Fréttablaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 20
Fæðuóþol stafar yfirleitt af því að líkamann vantar ensím til að melta ákveðin innihaldsefni fæðunnar. Fæðuofnæmi stafar aftur á móti af því að ónæmis­ kerfi líkamans bregst of sterkt við tilteknu pró­ teini í fæðutegundunum. Um það bil 10 prósent fullorðinna Bandaríkjamanna þjást af fæðuofnæmi. NORDICPHOTOS/GETTY Sífellt f leiri hafa breytt matar­æði sínu undanfarin ár og sleppa algengum ofnæmis­ völdum eins og mjólkurvörum og glúteni. Framboð á glútenfríum vörum hefur aukist og mjólkur­ lausar „mjólkurvörur“ úr höfrum, soja eða kókos til dæmis, fylla hill­ ur matvörubúða í auknum mæli og auðvelda þannig fólki að breyta mataræði sínu. Á veitingastöðum má oft finna merkingar á matseðli sem segja til um hvort maturinn innihaldi algenga ofnæmisvalda, einnig má sjá á mörgum stöðum skilti þar sem gestir eru hvattir til að spyrja starfsfólk um innihalds­ efni matvælanna. En af hverju stafar þessi aukna meðvitund um mataræði? Hefur ofnæmi eða óþol aukist, er orðið auðveldara að greina það eða er þetta bara tískufyrirbrigði? Niðurstöður rannsóknar sem birtust á vef rits bandarísku læknasamtakanna, JAMA Net­ work Open, fyrr á árinu, benda til þess að 10% fullorðinna Banda­ ríkjamanna þjáist af fæðuofnæmi. Aftur á móti voru um helmingi f leiri, eða um 19%, sem töldu sig hafa ofnæmi, samkvæmt rann­ sókninni sem náði til rúmlega 40.000 manns. Stjórnandi rannsóknarinnar dr. Ruchi Gupta, barnalæknir og pró­ fessor við Northwestern­háskól­ ann, telur að ástæða þessa munar sé að hinn helmingurinn hafi einkenni sem benda til fæðuóþols eða viðkvæmni fyrir ákveðnum mat. Þetta geta verið einkenni eins og niðurgangur, magaverkir og uppþemba. Fæðuóþol stafar yfirleitt af því að líkamann vantar ensím til að melta ákveðin innihaldsefni fæðunnar. Fæðuofnæmi stafar aftur á móti af því að ónæmiskerfi líkamans bregst of sterkt við til­ teknu próteini í fæðutegundunum. Einkenni fæðuofnæmis eru mis­ munandi eftir einstaklingum. Þau koma oftast fram á húð, í öndunar­ færum eða í meltingarvegi. Einkenni fæðuofnæmis eru misalvarleg og það er misjafnt hversu fljótt þau koma fram. Einnig er misjafnt hversu mikið af ofnæmisvaldandi fæðu þarf að innbyrða til að framkalla einkenn­ in. Alvarleg einkenni eru til dæmis bjúgmyndun, öndunarerfiðleikar og blóðþrýstingsfall. Rannsókn dr. Gupta leiddi í ljós að þær fæðutegundir sem valda oftast ofnæmi hjá fullorðnum Bandaríkjamönnum eru skelfisk­ ur, mjólk, jarðhnetur, fiskur, egg, hveiti, soja og sesamfræ. Einungis helmingur þátttakenda með ein­ kenni ofnæmis hafði greiningu á því frá lækni og færri en 25% höfðu fengið uppáskrifuð lyf við ofnæminu. Nærri helmingur þeirra þátttakenda sem reyndust hafa fæðuofnæmi þróaði það með sér á fullorðinsárum. Árið 2011 leiddi dr. Gupta rann­ sókn sem náði til rúmlega 40.000 barnafjölskyldna í Bandaríkj­ unum. Sú rannsókn leiddi í ljós að 8% bandarískra barna voru haldin fæðuofnæmi sem er nokkuð lægra hlutfall en í rannsókninni meðal fullorðinna. Dr. Gupta segir það koma á óvart hversu algengt það er að þróa með sér fæðuofnæmi á fullorðinsárum. Hún telur að frek­ ari rannsókna sé þörf á orsökum þess og fyrirbyggjandi aðgerðum. sandragudrun@frettabladid.is Fæðuofnæmi orðið algengara Nýleg bandarísk rannsókn leiddi í ljós að 10 prósent full- orðinna Bandaríkjamanna þjást af fæðuofnæmi. Um helmingi fleiri, eða um 19 prósent, töldu sig hafa ofnæmi. Algengir ofnæmisvaldar. Original Formula styður við og styrkir • eðlilega starfsemi hjarta- og æðakerfisins • ónæmiskerfið 100% lífrænn, lyktarlaus og fer vel í maga fylgdu hjartanu SJÁVARBARINN FAGNAR 12 ÁRA AFMÆLI Í tilefni afmælisins er nú tilboð á hádegishlaðborðinu og býðst það á sama verði og við opnunina fyrir tólf árum. Innifalið er: Sjávarréttasúpa dagsins, heitir og kaldir fiskréttir, kjötréttur, salat- bar, smáréttir, kaffi og kökur. Sjávarbarinn | Grandagarði 9 | sjavarbarinn.is AÐEIN S 1690 .- 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F C -4 D 4 C 2 2 F C -4 C 1 0 2 2 F C -4 A D 4 2 2 F C -4 9 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.