Fréttablaðið - 14.05.2019, Side 30
ÖLL HÖFUM VIÐ,
HVERT Á SINN HÁTT,
VERIÐ AÐ NOTA ÞÖGNINA OG Á
ÞESSARI SÝNINGU ERUM VIÐ AÐ
VINNA MEÐ HANA.
Sý ningin Louder Than B omb s ( Hvel l a r i en sprengjur) stendur nú yfir í BERG Contemporary. Þar sýna verk sín Birgir Snæbjörn Birgisson og hjónin
Heidi Lampenius og Miikka Vaskola
en sýningarstjóri er Mika Hannula.
Þögnin er viðfangsefni listamann
anna.
Listamennirnir þekkjast vel. „Við
höfum verið að sýna hjá sama gall
eríinu, Helsinki Contemporary, og
ég hef áður sýnt með Heidi þar. Árið
2018 byrjuðum við að kasta á milli
okkar hugmyndum að sameigin
legu verkefni og í upphafi var vinnu
titillinn Minningar varðveittar í
þögn. Síðastliðið sumar fór ég svo
til Finnlands þar sem við unnum
saman í tvo mánuði,“ segir Birgir.
„Við erum ekki að vinna ofan í verk
hvert annars heldur höldum okkar
sjálfstæði. Ástæðan fyrir því að við
ákváðum að para okkur saman er
ekki bara aðdáun á verkunum held
ur líka sameiginlegur þráður. Þema
sýningarinnar er þögn. Öll höfum
við, hvert á sinn hátt, verið að nota
þögnina og á þessari sýningu erum
við að vinna með hana.
Hvísl fremur en hróp
Birgir hefur verið að vinna mjög ljós
verk og verk hans á sýningunni eru
því sem næst hvít olíumálverk. „Það
má segja að hvíti liturinn sé upphaf
einhvers. Fyrir mér stendur birtan
fyrir þögn. Ég hef lýst vinnu minni
sem hvísli fremur en hrópi, hvíslið
er persónulegra og áhrifameira til
lengri tíma litið.“
Verk hans hafa alla jafna verið
mjög pólitísk. „Við getum sagt að
margt sem ég geri sé miklu póli
tískara en myndirnar á þessari sýn
ingu. Samt myndi ég segja að það
væri sterk samfélagstenging í þema
sýningarinnar vegna þess að við
erum að fjalla um samskipti, upp
lifun og hvernig við eignumst minn
ingar og varðveitum þær. Þetta er
áhugavert vegna þess að við erum
svo mikið hætt að upplifa, við upp
lifum aðallega í gegnum aðra. Við
tökum mynd og sendum hana og
okkar upplifun er að stórum hluta
efni sem við fáum sent frá öðrum.
Á þessari sýningu er ég með
tvær seríur. Önnur er verk sem
unnin eru út frá ljósmyndum í
ljósmynda albúmi sem ég fann á
markaði í Þýskalandi. Ég er búinn
að eiga þetta albúm í nokkur ár, er
orðinn þátttakandi í lífi fólksins
og myndirnar eru orðnar mínar
minningar. Hin myndaröðin er
úr annarri bók sem ég fann í Kali
forníu fyrir margt löngu þar sem
Sameiginlegur þráður listamanna
Birgir Snæbjörn, Heidi Lampenius og Miikka Vaskola sýna í BERG Contemporary.
Þögnin er viðfangsefni þeirra. Listamennirnir sýna saman í Finnlandi á næsta ári.
„Við erum ekki að vinna ofan í verk hvert annars heldur höldum okkar sjálfstæði,” segja Miikka, Heidi og Birgir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Verk eftir Heidi Lampenius en hún sækir innblástur í náttúruna.
ljósmyndarinn Harriet E. Hunting
ton tileinkar bókina börnum sem
hafa aldrei komið að ströndinni, en
gefur þeim upplifunina í gegnum
myndir. Þarna er ég að endurgera
minningar sem eru ekki mínar.“
Gott að eiga í samvinnu
Heidi Lampenius á þrjú verk á sýn
ingunni sem sýna skóg, eldfjall og
blóm. „Ég sæki innblástur í náttúr
una, reyni að fanga tilfinningar og
koma þeim í form. Allt sem við upp
lifum finnst mér vera í bylgjulengd.
Þannig er blómamyndin næstum
eins og röntgenmynd. Hugmyndin
hjá mér er að varpa ljósi á það ósýni
lega,“ segir hún.
Miikka Vaskola vinnur með blek
og sjávarsalt í myndum sínum.
„Þetta eru myndir af himninum.
Hugsunin á bak við myndirnar er
eins og þegar maður horfir á nætur
himininn, það ríkir algjör þögn og
maður sér bylgjur myndast,“ segir
hann.
„Við eigum margt sameiginlegt
hugmyndafræðilega þannig að
þetta er góð samsetning. Verkin
eru ólík en það má samt finna sam
eiginlegan hlekk. Það er einmana
legt að vera listamaður og því er gott
að eiga í samvinnu og geta rætt um
verkin,“ segir Heidi.
Þremenningarnir sýna saman í
Tampere í Finnlandi á næsta ári og
taka þátt í stórri samsýningu í Lista
safninu á Akureyri árið 2021.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
BÆKUR
Fahrenheit 451
Höfundur: Ray Bradbury
Þýðing: Þórdís Bachmann
Útgefandi: Ugla
Blaðsíður: 221
Aðalpersónan í hinni frægu framtíðarskáldsögu Rays Bradbury, Fahreinheit 451,
er slökkviliðsmaðurinn Guy Mon
tag sem hefur það hlutverk ásamt
vinnufélögum sínum að kveikja
elda en ekki slökkva þá. Hann lifir í
samfélagi þar sem bækur eru bann
aðar og ef þær finnast er skylda að
brenna þær. Fahrenheit 451 er ein
mitt það hitastig þegar kviknar í
pappír og hann brennur.
Montag fer að efast um starf sitt
eftir kynni af unglingsstúlkunni
Clarisse sem leyfir sér að hugsa
sjálfstætt í alræðisríki þar sem sú
krafa er gerð til einstaklinga að
þeir séu allir eins og sýni ekki sjálf
stæðistilburði. Clarisse er algjör
andstaða við Millie eiginkonu
Montag sem er háð svefntöflum og
eyðir dögunum í að horfa á inni
haldslausa sjónvarpsþætti af risa
skjáum sem fylla heimili þeirra.
Efasemdir Montag um starf sitt
verða enn sterkari þegar hann
stendur frammi fyrir eldri konu
sem horfir á eftir bókasafni sínu
í eldinn og tekur þá ákvörðun að
brenna með bókum sínum. Í sögu
þar sem frásögnin er afar mynd
ræn þá er það þessi mynd sem er
sterkust, af einstaklingi sem ann
bókum og vill fremur deyja en lifa
án þeirra.
Fahrenheit 451
kom fyrst út árið
1953 á McCarthy
tímanum og var
þ ö r f á m i n n i ng
þá og er það enn.
Bókabrennur hafa
alltaf tíðkast, í
mismiklum mæli,
og á dög u nu m
brenndu pólskir
prestar eintök af
Harry Potter bók
unum. Fahren
heit 451 er óður
til bóka og bók
lesturs og loka
niðurstaðan er
sú að ætíð verði
til fólk sem geti
sogað í sig efni
bók a í veröld
þar sem bækur
er u bannaðar.
Í bókinni er að
f inna alls kyns
h u g l e i ð i n g a r
u m bæk u r og
bóklestur, þar á
meðal er sláandi
kaf li um ritskoð
un sem verður til
veg na hávær r a
kvartana minni
h l u t a h ó p a o g
leiðir að lokum til
þess að bækur eru
taldar óæskilegar:
„Litað fólk er ósátt
v ið Lit la svar t a
Sambó. Brennið
hana … Hvítir menn
eru ósáttir við Kofa
Tómasar frænda.
Brennið hana …“ Varnaðarorð
Bradburys um ritskoðun á bókum,
bönn og brennur á þeim eiga sann
arlega erindi í dag.
Bókin fjallar einnig um áhrif fjöl
miðla og hvernig innihaldslaust
efni getur heltekið fólk og yfir
tekið tilveru þess, Millie, eiginkona
Montag, lifir í gegnum sápuóperur
og það sama gera vinkonur hennar.
Fyrir þeim er sjónvarpið raunveru
leiki og hefur gert þær algjörlega
sinnulausar um umhverfi sitt og
rænt þær allri gagnrýninni hugsun.
Fahrenheit 451 er gríðarlega
kraftmikil, hugmyndarík og spenn
andi saga með brýnt erindi. Það er
fengur að fá hana á íslensku.
Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fahrenheit 451 er
sláandi bók sem á stöðugt erindi.
Mikilvæg varnaðarorð
1 4 . M A Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R22 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
C
-3
9
8
C
2
2
F
C
-3
8
5
0
2
2
F
C
-3
7
1
4
2
2
F
C
-3
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K