Morgunblaðið - 02.01.2019, Page 33

Morgunblaðið - 02.01.2019, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 Besta hugmynd sviðsgerðarNikolajs Cederholms áEinræðisherra Chaplins,sú hugmynd þar sem leik- húsið blómstrar best á eigin for- sendum í samspili sviðs og salar, er lokaaugnablik sýningarinnar. Hér verður ekki ljóstrað upp hvernig það er en látið nægja að segja að það sé töluvert brilljant og var jafnvel enn snjallara á frumsýningu en það verð- ur eftirleiðis, þökk sé forseta vorum, sem átti stórleik. Að öðru leyti fylgir Cederholm atriðakeðju myndarinnar af mikilli trúmennsku, sennilega of mikilli, en leyfir sér á hinn bóginn að breyta texta og endurstilla persónu- galleríið til að skapa verkinu meiri trúverðugleika og skýrara nútíma- erindi. Sem er alltaf hættuspil, jafn- vel þegar efniviðurinn er ekki meira meistarastykki en þessi djarfa en dá- lítið sundurlausa og þegar upp er staðið ekki fyllilega heppnaða tilraun Chaplins. Í stuttu máli þá vindur tveimur sögum fram í Einræðisherranum. Annars vegar fylgjumst við með valdsmanninum og gyðingahatar- anum Hynkel búa sig undir land- vinningastríð en á hinn bóginn kynn- umst við hlutskipti gyðinga borgar- innar í gegnum augu minnislauss rakara sem fellur fyrir fátækri og blóðheitri stúlku í hverfinu og býr að hetjudáð úr fyrra stríði þar sem hann bjargaði lífi flugmanns sem komist hefur til metorða í vígvél harðstjórans. Dramatísk grunn- hugmynd verksins er síðan sú að sami leikari fer með hlutverk Hynk- els og rakarans, sem á endanum er tekinn í misgripum fyrir einræðis- herrann og fær tækifæri til að ávarpa herinn, almenning og áhorf- endur og boða frið og farsæld á þröskuldi stríðsins sem við vitum núna að varð heimsstyrjöld nr. 2. Það hefur þurft ómælda einurð fyrir skærustu kvikmyndastjörnu heimsins, mann sem augu allra beindust að, að undirbúa þessa árás á ímynd voldugs leiðtoga sem yfir- völd í heimalandi stjörnunnar höfðu engan áhuga á að styggja, meðan óveðursskýin hrönnuðust upp fyrir austan haf 1938-39. Sem greining á ógnum og gangverki nasismans býr hún vitaskuld við takmarkanir formsins og er auk þess „barn síns tíma“ í bókstaflegum skilningi: þó að Chaplin hefði aðgang að sögum flóttamanna frá þriðja ríkinu um gyðingaofsóknir og ógnarstjórn nas- ista var helvíti stríðsins að mestu í framtíðinni, sem og „lokalausnin“, útrýmingarherferðin sem yfirskygg- ir með réttu allt annað í eftirmælum Hitlers og hugmyndafræði hans. Sjálfur sagði Chaplin síðar að hefði hann vitað hvað í vændum var hefði hann látið Einræðisherrann ógerðan. Afstaða Cederholms til hráefnis- ins er marglaga, ef ekki hreinlega mótsagnakennd. Ugglaust telur hann erindi Einræðisherrans ótví- rætt sem innlegg í umræðu nútímans um alræðishættu og ómennsku, annars væri til lítils af stað farið. Á sama tíma sér hann þörf á að nútíma- væða boðskapinn að nokkru marki, einkum með því að breyta lokaræð- unni frægu og gera hana að umhverf- is- og dýraverndunarákalli í stað framfaratrúaðs húmanisma Chapl- ins. Gott og blessað sem erindi, en al- gerlega snertipunktalaust við allt sem á undan er gengið, fyrir utan flatneskju nýja textans í samanburði við meitlaða mælskulist fyrir- myndarinnar. Öllu verra er að skilja atlögur að því að styrkja tengsl skop- stælingarinnar við fyrirmyndina; tala um Berlín sem höfuðstað Tóm- aníu, nota þýsk ávörp og vitna í ræð- ur Hitlers. Hin einfalda, allt að því bernska nálgun Chaplins stendur alls ekki undir því að gera uppgang nasista og tak Hitlers á þýsku þjóð- inni skiljanleg þrátt fyrir þessar áherslubreytingar, sem eru til- gangur þeirra samkvæmt ummælum Cederholms í fjölmiðlum. Enn und- arlegri er sú ákvörðun að láta sam- skipti Hynkels og Napolinis fara fram á ensku í opinberri heimsókn þess síðarnefnda. En vitaskuld er samfélagslegt erindi ekki nema hluti þess sem kallar fólk að Einræðisherranum. Varla einu sinni stærsti hlutinn. Þetta er ekki síst skrípó. Fólk að detta á rassinn og berja hvað annað í höfuðið með búsáhöldum. Eltinga- leikir. Chaplin. Það verður að segj- ast að leikhópurinn nær ekki alveg ballett-líkum léttleikanum og áreynsluleysinu sem einkennir meistarann, en birtist líka í fram- göngu mótleikara hans, þökk sé vægðarlausri fullkomnunaráráttu mannsins. Stundum ná þau í skottið á flæðinu, sérstaklega í samfelldum eltingaleiks- og slagsmálaatriðum, vel studd af bráðsnjallri leikmynd Kim Witzel og meistaralegri fram- göngu Karls Olgeirssonar, hljóð- myndarsmiðs og áhrifshljóðstjóra. Aldrei verður flugið samt algert, hvort sem það má skrifast á reikn- ing slapstick-stjórans Kaspers Ravnhøjs eða óvana leikhópsins. Svo glímir gleðin við grafalvarlegan bakgrunninn sem kæfir hláturinn alltaf þegar hann vill brjótast fram. Er í alvörunni hlæjandi að þessu? Þó svo slapstickið sé ekki alltaf upp á tíu nýtast kómískir hæfileikar einstakra leikara ágætlega. Það er óhætt að segja að Sigurður Sigur- jónsson beri sýninguna á herðum sér í aðalhlutverkunum báðum. Hynkel er óneitanlega bitastæðari persóna og þar nýtast týpusmíða- hæfleikar og kómískar tímasetn- ingar Sigurðar best, sérstaklega í samleiknum við undirsátana tvo; ill- yrmislegan Gubbels Guðjóns Dav- íðs Karlssonar og Boring flugmar- skálk sem var kostulegur í með- förum Ólafíu Hrannar Jónsdóttur. Ilmur Kristjánsdóttir þótti mér ekki ná að gera hina eintóna Hönnu áhugaverða, en persónur Hönnu og rakarans, og samband þeirra, eru veikir punktar frá hendi höfundar myndarinnar. Þröstur Leó Gunn- arsson glímir við gyðinginn Jaeckel, sem Cederholm hefur reynt að ljá bitastæðari persónuleika en í mynd- inni án þess að það hafi nokkur áhrif á gang mála, en Þröstur leysir verk- efnið snurðulaust en tilþrifalítið. Sama má segja um Hallgrím Ólafs- son og heldur litlausa hetjuna Schultz. Napolini er dæmigerður Sviðs-Ítali hjá Pálma Gestssyni, og þær senur ná ekki flugi, frekar en í myndinni. Oddur Júlíusson og Sig- urður Þór Óskarsson hlaupa milli smáhlutverka og leysa allt vel, og ef einhver ætti að fá stjörnu fyrir slap- stick-fimi þá væri það Sigurður Þór. Leikmyndin er í stóru hlutverki eins og fyrr segir, prýðilega lýst af Ólafi Ágústi Stefánssyni. Búningar Line Bech eru hinir ágætustu, þó að velta megi fyrir sér hvort betur hefði farið á að fjarlægjast ein- kennisbúninga nasismans meira, en það lýtur aftur að grundvallarnálg- un leikstjórans sem ég hef efasemd- ir um eins og fram hefur komið. Kvikmynd Chaplins er langt í frá gallalaust verk. Vera má að Nikolaj Cederholm deili ekki þeirri skoðun minni. Allavega eltir hann bláþráð- ótta og stefnulausa atburðakeðjuna af mikilli trúmennsku og sviðsetur jafnvel atriði sem engan veginn njóta sín á sviði (t.d. móttöku Napolinis á lestarstöðinni, sem er mislukkuð í myndinni og afleit hér). Aftur á móti leitast hann við að skýra og uppfæra boðskapinn, sem ekki verður alltaf í takti við verkið. Skemmtigildi sýningarinnar líður dálítið fyrir þessa áherslu og lítið græðist af samfélagslegu erindi. Að auki standa tveir senuþjófar í sviðsvængjunum. Charlie Chaplin með sína snilligáfu sem skyggir á jafnvel hæfileikaríkasta fólk, og svo Adolf Hitler sem kæfir hverja hláturroku í fæðingu með alkunnri illsku sinni. Er hlæjandi að þessu? Ljósmynd/Hörður Sveinsson Þjóðleikhúsið Einræðisherrann bbbnn Eftir Charlie Chaplin. Íslensk þýðing: Magnea J. Matthíasdóttir. Leikgerð og leikstjórn: Nikolaj Cederholm. Meðleik- stjóri: Malene Begtrup. Leikmynd: Kim Witzel. Búningar: Line Bech. Tónlistar- stjórn, píanóleikur og leikhljóð: Karl Olgeirsson. Sviðshreyfingar: Anja Gaardbo. Slapstick (skrípalæti, hlátra- skellur): Kasper Ravnhøj. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson. Leikarar: Sigurður Sigur- jónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Oddur Júl- íusson og Sigurður Þór Óskarsson. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins 26. desember 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Burður „Það er óhætt að segja að Sigurður Sigurjónsson beri sýninguna á herðum sér í aðalhlutverkunum báðum,“ segir í rýni. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.