Mosfellingur - 14.03.2019, Blaðsíða 8
Demantamyndir
Við í handverksstofu félagsstarfsins erum
alltaf að gera eitthvað skemmtilegt og
núna eru það demantamyndir sem eiga
hug okkar. Erum með ýmsar myndir til
sölu á mjög góðu verði. Mjög auðvelt og
skemmtilegt. Endilega komið og kíkið við.
Demantamyndir eru áprentaður strigi
með númerum og virka eiginlega eins og
myndir sem eru málaðar eftir númerum
nema á þessum eru notaðir steinar.
Myndlistasýning
Nú stendur yfir sýning nemanda á
listmálunarnámskeiði í félagsstarfi eldri
borgara í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar
að Lágafelli. Sýningin mun standa út
marsmánuð. Allir hjartanlega velkomnir.
Páskaskreytingar í apríl
Dagana 9.–16. apríl ætlum við að
vera í páskastuði og búa til alls konar
skreytingar til að njóta um páskana.
Brynja skreytingameistari verður með
alls konar sniðugt í pokahorninu, verið
velkomin. Þeir sem hafa áhuga á að vera
með endilega hafið samband við okkur
áður í félagsstarfið í síma 586-8014 virka
daga kl. 13-16 eða á elvab@mos.is.
Þátttökukostnaður að sjálfsögðu í
lágmarki eins og alltaf.
Kærleikskveðja: Starfsmenn félagsstarfsins.
Páskabingó 15. apríl
Verður haldið mánudaginn 15. apríl kl.
13:30 í borðsal, allir velkomnir! Auðvitað
eru páskaegg í vinning. Spjaldið kostar
400 kr. eða 3 stk á 1.000 kr. Hægt er að
kaupa kaffi og meðlæti í hléi á 500 kr. Til
að tryggja sér sæti er vissara að skrá sig á
blað í handverksstofu eða á
elvab@mos.is.
Gaman saman
Gaman saman er í dag, 14. mars
og svo 28. mars og 11. apríl.
Fimmtudaga kl. 13:30. Allir velkomnir.
PRJÓNAHÓPUR
sem brúar kynslóðabilið
28. mars 16:30
Félagsmiðstöðin Ból, Ungmennahúsið
Mosinn og Félagsstarf aldraðra hafa
ákveðið stofna sameiginlegan prjónahóp
í húsnæði félagsstarfs Mosfellsbæjar
á Hlaðhömrum. Allir eru velkomnir
ungir sem aldnir, hvort sem þú stundar
handavinnu eða ekki. Heitt á könnunni,
við verðum með garn og prjóna til láns.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
ÚTSAUMSMYNDA
SÖLUSÝNING
Sölusýning verður á útsaumsmyndum
eftir Jónu Karlsdóttur í apríl og verður
formleg opnun 10. apríl kl. 13:30.
Sýningin mun standa út aprílmánuð og
eru allir velkomnir að skoða í handverks-
stofu félagsstarfsins Hlaðhömrum 2.
Leikhúsferð
Við í félagsstarfi eldri borgara Mosfellsbæ
ætlum að sameinast í bíla og kíkja á þessa
frábæru sýningu sunnudaginn 24. mars
kl. 17:00. Miðaverð er 2.000 krónur.
Nánari upplýsingar og skráning er á elvab@
mos.is eða í síma 586-8014/698-0090.
Leikritið fjallar um fjórar vinkonur sem
hittast á kaffihúsi 50 árum eftir hernámið
og rifja upp sögur sínar frá þeim árum.
Þær eiga sameiginlegar minningar því
allar hafa þær orðið ástfangnar af
hermönnum sem hér dvöldu á hernáms-
árunum. Sögur sem þær hafa sumar ekki
getað sagt frá fyrr um hvernig líf þeirra
var þá og nú. Ýmsar aðrar persónur koma
einnig við sögu sem settu svip sinn á
borgarbraginn á stríðsárunum, svo sem
hermenn, sjoppueigendur, ástandsnefnd-
armenn, betri borgarar og bílstjórar.
Leikur, dans, söngur og tónlist koma þar
við sögu en einnig fylgja þessum sögum
bæði gleði og sorg.
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá 15–16.
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.is
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Halldór Sigurðsson 1. varamaður
s. 893 2707 dori007@simnet.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 2. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
STJÓRN FAMoS
FéLAG ALDRAðRA
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Innritun í grunnskóla
hafin fyrir 2019-2020
Innritun í grunnskóla Mosfells-
bæjar fyrir skólaárið 2019-2020 er
hafin og fer fram í gegnum Íbúagátt
Mosfellsbæjar. Innritun 6 ára barna
sem hefja grunnskólagöngu haustið
2019 fer fram til 30. mars. Þá skal
innritun skólaskyldra barna og
unglinga sem flytjast til Mosfells-
bæjar vera lokið 1. apríl. Nánari
upplýsingar og aðstoð varðandi
innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar
veita grunnskólarnir. Þeir sem óska
eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna
Íbúagáttarinnar geta snúið sér til
Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
Sumarstörf í boði
fyrir ungmenni
Mosfellsbær auglýsir nú fjölbreytt
sumarstörf til umsóknar fyrir
ungmenni. Störfin eru ætluð ungu
fólki, 17 ára og eldri, með búsetu
í Mosfellsbæ. Laun eru greidd
samkvæmt kjarasamningi LN og
Stamos. Allar nánari upplýsingar
um störf, starfsheiti, starfssvið,
hæfnikröfur, laun og vinnutímabil
er að finna á síðu Mosfellsbæjar
www.mos.is. Umsóknarfrestur um
öll störf er til 23. mars.
Lágafellskirkja er að stofni til elsta hús í
Mosfellsbæ, timburkirkja á steingrunni.
Kirkjan var vígð árið 1889 og eru nú orðin
130 ár síðan.
Miklar endurbætur og viðgerðir hafa
farið fram á kirkjunni í gegnum tíðina, þær
mestu á árunum1955–6, en þeim lauk með
endurvígslu síðara árið. Ljósmyndir af sögu
kirkjunnar má sjá á blaðsíðu 2.
Sunnudaginn 24. febrúar var 130 ára
afmælinu fagnað með guðsþjónustu í kirkj-
unni og kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu.
Frá þessum kristna helgistað var horft
til framtíðar við tilefnið með prédikara
dagsins, dr. Arnfríði Guðmundsdóttur,
prófessor í guðfræði. Diddú söng ásamt
kirkjukórnum og Íris Torfadóttir og Selma
Elísa Ólafsdóttir spiluðu á fiðlu.
Prestar sóknarinnar ásamt djákna þjón-
uðu til altaris og Þórður Sigurðarson organ-
isti stjórnaði söng og lék á orgel.
Lágafellskirkja vígð 24. febrúar 1889 • Íbúar sóknarinnar voru þá 403 á 53 heimilum
130 ára vígsluafmæli fagnað
Að lokinni athöfn í Lágafellskirkju sunnudaginn 24. febrúar. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, Rut G.
Magnúsdóttir djákni, Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur og sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn.
ERU
FYRIR GRUNNSKÓLANEMENDUR OG FORELDRA/FORRÁÐAMENN ÞEIRRA
miðvikudaginn 20. mars kl. 17:00-18:30
Kennarar og nemendur verða á staðnum og hægt verður að fá upplýsingar
um kennsluhætti, skipulag námsins, brautir, skólaandann og fleira.
Brautir sem eru í boði:
• Félags- og hugvísindabraut
• Náttúruvísindabraut
• Opin stúdentsbraut
- Almennt kjörsvið
- Hestakjörsvið
- Íþrótta- og lýðheilsukjörsvið
- Íþróttakjörsvið – Handboltaakademía
- Listakjörsvið
• Framhaldsskólabraut
• Framhaldsskólabrú
• Sérnámsbraut
www.fmos.is