Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
Útsölustaðir:
• Guðsteinn Eyjólfsson – Laugavegi
• Heimkaup.is
• Hagkaup
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Laugavegi
• Karlmenn – Laugavegi
• Vinnufatabúðin – Laugavegi
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Skóbúð Húsavíkur
• Haraldur Júlíusson – Sauðárkróki
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Bjarni Eiríksson – Bolungarvík
• Grétar Þórarinsson – Vestmannaeyjum
• Axel Ó – Vestmanneyjum
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Stay Original
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú hafir í mörg horn að líta
máttu aldrei gleyma því að gera vel við þig
sjálfa/n. Þú ert lukkunnar pamfíll, mundu
að þakka fyrir það.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að sjá hlutina í réttu ljósi áð-
ur en þú lætur til skarar skríða. Þú færð
heimboð sem á eftir að breyta lífi þínu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að ræða erfitt mál við vin er
besta leiðin til þess að komast yfir það.
Eitthvað áhugavert og óvenjulegt vekur
áhuga þinn. Haltu þínu striki ótrauð/ur
hvað sem hver segir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt yfirleitt sértu staðföst/fastur
áttu það samt til að láta glepjast af gylli-
boðum. Gefðu hluti sem þú ert hætt/ur að
nota, það fylgir því léttir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Í dag má auðveldlega leysa deilumál
sem upp hafa komið milli vina. Þolinmæði
þín er af skornum skammti en láttu það
ekki bitna á samferðafólki þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eina mínútuna ertu að skipuleggja
frí, þá næstu að kaupa íbúð, þú flögrar út
um allt. Skrifaðu drauma þína niður, þannig
nærðu að skipuleggja þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert í toppformi. Einbeittu þér að
því að sýna öðrum tillitssemi og ekki
dæma annað fólk. Næsta sumar verður
viðburðaríkt, svo vægt sé til orða tekið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ímyndunaraflið er af hinu
góða ef menn kunna að hafa á því hemil og
gera greinarmun á draumi og veruleika. Þú
ert skynsemin uppmáluð í öllu sem þú
gerir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú vekur athygli annarra og
finnst notalegt að baða þig í henni. Reyndu
að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu einskis ófreistað til þess
að fá forvitni þinni svalað. Þú hefur gott
nef fyrir fréttum og upplýsingum. Ekki
spenna bogann of hátt í fasteigna-
viðskiptum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu á varðbergi gagnvart þeim
sem eru bara að hugsa um hvernig þú getir
gagnast þeim. Sælla er að gefa en þiggja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki gefa þumlung eftir í kröfum
þínum, sem eru réttmætar. Þú ert að vakna
upp af þyrnirósarsvefni og sérð ástvin í
nýju óvæntu ljósi.
Arnar Sigbjörnsson birtiútskriftarvísu á Leir fyrir
jólin í tilefni þess að dóttir hans
varð stúdent frá ME í vikunni og
flutti Arnar henni vísu í tilefni
áfangans. Mér finnst fara vel á að
Vísnahorn hefji nýtt ár með þess-
ari kveðju og árnaðaróskum:
Bergrún þú varst barn í gær
böðuð æskuljóma.
Núna ert þú menntuð mær
í mesta lífsins blóma.
Tækifæri í tugafans
á trjánum virðast spretta
og víst er helsti vandi manns
að velja kostinn rétta.
Framundan er ferðalag
og fjölskrúðugir vegir.
Lifðu í sóma sérhvern dag
sama hvert þú beygir.
Á Þorláksmessu orti Helgi R.
Einarsson og sagði að skötuilm-
urinn mun brátt taka völdin, en
það er fleira sem má leggja sér
til munns og er sumum að skapi:
Þorlákur þakk- var oft -látur
þegar í kvöldmat fékk slátur
og ef hann fékk nóg
af ánægju hló,
var aldeilis ljómandi kátur.
Kötturinn Jósefína Meulen-
gracht Dietrich og frændi hennar
Eiður stilltu sér upp í eldhúsinu á
aðfangadag og sungu jólasálminn
fallega:
Jólakalkún, jólanaut
jólamjólk í krúsina,
jólaostinn, jólagraut,
jólatréð og músina.
Séra Gamalíel prestur í Mýrdal
varð úti á Arnarstakksheiði í
frosti og snjó og fannst undir
steini einum. Hafði hann klappað
með broddstaf vísu þessa á stein-
inn:
Ein er kindin úti í vindinum,
illa fer;
standa vindir stafir blindir
á steini hér,
gæti þess lýðir: gert hefur smíði
Gamalíel.
Guðmundi á Sandi var brugðið
um elli:
Mér þó Elli búi ból,
brún mín helst í skorðum, –
ann ég bæði óttu og sól
enn þá líkt og forðum.
Og um mann, sem las lygið
málgagn brosandi, orti Guð-
mundur:
Elska meir en úrvals-dygð
ermafalinn kuta
þeir, sem geta látið lygð
liggja milli hluta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Útskriftarvísa og fleira gott
„VIÐ SKULUM LÁTA ÞAÐ VERA OG SJÁ
SVO TIL HVERNIG ÞÉR LÍÐUR Í NÆSTU
VIKU.”
„éG SKIL EKKI HVERNIG ÞÆR KOMUST
ALLAR INN. Ég er alltaf meÐ búriÐ
LÆST!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... erfitt að festa á blað.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
JÆJA, ÞETTA ER SÍÐASTA
JÓLASMÁKAKAN
EF VIÐ BORÐUM HANA VERÐA
JÓLIN RAUNVERULEGA BÚIN
TÍMINN LÆKNAR
ÖLL SÁR
SENDU KOKKINN FRAM SVO ÉG GETI KVARTAÐ!
VILT ÞÚ
KVARTA UNDAN
EINHVERJU?
JÁ! HVÍ HÖFUM VIÐ
EKKI HIST FYRR?
Áramótin nálgast og Víkverjistendur á lítilli hæð á höfuð-
borgarsvæðinu ásamt fjölskyldu og
vinum með tertuna og flugeldana
sem voru keypt fyrr um daginn. Á
hæðinni er fleira fólk og Víkverji sér
ekki betur en að það sé með búslóð-
ina með sér, stæður af stórum köss-
um og alls kyns hafurtask. Einn úr
hópnum grípur einn kassann, kemst
með hann eina 15 til 20 metra áður
en hann lætur hann niður. Víkverji
heldur að maðurinn þurfi að hvíla
sig, en þá dregur hann fram eldfæri
og leggur eld að kassanum. Víkverji
ætlar að fara að segja honum að það
sé nú kannski óþarfi að kveikja í eig-
um sínum, en þá byrja eldkúlur að
skjótast upp úr kassanum og springa
uppi í himninum með miklum glær-
ingum og litadýrð. Þannig heldur
sýningin áfram drykklanga stund.
Hver kassinn á eftir öðrum er dreg-
inn fram, kveikt í og upp úr þeim
koma slík herlegheit að ekki er ann-
að hægt en að fylgjast agndofa með.
x x x
Seint og um síðir tekst Víkverja aðskjóta sér að með litlu tertuna
sína. Hún er á stærð við skókassa og
minnir kannski fremur á eldspýtu-
stokk í samanburði við koffortin,
sem hann hefur fylgst með springa í
loft upp. Víkverji var samt fjall-
ánægður með litlu tertuna sína.
Honum finnst flugeldarnir sínir vita-
skuld alltaf bestir og fer ekkert ofan
af því sama hvað á gengur í kringum
hann.
x x x
Þó rifjaðist upp fyrir honum atriðiúr myndinni Ókindinni þar sem
þrír menn eru á báti í leit að mann-
ætuhákarli, tveir vanir menn og einn
viðvaningur. Vönu mennirnir
skiptast á sögum af því þegar þeir
komust í tæri við hákarla og sýna ör-
in, hvert öðru ógurlegra, sem þeir
bera frá þeim viðureignum. Viðvan-
ingurinn þegir, lyftir peysunni sinni
svo lítið ber á þannig að glyttir í ör
eftir botnlangaskurð, og ákveður að
hann hafi ekkert til málanna að
leggja. Dálítið eins og Víkverji með
litlu raketturnar sínar á meðan hann
fylgdist með stórskotaliðinu á gaml-
árskvöld. vikverji@mbl.is
Víkverji
En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir
Guði hjálpræðis míns. Guð minn
mun heyra til mín.
(Míka 7.7)