Morgunblaðið - 02.01.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Franska stjórnin „getur gert betur“ í
því að bæta afkomu þjóðarinnar að
því er Emmanuel Macron sagði í ára-
mótaávarpi sem beðið var með eftir-
væntingu vegna uppreisnar svo-
nefndra gulvestunga gegn honum.
Þótt fámenn væru héldu þeir mót-
mælum sínum áfram á torgum úti yfir
áramótin.
„Við getum og verðum að gera bet-
ur,“ sagði Macron í 16 mínútna sjón-
varpsávarpi úr skrifstofu sinni í Ély-
sée-höll. Hvatti hann þó landsmenn
til að horfast í augu við raunveruleik-
ann og taka því að aukin ríkisútgjöld
væru ekki svarið við vandamálum al-
mennings.
Frá miðjum nóvember hafði verið
sótt sérlega hart að stjórn Macrons
og honum þó sjálfum sérstaklega.
Var stjórnin skekin af ofbeldisfullum
aðgerðum en í ræðu sinni freistaði
forsetinn þess að snúa við blaðinu og
höfðaði til bjartsýni. „Ég hef trú á
okkur,“ sagði hann og beindi orðum
sínum til áhorfenda. Fyrir árið 2019
kvaðst hann vona að „sannleikanum,
reisn og von“ yrði gert hærra undir
höfði. „Hættum að niðurníða okkur
sjálf og láta fólk halda að í Frakklandi
fyrirfinnist engin samstaða. Við
búum í einu af stærstu hagkerfum
heims, sumpart við bestu innviði
heims, við þurfum lítið eða ekkert að
borga fyrir skólasókn barna okkar,
og að okkur hlúa afburða læknar sem
við greiðum minna fyrir en annars
staðar í þróuðum ríkjum.“
Macron beindi spjótum að róttæk-
um gulvestingum sem hann sagði
njóta stuðnings bæði vinstri- og
hægri öfgamanna. „Sumir þeirra
þykjast tala í nafni þjóðarinnar en eru
ekkert meira en gjallarhorn haturs-
fulla hópsins. Lögum og reglu lýð-
veldisins verður haldið uppi,“ sagði
forsetinn. Hann hét því sömuleiðis að
halda áfram boðuðum breytingum í
þjóðfélaginu. Meðal forgangsverk-
efna 2019 væri að minnka útbólgna
opinbera þjónustu, breyta kerfi at-
vinnuleysisbóta og eftirlaunakerfinu.
agas@mbl.is
Kveðst „geta gert betur“
Emmanuel Macron sagði aukin ríkisútgjöld leystu ekki allt
AFP
Ávarp Emmanuel Macron flytur
áramótaávarp sitt úr Élysée-höll.
Kim Jong-un var ómyrkur í máli í
garð Bandaríkjanna í áramótaávarpi
sínu vegna refsiaðgerða gagnvart
Norður-Kóreu. Sagði hann stjórnvöld
í Pyongyang eiga engra annarra
kosta völ en grípa til aðgerða féllu
Bandaríkjamenn ekki frá einhliða
kröfum sínum.
Í hálftíma sjónvarpsávarpi sagði
Norður-Kóreuleiðtoginn að Banda-
ríkjamenn skyldu ekki misskilja
þolinmæði þjóðar hans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
fundaði með Kim í Singapúr í júní
síðastliðnum. Þar skuldbatt sá síðar-
nefndi sig til að „vinna að algjörri
upprætingu kjarnavopna á Kóreu-
skaganum“. Hvað það nákvæmlega
þýddi virðast stjórnvöld í Washington
og Pyongyang ekki túlka eins.
Kim sagði að Norður-Kórea myndi
ekki „framleiða, prófa, nota eða fjölga
kjarnorkuvopnum,“ að sögn CNN-
stöðvarinnar. Trump hefur aftur á
móti haldið fast við það að refsiað-
gerðum verði ekki aflétt fyrr en
Norður-Kóreumenn gefi kjarnorku-
vopnin upp á bátinn. Vilja yfirvöld í
Pyongyang að aðgerðunum verði
hætt vegna þeirra ráðstafana sem
þau hafi þegar gert til að uppræta
kjarnorkuáætlun sína. Einnig vill
Kim að stjórn Trumps hætti heræf-
ingum með herjum Suður-Kóreu.
„Nú þegar Norður- og Suður-
Kórea hafa ákveðið að ganga friðar-
og framfarabraut gerum við þá kröfu
að ekki verði lengur efnt til heræfinga
með erlendum herjum og að algjör-
lega verði tekið fyrir að koma upp
stríðstólum utanaðkomandi á svæð-
inu,“ segir Sky News sjónvarpsstöðv-
arinnar Kim hafa sagt í ávarpinu.
Hann sagðist áfram myndu vinna
„að niðurstöðu sem alþjóðasamfélagið
myndi fagna“. Gætu samskipti
Bandaríkjanna og Norður-Kóreu
komist á gott skrið ef Bandaríkja-
menn sýndu vilja til að starfa með
stjórn hans. Þótti hann og ýja að nýj-
um fundi þeirra Trumps. Kim sagði
þó einnig, að hann ætti „engra ann-
arra kosta völ en „verja ríki sitt, sjálf-
stæði þess og megin hagsmuni. Hann
myndi finna nýja leið til að stuðla að
friði á Kóreuskaganum [ef Bandarík-
in] mistúlkuðu þolinmæði þjóðar okk-
ar og héldi áfram einhliða kröfum og
refsiaðgerðum sem eru íþyngjandi
fyrir okkar lýðveldi.“
Duyeon Kim, greinandi hjá stofn-
uninni CNAS, sem fjallar um öryggis-
mál, sagði CNN að nýársboðskapur
Kim Jong-un hefði verið eðlilegur og
sjálfsöruggur en skýr. „Varnaðarorð
hans voru mjög ákveðin svo að við
hótunum lá, standi Bandaríkjamenn
ekki við loforð sín frá Singapúr og
haldi áfram þvingunaraðgerðum. Þá
hyggst hann fara aðrar leiðir. Hann
geislaði af óttaleysi og sagði land sitt
ekki í lausu lofti og geta vel spjarað
sig og dafnað án Bandaríkjanna.“
agas@mbl.is
Kim Jong-un varar Trump við
Kim Jong-un „geislaði af óttaleysi“ í áramótaávarpi sínu Hann sagði land sitt
ekki í lausu lofti og geta vel spjarað sig og dafnað án samstarfs við Bandaríkin
AFP
Áramót Ávarp leiðtoga Norður-
Kóreu var sýnt í Suður-Kóreu.
Um heim allan var gamla árið kvatt og nýju ári
fagnað með tilkomumiklum skoteldasýningum.
Fyrsta stórborgin til að hringja árið 2019 inn og
hleypa flugeldum á loft var Auckland á Nýja-
Sjálandi. Við af henni tók Melbourne í Ástralíu og
síðan tók hver önnur stórborgin í vesturátt við.
Sums staðar fögnuðu menn nýja árinu dúðaðir í
hlý föt vegna lágs hitastigs, til dæmis víðast hvar í
Evrópu. Við Copacabana-ströndina í Rio de Ja-
neiro var því öfugt farið vegna hita. Afar létt
klæddir óðu gestir út í sjó af ströndinni og fylgd-
ust með ljósaganginum. Hvarvetna voru flug-
eldasýningarnar tilkomumiklar og þá sér í lagi í
Bretlandi, en meðfylgjandi mynd var tekin á mið-
nætti á gamlárskvöldi í London. agas@mbl.is
AFP
Gamla árið kvatt og nýju fagnað
Sigling könnunarfarsins New Hori-
zons framhjá smástirninu Ultima
Thule heppnaðist vel og staðfesti far-
ið síðdegis í gær að það væri við
hestaheilsu í 6,4 milljarða kílómetra
fjarlægð frá jörðu.
„Upphringingu“ farsins hálfum
sólarhring eftir að það fór framhjá
Ultima Thule var fagnað mjög í geim-
ferðastofnun Bandaríkjanna (NASA).
Geimfarið var næst stirninu klukk-
an 5:33 að íslenskum tíma í fyrrinótt.
Var það þá í 6,4 milljarða kílómetra
fjarlægð frá jörðu, en ekkert rann-
sóknarfar annað hefur rannsakað
hluti jafn langt úti í himinhvolfinu.
Ultima Thule er um 30 kílómetrar í
þvermál og er smástirnið að mestu
talið vera úr ís. Talið er að það séu
leifar frá bernskudögum sólkerfisins
sem varpað geti ljósi á hvernig plán-
etur mynduðust fyrir um 4,6 millj-
örðum ára.
Búist var við fyrstu gögnum úr
leiðangrinum til jarðar í gær en 20
mánuði mun taka að hlaða þeim öllum
niður. agas@mbl.is
AFP
Siglt New Horizons átti velheppnað
stefnumót við Ultima Thule.
Fengu svar
frá Ultima
Thule
Hnífaárás á Victoria-lestarstöðinni
í Manchester á gamlárskvöld var
liður í hryðjuverkastarfsemi, að
sögn lögreglu borgarinnar.
Þrír menn urðu fyrir hnífs-
stungum, þar á meðal lögreglu-
maður. Særðust öll hættulega en
áverkarnir ógna þó ekki lífi þeirra.
Kona um fimmtugt var stungin í
andlit og kvið og maður á sama
aldri í kviðinn. Loks var þrítugur
lögregluþjónn stunginn í öxl en
hann var útskrifaður af sjúkrahúsi
strax og gert hafði verið að sárum
hans.
Tuttugu og fimm ára karlmaður
var handtekinn vegna árásanna og
er hann grunaður um meint morð-
tilræði. Gerði lögregla upptæka tvo
hnífa á vettvangi. Þá var áhlaup
gert á heimili mannsins í Cheetham
Hill-hverfinu vegna rannsóknar
árásarinnar. agas@mbl.is
HRYÐJUVERK Í MANCHESTER
Stakk þrjá með hnífi