Fréttablaðið - 14.05.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 14.05.2019, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið n Hlynnt/ur 58% n Hvorki né 11% n Andvíg/ur 32% n Hlynnt/ur 44% n Hvorki né 20% n Andvíg/ur 37% ✿ Könnun Fréttablaðsins Hversu hlynnt/ur eða andvíg/ur ert þú því að þungunarrof (fóstureyðing) verði heimilað til loka 22. viku meðgöngu? Konur Karlar Bremsutilboð! Hraðþjónusta! Það er mikilvægt öryggisatriði að hafa bremsurnar á bílnum í lagi. HEKLA leggur sitt af mörkum til að tryggja öryggi ökumanna þegar ekið er inn í sumarið og býður 15% afslátt af bremsuvarahlutum og 10% afslátt af vinnu. Pantaðu tíma á www.hekla.is/timabokanir eða í síma 590 5030. HEKLA býður upp á hraðþjónustu fyrir allar minniháttar viðgerðir og skoðanir. Þú einfaldlega rennir við hjá HEKLU Laugavegi 170-174 og bíður á meðan við athugum málið. 15% afslátturaf bremsuvarahlutumog 10% afsláttur af vinnu! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.hekla.is Engar tímapantanir! 18-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65 ára+ 80% 69% 52% 39% 42% 27% 16% 8% 13% 20% 16% 20% 5% 23% 36% 41% 43% 53% STJÓRNMÁL Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra segir að sáttanefnd vegna eftirmála Guðmundar- og Geirfinnsmála sé enn að störfum og bindur hún vonir við að heildar- samkomulag náist við þá fimm sem voru sýknaðir í Hæstarétti sem og af komendur þeirra. Þetta kom fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Nefndin er undir forystu Krist- rúnar Heimisdóttur og var skipuð af forsætisráðherra í kjölfar sýknu- dóms Hæstaréttar í september í fyrra. Líkt og fram kom í síðustu viku eru aðstandendur Tryggva Rúnars Leifssonar heitins ósáttir við störf nefndarinnar. Erla Bolladóttir, sem fékk ekki endurupptöku á málinu, hefur einnig gagnrýnt seinagang við störf nefndarinnar. Katrín sagði varðandi Erlu að hún hefði að sjálfsögðu viljað að málið gengi miklu hraðar fyrir sig. Ítrek- aði Katrín að hún vonaði að málið væri einstakt og mætti ekki endur- taka sig. Helga Vala segir svör forsætisráð- herra skrítin. „Það virðist sem upp- lifun forsætisráðherra af störfum sáttanefndarinnar sé gjörólík þeirra sem hafa átt í samskiptum við hana,“ segir Helga Vala. Hún segir óhjákvæmilegt að ráðast í rannsókn á málinu. „Við munum leggja aftur fram þingsályktunartillögu um það. Við verðum að hætta að vera með- virk með einstaklingum sem stóðu að þessari rannsókn, þetta snýst ekkert um persónurnar þar, það eru liðin 45 ár og við verðum að klára þetta mál.“ – ab Sáttanefnd vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála enn að störfum Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI LÖGREGLUMÁL Afstaða, félag fanga, hyggst senda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis erindi og óska eftir því að nefndin taki til skoðunar skipun formanns nefndar um eftir- lit með störfum lögreglu. Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráð- herra, skipaði í desember Skúla Þór Gunnsteinsson, formann nefndar- innar. Fréttablaðið greindi frá því í gær að innanríkisráðuneytið sem þá hét hefur ítrekað þurft að biðjast afsökunar á háttsemi Skúla sem var starfsmaður ráðuneytisins. Hann var fluttur til í starfi vegna kvartana og starfar nú í sveitarstjórnaráðu- neytinu. Kvartanir gegn Skúla vörðuðu óviðeigandi athugasemdir og efni tölvupósta úr netfangi hans í ráðuneytinu. Annars vegar um félag fanga og starfsmenn umboðs- manns Alþingis og hins vegar í pósti til Barnaverndarstofu um konu sem var að slíta samvistum við vin hans. Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, var ekki búin að kynna sér málið til hlítar í gær en útilokaði ekki að nefndin tæki málið fyrir. „Nefndin getur tekið öll mál til skoðunar sem varða athafnir framkvæmdarvalds- ins. Hún hefur mjög ríka eftirlits- skyldu,“ segir Helga Vala. – ab Vilja að nefndin skoði skipun Skúla Þórs Kvartanirnar vörðuðu óviðeigandi athugasemdir og efni tölvupósta úr net- fangi Skúla í ráðuneytinu. HEILBRIGÐISMÁL Mikil fagnaðarlæti brutust út á þingpöllum Alþingis í gær þegar ný lög um þungunarrof voru samþykkt með 40 atkvæðum gegn 18. Hafði fjöldi kvenna komið þar saman til að sjá málinu siglt í höfn. Lögin taka gildi 1. septem- ber næstkomandi, þá munu konur hafa fullt ákvörðunarvald um hvort þær ala barn fram að lokum 22. viku meðgöngu. Meirihluti landsmanna styður 22 vikna viðmið á þungunarrofi sam- kvæmt niðurstöðum nýrrar könn- unar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og frettablaðið.is. Alls segjast 50,6 prósent vera hlynnt því að heimila þungunar- rof til loka 22. viku meðgöngu. 34,3 prósent eru andvíg og 15,1 prósent hvorki hlynnt né andvígt. Málið var mjög umdeilt þegar frumvarpið kom til atkvæða- greiðslu á þinginu í gær. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði að um væri að ræða löngu tímabæra breytingu sem snúi að öryggi og frelsi kvenna. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra kaus gegn lögunum, sagði hann að það ætti enn eftir að velta Greinilegur kynslóðamunur á afstöðu til þungunarrofs mörgum steinum. „Mér finnst að við sérhverju álitamáli sem hefur komið upp, sérstaklega varðandi viðmiðunartímann, þá hafi svarið alltaf verið kvenfrelsi. Mér finnst kvenfrelsi skipta gríðarlega miklu máli. En mér finnst kvenfrelsi samt ekki trompa hvert einasta annað álitamál,“ sagði Bjarni. Fleiri Sjálfstæðismenn settu sig upp á móti 22. vikna viðmiðinu þó svo að þeir styddu frumvarpið að öðru leyti. Breytingartillaga Páls Magnússonar um að færa við- miðunartímann frá 22. viku til 20. viku var felld. Átta þingmenn Sjálf- stæðisf lokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, fjórir greiddu atkvæði með, tveir sátu hjá og tveir voru fjarverandi. Þing menn Miðf lok k sins og Flok ks fólksins greiddu ek k i atkvæði með frumvarpinu. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði hættu á að hópar mynduðust til að berjast fyrir breytingum lög- unum. Var hann einn af nokkrum þingmönnum sem sögðu að þörf væri á frekari umræðu um málið þar sem mörg sjónarmið tækjust á um viðkvæmt málefni. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, kannaðist ekki við það. Hún hefði lengi tekið þátt í samfélagsumræðu um sjálfsákvörð- unarrétt kvenna, heimild þeirra til þungunarrofs og mörk lífs og dauða. Greinilegur kynslóðamunur er á afstöðu til málsins. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er yfirgnæfandi meirihluti yngstu aldurshópanna hlynntur því að þungunarrof verði heimilað til loka 22. viku meðgöngu. Dæmið snýst svo við þegar litið er til elsta aldurshópsins. Konur eru hlynntari 22 vikna við- miðinu en karlar. 58 prósent kvenna eru hlynnt, 32 prósent andvíg og ell- efu prósent hvorki né. Meðal karla eru 44 prósent hlynnt, 37 prósent andvíg og 20 prósent hvorki né. Þá eru íbúar höfuðborgarsvæðis- ins hlynntari 22 vikna viðmiðinu en íbúar á landsbyggðinni. 57 pró- sent íbúa á höfuðborgarsvæðinu er hlynnt, 30 prósent andvíg og 13 prósent hvorki né. 38 prósent íbúa á landsbyggðinni eru hlynnt viðmið- inu, 43 prósent andvíg og 19 prósent hvorki né. Könnun Zenter rannsókna var netkönnun framkvæmd 10. – 13. maí síðastliðinn. Alls voru tvö þús- und manns í úrtakinu og var svar- hlutfall 50 prósent. Af þeim sem svöruðu tóku rúmlega 90 prósent afstöðu til spurningarinnar. arib@frettabladid.is sighvatur@frettabladid.is Ný lög um þungunarrof voru samþykkt á Al- þingi í gær. Frá og með september hafa konur fullt ákvörðunarvald um hvort þær ala barn fram að lokum 22. viku meðgöngu. Ný könnun leiðir í ljós að yfirgnæf- andi meirihluti ungs fólks styður þungunar- rof fram að lokum 22. viku. 1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F C -4 8 5 C 2 2 F C -4 7 2 0 2 2 F C -4 5 E 4 2 2 F C -4 4 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.