Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn SÍLDIN FRÁ DJÚPAVOGI ER KOMIN KLAUSTUR-BLEIKJA GLÆNÝ LÍNUÝSA Talsmenn ríkis- stjórnarinnar dylja fyr- ir þjóðinni, að með stað- festingu samþykktar um réttindi farandfólks (Global Compact for Safe, Orderly and Reg- ular Migration), er ekki aðeins verið að skuld- binda landsmenn til að innleiða markmið sátt- málans á Íslandi, heldur hafa skil- málar tveggja annarra sjálfstæðra samþykkta verið staðfestir í leiðinni sem hvergi er greint frá. Annars veg- ar skuldbindingar ríkisins gagnvart flóttamönnum (Global Compact for Refugees) (3.gr.) og hins vegar Ag- enda 2030 (18. gr.) sem er útópía sósí- alismans um paradís á jörðu ár 2030. SÞ vill komast þangað með skatta- hækkunum á þeim „efnameiri“ og fjárfærslum til þeirra „efnaminni“. Það eru því samtals þrjár samþykktir í þessum eina pakka sem kenndur er við réttindi farandfólks. Ríkisstjórn Katrínu Jakobsdóttur hefur án opinberrar umræðu skuld- bundið Ísland að fylgja samþykkt SÞ um réttindi farandsfólks. Ásta Sigur- björnsdóttir, formaður utanríkis- nefndar, segir samþykktina ekki lög- lega bindandi fyrir Ísland. Í sam- þykkt SÞ er tvisvar sagt að hún sé ekki löglega bindandi en 84 sinnum talað um skuldbindingar. Að segja að ekkert sé að marka bindandi loforð er að sjálfsögðu það sama og segja að ekkert sé að marka ríkisstjórnina, sem samþykkti SÞ-pakkann fyrir Ís- lands hönd. Ríkisstjórn Íslands hefur staðfest „að ekkert ríki geti sjálft tekið á mál- efnum innflytjenda“ (15. gr.) og lokað á að þjóðin geti ráðið því hverjum hleypt er inn í landið. Ýmis ríki, t.d. Banda- ríkin, Ísrael og Ástralía, hafna samningnum þar sem þau vilja sjálf stjórna eigin landamærum. Þrettán herforingjar réðuFrakklandsforseta frá undirritun. Í Belgíu olli samþykktin stjórnar- slitum. Þegar Bandaríkin töldu ekki lengur stætt á að leggja nafn sitt við mann- réttindaráð SÞ m.a. vegna einræðis- ríkja eins og Kína og Venúzúela, þá býðst Ísland til að breyta heiminum „innan frá“. Me too hefur greinilega stigið vinstri stjórn Katrínar Jakobs- dóttur svo til höfuðs að kosta má löng ræðuhöld í málstofu SÞ um glæsi- legan árangur jafnréttisbaráttunnar á Íslandi. Þykir ekkert mál að skipta út góðu orðspori þjóðarinnar fyrir varaforsetastól sem síðan er notaður sem afsökun fyrir einræðisríki til að fremja mannréttindabrot. Mætti ætla að utanríkisnefnd telji, að Sádi- Arabar og Sameinuðu furstadæmin innleiði tafarlaust lýðræði og kynja- jafnrétti, vegna tilmæla íslensku sendinefndarinnar. Eða þá að heim- urinn standi agndofa þegar Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra birtist í vel mynduðu ræðupúlti og flytur sköpun paradísar „innan frá“. Markmið, skuldbindingar, skil- málar og stefnuyfirlýsingar sam- þykktanna þriggja eru óframkvæm- anlegar þegar samherjarnir hunsa lýðræðið. Skattfé er mokað í gagns- lausa skriffinnsku, orðavaðal og út- ópíu vinstri manna sem setur kom- andi kynslóðir í áhættubönd sem enginn veit hvað kostar. Fyrir utan að vera stjórnarskrárbrot gæti þessi stólahégómi orðið dýrkeyptari en Ice- save. Agenda 2030 er þvílíkt loforða- moð að sjálft Kommúnistaávarpið læðist með veggjum. Hin nýja sjálf- skipaða öreigastjórn Íslands lofar á næstu 12 árum að  útrýma hungri og fátækt í heim- inum  skapa jafnan aðgang allra jarðar- búa að fjármagni og náttúru- auðlindum  afnema allar niðurgreiðslur land- búnaðarafurða  helminga umferðarslys og andlát í umferðinni  útrýma kúgun kvenna  útvega öllum jarðarbúum ríkis- fang, fæðingarvottorð og per- sónuskilríki  útvega öllum jarðarbúum innan- hússsalerni  tvöfalda orkuafköst heims  skapa 7% árlegan hagvöxt í þró- unarlöndunum  skapa fulla atvinnu fyrir alla jarðarbúa að meðtöldum ung- lingum og fötluðum  koma á sömu launum fyrir sömu vinnu  vernda réttindi farandverkafólks og kveninnflytjenda  tryggja hærri launaaukningu hjá 40% íbúum heims með lægstu launin en hjá öðrum  eyða öllum slumhverfum og út- vega húsnæði handa öllum jarðarbúum  greiða 100 miljarða dollara ár- lega eftir 2020 til þróunarland- anna vegna loftslagsbreytinga  stöðva allar ólöglegar fiskveiðar í heiminum 2020 og setja lög um heimsstjórn fiskveiða  auka tekjur þróunarlanda með nýjum sköttum  auka stöðugleika heims með sameiningu stjórnmála í sam- ræmda stefnu  styðja Agenda 2063 fyrir Afríku- sambandið  framfylgja öllum markmiðum og loforðum pakkans  gera refsivert að gagnrýna inn- flytjendur og kenna fjölmiðlum að fjalla rétt um málin. Ofurmenni ríkisstjórnarinnar fara létt með að útvega ferðamönnum sal- erni innanhúss og útrýma fátækt elli- lífeyrisþega og öryrkja. Að allir fá hús- næði á viðráðanlegu verði ætti þá ekki að taka meira en 12 daga á Íslandi. Á meðan sósíalíski Internationalen og Progressive Allians verða fyrir skakkaföllum í landi eftir landi, þar sem fólk rís upp gegn yfirstjórn and- litslausra yfirboðara sem enginn hef- ur kosið eða getur sett úr embætti, þá hleypur ríkisstjórn Íslands til og að- stoðar alþjóðasósíalismann í her- búðum SÞ og ESB fyrir það eitt að fá að komast í ræðupúlt SÞ. Væri ekki nær að fylgja áratuga vinum og samherjum eins og Banda- ríkjamönnum að málum? Samið um útópíu sósíalismans Eftir Gústaf Adolf Skúlason » Að segja að ekkertsé að marka bind- andi loforð er að sjálf- sögðu það sama og segja að ekkert sé að marka ríkisstjórnina sem sam- þykkti SÞ-pakkann. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er smáfyrirtækjarekandi og fv. ritari Smáfyrirtækjabandalags Evrópu. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem not- anda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.