Morgunblaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
Besta hugmynd sviðsgerðarNikolajs Cederholms áEinræðisherra Chaplins,sú hugmynd þar sem leik-
húsið blómstrar best á eigin for-
sendum í samspili sviðs og salar, er
lokaaugnablik sýningarinnar. Hér
verður ekki ljóstrað upp hvernig það
er en látið nægja að segja að það sé
töluvert brilljant og var jafnvel enn
snjallara á frumsýningu en það verð-
ur eftirleiðis, þökk sé forseta vorum,
sem átti stórleik. Að öðru leyti fylgir
Cederholm atriðakeðju myndarinnar
af mikilli trúmennsku, sennilega of
mikilli, en leyfir sér á hinn bóginn að
breyta texta og endurstilla persónu-
galleríið til að skapa verkinu meiri
trúverðugleika og skýrara nútíma-
erindi. Sem er alltaf hættuspil, jafn-
vel þegar efniviðurinn er ekki meira
meistarastykki en þessi djarfa en dá-
lítið sundurlausa og þegar upp er
staðið ekki fyllilega heppnaða tilraun
Chaplins.
Í stuttu máli þá vindur tveimur
sögum fram í Einræðisherranum.
Annars vegar fylgjumst við með
valdsmanninum og gyðingahatar-
anum Hynkel búa sig undir land-
vinningastríð en á hinn bóginn kynn-
umst við hlutskipti gyðinga borgar-
innar í gegnum augu minnislauss
rakara sem fellur fyrir fátækri og
blóðheitri stúlku í hverfinu og býr að
hetjudáð úr fyrra stríði þar sem
hann bjargaði lífi flugmanns sem
komist hefur til metorða í vígvél
harðstjórans. Dramatísk grunn-
hugmynd verksins er síðan sú að
sami leikari fer með hlutverk Hynk-
els og rakarans, sem á endanum er
tekinn í misgripum fyrir einræðis-
herrann og fær tækifæri til að
ávarpa herinn, almenning og áhorf-
endur og boða frið og farsæld á
þröskuldi stríðsins sem við vitum
núna að varð heimsstyrjöld nr. 2.
Það hefur þurft ómælda einurð
fyrir skærustu kvikmyndastjörnu
heimsins, mann sem augu allra
beindust að, að undirbúa þessa árás
á ímynd voldugs leiðtoga sem yfir-
völd í heimalandi stjörnunnar höfðu
engan áhuga á að styggja, meðan
óveðursskýin hrönnuðust upp fyrir
austan haf 1938-39. Sem greining á
ógnum og gangverki nasismans býr
hún vitaskuld við takmarkanir
formsins og er auk þess „barn síns
tíma“ í bókstaflegum skilningi: þó að
Chaplin hefði aðgang að sögum
flóttamanna frá þriðja ríkinu um
gyðingaofsóknir og ógnarstjórn nas-
ista var helvíti stríðsins að mestu í
framtíðinni, sem og „lokalausnin“,
útrýmingarherferðin sem yfirskygg-
ir með réttu allt annað í eftirmælum
Hitlers og hugmyndafræði hans.
Sjálfur sagði Chaplin síðar að hefði
hann vitað hvað í vændum var hefði
hann látið Einræðisherrann
ógerðan.
Afstaða Cederholms til hráefnis-
ins er marglaga, ef ekki hreinlega
mótsagnakennd. Ugglaust telur
hann erindi Einræðisherrans ótví-
rætt sem innlegg í umræðu nútímans
um alræðishættu og ómennsku,
annars væri til lítils af stað farið. Á
sama tíma sér hann þörf á að nútíma-
væða boðskapinn að nokkru marki,
einkum með því að breyta lokaræð-
unni frægu og gera hana að umhverf-
is- og dýraverndunarákalli í stað
framfaratrúaðs húmanisma Chapl-
ins. Gott og blessað sem erindi, en al-
gerlega snertipunktalaust við allt
sem á undan er gengið, fyrir utan
flatneskju nýja textans í samanburði
við meitlaða mælskulist fyrir-
myndarinnar. Öllu verra er að skilja
atlögur að því að styrkja tengsl skop-
stælingarinnar við fyrirmyndina;
tala um Berlín sem höfuðstað Tóm-
aníu, nota þýsk ávörp og vitna í ræð-
ur Hitlers. Hin einfalda, allt að því
bernska nálgun Chaplins stendur
alls ekki undir því að gera uppgang
nasista og tak Hitlers á þýsku þjóð-
inni skiljanleg þrátt fyrir þessar
áherslubreytingar, sem eru til-
gangur þeirra samkvæmt ummælum
Cederholms í fjölmiðlum. Enn und-
arlegri er sú ákvörðun að láta sam-
skipti Hynkels og Napolinis fara
fram á ensku í opinberri heimsókn
þess síðarnefnda.
En vitaskuld er samfélagslegt
erindi ekki nema hluti þess sem
kallar fólk að Einræðisherranum.
Varla einu sinni stærsti hlutinn.
Þetta er ekki síst skrípó. Fólk að
detta á rassinn og berja hvað annað
í höfuðið með búsáhöldum. Eltinga-
leikir. Chaplin. Það verður að segj-
ast að leikhópurinn nær ekki alveg
ballett-líkum léttleikanum og
áreynsluleysinu sem einkennir
meistarann, en birtist líka í fram-
göngu mótleikara hans, þökk sé
vægðarlausri fullkomnunaráráttu
mannsins. Stundum ná þau í skottið
á flæðinu, sérstaklega í samfelldum
eltingaleiks- og slagsmálaatriðum,
vel studd af bráðsnjallri leikmynd
Kim Witzel og meistaralegri fram-
göngu Karls Olgeirssonar, hljóð-
myndarsmiðs og áhrifshljóðstjóra.
Aldrei verður flugið samt algert,
hvort sem það má skrifast á reikn-
ing slapstick-stjórans Kaspers
Ravnhøjs eða óvana leikhópsins.
Svo glímir gleðin við grafalvarlegan
bakgrunninn sem kæfir hláturinn
alltaf þegar hann vill brjótast fram.
Er í alvörunni hlæjandi að þessu?
Þó svo slapstickið sé ekki alltaf
upp á tíu nýtast kómískir hæfileikar
einstakra leikara ágætlega. Það er
óhætt að segja að Sigurður Sigur-
jónsson beri sýninguna á herðum
sér í aðalhlutverkunum báðum.
Hynkel er óneitanlega bitastæðari
persóna og þar nýtast týpusmíða-
hæfleikar og kómískar tímasetn-
ingar Sigurðar best, sérstaklega í
samleiknum við undirsátana tvo; ill-
yrmislegan Gubbels Guðjóns Dav-
íðs Karlssonar og Boring flugmar-
skálk sem var kostulegur í með-
förum Ólafíu Hrannar Jónsdóttur.
Ilmur Kristjánsdóttir þótti mér
ekki ná að gera hina eintóna Hönnu
áhugaverða, en persónur Hönnu og
rakarans, og samband þeirra, eru
veikir punktar frá hendi höfundar
myndarinnar. Þröstur Leó Gunn-
arsson glímir við gyðinginn Jaeckel,
sem Cederholm hefur reynt að ljá
bitastæðari persónuleika en í mynd-
inni án þess að það hafi nokkur áhrif
á gang mála, en Þröstur leysir verk-
efnið snurðulaust en tilþrifalítið.
Sama má segja um Hallgrím Ólafs-
son og heldur litlausa hetjuna
Schultz. Napolini er dæmigerður
Sviðs-Ítali hjá Pálma Gestssyni, og
þær senur ná ekki flugi, frekar en í
myndinni. Oddur Júlíusson og Sig-
urður Þór Óskarsson hlaupa milli
smáhlutverka og leysa allt vel, og ef
einhver ætti að fá stjörnu fyrir slap-
stick-fimi þá væri það Sigurður Þór.
Leikmyndin er í stóru hlutverki
eins og fyrr segir, prýðilega lýst af
Ólafi Ágústi Stefánssyni. Búningar
Line Bech eru hinir ágætustu, þó að
velta megi fyrir sér hvort betur
hefði farið á að fjarlægjast ein-
kennisbúninga nasismans meira, en
það lýtur aftur að grundvallarnálg-
un leikstjórans sem ég hef efasemd-
ir um eins og fram hefur komið.
Kvikmynd Chaplins er langt í frá
gallalaust verk. Vera má að Nikolaj
Cederholm deili ekki þeirri skoðun
minni. Allavega eltir hann bláþráð-
ótta og stefnulausa atburðakeðjuna
af mikilli trúmennsku og sviðsetur
jafnvel atriði sem engan veginn
njóta sín á sviði (t.d. móttöku
Napolinis á lestarstöðinni, sem er
mislukkuð í myndinni og afleit hér).
Aftur á móti leitast hann við að
skýra og uppfæra boðskapinn, sem
ekki verður alltaf í takti við verkið.
Skemmtigildi sýningarinnar líður
dálítið fyrir þessa áherslu og lítið
græðist af samfélagslegu erindi.
Að auki standa tveir senuþjófar í
sviðsvængjunum. Charlie Chaplin
með sína snilligáfu sem skyggir á
jafnvel hæfileikaríkasta fólk, og svo
Adolf Hitler sem kæfir hverja
hláturroku í fæðingu með alkunnri
illsku sinni.
Er hlæjandi að þessu?
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Þjóðleikhúsið
Einræðisherrann bbbnn
Eftir Charlie Chaplin. Íslensk þýðing:
Magnea J. Matthíasdóttir. Leikgerð og
leikstjórn: Nikolaj Cederholm. Meðleik-
stjóri: Malene Begtrup. Leikmynd: Kim
Witzel. Búningar: Line Bech. Tónlistar-
stjórn, píanóleikur og leikhljóð: Karl
Olgeirsson. Sviðshreyfingar: Anja
Gaardbo. Slapstick (skrípalæti, hlátra-
skellur): Kasper Ravnhøj. Lýsing: Ólafur
Ágúst Stefánsson. Hljóðmynd: Aron Þór
Arnarsson. Leikarar: Sigurður Sigur-
jónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón
Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson,
Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Oddur Júl-
íusson og Sigurður Þór Óskarsson.
Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins 26. desember 2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Burður „Það er óhætt að segja að Sigurður
Sigurjónsson beri sýninguna á herðum sér í
aðalhlutverkunum báðum,“ segir í rýni.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
ICQC 2018-20