Fréttablaðið - 14.05.2019, Side 16
Keflavík - Breiðablik 0-3
0-1 Agla María Albertsdóttir (38.), 0-2 Hildur
Antonsdóttir (54.), 0-3 Berglind Björg Þor-
valdsdóttir (72.).
Fylkir - KR 2-1
1-0 Hulda Hrund Arnarsdóttir (16.), 2-0 Ída
Marín Hermannsdóttir (42.) 2-1 Guðmunda
Brynja Óladóttir (78.).
HK/Víkingur - Selfoss 0-1
0-1 Grace Rapp (81.)
Þriðju umferðinni lýkur svo með leik Vals
og Stjörnunnar á Origo-vellinum í kvöld.
Nýjast
Pepsi-deild kvenna
HANDBOLTI Einvígi Hauka og Sel-
foss um Íslandsmeistaratitilinn í
handbolta karla hefst í Schenker-
höllinni að Ásvöllum í kvöld. Þar
mæta Haukar sem ríkjandi deildar-
meistarar og freista þess að bæta
sínum 12. meistaratitli í safnið en
liðið varð síðast meistari árið 2016.
Selfoss er hins vegar að freista þess
að brjóta blað í sögu félagsins með
því að verða Íslandsmeistari í fyrsta
skipti í sögunni.
Selfoss hefur einu sinni komist í
úrslitaeinvígið um Íslandsmeistara-
titilinn en það var árið 1992. Þá laut
liðið í lægra haldi fyrir FH og síðan
þá hefur liðið aldrei barist um þann
stóra aftur. Selfoss náði sínum besta
árangri í sögunni með því að hafna
í öðru sæti deildarkeppninnar
en Haukar og Selfoss urðu jöfn
að stigum með 34 stigum á toppi
deildarinnar en Hafnarfjarðarliðið
varð deildarmeistari þar sem liðið
hafði betur í innbyrðisviðureignum
liðanna í vetur.
Fréttablaðið fékk Óskar Bjarna
Óskarsson, yfirþjálfara Vals og
aðstoðarþjálfara íslenska kvenna-
landsliðsins, til þess að spá í spilin
fyrir komandi viðureign liðanna.
Hann kveðst eiga von á hörkueinvígi
og voni sem almennur handbolta-
áhugamaður að rimman fari alla
leið í oddaleik og úrslitin ráðist þar.
„Ég held að það sé bara gott fyrir
Hauka að liðið spili strax í dag eftir
að hafa leikið fimm erfiða leiki við
Eyjamenn í undanúrslitum. Þeir
halda þannig takti í sínum leik og
þeir sýndu besta varnarleikinn í
oddaleiknum gegn ÍBV á laugar-
dagskvöldið. Þeir þurfa að taka þann
varnarleik með sér inn í seríuna við
Selfoss og ég hef minni áhyggjur af
því að Haukar nái ekki upp sterkri
vörn,“ segir Óskar Bjarni um það
hvernig hann sér einvígið byrja.
„Það sem verður erfiðara fyrir
Hauka er að ná að drilla þann sókn-
arleik sem þeir vilja spila á svona
skömmum tíma. Það er pottþétt
búið að leikgreina Selfoss vel og þeir
vita alveg hvað Selfoss getur boðið
upp á. Selfyssingar geta hins vegar
bæði bryddað upp á 6-0 vörn sem
fer í út 3-3 vörn á köflum. Patrekur
[Jóhannesson] hefur beitt ýmsum
varnaraf brigðum og það er erfitt
að lesa hvað hann gerir í hverjum
leik fyrir sig. Annars snýst þetta að
miklu leyti um það hvort liðið fær
betri markvörslu. Selfoss fékk fína
markvörslu gegn Val í undanúr-
slitaleikjum liðanna og það gerði
gæfumuninn í þeirri viðureign. Sel-
fyssingar geta því gert sér meiri vonir
en þeir gátu gert fyrr í vetur um að
markverðir þeirra hrökkvi í gang,“
segir hann enn fremur um það hvað
muni skilja liðin að í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn.
„Haukar eru hins vegar með bestu
og stabílustu markvörsluna og alla
jafna ættu þeir að fá meiri vörslu
frá markvörðunum sínum. Þetta
snýst að sjálfsögðu einnig um hvort
liðið nær upp betri vörn og þar tel
ég vera jafnt á komið með liðunum.
Svo þurfa bæði lið að fá framlag frá
þeim sem hefja leikina á varamanna-
bekkjunum eða úr óvæntri átt,“ segir
hann jafnframt um lykil atriði þess
að annað hvort liðið fari með sigur
af hólmi.
„Við erum með þekktar stærðir
í þessu einvígi eins og Elvar Örn
Jónsson og Hauk Þrastarson Selfoss-
megin og Adam Hauk Baumruk og
Daníel Þór Ingason Haukamegin. Svo
erum við með reynsluboltana Her-
geir Grímsson og Árna Stein Stein-
þórsson hjá Selfossi og Tjörva Þor-
geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson
hjá Haukum. Það mun svo líka skipta
máli hvernig liðunum tekst að koma
mönnum á borð við Nökkva Dan Ell-
iðason [Selfossi] og Atla Má Báruson
[Haukum] inn í leikinn,“ segir hann
um leikmenn liðanna.
„Ég vona að þetta fari í oddaleik
eins og áður segir og spái því að Sel-
foss fari með sigur af hólmi í Schen-
ker-höllinni á föstudagskvöld. Það
er einhver rómantík að þessir sveita-
piltar vinni fyrsta titilinn í sögunni
áður en þjálfari liðsins og lykilleik-
maður hverfur af braut,“ svarar þessi
reynslumikli þjálfari spurður um
hvernig hann telji að einvígið fari.
hjorvaro@frettabladid.is
Snýst um markvörslu og
hvort liðið fær óvænt framlag
Haukar og Selfoss, sem höfnuðu jöfn að stigum á toppi deildarkeppninnar í vor, mætast í úrslitarimmu
Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Haukar hefja vegferð sína í átt að titli númer 12 en Selfoss dreymir
um að lyfta bikarnum í fyrsta skipti. Hinn reynslumikli Óskar Bjarni Óskarsson rýnir í viðureignina.
Selfoss sækir Hauka heim í fyrsta leik liðanna í úrslitum Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KÖRFUBOLTI Hildur Björg Kjartans-
dóttir, landsliðskona í körfubolta,
sem leikið hefur með spænska
liðinu Celta de Vigo Baloncesto
undanfarin misseri hefur ákveðið
að koma heim og leika með KR.
Samningur Hildar við KR er til
eins árs. Þetta var tilkynnt á blaða-
mannafundi sem haldinn var í
KR-heimilinu síðdegis í gær en þar
sagði Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuboltadeildar KR, að stefnan
væri að gera enn betur næsta vetur
en á nýliðinni leiktíð. KR, sem var
nýliði í Domino's-deildinni á síð-
asta tímabili, hafnaði í fjórða sæti
deildarinnar og féll svo úr leik fyrir
Val í undanúrslitum.
Hildur Björg lék með Snæfelli hér
heima áður en hún fór út í háskóla í
Edinburg í Texas í Bandaríkjunum
sumarið 2014. Áður en hún fór til
Celta lék hún með spænska liðinu
Leganés. Hún hefur því leikið
erlendis í fimm ár. Hildur segir að
tími hafi verið kominn til þess að
koma heim, vera nær fjölskyldunni
og taka þátt í þeirri sterku deild sem
Domino's-deildin er orðin.
„Eftir keppnistímabilið fór hug-
urinn að leita heim og mig langaði
að eiga möguleika á að vera nær
fjölskyldu og vinum eftir að hafa í
töluverðan tíma erlendis. Deildin
er líka orðin mjög sterk og spenn-
andi með tilkomu f leiri sterkra
leikmanna bæði íslenskra og f leiri
góðra evrópskra leikmanna,“ segir
Hildur Björg um vistaskiptin.
„Ég hef fylgst vel með deildinni
á meðan ég var úti og hún verður
sterkari með hverju árinu. KR stóð
sig mjög vel á síðasta tímabili og ég
er mjög spennt að verða hluti af því
ferli að liðið færist skrefi nær því að
berjast um þá titla sem í boði eru.
Hér í Vesturbænum eru margir
góðir leikmenn bæði ungir og efni-
legir og reynslumiklir. Stefnan er
einföld, mig langar að vinna þá
titla sem í boði eru,“ segir hún enn
fremur.
„Ég hef ekki spilað með eða á móti
mörgum leikmönnum í núverandi
liði KR en ég er mjög spennt fyrir því
að kynnast leikmönnum liðsins og
starfinu í Vesturbænum. Þrátt fyrir
að KR hafi verið nýliði í deildinni
síðasta vetur og liðið hafi komið
einhverjum á óvart með góðum
árangri sínum þá er það ekkert nýtt
að KR sé með lið í fremstu röð. Það
er mikil hefð hér og ég finn strax
fyrir þeim metnaði sem ríkir fyrir
framtíðinni. Það var það sem heill-
aði mig og varð til þess að ég valdi
Vesturbæinn umfram önnur tilboð
sem ég fékk,“ segir Hildur. – hó
KR-ingar fengu liðsstyrk sem munar um
Hildur Björg Kjartansdóttir handsalar samning við KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Orri Freyr Gíslason sem
verið hefur fyrirliði karlaliðs Vals í
handbolta undanfarin ár hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna og
er því hættur handknattleiksiðkun.
Þetta kom fram í tilkynningu
sem Valur sendi frá sér í gær. Valur
hafnaði í þriðja sæti deildarkeppn-
innar á leiktíðinni sem er að ljúka,
tapaði fyrir Selfossi í undanúrslit-
um úrslitakeppni deildarinnar og
laut í lægra haldi fyrir FH í úrslitum
bikarkeppninnar.
Orri Freyr sem er Valsari í húð
og hár hefur unnið fjölda titla með
Valsliðinu á sínum ferli. Hann lék
um tíma í dönsku úrvals-
deildinni með Viborg
en hefur leikið allan
sinn feril á Íslandi
með Val.
Þá var Orri Freyr
valinn íþróttamaður
Vals árið 2017 eftir
að hafa orðið
Í s l a n d s - o g
bikarmeistari
með liðinu og
farið alla leið
í undanúrslit
í Challenge
Cup. – hó
Harpixið á
hilluna hjá Orra
FÓTBOLTI Félög innan vébanda
Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ,
greiddu samtals 6.559.013 krónur til
umboðsmanna á tímabilinu 1. apríl
2018 til 31. mars 2019 vegna félaga-
skipta leikmanna. Hæstu greiðsl-
urnar koma frá FH og Val.
Þetta kemur fram í frétt á heima-
síðu KSÍ sem birt var í gær en þar
gaf að líta yfirlit yfir greiðslur til
umboðsmanna vegna félagaskipta
eftir gögnum sem borist hafa til
skrifstofu KSÍ.
Á fyrrgreindu tímabili greiddu
FH-ingar mest til umboðsmanna,
tæpar þrjár milljónir íslenskra
króna. Er það vegna komu Rennico
Clarke, Zeiko Lewis, Brands Olsen,
Jákups Thomsen og Jónatans Inga
Jónssonar til FH.
Valur greiddi hins vegar rúmar
tvær milljónir íslenskra króna. Var
það vegna félagaskipta Emils Lyng,
Gary Martin og Lasse Petry til Vals.
Samkvæmt frétt KSÍ greiddu sjö
íslensk félög þóknanir til umboðs-
manna á því tímabili sem greint
var frá að framan. Fyrir utan FH og
Val voru það Víkingur Ó. 478.328
kr., KR 372.000 kr., ÍA 271.180 kr.,
Grindavík 135.590 kr. og Fram
61.740 kr. – hó
KSÍ birtir yfirlit
yfir greiðslur
Ég vona að þetta
fari í oddaleik og ég
spái því að Selfoss fari með
sigur af hólmi í oddaleikn-
um og tryggi liðinu fyrsta
titilinn í sögu félagsins.
Óskar Bjarni Óskarsson
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
C
-6
5
F
C
2
2
F
C
-6
4
C
0
2
2
F
C
-6
3
8
4
2
2
F
C
-6
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K