Fréttablaðið - 14.05.2019, Page 14
Raforkulöggjöf Evrópusam-bandsins hefur verið í stöð-ugri þróun síðustu áratugi og
svonefndur þriðji orkupakki, sem
liggur nú fyrir Alþingi, er þar einn
hlekkurinn. Samfélagsumræða um
þriðja orkupakkann hefur verið
líf leg síðustu vikur og fagnar Sam-
orka því að orkumál veki áhuga,
enda er græna orkan okkar fjöregg
þjóðarinnar.
Forsaga þriðja orkupakkans er sú
að á árinu 2003 tóku ný raforkulög
gildi og aðskilnaður var gerður milli
samkeppnisstarfsemi og sérleyfis-
starfsemi. Með þeim voru innleidd
ákvæði tilskipana Evrópusam-
bandsins í raforkumálum og þá
einkum um að þróa markað með
raforku þannig að samkeppni tryggi
lægsta verð til neytenda. Sömuleiðis
voru strangar reglur settar um sér-
leyfisstarfsemina og verðlagningu á
f lutningi og dreifingu raforku með
hag neytenda í huga. Þriðji orku-
pakkinn er frekari þróun á þessari
löggjöf og felur í sér aukið sjálf-
stæði eftirlitsaðila, frekari kröfur
um aðskilnað milli sérleyfisþátta
og samkeppnisþátta og þar með að
efla raforkumarkaðinn.
Eitt stærsta deilumálið sem snúið
hefur að innleiðingu þriðja orku-
pakkans á við þau lönd sem búa
yfir millilandatengingum. Hafa
áhyggjurnar m.a. snúið að því að
með innleiðingu þriðja orkupakk-
ans sé hægt að skylda Ísland til að
tengjast öðrum löndum með raf-
orkusæstreng. Sem svar við þessum
áhyggjum hefur ríkisstjórnin nú
sem kunnugt er lagt fram frumvarp
um þriðja orkupakkann þar sem
sérstaklega er kveðið á um að ekki
verði ráðist í tengingu raforkukerfis
landsins við raforkukerfi annars
lands í gegnum sæstreng nema að
undangengnu samþykki Alþingis.
Samorka eru samtök orku- og
veitufyrirtækja um allt land. Þau
eru ekki pólitísk samtök og öll
vinna innan þeirra byggist á því að
starfsemi orku- og veitufyrirtækja
blómstri í þágu samfélagsins alls.
Samorka hefur ásamt lögfræðing-
um aðildarfyrirtækjanna vandlega
kynnt sér þriðja orkupakkann út frá
starfsemi orku- og veitufyrirtækja
og út frá hagsmunum viðskiptavina
þeirra. Niðurstaðan er sú að þriðji
orkupakkinn sé framhald af þeirri
löggjöf sem hefur verið í gildi um
nokkurt skeið og hefur reynst vel
og að með innleiðingu þriðja orku-
pakkans séu tekin enn frekari skref
í þá átt því að auka samkeppni og
stuðla að bættum hag neytenda.
Í því ljósi styður Samorka inn-
leiðingu þriðja orkupakkans hér á
landi.
Þriðji orkupakkinn
Baldur
Dýrfjörð
lögfræðingur
Samorku
Skilgreina má þá sem afla sér hús-næðis í eftirfarandi flokka eftir efnahag:
Þá sem ljóslega geta aflað sér hús-
næðis án stuðnings, þá sem þurfa ein-
hvern stuðning við húsnæðisöflun og
þá sem þurfa verulegan stuðning og
falla þar með undir skyldur sveitar-
félaga. Allir sem þurfa einhvern
stuðning ættu að eiga valkost um að
kaupa íbúð.
Af hverju eignaríbúð?
Húsnæðisöryggi er einungis til staðar
í eignaríbúðum, þ.e. að íbúi sem efnir
skyldur sínar geti búið í íbúð sinni svo
lengi sem hann kýs.
Í leiguíbúðum og jafnvel í íbúðum
húsnæðissamvinnufélaga er þetta
húsnæðisöryggi ekki til staðar því
íbúi getur misst húsnæði sitt þótt
hann efni skyldur sínar fullkomlega.
Engu máli skiptir hvort félag er rekið
í hagnaðarskyni eða ekki.
Húsnæðisöryggi í eignaríbúðum
er mikilvægt einstaklingum og fjöl-
skyldum og skuldlausar eða skuld-
litlar eignaríbúðir eru jafnan forsenda
fyrir þolanlegri afkomu lífeyrisþega.
Þá eru íbúðakaup „besta langtíma-
fjárfesting“ almennings en sem kunn-
ugt er greiða leigutakar með tím-
anum fjárfestingu leigusalans ásamt
rekstrarkostnaði án þess að njóta
eignaaukningar hans. Sama á við um
búseta húsnæðissamvinnufélaga.
Allir sem hafa greiðslugetu til að
greiða húsaleigu fyrir viðunandi íbúð
ættu að eiga kost á að kaupa slíka íbúð
í ábyrgðarlánakerfi.
Efnaminni íbúðakaupendur eru
í meiri vanda en ella þegar framboð
nýbygginga er einkum fyrir þá efna-
meiri og að auki þegar samkeppni er
á íbúðamarkaðinum við aðila sem eru
þar á öðrum forsendum, s.s. við fjár-
festa sem veðja á verðhækkanir og
kaupendur ferðamannaíbúða.
Íbúðaskortur leiðir til verðhækk-
ana og hagkvæmni bygginga og lána-
kjara skilar sér ekki til kaupenda á
almennum markaði við þær aðstæð-
ur. Þá er greiðslubyrði íbúðalána í
framtíð óviss hvort sem lán eru verð-
tryggð eða óverðtryggð.
Markaðinn skortir hvata til að
svara þörfum fyrir hefðbundnar fjöl-
skylduíbúðir og raunhæfan stuðning
skortir við þá sem ættu að geta tryggt
sér og sínum húsnæðisöryggi með
íbúðakaupum.
Íbúðakaup með ábyrgðarláni
Útfærsla íbúðakaupa með ábyrgð-
arláni gæti verið eftirfarandi með
hagsmuni kaupenda í fyrirrúmi:
Allir sem hafa greiðslugetu til að
standa undir íbúðalánum en skortir
fé til útborgunar ættu að fá fyrir-
greiðslu til að kaupa sér íbúð á verði
sem greiðslugeta segði til um.
Bankar eða lífeyrissjóðir fjár-
mögnuðu almennt lán sem næmi
75% af kaupverði og einnig viðbótar-
lán eftir aðstæðum allt að 25%. Við-
bótarlán væri með ríkisábyrgð.
Framkvæmd þá þannig:
Kaupandi velur sér íbúð á mark-
aði, nýbyggingu eða eldri íbúð, svo
og lánveitanda.
Ákveðin ívilnun hins opinbera
gæti verið til staðar fyrir seljanda/
húsbyggjanda íbúðar með ábyrgð-
arláni svo og fyrir lánveitanda slíkra
lána. Ívilnanir ásamt ríkisábyrgð og
almennum opinberum stuðningi
stuðluðu að auknu framboði íbúða,
hagstæðari greiðslubyrði og íbúða-
verði. Íbúðalánasjóður gæti miðlað
upplýsingum og séð um að fram-
kvæmd væri í samræmi við reglur.
Greiðslugeta miðaðist við að
greiðslubyrði lána væri innan við
30% af brúttótekjum kaupanda.
Skilyrði að söluíbúðir væru með
ástandsvottorði frá óháðum skoð-
unaraðila og að óheimilt væri að
veðsetja eða gera aðför í íbúð með
ábyrgðarláni nema varðandi íbúða-
lán og íbúðagjöld.
Greiðsluvandi
Verði eigandi íbúðar með ábyrgð-
arláni fyrir tekjuskerðingu af óvið-
ráðanlegum orsökum, svo sem
vegna veikinda eða atvinnumissi,
þá greiðslujafni lánveitandi þannig
að greiðslubyrði íbúðalána rúmað-
ist innan við 30% af brúttótekjum.
Langtímavandi gæti þýtt greiðsluað-
lögun með afskriftum sem ríki/sveit-
arfélag kæmi að. Nauðungarsölur
ættu að vera algjör undantekning.
Húsnæðisöryggi og fjölskylduvernd
væri í fyrirrúmi.
Íbúðakaup með
ábyrgðarláni
Einar
Jónsson
lögfræðingur
Ípistli hér 9. apríl tók Guðmundur Andri Thorsson þá áhættu að nefna snöru í hengds manns
húsi: Icesave-þingmálið, sem hann
sjálfur mælti með, sér til vansa, því
að þar beitti hann sér gegn hag og
rétti þjóðar sinnar og þvert gegn
lögspeki EFTA-réttar-dómaranna
í sýknudómi þeirra 29. jan. 2013.
Guðm. Andri varð að biðja þjóðina
afsökunar í Fréttablaðs-grein sem
þó gekk hálf út á að „skýra“ og afsaka
Icesave-samninga-áróður hans! Það
er mikið að marka svona mann eða
hitt þó heldur!
Nú lætur Guðmundur Andri eins
og það sé hann sem treysti EFTA-
réttinum, sem bjargaði okkur í Ice-
save-málinu, og er að flagga nafni
réttarins, vísandi til þess, að hann
fái aðkomu að orkupakkamálinu,
ef lagalegur ágreiningur kemur upp
um það. Þetta eiga að heita meðmæli
Guðmundar með 3. orkupakkanum.
En hann sér ekki regin-muninn á
aðstæðum frá því sem var í Icesave-
málinu: Þessi þriðji orkupakki,
sem hann er helzt á þeim buxum
að greiða atkvæði sitt, kveður ein-
mitt sérstaklega á um það, að ESA
(Eftirlitsstofnun EFTA) og EFTA-
dómstóllinn skuli fara í hvívetna
eftir fyrirmælum („drögum“) ACER
um orkumálin, þ. á m. hér á landi!
Guðm. Andri vill aðeins fara eftir
EFTA-réttinum af því að nú verður
dómstólnum uppálagt að fara eftir
þriðja orkupakkanum, okkur í óhag,
að vild ESB-stofnunar, ACER!
Það er leitt að sjá flokkspólitískar
aðstæður leika meintar vizkuspírur
þingflokka svo grátt. Það sama gerð-
ist í dæmi Ara Trausta jarðfræðings
á Alþingi 8. apríl, hann var eins og
þeytispjald í því að réttlæta hinn
stórhættulega pakka fyrir íslenzkar
orkulindir og verðlagsmál raforku
fyrir landann. VG kaus réttilega gegn
1. og 2. orkupakkanum á sínum tíma,
sem tvöfaldaði svo rafmagnsverð hér
til húsahitunar, en nú segir Ari hinn
trausti, að ef sömu VG-menn ættu að
kjósa aftur um 1. og 2. orkupakkann,
þá sé allt eins líklegt, að þeir myndu
segja já við honum!
Gamlir vinstri róttæklingar,
komnir í f lokksskjól og undir aga-
vald þingforingja, hringsnúast í
málum og hafa sízt þá vizku sem
hjálpar þessari þjóð.
Vonarsnauð vizka
Íslenskir slökkviliðs- og sjúkra-f lutningamenn þurfa að vinna sex árum lengur en starfsfélagar
þeirra í Noregi og Danmörku. Þessu
vilja þeir fá breytt og óska eftir að
fá fullan lífeyri frá 60 ára aldri.
Núgildandi reglur um lífeyris-
tökualdur slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna eru þær sömu og
almennt gilda í landinu en til að
geta farið á fullan lífeyri þurfa þeir
að starfa til 67 ára aldurs. Reynslan
sýnir að fáir nái þeim áfanga.
Slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
menn eru útsettir fyrir líkamlegum
og andlegum áföllum vegna þeirra
verkefna sem upp geta komið í
störfum þeirra. Störfin eru í eðli
sínu ólík en samt sambærileg að
að nokkru leyti. Þeir einstaklingar
sem vinna þessi störf þurfa að geta
brugðist við neyð allan sólarhring-
inn allt árið og hafa nægan líkam-
legan og andlegan styrk til að geta
mætt þeim.
Undanfarin ár hafa birst erlendar
rannsóknir sem sýna tengsl milli
slökkvistarfs og aukinnar tíðni
ákveðinna krabbameina. Þetta
hefur kallað á breytt verklag hjá
slökkviliðum í landinu. Á vegum
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna (LSS) starf-
ar sérstök krabbameinsnefnd sem
fylgist vel með nýjungum í þessum
efnum og stuðlar að fræðslu til
félagsmanna með það að markmiði
að draga úr þessari hættu.
Erlendar rannsóknir á líðan
þessara stétta hafa sýnt fram á
aukna hættu á áfallastreituröskun.
LSS hefur í samstarfi við Samband
íslenskra sveitarfélaga og Neyðar-
línuna gert samning við sálfræðinga
um sálrænan stuðning. Markmiðið
er að sporna gegn nýgengi áfalla-
streituröskunar og koma í veg fyrir
brotthvarf verðmætra einstaklinga
úr stéttunum.
Miklar líkamlegar kröfur eru
gerðar til slökkviliðsmanna. Þeir
þurfa að uppfylla heilbrigðiskröfur
sem settar eru í reglugerð um reyk-
köfun en þar er enginn munur
gerður á kröfum milli kyns eða
aldurs. Með hækkandi aldri getur
einstaklingum reynst erfiðara að
uppfylla þessar kröfur sem skerðir
starfsöryggi þeirra.
Star f sjúkraf lutningamanna
krefst einnig góðs líkamlegs atgerv-
is. Oft á tíðum þarf að lyfta sjúkl-
ingum úr erfiðum aðstæðum þar
sem ómögulegt getur verið að beita
réttri líkamsstöðu með tilheyrandi
hættu á stoðkerfisáverkum.
Slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
menn eldast eins og annað fólk. Sem
betur fer halda sumir góðri heilsu
og þreki langt fram eftir aldri sem
þakka má m.a. metnaði fyrir því að
viðhalda þreki og styrk með æfing-
um og virkri heilsufarsstefnu sem
kveður meðal annars á um reglu-
legar læknisskoðanir. En þrátt fyrir
þetta er algengt að starfsins vegna
glími einstaklingar við heilsufars-
vandamál sem aukast með aldr-
inum og gera þeim erfiðara fyrir að
uppfylla þær kröfur sem gerðar eru
til þeirra.
Sjaldgæft er að slökkviliðs- eða
sjúkraflutningamenn klári starfs-
ævina í vaktavinnu. Sumir færast til
í starfi innan starfsstöðva ef það er í
boði. Við aðra eru gerðir starfsloka-
samningar. Enn aðrir þurfa að láta
af störfum fyrr af heilsufarslegum
ástæðum þar sem erfitt getur verið
að finna önnur verkefni við hæfi
vegna sérhæfingar sem þessi störf
krefjast.
Lífey r istök ualdu r íslensk ra
slökkviliðsmanna er skv. könnun
European Firefighters Network
hærri en gengur og gerist í Evrópu.
Hér má nefna að í Danmörku og
Noregi er lífeyristökualdur slökkvi-
liðsmanna 60 ár.
Með breytingum á lögum um líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins 2016
var ráðherra falið að skipa starfshóp
um snemmtöku lífeyris fyrir erfið
og hættuleg störf. Nefndin átti
að skila niðurstöðum fyrir árslok
2017. Þessir hópar bíða enn niður-
stöðu þeirrar vinnu. LSS telur afar
mikilvægt að lífeyristökualdur
slökkviliðsmanna verði sá sami og
í nágrannalöndum okkar eða 60
ár og ekki þykir ástæða til að gera
vægari kröfu fyrir sjúkraflutninga-
menn.
Hvernig er að eldast sem slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður?
Jón Valur
Jensson
Magnús Smári
Smárason
formaður LSS
Samfélagsumræða um
þriðja orkupakkann hefur
verið lífleg síðustu vikur
og fagnar Samorka því að
orkumál veki áhuga, enda er
græna orkan okkar fjöregg
þjóðarinnar.
Erlendar rannsóknir á líðan
þessara stétta hafa sýnt
fram á aukna hættu á áfalla
streitu röskun. LSS hefur
í samstarfi við Samband
íslenskra sveitarfélaga og
Neyðarlínuna gert samning
við sálfræðinga um sál
rænan stuðning.
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
C
-5
2
3
C
2
2
F
C
-5
1
0
0
2
2
F
C
-4
F
C
4
2
2
F
C
-4
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K