Morgunblaðið - 02.01.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.01.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. en tengiltvinnbílar 17%,“ útskýrir María. Seldust 687 rafmagnsbílar ár- ið 2018 en voru 415 árið á undan og samanlagt jókst sala rafmagns- og tengiltvinnbíla um 21% á milli ára. „Ef vöxturinn heldur áfram með sama hraða förum við yfir 1.000 selda rafmagnsbíla á næsta ári en margir framleiðendur hafa verið að kynna til sögunnar rafbíla á aðgengilegu verði og með góða drægni, samhliða því að innviðir eru að batna og hleðslu- stöðvum fjölgar jafnt og þétt.“ Klárast ívilnanirnar? Það hefur liðkað fyrir sölu á um- hverfisvænum bílum að þeir bera engin eða lítil vörugjöld, í samræmi við útblástur. Þá veitti ríkið heimild til að fella niður virðisaukaskatt af rafmagns- og vetnisbifreiðum upp að 1.440 þús., og af tengiltvinnbílum upp að 960 þús. að fullnægðum viss- um skilyrðum. „Stjórnvöld ákváðu á sínum tíma að hvetja til orkuskipta með lækkun gjalda á rafmagns-, ten- giltvinn- og vetnisbíla, með afslátt- um af opinberum gjöldum á 10.000 bíla í hverjum flokki. Er kvótinn vegna tengiltvinnbíla nærri fullnýtt- ur, en sárafáir vetnisbílar verið seld- ir,“ segir María og telur aðkallandi að rýmka eða endurskoða þessar ívilnanir. „Þegar þetta takmark var sett á var erfitt að sjá fyrir hvaða út- færsla umhverfisvænna bíla myndi seljast best og einnig hvaða framboð væri af slíkum bílum en nú sjáum við að mest framboð hefur verið af ten- giltvinnbílum og því mikilvægt að endurskoða kvótann með tilliti til þeirra markmiða sem hann átti að hvetja til. Það mætti t.d. sameina all- an kvótann í einn flokk, sem næði yf- ir alla umhverfisvæna bíla, samtals 30.000 ökutæki.“ Þó að liðið ár hefði mátt vera betra þá var árið það þriðja besta í ís- lenskri bílasölu undanfarin áratug og sölutölurnar svipaðar og 2016. Telur María óhætt að fara inn í nýtt ár með hóflegri bjartsýni. „Markað- urinn er örlítið hvekktur eftir skell- inn sem kom eftir bankahrunið, en staðan er allt önnur í dag en hún var þá og flest heimili betur undirbúin og vel í stakk búin. Á nýju ári hugsa ég að bílamarkaðurinn nái fljótt jafn- vægi á ný og að við verðum ekki lengi að hrista þessa hræðslubylgju af okkur.“ Flotinn þremur árum eldri en í Danmörku Er líka heilmikil innistæða fyrir meiri sölu á bílum enda meðalaldur íslenska flotans mun hærri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. „Meðalaldurinn fór upp í 12 ár árið 2017 og niður í 11,5 ár í lok 2018. Til samanburðar er meðalald- ur bíla í allri Evrópu 10,9 ár en þeirri tölu er ýtt upp af fátækari löndum í Austur-Evrópu. Í Dan- mörku er meðalaldur bíla 8,4 ár; í Bretlandi 8,7 ár; í Þýskalandi 9,1 ár; í Svíþjóð 9,9 ár og í Belgíu er hann ekki nema 7,8 ár.“ María segir margt neikvætt við það að bílarnir á götunum skuli vera svona gamlir. „Bæði eru nýir bílar töluvert öruggari, sparneytnari og menga líka minna. Sást þetta t.d. í nýlegum tölum frá Bretlandi sem sýndu að frá 1990 hafði bílum fjölg- að um 22% en losun gróðurhúsaloft- tegunda minnkað um 3% á sama tíma.“ Hristum af okkur hræðsluna  Þrátt fyrir mikinn samdrátt undanfarna mánuði reiknar María hjá BGS með að sala á nýjum bílum muni fljótlega ná sér aftur á strik  Meðalaldur íslenska flotans er töluvert yfir meðaltali Evrópu Þrátt fyrir að skoðanakannanir bendi til almennrar óánægju með hug- myndina virðast stjórnvöld gera sig líkleg til að hefja gjaldtöku á stofnbrautum til og frá Reykjavík og í jarðgöngum úti á landi. María segir það áhyggjuefni að svo virðist vera sem að veggjöldin eigi að verða viðbót við alla þá háu skatta sem eigendur ökutækja greiða í dag og að ekkert muni lækka á móti. Ekki nóg með það heldur hafi gjald á eldsneyti verið hækkað um áramótin. „Bílgreinasambandið er hlynnt því að skattlagning bíla sé með þeim hætti að í stað þess að skattleggja bílana sjálfa þá verði notkun þeirra skattlögð. Það væri sanngjarnara fyrirkomulag og svipað því sem við sjáum í mörgum löndum í kringum okkur.“ María bendir á að þau gjöld sem lögð eru á ökutæki og eldsneyti í dag séu þannig útfærð sumir þeirra sem slíta vegakerfinu hvað mest sleppi æði vel. „Mikið er um bílaleigubíla í umferðinni og borguð af þeim sömu vörugjöld og af öðrum ökutækjum þó þeim sé ekið nærri fjórfalt lengra en dæmigerðum heimilisbíl á hverju ári. Ekki nóg með það heldur eru bílaleigubílarnir alla jafna lengur á nagladekkjum en aðrir bílar sem eykur enn frekar á slitið á götunum.“ Enn hækkar skattbyrði ökumanna VEGGJÖLD BÆTAST VIÐ EN EKKERT LÆKKAR Á MÓTI Morgunblaðið/Ómar Endurnýjun Meðalaldur íslenskra bíla er enn um 2-3 árum hærri en hjá löndum NV-Evrópu. Yngri floti væri öruggari og sparneytnari. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nokkuð gott ár er að baki í bílasölu á Íslandi, en hefði þó getað verið betra. „Salan gekk mjög vel framan af árinu en í byrjun september tók að hægja verulega á svo að salan síð- ustu mánuði ársins varð um 24-30% minni en á sama tímabili í fyrra og mældist sam- drátturinn í des- ember nærri 46%,“ segir María Jóna Magnús- dóttir fram- kvæmdastjóri Bílgreinasam- bandsins. Samtals seld- ust 17.974 bílar árið 2018 sem er 15,6% samdráttur frá árinu á undan. Rekja má minnkandi sölu til nokk- urra þátta. Nefnir María að óvissa um breytt vörugjöld á bílum vegna nýrra útblástursviðmiða hafi hægt á sölunni, en þeirri óvissu var eytt með lagabreytingu sem Alþingi sam- þykkti seint í nóvember. „Nema hvað þá hafði gengið farið af stað og étið upp jákvæðu áhrifin af laga- breytingunni. Verðbólgan er líka að- eins farin að rísa, titringur vegna kjarasamningsviðræðna og eins og almenningur vilji halda að sér hönd- um á meðan og sjá hvað gerist.“ Segir María að það kunni líka að skýra samdráttinn að margir eru að bíða eftir hentugum rafmagns- og tvinnbílum: „Við sjáum að áhuginn á umhverfisvænum bílum er að aukast hratt og framleiðendur að reyna að anna eftirspurn. Sala rafmagnsbíla jókst um 66% milli ára og mynduðu þeir 4% af heildarsölunni á liðnu ári María Jóna Magnúsdóttir Hlutabréf hækkuðu lítillega á helstu mörkuðum á mánudag vegna jákvæðra frétta af viðskiptadeilum Bandaríkjanna og Kína. Hækkuðu stóru bandarísku hlutabréfavísitöl- urnar þrjár um á bilinu 0,77 til 1,15% á síðasta degi 2018. Árið endaði því á jákvæðum nót- um en heilt á litið hafa undanfarnir tólf mánuðir ekki farið sérlega vel með þá sem fjárfestu í verðbréfum. Síðustu mánuðir ársins hafa reynst bandarískum hlutafélögum sérstaklega erfiðir og m.a. lækkaði S&P 500 vísitalan um 9% í desem- ber. Hefur vísitalan ekki lækkað svona skarplega á einum mánuði síðan í kreppunni miklu en yfir árið lækkaði S&P um 6%. Er svipaða sögu að segja af mörkuðum annars staðar. MSCI al- þjóða-hlutabréfavísitalan lækkaði um 11,1% á síðasta ári, og evrópska Stoxx 600-vísitalan er 13% lægri núna en hún var í byrjun árs 2018 að því er Reuters greinir frá. FTSE 100 veiktist um 13% á árinu, Nikkei-vísitalan um 14% en mest af öllum lækkaði hlutabréfamarkaður- inn í Kína og hafði CSI 300-vísitalan veikst um ríflega 25% við lokun á mánudag. Á nýju ári er þess vænst að fjár- festar fylgist vandlega með vís- bendingum um mögulegar breyt- ingar á stýrivöxtum í Banda- ríkjunum, og að þeir muni vonast eftir farsælli lausn á tollastríði Bandaríkjanna og Kína. Einnig verður forvitnilegt að sjá hvernig bandarísku tæknirisunum Face- book, Alphabet, Apple, Netflix og Amazon mun reiða af á komandi ári en „Faang“-félögin lækkuðu í haust og vetur og óttast markaður- inn að hægt hafi á vexti þessara fé- laga sem áður fóru með himin- skautum. Að sögn FT voru sárafáir eigna- flokkar sem áttu góðu góðu ári að fagna. Reyndust bandarísk og þýsk ríkisskuldabréf fjárfestum vel árið 2018 og hlutabréfaverð heilbrigðis- og innviðafélaga stóðu af sér verstu sviptingar ársins með félög á borð við Merck og Pfizer í fararbroddi. Olíuverð hefur líka þróast í takt við stemninguna á mörkuðum og var í fyrsta sinn síðan 2015 lægra í lok árs en í ársbyrjun. ai@mbl.is Strembið verð- bréfaár að baki  Mikilvægustu hlutabréfavísitölur um allan heim lækkuðu árið 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.