Morgunblaðið - 02.01.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 02.01.2019, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Hrönn Þorgeirsdóttir, þroskaþjálfi í Reykjavík, fagnar þrítugs-afmæli sínu í dag. Hrönn starfar sem verkefnastjóri á leik-skólanum Jörfa í Bústaðahverfi. „Starfið felst í því að stuðla að faglegu starfi í leikskólanum og passa að yngsta kynslóðin læri sem mest. Ég starfa með öllum börn- um á leikskólanum og öllu starfsfólkinu þar,“ segir Hrönn, en hún er jafnframt þriggja barna móðir og hefur því í nægu að snúast. Hrönn er í sambúð með Guillaume Rémy Kermen listskautara. Guillaume er frá Frakklandi og starfar sem listskautakennari í Skautahöllinni í Laugardal. Lengst af hefur parið búið saman á Ís- landi. Þau hafa verið búsett hér á landi samfleytt í þrjú ár en fyrir það ferðuðust þau mikið saman um Evrópu. Börn þeirra Hrannar og Guillaume eru þau Tómas Ingi, f. 2011, Elísa, f. 2014 og Mattías, f. 2017. „Það snýst allt um börnin og það er nóg að gera,“ segir Hrönn. Hún segir að enn sé óákveðið hvernig afmælisdeginum verði varið en líklegast muni hún þó gera sér dagamun í tilefni dagsins. „Við byrjum daginn á vinnu en svo kemur það bara í ljós,“ segir Hrönn að lokum glöð í bragði. Fjölskyldan Hrönn og Guillaume ásamt Elísu, Mattíasi og Tómasi Inga. Afmælisdagurinn hefst í vinnunni Hrönn Þorgeirsdóttir er þrítug í dag E rla Wigelund Krist- jánsson fæddist í Grindavík 31.12. 1928. Fljótlega eftir fæð- ingu hennar flutti fjöl- skyldan til Keflavíkur. Þegar Erla var 12 ára flutti fjölskyldan síðan til Reykjavíkur. Erla var í Barnaskóla Keflavíkur, í barnaskóla í Reykjavík og lauk gagnfræðaprófi frá Ingimarsskóla við Lindargötu. Erla starfaði um skeið á lög- fræðistofu í Reykjavík og sinnti síð- an verslunarstörfum í Snyrti- vöruversluninni Ókulus í Austurstræti. Um þær mundir sótti hún nám við Leiklistarskóla Ævars R. Kvaran en þar kynntist hún lífs- förunaut sínum, Kristjáni Krist- jánssyni tónlistarmanni. Kristján var hljómsveitarstjóri Erla Wigelund Kristjánsson, fv. kaupmaður – 90 ára Við púltið Erla tekur á móti viðurkenningu frá Félagi kvenna í atvinnurekstri. Hún er lipur og röggsöm ræðukona. Erla í Verðlistanum – kaupmaður í hálfa öld Fínt fólk á Grillinu Hér er fjölskyldan úti að borða á Hótel Sögu um 1962. Reykjavík Rósa María Axelsdóttir fæddist 2. febrúar 2018 kl. 22.01. Hún vó 2.946 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Sunna Rós Svansdóttir og Axel Helgason. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.