Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þó að íslenskihlutabréfa-markaður-
inn sé veikburða
og gefi minni vís-
bendingu um
undirliggjandi
hagkerfi en æskilegt væri þá
eru slíkir markaðir erlendis
yfirleitt taldir segja mikla
sögu. Íslenski markaðurinn
hreyfðist óverulega á nýliðnu
ári, en hreyfingin var heldur
neikvæð. Erlendis voru helstu
hlutabréfamarkaðir mun meira
afgerandi og neikvæðari. Í
Evrópu lækkuðu hlutabréf um
13% í fyrra og var lækkunin sú
sama á meginlandinu og hand-
an Ermarsundsins, þrátt fyrir
Brexit sem sumir hafa talið að
myndi valda hruni í Bretlandi.
Lækkunin í Japan og Hong
Kong var á svipuðu róli en í Al-
þýðulýðveldinu Kína lækkuðu
hlutabréf um fjórðung á árinu,
sem verður að teljast töluvert
högg.
Trump Bandaríkjaforseti,
sem hefur átt í nokkrum
skylmingum um viðskipti við
Xi vin sinn og aðra valdamenn
í Kína, getur út af fyrir sig ver-
ið sáttur við að markaðir í
Bandaríkjunum þróuðust ekki
með jafn neikvæðum hætti og
þar eystra. Þróunin í Banda-
ríkjunum ætti engu að síður að
vera honum áhyggjuefni því að
hann hefur þakkað sér þegar
hlutabréf hafa hækkað og þá
er hætt við að honum verði síð-
ur þakkað þegar þau lækka.
En lækkunin var sem sagt mun
minni í Bandaríkjunum en víð-
ast, eða um 5%, sem forsetinn
og andstæðingar hans geta
túlkað á ýmsa vegu. Hann get-
ur bent á að þróunin er mun
hagfelldari en annars staðar,
þeir geta bent á að markaðir
hafi lækkað meira á liðnu ári
en í áratug og meira í nýliðn-
um desember en síðan í Krepp-
unni miklu fyrir um níu ára-
tugum.
Þetta getur skipt máli því að
þrátt fyrir að ekki verði kosið
næst um Hvíta húsið fyrr en 3.
nóvember árið 2020 þá er þeg-
ar hafinn undirbúningur að
þeim kosningum. Aðdragandi
slíkra kosninga er óhemjulang-
ur og allar umræður í Banda-
ríkjunum fara smám saman að
snúast um þær, þó að kosn-
ingaþátttakan bendi síður en
svo til að hinn almenni borgari
hafi brennandi áhuga.
Nokkrir hafa verið nefndir
sem líklegir keppinautar
Trumps forseta á næsta ári og
í árslok kom fram keppinautur
hjá demókrötum sem telja má
þokkalegar líkur á að verði of-
aná þar, þó að enn sé langt í
land og margt geti gerst. Þetta
er Elizabeth Warren öldunga-
deildarþingmaður
og þungavigtar-
maður í Demó-
krataflokknum.
Warren, sem líkt
og margir þeir sem
helst hafa verið
nefndir verður komin á átt-
ræðisaldur þegar kosið verður,
sækir að Trump frá vinstri
með afgerandi hætti, þó að hún
sé ekki alveg á sama róli og
Bernie Sanders í öllum málum.
Hún er engu að síður þannig
staðsett pólitískt og á það
mikla möguleika á að komast
alla leið, að The Wall Street
Journal hvetur í leiðara sínum
til þess að almenningur kynni
sér stefnu frambjóðandans,
sem blaðið hefur miklar efa-
semdir um.
Blaðið bendir til að mynda á
að líkt og flestir demókratar
um þessar mundir sé Warren
fylgjandi hækkun skatta, hún
styðji stefnu Sanders í heil-
brigðismálum og vilji umbylta
innflytjenda- og tollastefnunni
fyrir eitthvað annað sem hún
hafi ekki skilgreint nánar.
Í alþjóðaviðskiptum telur
The Wall Street Journal þó að
Warren sé á svipaðri línu og
Trump, en heldur meiri toll-
verndarsinni ef eitthvað er. Þá
taki hún í raun undir með
Trump í því að vilja koma
Bandaríkjunum út úr „enda-
lausum stríðum“ en vilji ganga
lengra með því að lækka út-
gjöld til varnarmála. Þessi út-
gjöld hafi þó lækkað stöðugt á
síðustu áratugum, jafnvel að
teknu tilliti til hækkana
Trumps. Með þeirri stefnu sem
Warren boðar, auk þess rýra
vilja sem ríki Evrópusam-
bandsins hafa sýnt til að halda
uppi eðlilegum varnarviðbún-
aði, er hætt við að undir for-
sæti hennar mundi svigrúm
óæskilegra afla í heiminum
aukast verulega og að vestur-
veldin, undir forystu Banda-
ríkjanna, yrðu jafnvel enn
veikari en þau voru í forsetatíð
Obama.
En það getur margt gerst
næstu tæp tvö árin og Eliza-
beth Warren á eftir að fara í
gegnum þær umræður sem
fylgja langri og strangri kosn-
ingabaráttu. Eitt af því sem án
efa mun þvælast fyrir henni er
býsna óvenjulegt, en það er að
fullyrðingar hennar um að hún
sé komin af frumbyggjum
Norður-Ameríku stóðust ekki
DNA-próf sem hún fór í.
Stjórnmálamenn þola ekki
mörg furðumál af þessu tagi og
gengi Warren gæti því lækkað
hratt líkt og hlutabréfin í
heiminum síðasta árið, sem er
ef til vill ein af ástæðum þess
að Trump forseti hefur fagnað
framboði hennar.
Baráttan um Hvíta
húsið er komin á
dagskrá þó að langt
sé í kosningar}
Hlutabréf, furðumál
og forsetakosningar
S
amkeppnishæfni þjóða mun á næstu
áratugum ráðast af hæfni og færni
fólksins þeirra. Sú hæfni og færni
ræðst ekki síst af gæðum mennta-
kerfa í viðkomandi landi. Kennarar
bera uppi menntakerfin og eru því lykilaðilar í
mótun samfélaga til framtíðar. Alþjóðavæðing
og örar tæknibreytingar gera enn ríkari kröfu
um að stjórnmálin forgangsraði í þágu mennt-
unar.
Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar er afar
skýr í þessum efnum en þar er lögð rík
áhersla á að efla menntun í landinu með hags-
muni þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Fram
kemur að mikilvægt sé að stuðla að viður-
kenningu á störfum kennara, efla faglegt
sjálfstæði þeirra og leggja áherslu á skóla-
þróun á öllum skólastigum. Jafnframt kemur
fram að bregðast þurfi við kennaraskorti með samstarfi
ríkis, sveitar- og stéttarfélaga.
Staðan í dag er sú að við þurfum að stórauka aðsókn í
kennaranám, þar sem háskólarnir ná ekki að brautskrá
nægilega marga kennara til að mæta þörfum fyrir ný-
liðun, sér í lagi á leik- og grunnskólastigi.
Stjórnvöld hafa ásamt lykilfólki í menntamálum unnið
að því að mæta þessari áskorun. Tillögur voru kynntar
ríkisstjórn fyrir jólin og vonir standa til að stjórnvöld
geti kynnt eftirfarandi úrbætur á nýju ári og hrint þeim í
framkvæmd: Í fyrsta lagi að starfsnám á vettvangi, þ.e.
fimmta ár í M.Ed. í leik- og grunnskólafræðum, verði
launað. Í öðru lagi að efla leiðsögn nýliða í
starfi á öllum skólastigum. Í þriðja lagi að
Lánasjóði íslenskra námsmanna verði beitt
til að fjölga kennurum en norsk stjórnvöld
hafa meðal annars farið þessa leið. Í fjórða
lagi að lög um menntun og ráðningu kennara
verði endurskoðuð og að lokum að útskrifuð-
um kennurum með sérhæfingu í starfs-
tengdri leiðsögn verði fjölgað. Allar þessar
tillögur að úrbótum eru mikilvæg skref til að
efla starfsumhverfi kennara á Íslandi. Þetta
er þó einungis upphaf þeirrar vegferðar sem
fram undan er hjá þjóðinni. Afar brýnt er að
það verði þjóðarsátt um starfskjör kennara
og skólastjórnenda. Það er forsenda þess að
Ísland verði með framúrskarandi mennta-
kerfi.
Á þessu rúma ári sem ég hef gegnt emb-
ætti mennta- og menningarmálaráðherra hefur það orð-
ið æ skýrara í mínum huga að ef við sem samfélag ætlum
að vera í fremstu röð er varðar lífsgæði þjóða þurfi ríki
og sveitarfélög að vinna ötullega að því að efla starfsum-
hverfi kennara. Á árinu sem leið sáum við jákvæða þróun
í fjölgun þeirra sem sóttu um í kennaranám sem er
ánægjulegt. Við þurfum hins vegar að gera miklu betur
og ég er sannfærð um að ofangreindar tillögur muni
skila okkur á betri stað. Tökum höndum saman um það
verkefni og mótum framtíðina til hagsbóta fyrir alla.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Störf kennara í öndvegi
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikil tækifæri eru fyrirlítil og meðalstór ís-lensk fyrirtæki til aðkoma sér á framfæri í
Kína um þessar mundir. Eins fylgja
stór tækifæri auknum straumi
ferðamanna frá Kína sem ferðaþjón-
ustuaðilar ættu að nýta sér. Þetta er
mat Teits Jónassonar, stofnanda og
eins eigenda Content People í Dan-
mörku. Fyrirtækið sérhæfir sig í
markaðssetningu á netinu og hefur
að undanförnu einbeitt sér að mark-
aðinum í Kína.
„Það hefur alltaf verið svo erfitt
að komast inn í Kína en netverslun
yfir landamæri er að opnast meira
og meira. Þessi möguleiki gefur
litlum og meðalstórum fyrirtækjum
möguleika að selja vörur í Kína án
þess að vera með aðstöðu þar. Í dag
geturðu verið með lagerinn þinn á
Íslandi og farið inn á Kínamarkað
með lítilli áhættu,“ segir Teitur í
samtali við Morgunblaðið.
Þurfa ný vinnubrögð
En þó Kínamarkaður sé að opn-
ast þýðir það samt ekki að hægt sé
að beita þeim aðferðum sem íslensk
fyrirtæki beita jafnan til að vekja á
sér athygli. Samfélagsmiðlar á borð
við Facebook, Whatsapp, Twitter og
Instagram eru bannaðir þar í landi
og erlendar vefsíður ná litlu flugi
þar. Þess í stað eru kínverskir sam-
félagsmiðlar á borð við WeChat allt-
umlykjandi og allsráðir. Nýlega var
opnað fyrir það að erlend fyrirtæki
geta sett upp opinberar síður innan
WeChat sem hefur breytt miklu, að
mati Teits.
WeChat er stærsti samfélags-
miðillinn í Kína með tæplega 1,1
milljarð notenda á mánuði í lok síð-
asta árs. WeChat hefur verið lýst
sem hinu kínverska Facebook en
Teitur segir nær lagi að líkja
WeChat við svissneskan vasahníf,
miðillinn hafi ótal möguleika. Auk
spjallforrits og símtala geti fólk þar
nálgast fréttir frá vinum sínum, til-
kynningar og efni frá fyrirtækjum
og leitarvél. Þar að auki nýtist
WeChat sem greiðslumiðlun fyrir
flestallt, hvort sem um ræðir hefð-
bundna reikninga, matvöru eða
leigubíla. Nú eða til að panta mat úr
verslunum eða af veitingastöðum.
„Með því að vera sýnilegur á
WeChat þá geturðu náð til við-
skiptavina eða ferðamanna, rétt eins
og þú gerðir á Google fyrir nokkrum
árum. Næsta skref er svo að setja
upp eigin verslun inni í WeChat. Þú
getur gert hvað sem er þarna, það er
allt í sama appinu,“ segir Teitur.
Kröfuharðir ferðamenn
Teitur hefur þegar unnið með
nokkrum íslenskum fyrirtækjum að
því að koma sér á framfæri í austri.
Hann telur að tækifærin séu næg.
„Ísland og Norðurlöndin eru
heit og Ísland sló til dæmis í gegn í
tengslum við HM í fótbolta. Fyrir
vikið er vakning gagnvart íslenskum
vörum og Kínverjar eru mjög
áhugasamir um ekta vörur sem Ís-
lendingar nota sjálfir. Þeir eru til
dæmis áhugasamir um ferska mat-
vöru, heilsu- og snyrtivörur og vörur
fyrir mæður og börn þeirra.“
Ferðamönnum frá Kína hefur
fjölgað síðustu ár. Teitur segir að
spár geri ráð fyrir að þeir verði 100
þúsund á Íslandi í ár, sem myndi
þýða um 20% fjölgun. Vænta megi
að kínverskum ferðamönnum fjölgi
enn frekar á næstu árum, sér í lagi
ef eitthvert flugfélag sér hag sinn í
að bjóða upp á beint flug milli land-
anna.
„Þetta eru eftirsóknarverðir
ferðamenn, þeir eyða meiri pen-
ingum en flestir aðrir. En þeir eru
líka kröfuharðir og vilja að komið sé
til móts við þá á eigin tungumáli.
Mér finnst það vera eins og að skilja
eftir peninga á borðinu að nýta ekki
þær leiðir sem eru í boði til að ná til
þessa fólks. Heimurinn er að minnka
og allt er að verða einfaldara. Ís-
lensk fyrirtæki ættu að kynna sér
hvaða möguleikar eru þarna úti.“
Mikil sóknarfæri í
viðskiptum við Kína
Kínverjar eru leiðandi í símagreiðslum. Að sögn Teits
eru þeir á góðri leið með að losa sig alfarið bæði við
reiðufé og kort. WeChat Pay er vinsælasta lausnin í
verslunum og AliPay í netverslunum.
„Kínverjar nota QR-kóða í öll innkaup, þeir eru óðir í
QR-kóða. Rétt eins og Evrópubúar ætlast Kínverjar til
þess að geta notað eigin greiðsluhætti þegar þeir
ferðast. Fyrir vikið er hægt að koma sér upp forskoti
með því að innleiða WeChat Pay og AliPay í verslunum á
Íslandi. Rannsóknir hafa sýnt að 59% af verslunum í
Evrópu sem bjóða upp á þessar lausnir auka sölu sína. Og með því að
vera sýnilegur á WeChat geturðu náð til mögulegra viðskiptavina áður en
þeir leggja af stað í ferðalagið,“ segir Teitur Jónasson.
Gera allt í einu appi
KÍNVERJAR NOTA WECHAT TIL GREIÐA FYRIR VÖRUR
Teitur Jónasson
Samskiptaforritið WeChat sameinar margar þjónustur í einu forriti
Skilaboð Fréttaveitur Samfélagsmiðlar Farsímagreiðslur