgjafar telja nóg að barnið sé í herberginu sínu og því sé frjálst að gera það sem það vill að undanskild- um öllum raftækjum (sjónvarpi, síma, spjaldtölvum o.þ.h.). Agaráðgjafar sem aðhyllast þessa aðferð eru þó sammála um að fjarlægja þurfi barnið þaðan sem hegðunin á sér stað og koma því á stað þar sem það er fjarri öðru heimilisfólki. Þess vegna er það kallað einvera því að barnið á að vera eitt. Tíminn öllum ljós Mikilvægt er að tíminn sem barnið er í einveru sé öllum ljós. Gott er að hafa sjónrænar klukkur (niður- teljara) eða svokallaða tímavaka hjá barninu svo það sjái hvað tímanum líður. Tímavakar fást t.d. í skólatengdum verslunum. Einnig er hægt að birta sjónræn- ar klukkur á tölvuskjá eða spjaldtölvu, en munið að barnið á ekki að leika sér í tölvunni. Leitarorðið „timeti- mer online“ kemur þér á sporið. Barnið fylgist þannig sjálft með tímanum og kemur fram þegar klukkan sýnir að einverunni sé lokið. Allir komast í kælingu Kosturinn við einveru er að allir aðilar komast strax úr kringumstæðunum og í kælingu. Það er nefnilega þannig að við, hinir fullorðnu, þurfum stundum sjálfir stund til að ná áttum. Með því að barnið fari strax í einveru fer hinn fullorðni ekki að skamma barnið og æsa jafnvel sjálfan sig upp. Þegar einverunni er lokið hefur barnið tekið út sína refsingu og engin orð þarf að hafa meira um það. Sé rétt að málum staðið veit barnið hvers vegna það var sett í einveru. Barnið kemur því úr ein- verunni búið að taka út sína refsingu og þarf ekki að kvíða eftirmálum. Þegar um mjög ung börn er að ræða (tveggja til fjögurra ára) er samt skynsamlegt að útskýra fyrir barninu með einni til tveimur setningum hvers vegna það fór í einveru. Gott er að spyrja barnið hvort það viti af hverju það fór í einveru til að tryggja að skilningurinn sé til staðar. Stöðva óásættanlega hegðun Einveru er hægt að nota þegar stöðva þarf óásættanlega hegðun. Einveru ætti ekki að nota þegar börn neita að gera hluti s.s. að taka upp dótið sitt, sinna heimanámi eða æfingum. Einnig skal varast að nota einveru gagnvart öllu því sem miður fer. Veldu heldur örfá hegðunarbrot (tvö er alveg nóg) til að vinna með í einu, sérstaklega til að byrja með. Sé einvera rétt notuð er hún örugg og árangursrík aðferð við að stöðva óásætt- anlega hegðun barns. Hægt er að finna gagnrýni á þessa aðferð eins og flest allt annað. Ég hef engu að síður engar rannsóknir séð sem sýna fram á að einvera skaði börn tilfinningalega að því gefnu að aðferðin sé rétt notuð. ________________________ Fjalar Freyr Einarsson, aga- og uppeldisráðgjafi www.agastjornun.is Einvera – einföld leið til agastjórnunar UPPELDI Íslensk-Bandaríska umboðsaðili Jeep á Íslandi frumsýndi nýjan Jeep Wrangler laugardaginn 2. mars. Auk þess að skarta nýju útliti jafnt utan sem innan þá var kynnt ný 273 hestafla bensínvél og einnig verður Wrangler inn- an skamms í boði með nýrri 200 hestafla dísilvél. Einnig var kynntur nýr millikassi sem er í boði á þeim bílum sem Ís-Band býður upp á en er ekki að finna í Jeep Wrangler sem fáanlegur er á amerískum eða kanadískum markaði, en það er svo kölluð 4H auto still- ing. Í þeirri stillingu kemur fjórhjóladrifið sjálfkrafa inn þegar þess er þörf og hægt að aka í hálku eða á möl án þess að til þving- unar komi á milli fram- og afturöxuls. Að sögn forvarsmanna Ís-Band fór fjöldi sýningargesta fram úr þeirra björtustu vonum og áætla þeir að á annað þúsund sýningargestir hafi lagt leið sína í Mosfells- bæinn á laugardaginn. Ís-Band sýndi einnig breytta Jeep Grand Cherokee jeppa með 35” og 33” breytingu og RAM 3500 pallbíla með 35”, 37” og 40” breytingu. Fjölmenni á frumsýningu Jeep Wrangler í Þverholti Ís-Band öflugt í innflutningi á bílum • Glæsileg sýning Nýtt útlit og Nýjar vélar fjöldi fólks mætti í sýNiNgarsal ís-baNd Aðalfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ Aðalfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 25. mars 2019 í Þverholti 3 og hefst kl. 20. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt lögum Samfylkingarinnar. 2. Önnur mál. Gestur fundarins og ræðumaður verður Albertína F. Elíasdóttir alþingismaður Samfylkingarinnar. Hún ræðir um stjórnmálaástandið. Félagsmenn fjölmennið! Stjórnin Mosfellsbæ /hoppukastalar • S. 690-0123 Hoppukastalar til leigu Tilvalið fyrir afmæli, ættarmót, götugrill og önnur hátíðarhöld.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.